Vísir - 31.01.1974, Blaðsíða 8
8
Visir. Fimintudagur 31. janúar 1974.
Vísir. Fimmtudagur 31. janúar 1974.
9
Fjórir keppts
um marka-
kóngstitilinn
Tveir leikir í 1. dei|d Islandsmóts-
ins i handknattleik voru háöir í
Laugardalshöllinni. tlrslit urðu
þessi.
Fram— FH 22-25
Vikingur— ÍR 25-25
Eftir þessi úrslit er nánast forms-
atriði að Ijúka keppninni hvað
meistaratitlinum viðkemur. Sigur
FH er það öruggur.
Staöan er nú þannig:
FH 9 9 0 0 213-147 18
Valur 9 5 13 180-166 11
Fram 10 4 3 3 201-190 11
Vikingur 10 4 2 4 214-212 10
Haukar 9 2 4 3 168-182 8
ÍR 10 2 3 5 193-210 7
Armann 9 2 2 5 129-143 6
Þór 8 116 134-182 3
Markhæstu leikmenn eru nú.
Axel Axelsson, Fram 73/30
Einar Magnússon, Viking, 69/36
Viðar Símonarson, FH, 62/10
Gunnar Einarsson, FH, 61/17
Agúst Svavarsson, IR, 55/1
Hörður Sigmarsson, Haukum, 55/17
Guðjón Magnússon, Víking, 44
Gisli Blöndal, Val, 43/15
Vilhj. Sigurgeirsson, IR, 43/24
Sigtryggur Guðlaugss. Þór, 42/22
Stefán Jónsson, Haukum, 37/4
Björgvin Björgvinss. Fram, 34
Vilberg Sigtryggsson, Arm. 30/7
Hörður Kristinsson, Árm. 29/12
Stefán Þórðarson, Fram, 28
Þorbjörn Jensson, Þór, 28
Gunnl. Hjálmarsson, ÍR, 27/1
Ólafur Ólafsson, Haukum, 27/16
Þórarinn Ragnarsson, FH, 26/3
Hermann Gunnarsson, Val, 25/10
ólafur H. Jónsson, Val, 25
Guðjón Marteinsson, IR, 22
Gunnst. Skúlason, Val, 20
Bergur Guðnason, Val, 19/9
Aöalst. Sigurgeirss. Þór, 18
Stefán Halldórsson, Vik. 18
Árni Gunnarsson, Þór, 17
Ásgeir Eliasson, ÍR, 17
Ingólfur óskarsson, Fram, 17
Jón Ástvaldsson, Armanni, 17
Jón Sigurösson, Viking, 17
ólafur Einarsson, FH, 17
Ágúst ögmundsson, Val, 16
Auðunn óskarsson, FH, 15
Björn Jóhannesson, Árm. 15
ólafur Friðriksson, Vík. 15
Ólaf ur Sverrisson, Þór, 15
Jón Karlsson, Val, 14/1
Páll Björgvinsson, Vik. 14
Skarphéðinn óskarss. Vik. 14
Arnór Guðmundss. Haukum, 13
Guðm. Haraldsson, Haukum, 13
Benedikt Guðmundsson, Þór, 12
Ragnar Jónsson, Ármanni, 12
Sigurb. Sigsteinsson, Fram, 11
Arnar Guðlaugsson, Fram, 10
Olfert Naby, Ármanni, 10
Pálmi Pálmason, Fram 10
Þorst. Ingólfsson, Árm. 10/1
Örn Sigurðsson, FH, 10
Næsti leikur er á Akureyri. Á
laugardag, 2. febrúar leika Þór-
Vikingur þar. A sunnudag verða
tveir leikir í Laugardalshöll. Þá
leika fyrst IR-FH — síðan Ármann-
Valur.
Gunnar Einarsson, örvhenti snillingurinn I FH-liðinu, var Fram erfiður í gær. Hann skoraði sjö mörk I
leiknum — þarna er hann kominn I skotstöðu og þá er ekki að sökum að spyrja. Knötturinn hafnar I
netinu. Ljósmynd Bjarnleifur.
