Vísir - 31.01.1974, Síða 2
2
Visir. Fimmtudagur 31. janúar 1974.
vímm-
Hvernig lizt yður á að mjólkur-
búðir verði lagðar niður, en mjólk
þess i stað seld i matvöru-
verzlunum?
Ursula Sigurgeirsson, húsmóðir:
— Mér finnst alls ekki gott að
missa mjólkurbúðirnar. Annars
hefur alltaf verið litið úrval af
mjólkurafurðum i mjólkur-
búðum,ogþaðúrval sem er, má
alls ekki minnka við að þetta
færist yfir á matvöru-
verzlanirnar. Aftur á móti finnst
mér óþarfi að starfrækja bakari i
tengslum við mjólkurbúðir.
Geirlaugur Magnússon, nem-
andi: — Ég drekk ekki mjólk, og
þvi koma mjólkurmál litið við
mig. En ég hef ekki trú á þvi að
þjónustan i mjókursölu þyrfti að
minnka þótt salan færist yfir á
matvöruverzlanir.
Björn Jónsson, skrifstofumaður:
— Mér er alveg sama um það,
þetta skiptir mig ekki neinu máli.
En mjólkursölufyrirkomulagið er
gott eins og er.
Jórunn Sveinsdóttir, banka-
starfsstúlka: — Mér lizt ágætlega
á það að hafa mjólkursölu saman
við matvöruverzlanir. Oftast er
betra að geta keypt sem flest i
einni og sömu búðinni. Kjörbúðin
þar sem ég verzla einna mest,
væri t.d. mjög hentug til að fá inn
mjólkursölu.
Kristín Einarsdóttir, banka-
starfsstúlka: — Ég er ánægð með
að fá þetta. Annars hef ég aldrei
saknað þess þótt mjólk fengist
ekki i kjörbúðum.
Magnús Danielsson, húsgagna-
smiður: — Mér likar vél við það.
Annars hef ég ekki rr ikið að segja
af mjólkurkaupurr , konan sér
mest um þau. En ég er
vantrúaður á að þessi breyting
breyti i raun og veru miklu.
VIÐ MEGUM
MILLJÓNIR
— en þó eru líka öll nafnnúmer búin
Hvað er hægt að lesa út úr
nafnnúmerinu? Er það satt, að
með alls konar talnakúnstum sé
hægt að lesa út helztu
upplýsingar um viðkomandi
persónu?
Margt hefur verið rætt
um.hvað megi sjá út úr nafn-
númerinu. Við spurðum Ásthildi
Björnsdóttur hjá Hagstofunni
um það.
„Nafnnúmerið er ekkert annað
en tala, sem sýnir hvar viðkom-
andi er i stafrófinu,” sagði Ást-
hildur.
,,t númerinu sjálfu eru átta
tölur. Seinasta talan hefur ekk-
ert aö segja I númerinu, þvi hún
er aðeins tala til notkunar fyrir
tölvur. Ef hún er skökk, þá
gengur nafnnúmerið ekki gegn-
um kerfið.
Þetta þýðir, að sjö fyrstu
stafirnir eru hið eiginlega nafn-
númer. Þeir, sem eru framar-
lega i stafrófinu, hafa lágt nafn-
númer. Þeir, sem eru aftarlega,
fá hátt nafnnúmer, allt upp yfir
niu milljónir,” sagði hún.
Þetta þýðir, að nóg er til af
nafnnömerum. Rúmlega tvö
hundruð þúsund nafnúmer hafa
verið gefin út, siðan kerfið fór
eiginlega af stað 1965.
Hins vegar er pláss fyrir 9
milljónir og 999 þúsund
nafnnúmer minus öll jafn-
númer, sem talan 11 gengur upp
i. Þau númer komast ekki gegn-
um kerfið.
„Flestir halda sinum nafnnúm
erum út ævina. En ef einhver
skiptir um nafn, tekur t.d. upp
ættarnafn, þá breytist röð
viökomandi i stafrófinu, og þar
með númerið,” sagði Ásthildur.
Asthildur sagði, að þess vegna
væri fæðingarnúmerið i raun og
veru mun áreiðanlegri tala.
Fæöingarnúmerið er þriggja
stafa tala, skráð á nafnskirteini
fyrir aftan fæðingardag og ár.
VERÐA 9
Þann dag, sem einhver
fæðist,fær hann númer yfir,
hvar i röðinni af fæddum á
þessum degi hann er. Þetta
númer helzt út ævina.
Hvernig nota skattstofur
nafnnúmer?
„Það kemur oft fyrirað ieita
þarf nánari upplýsinga um ein
hvern.
