Vísir - 26.01.1974, Qupperneq 17
Vlsir. Laugardagur 26. janúar 1974.
Q □AG | D KVÖLD Q □AG |
Spáin gildir fyrir sunnudaginn.
4-
♦
f
4-
♦
♦
i
t
4-
t
t
♦
t
t
-f
-f
-f
-f
-f
-f
-f
t
m
m
Nt
Gestir hjá Ömari Valdimarssyni, Rögnvaldur Sigurjónsson, Baidvin Jónsson, Ómar og Guörún Á
Simonar.
Sjónvarp, sunnudag klukkan 20.35:
GESTIR HJÁ ÓMARI
Gestir koma til ómars Valdi-
marssonar blaðamanns, sem
staddur verður i sjónvarpssal á
sunnudagskvöldið.
Ómar og Elin Pálmadóttir
skiptast á um að vera með þátt-
inn, ,,Það eru komnir gestir”, i
siónvarpinu hálfsmánaðarlega,
og nú er röðin komin að Ómari.
Hann fær i heimsókn þrjár
mætar manneskjur á morgun.
Fyrst skal frægan telja Rögn-
vald Sigurjónsson pianóleikara.
Rögnvaldur er ekki bara frægur
á Islandi. Hann hefur farið i
hljómleikaferðir viða um lönd —
m.a. fór hann i langa ferð um
Sovétrikin eigi alls fyrir löngu,
og að sögn fékk hann þar frá-
bærar viðtökur.
Auk Röngvalds verða þau hjá
Ómari Guðrún Á. Simonar sem
ekki er sjónvarpsnotendum að
öllu ókunn — er ekki ósennilegt,
að Guðrún taki lagið við undir-
leik Rögnvalds. briðji gesturinn
á sunnudagskvöldið verður
Baldvin Jónsson. Baldvin er
ungur að árum, en hefur þó viða
drepið niður fingri. Hann starf-
ar á auglýsingadeild Morgun-
blaðsins, en i fristundum gerir
hann sitthvað, sem ábatavæn-
legt telst. T.d. hefur hann verið
umboðsmaður rokk-hljómsveit-
ar.
S«€
u
Hljóðvarp,
sunnudag
klukkan J 4.00:
Einar Ágústsson
— verður dag-
skrárstjóri i eina
klukkustund á
morgun
Einar
dagskrárstjórí
Einar Ágústsson utanrikis-
ráðherra fær að ráða dagskrá
hljóðvarpsins i eina klukku-
stund á sunnudaginn.
Einar er vis til að velja eitt-
hvað gott að hlusta á, og von-
andi hefur hann getað gefið sér
tima frá stjórnmálavafstri og
stjórnarstörfum til að grúska
vel og vandlega i' segulbands-
safni Rikisútvarpsins.
Kannski helgar Einar þátt
sinn varnarmálunum, sem svo
ofarlega eru á baugi núna? Og
þó — það er frekar liklegt, að
hann reyni að nota tækifærið til
að fá landsmenn til að gleyma
dægurþrasinu eitt andartak við
að hlýða á góða tónlist eða lest-
ur úr bók. —GG
Hrúturinn,21. marz—20. april. Rólegur dagur.að
minnsta kosti fram eftir, fréttir yfirleitt hag-
stæðar. Óvænt og skemmtileg heimsókn, er á
liður, mjög sennileg.
Nautið, 21. april—21. mai. Það bendir allt til
þess, að dagurinn verði skemmtilegur.
Vafasamt er þó að sumt, sem þú reiknar með,
verði á þann hátt, sem ráðgert var.
Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Allt bendir til
þess, að dagurinn geti orðið þér hinn þægi-
legasti Ekki er óliklegt, að sitthvað reynist
málum blandið i lausafréttum.
Krabbinn, 22. júni—23. júli. Það getur farið svo,
að eitthvað, sem þú telur vel dulið, komist i
hámæli fyrr en þú veizt orðið af. Gættu þess i þvi
sambandi að fullyrða ekki um of.
Ljónið, 24. júli—23. ágúst. Eitthvað, sem þú
hefur undirbúið, rennur út i sandinn vegna
óvæntra atburða. Samt sem áður getur dagurinn
orðið allskemmtilegur i heild.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Rólegur dagur, en
sennilega ekkert sérstakt, sem gerist er ætla má
að hafi áhrif til langframa. Orðrómur getur ef til
vill valdiö þér áhyggjum.
