Vísir - 31.01.1974, Page 16
Fimmtudagur 31. janúar 1974.
Frœðslu-
útvarp um
ófengis-
bölið
Skólabörnum á islandi gefst i
fyrramáiiö kostur á að hiýða á 25
minútna fræðsludagskrá um
áfengismál i hljóðvarpinu.
Bindindishreyfingin i landinu
gengst fyrir þessari dagskrá i
samráði við fræðsluyfirvöld og
stjórnendur Rfkisútvarpsins.
Dagskráin var unnin af sér-
stökum vinnuhópi, mynduðum af
mönnum frá Ríkisútvarpinu og
bindindishrey fingunni.
Ragnar Tómason lögfræðingur
tjáði Visi i morgun, að dagskrár-
liður þessi samanstæði af ávarpi
og viðtölum, og hefst hann
kl.10:30.
„Þetta gæti verið byrjun á
umræðum meðal nemenda i.
framhaldsskólum landsins um
áfengismálin,” sagði Ragnar, og
við vildum lika bæta úr þeim
skorti, sem hefur verið á fræðslu
i islenzkum skólum um áfengis
Rússarnir koma! Rússarnir koma!
Með koníak handa Fríðrík
vilja viðtal við Sœmund, lífvörð Bobby Fischer frá dógum heimsmeistaraeinvígisins
Vasill Smyslov og Davlð
Bronstein, sovézku stórmeistar-
arnir I skák, koma til Reykja-
vlkur klukkan 18 I kvöld. Á
sunnudaginn hefst Alþjóðlega
skákmótið,sem Skáksamband
tslands gengst fyrir.
Þeir Smyslov og Bronstein
verða ásamt Friðrik Ólafssyni
að teljast skrautrósirnar á
væntanlegu móti, og liklegt
verður að telja, að einhver
þeirra verði i efstu sætum
mótsins.
Smyslov var heimsmeistari I
skák 1957-1958, en Bronstein var
nærri þvi að hreppa titilinn,
þegar hann náði jöfnum
vinningum við Botvinnik i ein-
vigi 1951. Það einvigi endaði
12:12 og Botvinnik hélt titlinum.
Koniak handa Friðrik
Sovézkur fréttamaður átti
viðtal viö þá skákfélagana
frægu, áður en þeir lögðu upp til
Islands, og sagöi Smyslov
meðal annars:
„Islenzkir skákmenn hafa
áunnið sér góðan orðstir er-
Smyslov — fyrrverandi heims-
meistari I skák er væntanlegur I
dag ásamt Bronstein, sem ekki
er slður frægur af blöðum skák-
listarinnar.
lendis. Stórmeistarinn Friðrik
Ólafsson er þekktur um allan
heim. Ég hef heyrt mörg hrós-
yrði um Guðmund Sigurjónsson
og einnig um hinn unga Sævar
Bjarnason, sem tók þátt i
Unglingameistaramóti Evrópu \
Hollandi...Ég hlakka til að hitta
Friðrik Ólafsson stórmeistara.
Ég man eftir þvi, að Friðrik
söng nokkur íslenzk þjóðlög I
hófi, sem haldið var að loknu
alþjóðamóti i Moskvu. Ég söng
rússneskar rómönsur. Ef til vill
getum við sungið tvisöng i
Reykjavik.”
Og Bronstein sagði m.a.:
„Það er mikil ánægja að fara til
Reykjavikur. Fyrir utan
skákina þarf ég að sinna
skyldum blaðamanns þar. Ég er
skákfréttaritari dagblaðsins
„Isvestija” og ætla að taka
viðtal við lögreglumanninn,
er var fylgdarmaður Fischers,
meðan á einviginu stóð. Viðtalið
ætla ég að kalla „Hvernig ég
verndaði Bobby.”
Eitthvað hef ég i fórum
mlnum handa gömlum vini,
Friðrik Ólafssyni. Einu sinni
átti ég viðtal við hann I Moskvu.
Þegar ég spurði hann, hvað væri
öllu framar drukkið á íslandi,
svaraði hann „koniak”. Ég býst
ekki við, að flaska af góðu
armensku koniaki spilli
frammistöðu hans á mótinu...”
Friðrik Ólafsson sagði Visi i
morgun, að hann myndí taka á
móti Rússunum i kvöld: „En
þetta með koniakið, það er mis-
skilningur Bronsteins. Hann
spurði mig, hvort koniak væri
drukkið hér á landi — og ég
sagði, að það kæmi fyrir...”
Auk Sovétmannanna tefla hér
stórmeistararnir Welimirovic
frá Júgóslaviu og Tringov frá
Búlgariu, alþjóðlegu meistar-
arnir Ciocaltea frá Rúmeniu og
Forintos frá Ungverjalandi.
Einnig Norðmaðurinn ögaard,
auk íslendinganna, Friðriks,
Guðmundar Sigurjónssonar,
Magnúsar Sólmundssonar,
Benónýs Benediktssonar,
Ingvars Ásmundssonar,
Kristjáns Guðmundssonar,
Freysteins Þorbergssonar og
Jóns Kristinssonar.
—GG
Hálfdán Eiriksson tekur við skattskýrslunum, sem drlfur aö og afhendir sérstök eyöublöö fyrir hina
ýmsu framtalsliöi ""
Ljósm.: Bj. Bj
„Gjarna þeir sömu, sem biðja
um skilafrest ár eftir ár"
— Fresturinn til að skila skattskýrslunni rennur út á miðnœtti
„Ég er vön að koma hingaö á
skattstofuna með skattskýrsl-
una og lofa þeim hér aö fylla
skýrsluna mína út sjálfum.
