Vísir - 31.01.1974, Page 4
4
Visir. Fimmtudagur 31. janúar 1974.
Ryan O’Neal ásamt dóttur sinni Tatum, en þau léku aöalhlutverkin I
„Paper Moon.” — Atriðin þurfti stundum að endurtaka margoft vegna
þess að Tatum gat ekki fyrir sitt litia líf lært setningarnar utan að.
„Hvernig átti ég að vita, aö mitt eigiö barn kæmi til með að stela allri senunni frá mér?”
og vinnan er erfið. Mér leið held-
ur ekki vel, þegar við þurftum að
kvikmynda um kaldar nætur
utanhúss og þurftum stundum að
endurtaka 40 sinnum atriði, þvi
að hún getur ekki fyrir sitt litla lif
lært margar setningar utan að.
Mér leið heldur ekki vel, þegar
hún þurfti að reykja eins og
strompur. Ekki henni heldur, en
þaö gæti enginn séð, þegar horft
er á kvikmyndina.”
Tatum gengur i heimavistar-
skóla og leiklistina hefur hún lagt
á hilluna. Helzt langar hana að
veröa hárgreiðslukona eða eitt-
hvað slikt. A hárgreiðslustofuna
vill hún eingöngu fá negrakonur.
„Við höfðum barnfóstru fyrir
hana, sem var með dæmigert
negrahár, og mesta skemmtun
Tatum var að fá að fikta i hárinu
á henni.”
Umsjón:
Edda
Andresdottir
„Hvernig átti ég að vita
að barnið mitt stœli frá
mér senunni?"
— segir Ryan O'Neal, sem lék
aðalhlutverkið ásamt 10 ára dóttur
sinni, Tatum, í„Paper Moon"
„Hvernig átti ég að
vita það, að mitt eigið
barn kæmi til með að
stela senunni frá mér?”
Þetta sagði hinn kunni
leikari Ryan O’Neal i
viðtali fyrir skömmu, en
Ryan og dóttir hans 10
ára, Tatum, léku saman
i kvikmyndinni ,,Paper
Moon”, sem fyrir nokkr-
um vikum siðan var
byrjað að sýna i Sviþjóð.
Ryan O’Neal og Tatum fara
með aðalhlutverkin. Hún leikur
litla harða stúlku, sem reykir og
er harla villt. Tatum hefur gert
svo mikla lukku i þessari fyrstu
kvikmynd sinni, að myndin geng-
ur oft á tiðum aðeins undir
nafninu „Dóttir Ryans.”
Það hefur litið borið á þessari
litlu stúlku i lffi Ryans, sem hann
segir, að sé mikilvægasta konan i
lifi sinu. „Hún þarfnaðist min
frekar en móður sinnar, segir
hann. Hún kom til min og bað um
að fá að vera hjá mér. Ég út-
skýrði fyrir henni að það væri
erfitt, ég væri litið heima og oft
mánuðum saman i burtu við kvik-
myndagerö. Þá svaraði hún: Ég
skal lofa þvi að vera ekki fyrir.
Tatum hefur rödd, sem likist
helzt marri i gömlum skó, hún er
sjálfselsk og löt, en hún á það lika
til að vera geysilega dugleg og
hörð. Hún er góð litil manneskja,
og fyrst og fremst ætla ég að
kenna henni náungakærleik. Ég
held hún hafi haft nokkuð gott af
kvikmyndaleiknum.
Ég hikaði, áður en ég ákvað að
leyfa henni að taka að sér hlut-
verkið. Ég vissi ekki, hvernig
áhrif það myndi hafa á hana,
hlutverkiðvarenginn barnaleikur,
Samband Ninu og Irvings kvikmyndað:
Nina kærir sig ekkert um að samband hennar og Cliffords Irving
birtist á hvita tjaldinu og hefur hótað málssókn.
Nina hótar málsókn, neitaði
tilboði um aðalhlutverkið
Ráðgert er nú að
kvikmynda ástarævin-
týri Ninu van Pallandts
og Cliffords Irving. En
Nina sjálf er aldeilis
ekki á þeim buxunum,
að ævintýri þetta komi
fram á hvita tjaldinu.
Hún vill halda þvi fram
að kvikmyndin komi til
með að skaða mannorð
hennar og krefst þess,
að kvikmyndataka
verði stöðvuð.
En vestur-þýzkir kvikmynda-
tökumenn eru þegar farnir af
stað og ætla sér að taka mynd-
ina á Ibiza, þar sem ástarævin-
týrið átti sér stað, og þar sem
Nina,hitti Irving fyrst.
Sögusagnir herma, að mikið
veröi um ástarsenur i kvik-
myndinni og sagt er, að leik-
stjórinn, Peter Schultze-Rohr,
byggi kvikmyndina mikið á einu
svari Ninu, á meðan á réttar-
höldunum yfir Irving stóð.
„Hann hefúr ekki haft tæki-
færi til þess að sjá aðra en mig,
þvi við höfum eytt siðustu 48
timunum I rúminu”, var svar
Ninu, þegar dómarinn spurði
hana, hvort Irving hefði haft
einhverja möguleika á að hitta
Howard Hughes i Mexikó.
Mótmæli Ninu vegna kvik-
myndarinnar hafa þó komið þvi
til leiðar, að vestur-þýzka kvik-
myndafólkið hyggst -breyta
nafniNinu i myndinni I Marina,
og læða þvi einhvers staðar að,
að likist persónur myndarinnar
I einhverju þeim Ninu og Cliff-
ord, þá sé það aðeins tilviljun.
Framleiðandinn, Henry
Kolarz, á erfitt með að skilja
reiði Ninu: „1 myndinni kemur
stúlkan fram á miklu geðfelld-
ari hátt en i raunveruleikanum,
og við buðum meira að segja
Ninu sjálfri að fara með aðal-
hlutverkið.”
Nina svaraði tilboðinu með
hótun um málsókn, og hlut-
verkið fékk i staðinn leikkona
frá MUnchen, Eva Christian.
Clifford Irving hefur hins veg-
ar farið fram á 10 þúsund doll-
ara greiðslu fyrir notkun á sögu
hans, en með hlutverk hans fer
Horst Frank.
Irving fer fram á 10 þúsund
doliara greiðslu fyrir kvikinynd-
un á ástarævintýri hans og
Ninu.