Þá er viðkomandi fenginn út
úr tölvukerfinu með þvi að nota
nafnnúmerið,” sagði Ásthildur
að lokum. -OH.
| v LESENDUR HAFA ORÐIÐ &
MEÐ KVEDJU TIL „LANDKRABBA"
19.1. 1974
Jóhannesarborg.
Bréf til Timans, frá Viggó.
„Kæri „Timi.” 1 blaði yðar 10.
jan. s.l. er óvenju rætin grein um
mig og skrif mín I VIsi á þessu ári,
undirskriftin er „Landkrabbi”.
Ég, skógræktarstjóri og
Laxness segja að bréf undir
dulnefni séu ósiður. Laxness
segir: „Afturá mætti reiða sig á
að þegar slagsmálahundar og
„þektir” innbrotsþjófar skrifuðu i
blöðin, þá notuðu þeir einlægt
dulnefnin.” Nafnlaus
skammarbréf eru þvi „krabba-
mein” eða „landkrabbamein.”
Landkrabbi segir, að ég- nafi
lengi plágað islenzk blöð með
skrifum um ágæti kynþátta-
kúgunar S. Afrikustjórnar, sem
sé fordæmd af SÞ. Ég skora á
„landkrabba” að senda mér eða
birta eina heila grein til islenzkra
blaða, þar sem ég mæli bót
„þrælahalds-kynþáttakúgunar og
skoðanakúgunar.” Ég hef afrit af
greinum siðustu 10 ára um
Afriku, og finn ég hvergi neitt um
slikt. Svona áróður er refsiverður
um íslenzka borgara, og get ég
stefnt ritstjóra Tímans og Land-
krabba fyrir meiðyrði hvenær
sem mér þóknast. „Þrælahald”
er einungis stundað i Araba-
rikjum, en hvergi i hvitu Afríku
þar sem milljónir svertingja eru
frá „frjálsu Afriku” til að vinna
fyrir sér og fjölskyldum i
„frjálsu” rikjunum.
„í S. Afriku stjórnar stjórnin
eins og þörf er á, „til að vernda
hagsmuni heildarinnar frá ógæfu
verkfalla og verðbólgu. Hefur is
lenzka eða brezka stjórnin gert
það? Aðskilnaðarstefnan breýtist
ár frá ári, eftir framþróun
svertingja, t.d. voru fyrstu
kosningar til svertingjaþings i
nokkrum nýjum svertingja-
lýöveldum i S. Afriku eftir að
skilnaðarlögunum, sem mæla
svo fyrir, að hver svertingjaþjóð,
skuli ráða sér sjálf. 1 S.-Afriku
eru9meginsvertingjaþjóðir, i SV
Afriku 11.
Maður, sem ég þekki ekkert,
skrifar: „Hvergi i þeim heimi,
sem ég hefi kynnzt, eiga óreglu-
og óreiðumenn eins mikilli
velgengni að fagna og hér,” (á Is-
landi). Hálfur kaupstaður fer i
eyði, óvátryggður hænsnakofi
fýkur f illviðri og nokkrar rúður
brotna. Allt er óvátryggt. Eins og
i Gómorru og Sódómu, það þarf
lengi að leita að ábyrgu liferni á
íslandi eins og hjá Gyðingunum i
„den tid.” Evrópumeistarar i
dýrtið, segir heimspressan um
Islandsstjtírn. Landráðasjóður
borgar, til hvers eru trygginga-
félög og ábyrgt liferni?
Landkrabbi er forvitinn hvaða
„kynlegi” maður ég sé og hvers
vegna ég barst til S. Afriku. Það
er sanngjarnt, að frægir rit-
höfundar kynni sig, þvi ég hefi
skrifað lengi i dagblöð, sem eru
óháð skoðanaeinokun, eins og
Visir og enska pressan I S. Afriku
og Rhodesiu, en hvergi I heimin-
um er meiri skoðanakúgun en i
Skandinaviu. Frá íslandi flutti
ég, þvi vinnustaðurinn var leiðin-
legur, illa borguð vinna og
ómögulegt að þróast i sérgrein
minni sem sérfræðingur I korta-
gerð eftir flugmyndum. 1 S.
Afriku, sem mér fannst forvitni-
legust, hefi ég dvalizt i tæpan ára-
tug, nema 5 ár i Rhodesíu, þar
sem ég naut unaðslegra ára.
Þaðan fór ég af sömu ástæðum og
á Islandi og er núna tæknilegur
sérfræðingur i gerð Orthophoto
korta, sem er nýjung'I kortagerð.
