Vísir - 05.01.1974, Blaðsíða 9
Visir. Laugardagur 5. janúar 1974
9
Umsjón : Stefán Guójohnsen
Vestur spilar út laufatvisti gegn
sex laufum i suður.
Suður drepur og spilar spaðaáttu.
Ef vestur drepur á ásinn, þá getur
sagnhafi friað hjarta og kastað
einum tigli i spaðadrottningu og
öðrum i hjarta. Ef vestur gefur,
þá fær suður samt 12 slagi. Hann
á þrjár innkomur heim til þess að
fria hjartað og þá fjórðu til þess
að taka fria hjartað og kasta
spaðatvisti niöur. Siðan spilar
hann tiguláttu, og það er eini
slagurinn, sem vörnin fær.
Á opnu borði virðist aðeins eitt
útspil hnekkja slemmunni,
hjartatvistur út. Suður hleypir að
vfsu heim á áttuna, en hann er
bara i vandræðum að kasta úr
blindum. Prófið það. Ef tigli er
kastað, þá gefur vestur, þegar
spaða er spilað.en ef spaða er
kastað, þá drepur vestur, þegar
spaða er spilað.
En það kemur alltaf einn öörum
meiri. Segjum að vestur spili út
hjartatvisti, tigull úr blindum og
áttan heima. Þá er spaða spilað
og vestur gefur. Siöan er farið
tvisvar inn á tromp og hjarta
trompað i bæði skiptin, og i sjö-
unda slag fer suður inn á tromp.
Nú er hjartadrottningu spilað,
ásinn frá vestri og spaðatvistur
úr blindum. Nú má vestur ekki
spila spaða, þvi þá friast drottn-
ingin og spili hann tigli, þá
hverfur tigultapslagurinn.
Verulega skemmtileg slemma.
Hin árlega sveitakeppni
Bridgefélags Reykjavikur hefst
miðvikudaginn 9. janúar og er öll-
um heimil þátttaka. Þátttöku-
tilkvnningar verða að berast
stjórn félagsins fyrir mánudags-
kvöld
4 A-G-7-6
A-K-G-2
G-9
7-!l-2
J
4 10-5-4-:t
* 7-6-5-4-3
♦ D-6-3-2
ekkert
4 D-9-8
V D-10-9-8
♦ A-K-8
4 A-9-8
HJALTI OG ÁSMUNDUR
Furðuleg
skammsýni
við val ó
landsliði í
Olympíumót
Félgar Bridgefélags Reykja-
vikur ráku upp stór augu, þegar
þeir lásu boðskap frá stjórn
Bridgesambands íslands i
nóvemberblaði Bridgeblaðsins.
1 skammdeginu taka menn gjarnan i slag. Nú fer i hönd aðalannatimi bridgefélaganna.-— I.jósin. Bjarnleifur.
Það mun nú afráðiö, að ný-
kjörnir Reykjavikurnieistarar i
tvimenningskeppni, Asmundur
Pálsson og Hjalti Eliasson frá
Bridgefélagi Reykjavikur, fari til
London i seinni hluta janúar og
spili fyrir tslands hönd I Sunday
Times parakeppninni. Keppni
þessi er haldin einu sinni á ári og
komast færri að en vilja. í fyrra
spiluðu þeir félagar i keppninni
og urðu i ellefta sæti af tuttugu og
tveimur, sem var allgóður
árangur og nægði til þess, aö þeir
fengu boð um að spila aftur i ár.
Ef að likum lætur spila, i
Sunday Times i ár flest beztu pör i
Evrópu, en ekki er kunnugt um
þátttakendur ennþá.
Bridgesamband Islands og
Bridgefélag Reykjavikur hafa
fjármagnað ferð þeirra félaga, en
nánar verður skýrt frá henni sið-
ar.
Gat þar á að lita reglugerð um val
landsliðs á Olympiumót i tvi-
menning, en Island á rétt á sex
sætum i opna ílokkinn.
Úrslit Islandsmóts i tvimenn-
ingi 1974 skal ákvarða pörin, en
EKKI skai farið eftir árangri
keppenda nema að litlu leyti.
Þrjú efstu pörin fá mismunandi
háa ferðastyrki, en fjórða par fær
ekkert, hvorki sæti né styrk, ef
það er svo óheppið að vera i sama
bridgefélagi og einhver þriggja
fyrir ofan. Sama vitleysan gildir
fyrir tvö næstu sæti. Með þessu
vill stjórn Bridgesambands
tslands tryggja, að sem flest
bridgefélög eigi fulltrúa á
Olympiumóti i bridge.
Þetta er furðuleg skammsýni
LÁTTU GANGA LJÓÐASKRÁ
í siðasta þætti voru eingöngu
visur eftir Borgfirðinga. í
þessum þætti hafa Þingeying-
ar orðið.
Einar Kristjánsson byrjar.
í ferskeytlunni frægu mest
finnst af gulli og stáli,
og hún talar einna bezt
alþýðunnar máli.
Stökurnar hafa verið mæltar fram við
ýmis tækifæri. Hér eru tvö, sem Baldvin
Jónatansson yrkir um.
Satan er í sóknum snar,
sjá við honum færri.
Þegar Grimur getinn var,
guð var hvergi nærri.
Græt ég aldrei gull né seim,
gæfusnauöur maður.
Bráðum fer ég heiman heim,
hryggur bæöi og glaður.
Egill Jónasson yrkir svo um Kvenna-
kórinn.
Þessi skræku hrundahljóð
heimurinn vil ég banni.
