Vísir - 08.11.1973, Page 8
8
Vísir. Fimmtudagur 8. nóvember 1973.
x 2 — 1 x 2
11. leikvika — leikir 3. nóvember, 1973.
Úrslitaröðin: 222 — XIX — 11X — XX2
1. vinningur 11 réttir — kr. 414.000.00:
14358.
2. vinningur: 10 réttir — kr. 9.800.00:
2760 21796 35858 38131 39554
40549 16841+ 22109 37088 38861
40182 40551 18986 23074 37545
39531 40433 41286+ +nafnlaus.
Kærufrestur er til 26. nóv. kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyðublöö fást hjá umboðsmönnum
og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað ef
kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 11. leikviku
veða póstlagðir eftir 27. nóv.
Handhafar nafnlausra seöla verða aö framvisa stofni
eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
heimilisfang til Getrauna fyrir greiösludag vinninga.
Getraunir — Iþróttamiöstööin — Reykjavik.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Sjóvátryggingarfélag Islands h.f. flytur i
nýtt húsnæði á Suðurlandsbraut 4 um
næstkomandi áramót og býður þvi til leigu
skrifstofuhúsnæði i húsi sinu Ingólfsstræti
5.
Nánari upplýsingar gefur Sigurður Jóns-
son, framkvæmdastjóri.
Sjóvátryggingarfélag íslands h.f.
Auglýsing um skoðun
léttra bifhjóla í
lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur
Mánudaginn
12. nóvember R- 1 til R- 50
Þriftjudaginn 13. nóvember R- 51 til R-100
Miðvikudaginn 14. nóvember R-101 til R-150
Fimmtudaginn 15. nóvember R-151 til R-200
Mánudaginn 19. nóvember R-201 til R-250
Þriðjudaginn 20. nóvember R-251 til R-300
Létt bifhjól, sem bera hærra skráningar-
númer en R-300 og ekki hafa mætt til aðal-
skoðunar, skulu koma miðvikudaginn 21.
nóvember.
Skoðunin verður framkvæmd fyrrnefnda
daga við bifreiðaeftirlitið að Borgartúni 7,
kl. 09.00 til 16.30.
Sýna ber við skoðun, að lögboðin vátrygg-
ing sé i gildi. Tryggingargjald ökumanns
fyrir árið 1973 og skoðunargjald ber að
greiða við skoðun.
Skoðun hjóla, sem eru i notkun i borginni,
en skrásett eru i öðrum umdæmum, fer
fram fyrrnefnda daga.
Vanræki einhver að koma hjóli sinu til
skoðunar umrædda daga, verður hann lát-
inn sæta sektum samkvæmt umferðarlög-
um og hjólið tekið úr umferð, hvar sem til
þess næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að
máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavik,
6. nóvember 1973.
Sigurjón Sigurðsson.
„Sjómennskan ekki
lengur í tízku"
— aukin skattfríðindi og húsnœði úti
ú landi myndi fjölga fólki í fiskiðnaði
— viðtöl við þútttakendur ó fiskiþingi
„Manneklan i fiskiðn-
aðinum á ísafirði á án
efa eftir að hafa mikil
áhrif i vetur, ef ekki
rætist úr. Ég held, að
fyrst og fremst þurfi að
auka ibúðarbyggingar á
ísafirði til þess að fá
fleira fólk þangað til
starfa” sagði Marias Þ.
Guðmundsson frá | ísa-
firði, en hann er forseti
fiskiþingsins, sem
haldið er i Reykjavik
Marfas l>. Guðniundsson frá lsa-
firði
þessa dagana. Við
ræddum við hann og
nokkra fleiri þátt-
takendur um mann-
ekluna á sjó og landi i
fiskiðnaði á hinum ýmsu
stöðum á landinu.
Marfas sagði, að nú ættu
Isfirðingar um 50 rækjubáta og 3
skuttogara og einn væntanlegan.
