Vísir - 31.01.1974, Qupperneq 1
64. árg. — Fimmtudagur 31. janúar 1974. — 26. tbl.
Fóru létt með hœttu-
legasta mótherjann!
t
— og Islandsbikarinn í handknattleik fer enn einu sinni til Hafnarfjarðar
Sjá íþróttir í opnu
„Aðeins
ögn af
því sem
koma
skal"
— segir Hjálmar
Vilhjálmsson
um loðnuvertíðina
— Sjá baksíðu
Z HÖGGVIN
Y BORGIÐ
— sjá bls. 3
9 milljónir
nafna
sprengja
nafnnúmera-
kerfið
— bls. 2
Frestur á
illu beztur?
— oft þeir sömu,
sem biðja um
frest á skilum
skattframtalanna
— baksíða
Nixon fékk
gott klapp
Þingmenn fulltrúadeildar-
innar geröu góöan róm aö
máli Nixons Bandarfkjafor-
seta i gærkvöldi. Aö minnsta
kosti tvivegis stóöu margir
þingfulltrúar úr sætum og
klöppuðu fyrir yfirlýsingum
Nixons. — Ræðu þessari var
sjónvarpað.
Sjá bls.5
ÁVARP 170 FRAMSÖKNARBRODDA LOKS BIRT (AD HLUTA):
„Undirskríft eðlileg"
— sögðu þeir er þeir gengu á fund forsœtisráðherra í gœrdag — eru á móti því að
herinn hverfi af Keflavíkurflugvelli
Forsætisráöherra var hinn alúðlegasti við flokksbræöur sína, sem komu til fundar viö hann í
gærdag. Hann brá sér af fundi á Aiþingi til aö taka á móti ávarpi þeirra gegn brottför hersins, en
kunnugir telja, að Ólafisésú yfirlýsing ekki óljúf.til mótvægis viö „Möðruvellinga” og aðra slika óþæga
flokksmenn.
A myndinni hér aö ofan eru auk forsætisráöherra þeir Björn Guðmundsson, Björn Stefánsson, báöir
starfsmenn Sambandsins og Óskar H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Osta og smjörsölunnar.
framsóknarmönnum vlðsvegar
aö af landinu. Er það að hluta til
birt i Timanum i morgun, og þar
kemur fram, að 170 menningarnir
hvetja til viðsýni, varkárni,
fyrirhyggju og raunsæs mats á
utanrikismálum þjóðarinnar.
Lýsa þeir yfir andstöðu við
uppsögn varnarsamningsins nú,
og telja þeir ekki timabært að
gera grundvallarbreytingar á
núverandi kerfi öryggismála
Islands og samstafi á þvi sviði
við Atlantshafsbandalagið og
Bandarikin.
Ávarp þetta hefur legið nokkra
undanfarna daga hjá Timanum,
en ekki fengizt birt fyrr en i dag.
Mun samþykkt framkvæmda-
stjórnar Framsóknarflokksins,
sem kom i Tímanum siðastliðinn
laugardag, vera svar við þessu
ávarpi. Þar er lýst yfir fullum
stuðningi við tillögur Einars
Ágústssonar utanrikisráðherra i
varnarmálum og flokksmenn
einnig varaðir við að taka þátt i
nokkurs konar úndirskriftum um
varnarmálin.
I þeim hluta ávarps 170
menninganna, sem ekki er birtur
i Timanum i dag, kemur fram, að
þeir telji eðlilegt, að fólki gefist
kostur á að lýsa skoðun sinni með
undirskriftum. Enda er efni
ávarpsins i fullu samræmi við
stefnu „Varins lands”.
1 hópi þeirra 170 framsóknar-
manna, sem undirrita ávarpið,
eru menn alls staðar af landinu og
þar á meðal ýmsir forustu- og
frammámenn flokksins.