Nú getur ekkert stöðvaðFH-
inga-meistaratitillinn í höfn
sama
— Léttur sigur FH gegn hœttulegustu mótherjunum — Reykjavikurmeisturum
Fram — í Laugardalshöllinni í gœrkvöldi, 25-22. FH þarf nú aðeins fjögur stig
til viðbótar í fimm leikjum og Islandsmeistaratitillinn er liðsins
FH verður islandsmeistari i
handknattleik árið 1974 — á þvi er
ekki nokkur vafi. i gærkvöldi
vann liðið sinn niunda leik og
hefur enn ekki tapað stigi — og sá
sigur var léttur gegn Reykja-
vikurmeisturum Fram, þvi liði,
sem helzt var talið geta veitt FH-
ingum einhverja keppni. tjrslit
urðu 25-22 fyrir FH — kannski i
minnsta lagi eftir gangi leiksins.
Miklu meiri hreyfanleiki Hafn-
firðinga — bæði i sókn og vörn —
hraði og leikni, varð aðaíl þeirra i
leiknum, og opnaði vörn Fram oft
illa eins og mörkin 25 gefa til
kynna. Það er sjaldgæft að hin
sterka Fram-vörn fái svo mörg
mörk á sig.
Viðar Simonarson og Gunnar
Einarsson voru óstöðvandi og
skoruðu 17 af mörkum FH — og
þeir Auðunn Óskarsson og
Þórarinn Ragnarsson áttu einnig
stórleik. Þá var hlutur Birgis
Finnbogasonar i marki FH mikill
— einkum fyrsta stundar-
fjórðunginn, þegar hann næstum
lokaði marki sinu. En þrátt fyrir
þessa menn var leikur FH ekki
án misfellna — taugaspennan var
mikil framan af og fjórum
sinnum snemma leiks var knett-
inum tapað vegna mistaka. Það
kom ekki svo mjög að sök vegna
markvörzlu Birgis þá.
Þó ekki væri nema þriggja
marka munur i leikslok á liðunum
hafði maður alltaf á tilfinn-
ingunni, að sigur FH kæmist
aldrei i hættu. Jafnvel ekki, þegar
Fram hafði nær unnið upp sex
marka forskot FH. Leikur Fram
var ekki sannfærandi og stafaði
mest af þvi,að markakóngurinn
Axel Axelsson náði sér ekki á
strik — enda meiddur i hálsi. FH-
ingar höfðu ekki einu sinni fyrir
Ennþá náðu ÍR-ingar stigi
fallhœttan úr sögunni?
iR-ingar virtust hafa
leikinn við Viking í 1. deild-
inni i Laugardalshöllinni í
gærkvöldi í hendi sér.
Þegar nokkuð var liðið á
síðari hálf leikinn höfðu ÍR-
ingar fimm marka for-
ustu. En þá loksins vökn-
uðu Víkingar til lífsins —
sýndu sama baráttuvil j-
ann og gegn Val á sunnu-
dag — og ekki aðeins unnu
upp muninn, heldur kom-
ust þeir tveimur mörkum
yfir, 24-22. Höfðu þeir snú-
ið stöðunni úr 15-20. En ÍR-
ingar áttu síðasta orðið.
Jöfnuðu og á lokaminút-
unni fengu þeir vítakast,
sem Vilhjálmur Sigur-
geirsson misnotaði. Loka-
tölur 25-25 og IR hefur nú
hlotið f jögur stig í þremur
fyrstu leikjunum í síðari
umferð — en fengu aðeins
þrjú stig alla fyrri
umferðina. Varla er nú
lengur hægt að tala um
fallhættu í sambandi við
IR.
Leikur liðanna I gær var heldur
slakur og varnarleikur hörmuleg-
ur eins og markatalan gefur til
kynna. Þó er greinilegt, að
ÍR-liðið er allt annað og betra, en
það var I fyrri umferðinni. Leikur
Vikings sveiflukenndur eins og
áður.
Eftir tvö stangarskot Vikings á
fyrstu mln. skoraði Asgeir Elias-
son fyrsta mark leiksins fyrir 1R,
og bætti við ööru rétt á eftir. Siðan
var mikið markaregn — mark á
minútu lengi vel. Vikingar jöfn-
uðu I 3-3, og allar tölur upp I 12-12
var jafnt, en IR-ingar skoruðu tvö
siðustu mörkin i hálfleik. 14-12 i
leikhléi fyrir 1R. Markvarzlan
var hörmuleg framan af — eins
og varnarleikurinn. Fyrsta skot
varið hjá báöum liðum á 16.min.
