Vísir - 31.01.1974, Side 3
Vísir. Fimmtudagur 31. janúar 1974,
3
HORFIN YPSILONIÐ EKKI í HÆTTU
Stafsetningarnefnd ríkisstjórnarinnar hefur skiiað ólitsgerð
sinni og tillögum. Þar er afndm z veigamesta breytingin.
Einn nefndarmanna vildi fella niður y og ý og nn í enda orða
Nokkrir þingmcnn hafa tekið
sig saman og hafið baráttu fyrir
endurreisn bókstafsins Z i
ritmáli.
Þeir Sverrir Hermannsson,
Ellert Schram, Bjarni Guðna-
son og Helgi Seljan hafa lagt
fram þingsályktunartillögu, svo
sem kunnugt er.
Fyrstu umræðu var frestað og
málinu visað til allsherjar-
nefndar.
Nú hefur svo menntamála-
ráðuneytið sent frá sér álitsgerð
stafsetningarnefndar. Staf-
setningarnefnd var skipuð af
Magnúsi Torfa Ólafssyni
menntamálaráðherra i fyrra-
vor, og fól hann nefndinni að
endurskoða núgildandi staf-
setningu og greinarmerkja-
setningu og gera tillögur að
nýjum reglum.
Nefndin lagði svo til i haust,
að z yrði lögð niður.
Afnám z veiga-
mesta breytingin
Alitsgerð stafsetningar-
nefndar er löng og ýtarleg.
Eru tiundaðar þær tillögur,
sem nefndarmenn komu fram
með, könnuðu, rökstuddu og
ræddu.
Heildarniðurstaðan af starfi
nefndarinnar er sú, að hætt
hefur verið að kenna reglur um
ritun z. Einnig lagði nefndin til
smávægilegar breytingar varð-
andi reglur um notkun upphafs-
stafa i orðum. Þannig vill
nefndin að framvegis verði
þjóöaheiti eftirleiðis skrifuð
með litlum staf, svo sem íslend-
ingur, svlio.s.frv. Þá koma lika
til álita breytingar á reglum um
greinarmerkjasetningu.
Nefndarmenn greindi nokkuð
á varðandi upprunasjónarmið
og framburðarsjónarmið i staf-
setningu. Einn nefndarmanna,
Indriði Gislason lektor,
hallaðist i rikari mæli en hinir
nefndarmennirnir fjórir að
framburðarsjónarmiðinu, og
skilaði Indriði séráliti.
Vill Indriði leggja til, að allar
stafsetningarreglur verði ein-
faldaðar, m.a. vill hann hætta
að rita y og ý og hann vill hætta
að kenna mönnum að rita aðeins
granna sérhljóða á undan ng og
nk. Indriði vill lika kanna til
þrautar, hvort ekki geti verið til
bóta aðrita eitt ni áherzlulitlum
eða áherzlulausum atkvæðum i
stað nn.
,,Hvað dvelur okkur?”
Sérálit Indriða Gislasonar
lektors er fróðleg lesning, þótt
sumum finnist það eflaust
einum of byltingarkennt. Indriði
segir að lokum: ,,Nú fer fram
viðtæk endursköpun móður-
málskennslu á skildunámsstigi.
Þar beinist athigli first og
fremst að málinu sjálfu, notkun
þess. Sá þáttur hefur of leingi
verið vanræktur en tima eitt i
formsatriði og orðið að litlu
gagni.
Það er ekki sist vegna
þessarar stefnubreitingar að
okkur er áriðandi að eignast
stafsetningu sem nokkuð hefur
verið leist úr viðjum hins
formlega uppruna — létta staf-
setningu, góða stafsetningu.
Okkur er i lófa lagið að eignast
slika stafsetningu án þess að
rjúfa teingsl við bókmál okkar.
Hvað dvelur okkur?”
Formkerfi ritmálsins
Auk Indriða Gislasonar
lektors, sátu i stafsetningar-
nefndinni þeir Baldur Ragnars-
son kennari, Gunnar
Guðmundsson skólastjóri,
Kristinn Kristmundsson skóla-
meistari og Halldór Halldórsson
prófessor, sem jafnframt var
skipaður formaður nefndar-
innar.