Vogin, 24. sept,—23. okt. Góður og rólegur dagur
hjá þeim eldri, liklegt að fremur létt verði yfir
honum meðal þeirra, sem yngri eru, sér i lagi,
þegar kvölda tekur.
Drekinn, 24. okt,— 22. nóv. Þú átt drjúgan spöl
eftir aö marki, sem þú hefur sett þér, en sunnu-
dagurinn ætti að tákna áfangaskipti. Farðu þér
hægt og rólega.
Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des. Gamall
kunnirigi þinn hefur að minnsta kosti samband
við þig, heimsækir þig sennilega, en þó er það
ekki vist. Góður dagur.
Steingeitin, 22. des.—20. jan. Rólegur dagur,
sem einkennast mun af harla hlýlegri framkomu
ýmissa i þinn garð, jafnvel af hálfu fólks, sem þú
þekkir sama sem ekki neitt.
Vatnsberinn, 21. jan,—19. febr. Þótt sunnudagur
sé, mun þér verða það vissara að gæta að
peningum þinum og peningamálum, Verði um
sameiginlega eyðslu að ræða, skaltu athuga það
vel.
Fiskarnir, 20. febr,—20. marz. Að mörgu leyti
dagur við þitt hæfi, létt yfir öllu og öllum i kring-
um þig, og allt á hreyfingu. Einkum mun kvöldið
geta orðið ánægjulegt.
SJONVARP
Sunnudagur
27. janúar 1974
16.30 Endurtekið efni. Fim-
leikahátið I Laugardalshöil.
Sjónvarpsupptaka frá fjöl-
mennri fimleikasýningu,
sem haldin var seint á sið-
asta ári. Aður á dagskrá 1.
janúar siðastliðinn.
18.00 Stundin okkar. Synd
verður norsk teiknimynd,
sem nefnist ,,I búðinni” og
er hún úr myndaflokknum
„Þetta er reglulega órétt-
látt”. Þar á eftir fer mynd
um hunda og meðferð
þeirra, og siðan syngur
Halldór Kristinsson „Ingu-
Dóruvisur”. Einnig er i
stundinni mynd um Róbert
bangsa og leikþáttur um
Hatt og Fatt. Umsjónar-
menn Sigriður Margrét
Guðmundsdóttir og Her-
mann Ragnar Stefánsson.
18.50 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Ert þetta þú? Fræðslu-
og leiðbeiningaþáttur um
bifreiðastöður og umferða-
stjórn lögreglunnar.
20.35 Það eru komnir gestir.
Umsjónarmaður Ómar
Valdimarsson. Gestir þátt-
arins eru Baldvin Jónsson,
Guðrún Á. Simonar og
Rögnvaldur Sigurjónsson.
21.10 Lýsistrata. Gamanleik-
ur eftir griska leikskáldið
Aristofanes. Sviðsetning
Þjóðleikhússins. Leikstjóri
Brynja Benediktsdóttir.
Leikendur Margrét Guð-
mundsdóttir, Bessi Bjarna-
son, Erlingur Gislason,
Herdis Þorvaldsdóttir,
Kristbjörg Kjeld, Sigurður
Skúlason, Þóra Friðriks-
dóttir og fleiri. Stjórn upp-
töku Egill Eðvarðsson.
Leikritið er talið samið árið
411 fyrir Krists burð og lýsir
það tilraunum aþenskra
kvenna til að draga úr
áhuga eiginmannanna á
vopnaburði og hernaði.
22.25 Kambódia. Dönsk
fréttamynd um Kambódiu
og áhrif loftárása Banda-
rikjahers á land og þjóð.
Þýðandiog þulur Jón O. Ed-
wald. (Nordvision —
Danska sjónvarpið)
23.05 Að kvöldi dags. Séra
Þórir Stephensen flytur
hugvekju.
23.15 Dagskrárlok
UTVARP
Sunnudagur
27. janúar
8.00 Morgunandakt Biskup
Islands, herra Sigurbjörn
Einarsson, flytur ritningar-
orð og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög Leikin
tónlistfrá brezka útvarpinu.
9.00 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir) a. Branden-
borgarkonsert nr. 2 1 F-dúr
eftir Bach. Filharmóniu-
sveitin I Berlin leikur: Her-
bert von Karajan stj, b.