þegar Rósmundur, Vikingsmark-
vörður, varði. Þá tók Guðmundur
Gunnarsson I marki ÍR einnig
kipp — varði fjögur skot i röð.
Strax á fyrstu min. s.h. náði 1R
fjögurra marka forskoti og
staðan var orðin 19-15 fyrir ÍR
eftir sex min. 20-15 fyrir IR eftir
átta min. En þegar allt virtist
komið I óefni hjá Viking tók liðið
við sér. Sigurgeir kom i markið —
og fór að verja vel. Munurinn
minnkaði og eftir 19 min. var
jafnt 22-22 — og Víkingar stönz-
uðu ekki þar, heldur voru komnir
tveimur mörkum yfir, 24-22, eftir
25 mínútur. Þá hefði maður veðj-
að á Vfkingssigur — eins og leik-
urinn hafði þróast. En IR-ingar
voru á annarri skoðun. Jöfnuðu á
næstu min. 24-24. Þá skoraði Guð-
jón Magnússon, bezti maðurinn á
vellinum, 25. mark Vikings á 27.
min. en Vilhjálmur jafnaði úr vlti
— og fékk annað tækifæri á
lokaminútunni, en lyfti knettinum
yfir markið. Vikingar sóttu i lokin
— og þegar flautan hljómaði sveif
einn þeirra inn I teig IR, en það
var of seint, og skotið varið.
Hjá 1R bar Asgeir af — Agúst
var afar hættulegur, og.Gunn-
laugur og Vilhjálmur stóðu vel
fyrir sinu. 1 Vikingsliðinu átti Páll
Björgvinsson góðan leik ásamt
Guðjóni og fiskaði mikið af vitum
— en varnarleikurinn hjá Viking
var lengstum algjörlega á núll-
punktinum.
Einar Magnússon skoraði 11
mörk fyrir Viking i leiknum, þar
af niu úr vitaköstum, en
misnotaði tvö. Guðjón skoraði 9
mörk og var skotnýting hans
frábær. Skarphéðinn og Páll
skoruðu tvö mörk hvor, Stefán
Halldórsson eitt. Agúst Svavars-
son skoraði sjö mörk fyrir 1R —
Asgeir og Gunnlaugur 5 hvor —
einnig Vilhjálmur, þar af 3 úr
vitaköstum, misnotaði tvö. Þór-
arinn Tyrfingsson, Jóhannes
Gunnarsson og Hörður Arnason
skoruðu eitt mark hver. Dómarar
Magnús Pétursson og Valur
Benediktsson og þvi miður enn I
„öldudalnum.”
þvi að elta hann um völlinn —
eins og þeir gerðu i Hafnarfirði
fyrir áramót, og Axel skoraði þá
aðeins eitt mark. Það var aðeins
Björgvin Björgvinss., sem virki-
lega gat ógnað FH i leiknum, þó
svo aðrir leikmenn Fram skoruðu
fleiri mörk. Þá léku Sigurbergur
og Ingólfur allsæmilega.
Björgvin skoraði fyrsta mark
leiksins á 2.min, og Fram hefði átt
að ná meiri forustu ef Pétur
Jóhannsson ekki farið illa með
frábæra sendingu Sigurbergs. 1
stað þess komst FH yfir eftir 5
min. með mörkum Viðars og
Gunnars. Fram jafnaði i 2-2 —
Ingólfur eftir 6 min. og það var i
siðasta skipti, sem Fram hélt i við
FH. Viðar breytti stöðunni i 4-2 —
þá skoraði Axel úr viti, Gunnar
fyrir FH og siðan Axel aftur á 13
min. 5-4 —en á næstu min. snerist
leikurinn alveg FH i hag. Litið
sem ekkert fór fram hjá Birgi i
marki — staðan var orðin 11-5
fyrir FH eftir 22 min. Axel hafði
gert sig sekan um mikil mistök —
linusendingar hans voru alveg
misheppnaðar gegn hinum
snöggu varnarmönnum FH. Það
merkilega skeði, að leikur Fram
lagaðist, þegar Axel var tekin út
af — en að visu fékk þá örn
Sigurðsson i FH-liðinu að hvila
sig i tvær min. Fram náöi sinum
bezta leikkafla og skoraði fimm
mörk i röð , og staðan breyttist i
11-10 fyrir FH. En þá var Andrési
Bridde, Fram, vikið af velli — og
Axel eiginlega strax og hann kom
inn á aftur. Fjórum útispilurum
Fram tókst ekki að hindra mörk
— Þórarinn skoraði tvivegis, en
það merkilega var, að Ingólfur
skoraði siðasta markið i hálf-
leiknum eftir að hafa rétt áður
misnotað vitakast fyrir Fram.
