Vísir - 26.01.1974, Qupperneq 6
6
Visir. Laugardagur 26. janúar 1974.
VÍSIR
(Jtgefandi: Heykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjóifsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
,/ Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 32 (Simi 86611)
Ritstjórn: Stöumúla 14. Simi 86611 (7 linur)
Áskriftargjald kr. 360 á mánuöi innanlands.
t lausasölu kr. 22.00 eintakiö.
Blaöaprent hf.
Þeir froðufella
eins og Hitler
Hin mikla þátttaka i undirskriftasöfnun ,,Var-
ins lands” hefur haft athyglisverðar hliðarverk-
anir. Hún hefur leyst úr læðingi gamalkunnugt
hugarfar, sem lengi hefur ekki látið á sér bæra.
Hún hefur dregið Stalinistana fram á yfirborð
Þjóðviljans.
Að minnsta kosti þrir starfsmenn ritstjórnar
Þjóðviljans hafa gersamlega misst stjórn á sér.
Ofsi þeirra og orðbragð minnir á Hitler, þegar
hann froðufelldi sem mest. Ummæli þeirra eru
gersamlega óprenthæf og þvi ekki eftir hafandi,
en áhugamenn geta kynnt sér þau með þvi að lita
i Þjóðviljann á bókasöfnum. Þvilikt orðbragð
hefur ekki sézt á prenti hér á landi áratugum
saman.
Um langt skeið hefur Þjóðviljinn borið kápu
borgaralegs sakleysis og afneitað fortið sinni.
Þessi kápa hefur nú fallið og mengað hugarfarið
komið i ljós. Þar getur að lita hinar afskræmdu
hugsjónir, sem stöku sinnum verður vart meðal
vanþroskaðra unglinga.
Afskræmdar hugsjónir hafa sem betur fer ekki
mótað þjóðfélag okkar. En við höfum reynsluna
frá alræðisrikjunum til að miða við. Þar hafa hin-
ar afskræmdu hugsjönir leitt til lögreglurikis og
ógnarstjórnar, þrælkunarbúða og útrýmingar-
búða, sem stundum eru kallaðar geðveikrahæli.
Hinar afskræmdu hugsjónir hafa fætt af sér menn
á borð við Stalin og Hitler.
Þeir, sem lesa froðufellandi orðbragð Þjóðvilj-
ans, gætu ihugað, hvernig ástandið mundi verða i
landinu, ef höfundarnir réðu öllu einir. Hvað
mundu þeir gera við þær þúsundir manna, sem
hafa skrifað undir yfirlýsingu um „Varið land”?
Samkvæmt orðbragði Þjóðviljans eru þetta ein-
hver ómerkilegustu og ógeðslegustu kvikindi,
sem um getur. Eiga þau heima i fangabúðum, á
geðveikrahælum, i útlegð eða ber hreinlega að út-
rýma þeim?
Hatur á samborgurunum er meinsemd i þjóðfé-
laginu. Ef til vill er skást, að það fái útrás i taum-
lausu orðbragði á prenti, þar sem það gerir til-
tölulega litið mein i samanburði við aðrar teg-
undir útrásar. Auk þess hefur orðbragðið þau
áhrif að vara það fólk við, sem hingað til hefur
látið blekkjast af meinleysislegum skrifum i
Þjóðviljanum.
Ekki verður hins vegar litið framhjá þeirri
staðreynd, að vanstillingarskrif Þjóðviljans
varpa alvarlegum skugga á fjölmiðlun á íslandi.
Þau draga úr möguleikum á skynsamlegum
skoðanaskiptum á opinberum vettvangi. Þau
spilla fyrir möguleikum fjölmiðlanna á að gegna
hlutverki sinu gagnvart fólkinu i landinu og
draga úr áliti og trausti þess á fjölmiðlunum.
Aðrir fjölmiðlar verða að liða fyrir lágkúru eins.
—JK
Líf Aanews
ríúkandi
rústir einar
Þær vonir, sem Spiro
Agnew kann að hafa alið
með sér um að öngla
saman aurum fyrir
endurminningar sinar,
varaforsetans, sem
fundinn var sekur um
skattsvik, hljóta að hafa
dvinað, þegar útgefand-
inn, sem hann hafði sent
handritið, neitaði að
gefa það út.