Segir I formála fyrir álitsgerð
nefndarinnar, að „veigamestu
breytingartillöguf nefndarinnar
eru annars vegar afnám z og
hins vegar mikil einföldun á
kommusetningarreglum og að
nokkru öðrum greinarmerkja
reglum..Þá má telja það mikil-
vægt, að stafsetningárnefnd
hefir gert tillögur um atriði,
sem aldrei hafa gilt stjórnskip-
aðar reglur um. Má þar t.d.
nefna stóran og lftinn staf, eitt
eða tvö orð o.fl.Nefndin hefir oft
ekki viljað breyta þeim reglum,
sem nú gilda, þótt hún hafi
komið auga á aðrar einfaldari.
Sem dæmi mætti nefna, að
enginn vafi leikur á þvi, að það
myndi horfa til mikillar einföld-
unar að rita alltaf n i stað nn i
áherzlulausum atkvæðum i
enda orða. En með þvi að nefnd-
inni virtust önnur atriði þar
þyngri á metunum, þ.e. form-
kerfi ritmálsins, lagði meiri-
hluti hennar til, að engin
breyting yrði gerð”.
Þá segir i formála álits-
gerðarinnar, að andspyrna gegn
afnámi z hafi orðið meiri en
nefndin hafi gert ráð fyrir.
Og þá er eftir að sjá, hvernig
tillögum stafsetningarnefndar
verður tekið — eða hvort fimm-
menningarnir hafi til einskis
setið á rökstólum allt s.l. sumar,
og zverði aftur tekin upp. Það
virðist vera talsvert þingfyigi
nú með z, en reyndar merkir
samþykkt þingsályktunartil-
lögu ekki að eftir henni verði
farið, þótt erfitt yrði fyrir
menntamálaráðuneytið að
horfa fram hjá slikri samþykkt.
—GG
AFBROTAUNGLINGAR
í BRENNIDEPLI
„Það er mjög erfitt að segja til
um breytingar á fjölda afbrota
unglinga, eða aðrar breytingar á
þeim, þvi skýrslur um það eru
ekki til ”, sagði Hiidigunnur
ólafsdóttir afbrotafræðingur I
viðtaii viö Visi.
Hildigunnur er frummælandi á
fundi, sem félag sérkennara
heldur í kvöld. Fundurinn á að
fjalla um afbrotamál barna og
unglinga.
„Seinustu heillegu skýrslurnar,
sem gerðar hafa verið, eru frá
árinu 1968,” sagði Hildigunnur.
Að sögn hennar eru algengustu
afbrot barna og unglinga
þjófnaðir. Þess eru jafnvel dæmi,
að unglingar hafi átt aðild að
stórþjófnuðum.
„En önnur tegund afbrota er
fremur sjaldgæf. Oftast eldist
þetta svo af unglingunum. Hins
vegar hefur drykkjuskapur
unglinganna sjálfra sjaldnast
afgerandi áhrif á afbrot þeirra.
Og aukin drykkja undanfarin ár
hefur ekki verið þess valdandi að
hafa áhrif á afbrot þeirra,” sagði
Hildigunnur.
Fundurinn, sem hefst kl. 20.30 i
kvöld, er opinn öllu áhugafólki
um málefnið. Hann verður
haldinn I ráðstefnusal Hótel Loft-
leiða.
Auk Hildigunnar talar á
fundinum fólk, sem hefur nálægt
þessum málum komið og haft
afskipti af þeim.
—ÓH
TOMMY OG LEYNIMELUR 13
Á NEMENDAHÁTÍÐ í VERZLÓ
Popp-óperan Tommy, sem
hijómsveitin Who á heiðurinn
af, verður á dagskrá Nemenda-
móts Verzlunarskóla tslands, en
sú hátið verður haidin um
miðjan næsta mánuð. Þá eru
Verzlunarskólanemar jafn-
framt að æfa leikritið „Leyni-
melur 13”, sem sýnt var við
gifurlega aðsókn i Iðnó fyrir
nokkrum árum.
Nemendur skólans eru að
sjálfsögðu misjafnlega sviðs-
vanir, en þeir hafa fengið
reynda leiðbeinendur til að
Við sögðum frá ferðadiskó-
tekinu Asláki i þriðjudagsblaðinu.
Þar stóð, að Aslákur væri eina
ferðadiskótekið á landinu.
Stjórnandinn, GIsli Sveinn
Loftsson, hafði samband við
blaðið i gær. Hann baðst forláts á
stóryrðum sinum um, að hann
væri sá eini. Æskulýsðráð
Reykjavikur, hefur haft ferða-
diskótek i nokkur ár. Gisli
gleymdi þvi bara i viðtalinu.