Axel var ekki leyft að taka það —
þó svo brottrekstrartimi hans
virtist útrunninn.
1 hálfleik stóð 13-11 fyrir FH og
eftir að Axel hafði minnkað
muninn i eitt mark kom góður
kafli hjá FH-liðinu. Það skoraði
fjögur næstu mörk, 17-12, eftir
átta minútur, og sigur FH virtist
nokkuð öruggur. Fram skoraði
næstu tvö mörk og þriggja til
fjögurra marka munur hélzt fram
á 24.min. FH-ingar hættu greini-
Sundknatt-
leikur í
kvöld
Reykjavikurmótið i sundknatt-
leik hefst i kvöld i Sundhöllinni.
Þá leika Ægir og KR, en auk
þessara félaga sendir Ármann lið
til keppni.
Leikin verður tvöföid umferö
— einn leikur I viku. Leikurinn I
kvöld hefst um kl. 22.00.
lega ekki á neitt — hugsuðu
aðeins um að tryggja sér sigur.
En það skapaði reyndar hættu —
þó litil væri. Fram minnkaði
muninn — 22-20 stóð þegar sex
min. voru eftir. En FH-ingar
virtust geta aukið við sig hvenær,
sem þeir vildu — þeir breyttu
stöðunni strax i 25-21 — en siðasta
mark leiksins skoraði Axel beint
úr aukakasti eftir að ieiktima
lauk. FH-ingar höfðu varla fyrir
þvi, að reyna að verjastekotinu —
fögnuður vegna sigursins var það
mikill.
Já, spennan um efsta sætið er
úr sögunni — FH vinnur mikinn
yfirburðasigur i mótinu, og það er
ekki vafi á þvi að bezta liðið
verður Islandsmeistari.
Mörk FH i leiknum skoruðu
Viðar 10 (2 viti), Gunnar 7 (2
viti), Þórarinn 4, Arni 1, Auðunn
1, örn 1 og Birgir Björnsson 1 —
en Birgir er enn oft lykilmaðurinn
i vörn liðsins ásamt Auðunni.
Fyrir Fram skoruðu Axel 7 (3
viti), Ingólfur 5, Björgvin 3,
Stefán 3, Arnar 1, Sigurbergur 1,
Andrés 1 og Hannes 1.
Dómarar voru Björn Kristjáns-
son og Óli Olsen og komust
nokkuð vel frá erfiðum leik, þó
svo dómgæzla þeirra væri ekki
misfellulaus.
Arsenal sá aldrei sól-
ina á leikvelH Villa!
Manch. City leikur til úrslita við Úlfana í deildabikarnum
á Wembley-leikvanginum í Lundúnum
Leikmenn Lundúna-
liðsins fræga, Arsenal,
sáu aldrei sólina gegn 2.
deildar liði Aston Villa á
leikvelli Villa i Birming-
ham i gær. Aston Villa
sigraði með 2-0 og þar
með er Arsenal fallið úr
bikarkeppninni eins og
svo mörg önnur fræg
félög. Aston Villa leikur
við Burnley i 5. umferð á
útivelli.
Orslit i FA-bikarleikjunum á
Englandi i gær urðu annars þessi:
Bolton— Southampton 0-2
Scunthorpe—Newcastle 0-3
Aston Villa—Arsenal 2-0
Derby—Coventry 0-1
Leicester—Fulham 2-1
WBA— Everton
I leikjunum i Derby, Bolton og
Leicester þurfti framlengingu til
að fá úrslit.
I undanúrslitum deildabikars-
ins léku Manch. City og Plymouth
siðarileik sinn i gær. Manch. City
sigraði með 2-0, samanlagt 3-1, og
leikur þvi til úrslita við Olfana i
keppninni. Sá leikur verður
Wembley-leikvanginum i Lund-
únum i marz.