Þó var það margra
hald, að hag Agnews
hafi verið þannig komið,
að hann hefði vel þörf
fyrir aukatekjur ein-
Meöan allt lék i lyndi.
hverjar. Hann á yfir sér
reikninga fyrir máls-
varnarlaun, sem kunna
að hlaupa upp á annað
hundrað þúsundir
Bandarikjadala, þvi að
ekki er lokið málastapp-
inu ennþá.
Skattayfirvöld geta hvenær
sem er sent honum bakreikninga
fyrir vangreidda skatta, og yrðu
þeir reikningar þá varla greiddir
með mjólkurpeningunum einum
saman. Fastar tekjur Agnews af
starfi sfnu, sem hann öðlaðist sem
ráðgjafi hjá kaupsýslufyrirtæki
einu i Los Angeles, þegar allt
snerist honum i mót, eru ekki svo
öruggar, þegar allt kemur til alls,
þvi óvist er, að hann haldi starf-
inu svo lengi.
Ekki svo að skilja að vara-
forsetinn fyrrverandi sé alveg á
flæðiskeri staddur. Hann hefur
fengiö endurgreidd framlög sin til
eftirlaunasjóða opinberra starfs-
manna. Hann á von á snotrum
gróða af sölu húss sins, sem hann
keypti fyrir ári á 190 þúsund dali,
en það hefur hann sett á sölulista
og vill fá fyrir 325 þúsund dali.
Þessi 135þúsunda dala mismunur
liggur i 39,5 þúsunda dala ramm-
gerðri girðingu, 12 þúsund dala
aðkeyrslu og 9 þúsund dala ljósa-
búnaði allt saman nokkuð sem
leyniþjónustan krafðist á sinum
tima, að yrði sett á húsiö og lóðina
i öryggisskyni, þegar þeir gættu
varaforseta Bandarikjanna. Að
sjálfsögðu var allt greitt af opin-
beru fé. — Og svo er alltaf vonin
um, að einhver útgefandinn fáist
til að kaupa endurminningarnar
sanngjörnu verði. Það var þvi
ekkert óbætanlegt áfall fyrir
Agnew, þótt þessi fyrsti segði nei
takk.
Alvarlegra áfall var hitt, þegar
þriggja manna dómnefnd i An-
napolis I Maryland mælti með þvi
að Agnew yrði sviptur málflutn-
ingsréttindum i siðustu viku.
Fóru þeir óvægum orðum um
brothans og orðstir i skýrslu, sem
nefndin skilaði af sér. Sögðu þeir,
Agnew á ekki sjö dagana sæla.
Illlllllllll
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
að skattsvik hans hefðu svo
siðspillandi áhrif, hegðun hans
hefði verið óheiðarleg, og hann
sjálfur væri þannig maður, að
hann væri óhæfur til þess að
starfa við lögfræði”. Dómnefndin
treysti sér ekki til þess að finna
neinar mildandi kringumstæður
til þess að draga úr hörku sinni.
Með þessari umsögn dóm-
nefndarinnar hvarf eiginlega
mestallt, sem eftir hafði verið
skilið af virðingu Agnews, þegar
hann og fjölskylda hans lentu fyrr
á milli tanna fólks, um leið og
hann neyddist til að segja af sér
embættinu og var sektaður fyrir
skattsvik.
Lögfræðingar hans og verj-
endur righaída þó i siðustu leif-
arnar. Afrýjunarréttur Maryland
á enn eftir að segja siðasta orðið i
málinu, áður en Agnew þarf að
horfa á eftir málflutningsréttind-
unum. Rétturinn mun að likind-
um taka málið fyrir i febrúarlok.
— Þó telja menn, að Agnew eigi
litla von þar, þvi að á siðustu
þrem árum, sem áfrýjunarrétt-
urinn hefur fengið slik mál til
meðferðar, hefur hann ekki I einu
einasta af þeim 5.500 tilvikum,
sem rikið hefur viljað siða lög-
fræðinga til, breytt niðurstöðu
dómnefndarinnar.
Lögmannafélagið i Maryland
riki hefur sótt mjög hart, að
honum yrði vikið úr félaginu, sem
yrði sjálfkrafa um leið og hann
missti málflutningsréttindin. Eins
og timaritið Newsweek hefur eftir
einum lögmanni þar I fylki:
„Maðurinn var stéttinni til
háðungar. — Það eru margir
þeirrar skoðunar, að hann eigi
þetta skilið”.
Hús Agnews, sem hann hyggst selja meö 135 þúsund dala hagnaöi. — Endurminningarnar eru lika á
sölulista.
' t wm i fjlwEHjl
j 1 'v:'«vW v ' '