„Þetta feröadiskótek okkar er
þáttur I þjónustu Æskulýðsráðs
við félög og skóla,” sagði Hinrik
stjórna æfingunum. Eru það Jón
Hjartarson leikari, sem æfir
með þeim „Leynimelinn” og
Sigurður Rúnar Jónsson tón-
listarmaður, sem auk þess að
æfa bæði kór og hljómsveit,
hefur einnig unnið allar út-
setningar fyrir flutning popp-
óperunnar.
Kórinn er skipaður 50
söngvurum, sem er heldur
stærri hópur en endranær. I
hljómsveitina hafa valizt tveir
félagar úr hljómsveitinni
Náttúru, sem nú er hætt. Sú
Bjarnason framkvæmdastjóri
Æskulýðsráðs.
„Það er fyrst og fremst ætlað
fyrir félagsstarfsemi, sem vinnur
að æskulýösstörfum. Þá er hægt
aö hringja og panta diskótekið.”
Tveir til þrir plötusnúðar sjá
um diskótek Æskulýðsráðs, en
það er mikiö eftirspurt.
Mikil aösókn er I diskótekið, en
ekki er hægt að sinna öllum.
Sumum er ekki sinnt, þar sem
viðkomandi starfsemi er utan
ramma æskulýösstarfsem i.
Diskótekið kostar 3000 kr. I leigu
fyrir kvöldið. —óH
hljómsveit lék einmitt á sinum
tima langan kafla úr Tommy.
Það verður 40 minútna kafli
úr óperunni, sem Verzlunar-
skólanemendurnir hyggjast
taka. Verða þeir þá i búningum,
en út i nákvæma sviðsetningu
verður ekki farið.
Ef vel þykir takast til, er
fyrirhugað, að hafa sýningar i
Austurbæjarbiói fyrir
almenning og bjóða þar upp á
bæði leikritið og popp-óperuna.
_____________________—ÞJM
Ekið á stúlku
á gangbraut
Tólf ára gömul stúika slasaðist
mjög aivarlega I gærdag, er ekið
var á hana.
Stúlkan var að fara yfir
gangbraut á Hafnargötu i
Keflavik. Með henni voru tvær
vinkonur hennar.
Bill kom aövifandi og ók á tvær
stúlknanna. önnur meiddist iitil-
lega á fæti, en hin hlaut mikil
innvortis meiðsli.
Hún fór i aðgerð á sjúkrahúsinu
i Keflavik og er nú talin úr ailri
lifshættu.
Mikil hálka var á Hafnarbraut-
inni. Ekki kom i Ijós, að
bílstjórinn hefði ckið óeðlilega
hratt. Hins vegar mun hann ekki
hafa tekið eftir stúlkunum nógu
timanlega til að geta hemlað.
Skyggni var ágætt, er slysið
varö, en það var i hádeginu.
—ÖH
Áslákur er ekki
einn í heiminum
„BLOMSTRANDI FYRIR
FRAMAN GLUGGANN
MINN í FEBRÚAR"
„Ég er venjulega meö túli-
pana blómstrandi fyrir framan
gluggann minn i febrúar,” sagöi
Emil Guömundsson, móttöku-
stjóri á Hótel Loftleiðum, en
þegar Visismenn áttu þar leið
um i gær, komu þeir auga á
gróður, sem var að skjóta upp
kollinum i snjónum og
kuldanum, sem maður hefði
trúað, aö hefði ekki beint heilla-
vænleg áhrif.
Það mætti ætla, að þetta væru
túlipanar af sérstakri gerð, en
ástæðuna fyrir þessu kvað Einil
vera þá, að sundlaugin og gufu-
baðið á hótelinu væri þarna
fyririnnan og gufan streymdi út
og yrði eins konar vermir.
Þrjár vikur eru nú siðan þeir
á Loftleiðum tóku eftir þessu, og
liklega verða þar blómstrandi
túlipanar iöngu fvrir hinn rétta
tima. EA
Nýr minjavörður í Árbœ
Nýr minjavöröur hefur nú
verið ráöinn til Arbæjarsafns, og
er það Nanna Hermannsson, að
sögn Hafliða Jónssonar garð-
yrkustjóra.
Nanna starfar nú viö þjóö-
minjasafnið i Færeyjum, en
væntanlega tekur hún við starfinu
i Arbæ með vorinu.
Nanna er islenzk i móðurætt, og
þó að hún hafi dvalið nokkuð er-
lendis, lauk hún námi frá
Menntaskólanum á Akureyri, og
talar islenzkuna reiprennandi.
—EA