Sagði hann tekjurnar vera
svipaðar á rækju og á skut-
togurum, en þó væru tekjurnar á
togurunum heldur meiri til
lengdar. Nýi skuttogarinn er
væntanlegur til tsafjarðar um
miðjan febrúar i vetur. Vantar
mikið á nú, að hægt sé að útvega
þvi fólki, sem vinnur við fiskiðnað
á tsafirði, viðunandi húsnæði.
Meiri skattfriðindi
fyrir fók i fiskiðnaði.
,,Það vantar mikið af fólki bæði
á sjóinn og til vinnu við fiskinn i
landi. Við munum ræða hér á
fiskiþinginu um þann möguleika
til úrbóta að skattfriðindi verði
aukin til muna fyrir fólk, sem
vinnuraðfiskiðnaði. Það er enginn
vafi á þvi, að manneklan mun
hafa mikil áhrif á næstu vertið, ef
ekki rætist úr þessu”, sagði
Þorsteinn Jóhannesson úr Garði.
Verbúðir eru nú i byggingu i
Garði og sagði Þorsteinn, að
mikið vantaði á að nægileg lán
hefðu fengizt til þess að unnt væri
að ljúka við þá byggingu, og væri
svipað ástand viðar á landinu.
,,Það er allt útlit fyrir, að við
verðum að leggja nokkrum
bátum vegna skorts á
mannskap”, sagði Þorsteinn
ennfremur.
Engin skilyrði fyrir
skuttogara á ólafsfirði
,,Hjá okkur er ekki svo mikil
mannekla, nema þá helzt yfir
veturinn, en hins vegar eru
hafnarskilyrðin mjög slæm. Við
erum með einn skuttogara, en
höfum i rauninni engin skilyrði
fyrir hann”, sagði Sigvaldi Þor-
leifsson frá Ölafsfirði.
Ölafsfirðingar gera nú út tvo
stóra báta og einn skuttogara, og
hefur gengið vel að manna
bátana. Hins vegar skortir
nokkuð á, að nægilegur mann-
skapur sé i landi til að vinna úr
fiskinum i frystihúsunum
tveimur.
Þorsteinn Jóhannesson úr Garði
,,Við erum nokkuð bjartsýnir
með næstu vertið, og það er mikil
gróska hjá minni bátunum. En
okkur vantar tilfinnanlega fjár-
magn tii þess að bæta höfnina",
sagði Sigvaldi ennfremur.
30 milljónir til
Hornafjarðar en
600 til Þorlákshafnar
,,Það er augljóst, að ef það
kostar Þorlákshöfn 600 milljónir
að byggja höfn, þá gerum við litið
fyrir 30 milljónir á Hornafirði.
Margir halda, að lánið, sem
fengið var hjá Alþjóðabankanum
vegna gossins i Eyjum, eigi að
skiptast jafnt á milli Horna-
fjarðar, Þorlákshafnar og
Sigvaldi Þorleifsson frá Ólafs-
firði.
Grindavikur, en það er algjör
misskilningur”, sagði Kristján
Gústafsson frá Höfn i Hornafirði.
Þar eystra vantar mjög
sjómenn á flotann og hefur legið
við, að leggja þurfi bátum af
þessum sökum. Hornfirðingar
eiga nú um 15 báta, en engan
skuttogara, en stefna að þvi að fá
skuttogara þangað austur.
Ekki hefur verið teljandi
skortur á fólki til vinnu i
frystihúsinn, en vegna húsnæðis-
leysis hefur sumt af þessu fólki
þurft að búa á hótelinu.
,,Ég held ekki, að neitt leysist
við það að auka skattfriðindi sjó-
manna. Sjómennskan er bara
ekki lengur i tizku. Þetta er
hugarfarsbreyting hjá þjóðinni”,
sagði Kristján.
Hornfirðingar leggja nú mikla
áherzlu á að byggður verði
hafnargarður úr Einholtsklettum
út i Hvanneyjarsker, sem gæti
orðið lifhöfn fyrir Hornfirðinga
Er ljóst er, að ekki verður mikið
gert fyrir þær 30 milljónir, sem
Hornfirðingum eru ætlaðar af
láni Alþjóðabankans.
—ÞS
Kristján Gústafsson frá Höfn i
Hornafirði.