Pianósónata nr. 31 i E-dúr
eftir Haydn. Artur Balsam
leikur. c. Lagaflokkur eftir
Bartók. Irmgard Seefried
syngur. d. Konsertdansar
eftir Stravinský. Enska
kammerhljómsveitin
leikur: Colin Davis stj. e.
Pianókonsert nr. 2 op. 18
eftir Prokofjeff. Victoria
Postnikova og Filharmóníu-
sveitin i Leningrad leika:
Gennadi Rozhdestvenský
stj.
11.00 Messa i safnaðarheimili
Langhoitssóknar Prestur:
Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson. Organleikari:
Jón Stefánsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.15 Hugleiðingar um
Hindúasið Séra Rögnvaldur
Finnbogason flytur fyrra
erindi sitt: Á krossgötum.
14.00 Dagskrárstjóri i eina
klukkustund Einar
Agústsson utanrikisráð-
herra ræður dagskránni.
15.00 Miðdegistónleikar: a.
Tilbrigði eftir Brahms um
stef eftir Haydn.
Filharmóniusveitin I Vin
leikur: Sir John Barbirolli
stj. b. Lög eftir Richard
Strauss. Herman Prey
syngur. Karl Engel leikur á
pianó. c. Pianósónata i F-
dúr op. 10 nr. 2 eftir Beet-
hoven. Alfred Brendel
leikur.
d. Sinfónia nr. 40 i g-moll
(K550) eftir Mozart. Enska
kammerhljómsveitin
leikur: Benjamin Britten
stj.
16.25 Þjóðlagaþáttur i umsjá
Kristinar ólafsdóttur
16.55 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
17.10 tltvarpssaga barnanna:
„Smyglararnir i skerja-
garðinum” eftir Jón
Björnsson Margrét Helga
Jóhannsdóttir leikkona
byrjar lesturinn..
17.30 Sunnudagslögin.
Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veður-
fregnir. 18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá. Úr segul-
bandssafninu Guttormur J.
Guttormsson skáld frá
Vesturheimi fer með nokkur
kvæði sin, og einnig tala
Indriði Indriðason rit-
höfundur og Páll Kolka
læknir um Guttorm. (Aður
útv. 1963, er skáldið dvaldi
hérlendis).
T
|
4-
4-
4-
-►
-f
4-
■f
-►
-►
-►
-f
-f
-f
-f
-f
-f
-f
-f
-f
■f
-f
4-
-f
-f
-f
-f
4-
-f
-f
t
4-
-f
-f
-f
-f
í
4-
4-
I
-f
-f
t
-f
4-
4-
19.30 Barið að dyrum.Þórunn
Sigurðardóttir fer i heim-
sókn á elliheimilið Grund.
20.05 isienzk tónlist. Flutt
verða verk eftir Gunnar
Reyni Sveinsson. a.
„Hveralitir” Halldór
Haraldsson leikur á pianó.
b. „Sveiflur” fyrirflautu, selló
og 21 ásláttarhljóðfæri.
Sænskir hljóðfæraleikarar
flytja. c. „Þú veizt ei neitt”,
lag við ljóð eftir Stein
Steinarr. Halldór Vil-
helmsson syngur. Guðrún
Kristinsdóttir leikur á
pianó. d. „Söngvar dala-
barnsins”, lag við ljóð eftir
Sveinbjörn Beinteinsson.
öldutúnsskólakórinn i
Hafnarfirði syngur. Söng-
stjóri Egill Friðleifsson.
20.30 Ljóð frá Álandseyjum
Þóroddur Guðmundsson frá
Sandi flytur eigin þýðingar
með greinargerð um
höfundana.
21.00 Sónata fyrir selló og
pianó eftir Benjamin
Britten. Daniel Sjafran og
Anton Gisenberg leika. Frá
tónlistarhátiðinni i Schwetz
ingen i fyrra.
21.15 Tónlistarsaga Atli
Ileimir Sveinsson skýrir
hana með tóndæmum (12)
21.45 Um átrúnað Anna
Sigurðardóttir talar um
töluna niu i Eddunum.
22.00 F'réttir.
22.15 Veðurfregnir. islands-
rnótið i handknattleik. Jón
Asgeirsson lýsir.
22.45 Danslög.
23.25 Fréttir I. stuttu máli.
Dagskrárlok.