Má þar meðal annars nefna þá,
sém helzt beittu sér fyrir
ávarpinu: Heimi Hannesson
varaþingmann, Tómas Karlsson,
annan stjórnmálaritstjóra
Timans, Jón Kjartansson for-
stjóra, sem setið hefur á þingi
fyrir Framsóknarflokkinn,
Vilhjálm Jónsson, forstjóra Oliu-
félagsins og Sigurjón Guðmunds-
son, fyrrverandi ritara flokksins.
t hópi undirskrifenda eru
margir af forustumönnum sam-
vinnuhreyfingarinnar, og þó að
þar sé ekki nafn forstjóra
Sambandsins, Erlends Einars-
sonar, mun hann hafa starfað að
undirbúningi ávarpsins og vera
efni þess fylgjandi. Sama mun
gilda um fleiri forustumenn
Framsóknarflokksins, sem ekki
töldu sér henta að skrifa undir, þó
að þeir styðji efni þess. Má þar
nefna þingmennina Jón Skafta-
son, Björn Fr. Björnsson og vara-
þingmanninn Tómas Árnason
Mikill fjöldi af miðstjórnar-
mönnum Framsóknarflokksins er
meðal undirskrifenda en megin-
markmið þeirra mun vera að
benda á, að timi sé kominn til aö
„Raunveruleg stefna’flokksins i
varnar- og utanrikismálum komi
fram. Venjan hefur verið sú, að
flokkurinn hefur verið linur við
vinstri menn sina i varnarmálum
utan stjórnar, en hvorki hreyft
legg né lið i þeim málum i
stjórnarsamstarfi.
Þessi 170 manna hópur telur
stuðning við vestræna samvinnu
hina raunverulegu stefnu Fram-
sóknarílokksins i varnarmálum
og vill nú hefja hana til vegs.
Talið er, að Ólafi Jóhannessyni
sé þetta ávarp ekki óljúft. Hafi
honum þótt timi til kominn, að
þessi armur flokksins léti i sér
heyra til mótvægis við háværa
„Möðruvellinga” og aðra.
—ÓG
Ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra
heilsaði flokksfélögum
sinum ljúfmannlega, um
leið og hann gekk inn um
dyr stjórnarráðshússins
við Lækjargötu rétt
rúmlega hálffjögur i
gærdag. Kom hann i
sama mund og hinir sið-
ustu af 32 flokks-
félögunum, sem þar
voru mættir til fundar
við foringja sinn.
Reyndar hafði Ólafur orð á þvi,
að hann hefði þurft að fara frá
óloknu verkefni á Alþingi. For-
sætisráðherra tók siðan af sér
yfirhöfnina og bauð gestum
sinum til fundarherbergis sins.
Erindi hópsins, ýmissa forustu-
manna Framsóknarflokksins,
var að afhenda formanninum
ávarp um utanrikis- og varnar-
mál, undirritað af 170
Framsóknarmenn ganga á fund
ÓlafsJóhannessonar meö ávarpiö
gegn ótimabærri brottför varnar-
liðsins. Fremst á myndinni eru
þeir Gunnar Þorsteinsson, viö-
skiptafræðingur, Vilhjálmur
Jónsson, forstj. oliufélagsins og
Tómas Karlsson, annar stjórn-
málaritstjóri Timans. Aftar eru
Alfreð Þorsteinsson borgarfull-
trúi, Jóhann H. Nielsson lög-
fræðingur og Þorsteinn Hannes-
son söngvari.
Matsveinar fengu 18% hœkkun
í þrem nföngum - samið til tveggja árn
„Þetta gekk allt með
friði og spekt og við vor-
um ekki einu sinni búnir
að sitja samningafundi
nema innan við 50
klukkustundir," sagði
Hallgrímur Jóhannesson
formaður Félags mat-
reiðslumanna í viðtali við
Vísi i morgun.
Samningar náðust milli mat-
reiðslumanna og veitinga-
manna klukkan rúmlega sex i
morgun, en þá hafði fundur
staðið siðan klukkan niu i gær-
kvöldi. Var þetta sjöundi fundur
deiluaðila, en sá fyrsti með
sáttasemjara.
„Kröfur okkar voru um 25%
launahækkun fyrir fundinn i
nótt, en við sættumst á 18%
hækkun i þrem áföngum,” sagði
Hallgrimur ennfremur.
Laun hækka strax um 10%, en
siðan um 4% 1. september á
þessu ári og um önnur 4% 1.
april 1975. Samningarnir gilda
til tveggja ára eða til 1.
desember 1975.
Auk þess náðist samkomulag
um starfsaldurshækkanir og
einnig vaktaálag fyrir nema, en
Félag matreiðslumanna semur
fyrir þá.
1 félaginu eru um það bil 150
matsveinar, en þeir samningar.
sem gerðir voru núna, gilda
fyrir rúman helming mat-
sveina. Hinir eru á kaupskipa-
flotanum, og sagði Hallgrimur
Jóhannesson, að ekki hefði enn
verið boðað til fundar um kjör
þeirra, en samningar þeirra eru
lausir. —-ÓG