Þetta ætti þá allt saman aö vera
hárrétt, skyldi maöur ætla.” Og
Þyri Sóley Jónsdóttir, vöku-
kona á Kleppsspítalanum,
snaraöi sér inn um dyrnar hjá
einum þeirra fjölmörgu skrif-
stofumanna á Skattstofu
Reykjavíkur, sem aðstoöa
almenning viö aö gera skatt-'
framtalinu skil.
I dag eru slöustu forvöð til aö
skila skattskýrslunni og ösin á
skattstofunni I morgun var svo
sannarlega til vitnis um það.
Stöðugur straumur lá inn til
þeirra skrifstofumanna, sem
veittu upplýsingar og aðstoö.
Einn og einn laumaðist lika inn
til þeirra tveggja, sem gátu
veitt skilafrest. „Þetta eru
gjarnan sömu mennirnir, sem
fara þarna inn ár eftir ár. Menn,
sem hafa vanið sig á seinlæti.
En svo eru lika margir endur-
skoðendur, sem eru neyddir til
að óska eftir fresti fyrir hluta af
þeim framtölum, sem þeir hafa
tekið að sér fyrir ýmsa aðila,”
sagði einn starfsmanna skatt-
stofunnar.
Við innganginn sat Hálfdán
Eiriksson og kepptist við að
veita upplýsingar öllum þeim,
sem til hans leituðu. Sumir voru
bara að koma með skýrsluna
sina, en aðrir voru að fá eyðu-
blöð fyrir t.d. bllaskýrslur,
landbúnaðarskýrslur, námsfrá-
drátt og sjávarútveg.
„Hér hjá mér eru yfir tuttugu
mismunandi eyðublöö og uppi á
fjórðu hæð eru sjálfsagt enn
fleiri,” sagði Hálfdán. Hann
sagði, að þaö hefðu þegar við
opnun beðið nokkuð margir eftir
að fá fyrirgreiðslu og leið-
beiningar viö skattframtölin.
„Það hefur verið stanzlaus
straumur hingað siðustu tiu
dagana, og það má búast við, að
hann aukist, eftir þvi sem á
daginn liður. Það eru svo marg-
ir, sem biða fram á elleftu
stundu,” sagði Hálfdán að lok-
um.
Á leiðinni út mættum við lög-
regluþjóninum af horninu. Hann
var að skjóta skattskýrslunni i
póstkassa skattstofunnar fyrir
einn hinna mörgu, sem ekki
fundu stæði i grennd við
skattstofuna..
— ÞJM
„Treysti þeim hér bezt tii aö
gera skýrsluna mína,” segir
Þyri Sóley Jónsdóttir.
Loðnan fryst á
Stöðvarfirði
Fryst voru 260 tonn úr Álftafellinu —
heildarloðnuaflinn orðinn 90.350 tonn —
brtela á miðum og engin veiði í nótt
Loöna var fryst á Stöövarfiröi i
gærdag. Álftafelliö kom til
Stöövarfjaröar I gær meö 260 tonn
og fór aflinn allur I frystingu.
Fryst var á þremur stööum á
Stöövarfiröi, þ.e. hjá Stöövarfiröi
h.f., Breiödælingi h.f. og Steöja
h.f.
Alftafellið fékk þessa
frystingarloðnu á fyrsta
veiðisvæðinu vestur af Papey eða
suður af Eystrahorni.
Loðnan i þeirri göngu, sem er
ganga númer tvö frá þvi veiðar
hófust, er frystingarhæf, hrogna-
magn hennar er 10-11 prósent, en
hrognamagn loðnunnar, sem
veiðzt hefur við Ingólfshöfða og
Hrollaugseyjar upp á siðkastið,
er um 7,5 prósent.
Bræla var á loðnumiöum i nótt,
sex eða sjö vindstig og svo til eng-
inn afli.
Aðeins tveir bátar höfðu
tilkynnt afla I morgun eftir nótt-
ina, en þeir voru Jón Finnsson,
sem fei- með 300 tonn til Neskaup-
staðar og Bergsá með 70 tonn til
Grindavikur. Margir bátar munu
vera I höfn núna, en þeir stærri
halda kyrru fyrir á miðunum,
þótt ekki þýði fyrir þá að kasta i
þessu veðri. Spáð er kalsa og
slyddu.
I gær fengu einir fjórir bátar
afla við Papey, og fór a.m.k. einn
þeirra til Vopnafjarðar.
Flutningastyrkir eru greiddir
til Vopnafjarðar og Raufar-
hafnar, en enn sem komið er hef-
ur enginn bátur landað á Raufar-
höfn.
Heildaraflamagnið á þessari
loðnuvertið var komið i 90.350
tonn um miðnættið I nótt.
— GG
„Mikil loðna,
löng vertíð"
— segir Hjálmar Vilhjálmsson
„Þessi loðna hér við Hroll-
augseyjar er aðeins örlitil ögn
af þvi, sem koma skal. Ég
reikna með að þessi loðnuvertið
eigi eftir að standa i að minnsta
kosti átta vikur,” sagði Hjálmar
Vilhjálmsson fiskifræöingur,
sem Visir ræddi við i morgun.
Hjálmar er nú staddur um
borð I Arna Friðrikssyni, sem er
við Hrollaugseyjar.
Sagði Hjálmar að hann teldi
vist, að vertiðin yrði löng núna,
þótt ekki vildi hann spá um
veiði, „þvi hún fer nú ekki alveg
eftir loðnumagninu i sjónum,
eins og menn vita. En mér liet
mjög vel á þetta yfirleitt.”
— GG