Auk sigurs Aston Villa i FH-
bikarnum kom sigur Coventry
gegn Derby einnig talsvert á
óvart. Coventry á heimavöll gegn
QPR i 5. umferð.
Dýrlingarni voru afar heppnir
að ná sigri i Bolton. Heimaliðið
hafði algjöra yfirburði i fyrri
hálfleiknum — fékk þá mörg
marktækifæri og 12 hornspyrnur,
en tókst ekki að skora. I siðari
hálfleiknum jafnaðist leikurinn —
en ekkert mark hafði verið skorað
eftir 90 minútur. Þá var fram-
lengt og á 110. minútu leiksins
tókst Soithampton að skora. Það
var Bob Stokes — og fimm min.
siðar endurtók hann afrekið.
Newcastle fór létt með Scunt-
horpe úr 4. deild. Barrowclough
skoraði eftir niu min. og eftir
það var aðeins spurning hve mörg
mörk Newcastle mundi skora
Tvö komu til viðbótar — Malcolm
McDonald skoraði bæði, — á 54.
og 87. minútu.
WBA hafði yfirburði i leiknum
gegn Everton, en tókst ekki að
skora nema eitt mark. Það nægði
þó — markakóngurinn Tony
Brown skoraði markið. Leicester
þurfti framlengingu til að slá út 2.
deildarlið Fulham — og sama er
að segja um Coventry gegn
Derby. Þvi miður höfum við ekki
hverjir skoruðu mörkin i þesum
leikjum.
I fimmtu umferðinni leikur
WBA við Newcastle, Luton við
Léicester, Sotuhampton við
Wrexham.
Skozki sundmaðurinn
frægi, David Wilkie, var
stóra nafnið á Samveldis-
leikunum i Christchurch i
gær. Með stuttu millibili
hlaut hann tvenn gullverð-
laun — fyrst i 200 metra fjór-
sundi, og siðan i sinni aðal-
grein, 200 metra bringusund-
inu.
David hafði yfirburði i
fjórsundinu — synti á 2:12.5
min. og var vel á undan Eng-
lendingnum Brinkley, en i
bringusundinu fékk hann
harða keppni frá David
Leigh, Englandi. Wilkie
sigraði þó á 2:24,42 min., en
Leigh synti á 2:24.7 min\
„Þetta var erfitt”, sagði
David eftir siðara sundið —
,,en hin mikla þjálfun, sem
ég hef fengið i Bandarlkjun-
um, bjargaði málunum”.
i 400 metra skriðsundi kom
John Kulasalu, Astraliu, á
óvart — sigraði á 4:01.44
min. og vann Olympiumeist-
arann Brad Cooper, sem
varð annar. i þriðja sæti
varð Stephen Badger, sem
sigraði i 200 m. skriðsuudi.
Þetta sund var þvi ástralskt.
Wenden, Olympiumeistar-
inn frá Mexikó, hlaut niundu
gullverðlaun sin i gær á
Samveldisleikunum, þegar
hann var i sigursveit
Astraliu i 4x200 metra skrið-
sundi. Ilann sigraði i 100 m
skriðsundi fyrr á leikunum —
og nú er hann hættur keppni.
Eftir kcppnina i gær var
Astralia með 19 gull-
verðlaun, Kanada 17, Eng-
land 9, Nýja-Sjáland 6,
Kenýa 5, Indland 4 Skotland
og Norður-írland 2 — einnig
Jamaika, og Wales hafði
hlotið ein gullverðlaun.
Keppnin byrjaði snemma i
morgun á ný — það er eftir
islenzkum tima. Þá vann
Don Baird, Astraliu,
stangarstökk á 5,05 metrum.
Robin Tait, Nýja-Sjálandi,
sigraði i kringlukasti 63.08 m
og Judy Vernon, Englandi, i
100 m grindahlaupi á 13.5 !
sek.
Donald Baird sveiflar sér á
stönginni upp i 5.05 metra I
Christchurch i nótt eftir
islenzkum tima.
Munið frímerkjasöfnun Geðverndar
■ ANDLEG HREYSTl-ALLRA HEILL
stimpluð, óstimpluð, gömul
kort og heil umslög innl. &
erlendra ábyrgðarbréfa.
Pósthólf 1308 eða skrifst. fél.
Hafnarstr. 5.