En þeirra rödd er þýð og góð,
þegar þær hvisla að manni.
Ætli þessi Staka Emeliu Sigurðardóttur
gæti ekki átt við i dag.
Nú án fylgdar fæstir sjást.
Fólk sig parar saman,
margt fyrir aura, minnst fyrir ást,
mest fyrir stundargaman.
Næsta staka er eftir Erling Jóhannsson.
Kyngimögnuð muna frá
mæla gögn i eyra.
Stundum þögnin yndi á
öllum sögnum meira.
Þeir sem fengizt hafa við visnagerð
geta sjálfsagt tekið undir með Friðjóni
Jónassyni.
Visnagerðin léttir lund,
lifsins eyðir trega.
llún hefir löngum stytt mér stund,
stundum yndislega.
Þá er Hringhenda eftir Heiðrek Guð-
mundsson.
Þegar vindur þyrlar snjá,
þagna og blindast álar.
Það er yndi að eiga þá
auðar lindir sálar.
Næstu visur eru eftir Indriða Þorkels-
son og nefnast þær Oddur.
Ekkert gott um Odd ég hermi,
—eitt er samt:
Sína lofar upp i ermi
öllum jafnt.
Ekkert gott sér Oddur temur
—eitt cr samt:
Engan svikur hann öðrum fremur,
alla jafnt.
Það er mikill sannleikur i næstu visu
Indriða.
Sé til barnlaus bær,
breiskjast hjartarætur.
Þungt, ef vantar þann, sem hlær,
þyngra hinn, sem grætur.
Tvær næstu stökur eru eftir Jóhannes
Guðmundsson.
Glóey kaldan kyssir hnjúk,
kveður allt, sem lifir,
fagurrauðan dregur dúk
dimmblátt hvolfið yfir.
Skýin blika, bærast ei,
björtu vafin kveldi,
skipta lit sem mjúklynd mey
munar-snortin eldi.
Ætli uppskera margra i janúarmánuði
verði ekki oft svipuð og Jón Baldvinsson
yrkir um i næstu visu.
Orka þvi sem er og var
Urðardómar huldir.
Öllu ég sáði, upp ég skar
ekkert nema skuldir.
Hastaðu á snjóinn heitir næsta visa eftir
Jón Þorsteinsson.
Sýndu oss aftur almátt þinn,
eins og fyrr við sjóinn,
vak þú hjá oss, Ilerra minn,
hastaðu nú — á snjóinn.
Steingrimur Baldvinsson yrkir svo A
fundi.
Varla er fært upp úr vaðlinum hér
vitinu höfuð að teygja.
Algengust heimska i heiminum er,
að hafa ekki vit á að þegja.
Meydómurinn kallar Steingrimur
næstu visu.
Meydómurinn mesta þykir hnoss
meðan hann er þetta kringum tvitugt.
En verður æði mörgum kvalakross,
ef kemst hann nokkuö teljandi yfir
þritugt.
Það hefur verið mikið ort af vetrarvis-
um hér. Þannig yrkir Kristján Ólason um
veturinn.
Hrims og mjalla hvita lin
hylur kalinn svörðinn.
Ilún er að búa um sárin sin
svona, blessuö jörðin.
Þórarinn Sveinsson yrkir Eftirmæli.
Skarðan drátt frá boröi bar,
barn aö háttum glaður.
Völl hann átti, en hann var
enginn sláttumaður.
Ætli það geti ekki margir verið sam-
mála Leifi Eirikssyni er hann segir:
Vaða flestir syndasjó,
sina lesti bera.
Oft eru verstir þeir, sem þó
þykjast beztir vera.
Þórður Jónsson hefur siðasta orðið i
þættinum. Hann nefnir visuna Stuðlamál.
Þó að leggi íslands ál,
ekki slokknar gleði-bál,
meðan landinn sinni sál
svalað fær við stuðlamál.
Ben.Ax.
við ákvörðun þátttakenda i
heimsmeistaramóti i bridge.
Verður þvi ekki trúað að óreyndu,
að stjórn BSl endurskoði ekki
þessa reglugerð.
Þessi óskapnaður kemur mjög
illa við félaga Bridgefélags
Reykjavikur, ef svo illa vildi til,
að þeir ættu aðeins eitt af þremur
efstu sætunum. Geta þeir þá ekki
fengið fleiri sæti, jafnvel þótt þeir
röðuðu sér i tiu næstu sæti.
Sumir kunna að spyrja,
hvort þetta bitni ekki jafnilla á
hinum bridgefélögunum, en þvi
er til að svara, að frá þvi að byrj-
að var að keppa um tslandstitil i
tvimenning, þá hefur Bridgefélag
Reykjavikur ávallt unnið titilinn
og einnig átt mikinn meirihluta af
tiu efstu pörunum. Landslið Is-
lands á Evrópu- og Olympiumót-
um hafa einnig ávallt verið skip-
uð spilurum frá Bridgefélagi
Reykjavikur, og sé litið á sveita-
keppni Islandsmótsins, þá hefur
sveit frá Bridgefélagi Reykjavik-
ur unnið hana frá upphafi.
Aðgerðir þessar, ef þær ná
lram að ganga, geta þvi orðið til
þess að einhverjir félagsmanna
BR flýi sitt félag og spili fyrir
önnur veikari félög i tslandsmót-
inu, til þess að sporna við rang-
lætinu.
Ilér er skemmlileg slemma:
4 K-2
V ekkert
.♦ 10-7-5-4
SPILA í SUNDAY
TIMES MÓTINU