Eins og „Landkrabbi” segir, er
ég ógurlegur kynþáttahatari. Um
þessar mundir er ég að gera
landakort eftir orthophotoað-
feröinni fyrir svertingjalandið
Swaziland, þar sem kóngurinn
hefur 100 drottningar, meir en
600 kortblöð I erfiðu, fjöllóttu
kotriki. Bretar borga. Ég geri
kortin af þvi fyrirtækið, sem ég
starfa fyrir, er ódýrast og bezt I
heims-samkeppni. Bretastjórn
eys ekki fjárfúlgum til útlendra
félaga að ástæðulausu. Einnig
hefi ég gert orthokort af
höfuðborg Malawi, hjá
sver t i ngjanum Banda.
Basutoland og Botswana hefi ég
einnig kortlagt ásamt stórum
svæðum af Zambíu og Rhodesiu,
aðónefndri S. Afriku. Uppi á hillu
á ég ibenviðarstyttu, sem
svertingi frá Malawi gaf mér, og
höggmynd eftir svertingja úr
Rhodesiu þar sem ég skrifast á
við suma fyrrver. (svarta)
vinnufélaga mina. Hér liður
svertingjum betur en mörgum 'i
Evrópu.
Það er fremur hjákátlegt af
„Landkrabba” að telja, að
skoðanafrelsi sé heft i S.Afriku á
sama hátt og i stjórnarflokka-
blöðum á Islandi. Það er almennt
viðurkennd staðreynd, að enska
pressan l.S.A. lætur engan skipa
sér fyrir. Nefni ég þá Star,
Sunday Times og Rand Daily
Mail I Jóhannesarborg sem dæmi
og eina dagblaðið I Salisbury,
Rhodesia Herald. Margur heldur
mig sig.
Það er furðulegt, að fáfróðir
menn eins og „Landkrabbi” skuli
geta vaðið i miðlungsblöð með
svona algjöra vanþekkingu á
öðrum þjóðum. 1 10 ár hefi ég lýst
skoðunum landsmanna án
persónulegra fullyrðinga. Is-
lendingar eru menntuð þjóð, sem
getur dregið sinar eigin ályktanir
af mismunandi skoðunum
Aróður SÞ og kommúnista um S.
Afriku er álika merkilegur og
landhelgisáróður Breta við Is-
lendinga. „Landráðanefnd,” sem
ég uppnefni einhverja stofnun,
sem bætir kærulausum fasteigna-
eigendum tjón, sem þeir verða
fyrir, af þvi þeir tima ekki að
tryggja og skaða þvi sam-
borgarana af engu tilefni. Hvers
vegna skyldi ég ekki átelja
stjórnarfar á tslandi. Sem rikis-
borgari vil ég gjarnan flytja til
baka EF ég fengi eitthvað betra
en ég bý við. Hvernig eiga
aularnir á Islandi að rétta sig
við, ef þeir vita ekki, hvernig
aðrar þjóðir búa? Hvers vegna er
nautakjöt 5 sinnum dýrara á Is-
landi en hjá eyðimerkurbúum?
Hvi er flaska af rauðvini 20-30
sinnum dýrari hjá þjóð, sem hef-
ur hefur engan her á launum?
Hvers vegna er „Landkrabbi”
feiminn við að birta nafn sitt?
Ekki skammast ég min fyrir mitt,
enda engin ástæða til. Er
„Landkrabbi” kannski „þekktur
slagsmálahundur eðá þekktur
innbrotsþjófur,” eins og skáldið
segir?
Viggó Oddsson,
P.O. Box 61399
Marshalltown,
Johannesburg,
S. Africa.
Skóla-
krakkar
í undir-
skriftum
ÓH simar:
„Hafa menn tekið eftir þvi, að
undirskriftasöfnun Varins lands
er einskorðuð við þá, sem
„komnir eru til vits og ára,” þ.e.
þá, sem hafa fengið kosningarétt.
Mér virðist þetta sama ekki gilda
um þá, sem rembast eins og
rjúpa við staur að halda áfram
tafarlausri uppsögn varnar-
samningsins. I þeirri fylkingu er
stór hluti undir kosningaaldri,
skólakrakkar, sem takmarkað vit
hafa á þjóðfélagsmálunum, en
hlaupa eftir hávaðasömum slag-
orðum og láta æsa sig upp.”
Varið land-afstaða mín
Undirskriftir hér tiðum eru I gangi.
Nú út um landið mér hermt er að sótt þessi geisi.
Það er spurt um, hvort viljum viöhafa herinn Ilandi
eða, hvort við viljum stunda hér varnarleysi.
Ef ég væri spurður um afstöðu mina til málsins,
mátuleg þingmennskulykt yrði af minu svari.
Ég er mótfallinn þvl að beita manndrápstólum,
og á móti þvi lika að Hjálpræðisherinn fari.
Ben. Ax.