Vísir - 04.03.1974, Blaðsíða 13
Visir. Mánudagur 4. marz 1974.
Visir. Mánudagur 4. marz 1974.
Þríbœtti ís-
landsmetið!
— Hreinn Halldórsson varpaði lengst
18.23 metra í kúluvarpi
Strandamaðurinn sterki,
Hreinn Halldórsson, var
heldur betur i formi á ís-
landsmótinu í frjálsum
íþróttum innanhúss, sem
háð var um helgina. Hann
þribætti íslandsmet Guð-
mundar Hermannssonar,
KR, — varpaði lengst 18.23
metra, en met Guðmundar
var 17.75 metrar. Ef að lík-
um lætur ætti Hreinn að
varpa kúlunni vel yfir 19
metrana í sumar — en Is-
landsmet Guðmundar
utanhúss er 18.48 metrar.
Kastseria Hreins var góð á
laugardaginn. Han byrjaði á þvi
aö varpa 17.64 metra en strax i
næstu tilraun setti hann met 17.82
metra. Það bætti hann i 17.87 m i
m.. t\
I ■ ' ' '|l
i.
Borgþór Magnússon, KR.
þriðju tilraun. Fjórða mældist
17.45. m. — sú fimmta var ógild —
en siðan varpaði sá sterki 18.23
metra og bætti þvi met Guðmund-
ar um 48 sentimetra. Það er gott
i kúluvarpi. Þá var einnig árang-
ur hins unga Óskars Jakobssonar,
1R, athyglisverður, en hann
varpaði 15.10. Erlendur Valdi-
marsson, 1R, varð annar meö
16.03 metra.
1 kúluvarpi kvenna var einnig
sett Islandsmet — Guörún
Ingólfsdóttir, Hornafiröi, varpaði
lengst 11.50 metra — en eldra
metið átti Alda Helgadóttir,
UMSK, og var það 10.17 metrar.
Þá má geta þess — meðan ég man
— aö á þessu móti i fyrra varð
Hreinn Halldórsson Islands-
meistari — varpaði þá 17.05
metra, svo framförin leynir sér
ekki.
I 50 m hl. jafnaði Vilmundur
Vilhjálmsson, KR, Islandsmet
Bjarna Stefánssonar KR. — hljóp
á 5.8sek. Sigurður Sigurðsson, Á,
varð annar á 6.0 sek, og Marinó
Einarsson, KR, fékk sama tima.
Vilmundur varð einnig Islands-
meistari i tveimur öðrum grein-
um — stökk 6.64 metra i lang-
stökki og 9.68 metra i þristökki án
atrennu. Varð tslandsmeistari
þar i sinu siðasta stökki. Það er
40 sm styttra, en Islandsmet Jóns
Péturssonar KR, frá 1960, 10.08
metrar.
Hjá konum var Lára Sveins-
dóttir mest afrekskona — varð
íslandsmeistari i þremur grein-
um — stökk meðal annars 1.60
metra i hástökki.
Islandsmeistarar urðu annars:
800 m. hlaup Sigurður Sigmunds
son, FH, 2:08.9 min. Hástökk Arni
Þorsteinsson, FH, 1.95 m og
hástökk án atrennu sami 1.65 m.
Langstökk án atrennu Elias
Sveinsson, 1R, 3.20 m 800 m
hlaup kvenna Anna Haraldsdótt-
ir FH, 2:40.6 min. Langstökk án
mm
Ilreinn Halldórsson
atrennu Sigurlina Gisladóttir,
UMSS, 2.65 m. 50 m hlaup Lára
Sveinsdóttir6.8sek. 1500 m. hlaup
Sigurður Sigmundsson, FH,
4:27.6 min. Stangarstökk
Guðmúndur Jóhannesson,
Breiðablik 4.30 m. 50 m. grinda-
hlaup Borgþór Magnússon, KR,
7.0 sek., en hann sigraði einnig i
þristökki. 50 m. grindahlaup
, Lára Sveinsdóttir 7.9 sek., en
systir hennar Sigrún varö ts-
landsmeistari i langstökki.
Missir Valur titilinn?
Óvænt úrslit urðu i 1.
deild kvenna i Laugar-
dalshöllinni i gærkvöldi,
þegar KIl sigraði Val i
hörkuspennandi leik
með 12-10. Eftir þessi
úrslit virðist fátt geta
komið i veg fyrir sigur
Fram i deildinni.
Tveir aðrir leikir voru háðir i 1.
deild um helgina. Þór tapar enn
með litlum mun — tapaði i gær i
Hafnarfirði fyrir FH með tveggja
marka mun — FH-stúlkurnar
sigruðu með 14-12. Þá léku Ár-
mann og Vikingur i Laugardals-
höllinni og sigraði Ármann með
10-6.
Staðan er þannig i 1. deild
kvenna.
Fram 7 7 0 0 95-61 14
Valur
FH
Armann
KR
Vikingur
Þór
7 0
4 2
2 2
3 0
1 0
0 0
131-99
120-111
76-74
82-86
70-98
62-108
14
10
6
6
2
0
Ungu strókarnir
sigruðu Valsmeim
Þó meistarakeppni KSt i knatt-
spyrnunni hæfist ekki i gær — eins
Volvo læsingar
Ytri og innri handföng eru felld inn í huröirnar til
öryggis fyrir farþega. Læsingin gefur ekki eftir viö
árekstur. Afturhuröir eru búnar sérstökum öryggis-
læsingum vegna farþeganna. Volvo öryggi.
og upphaflega var ákveðið — voru
félögin.sem leika áttu fyrsta leik-
inn, Keflavik og Valur, i eldiin-
unni á öðrum vigstöðvum.
llæði léku æfingaleiki —'Kefla-
vík lék við Breiðabiik á malar-
vellinum i Keflavik og sigraði
mcð 3-1. Staðan i hálfleik var 3-0
og skoraði Einar Gunnarsson tvö
fyrstu mörkin fyrir IBK — Jón
Óiafur það 3ja. 1 siðari háifleikn-
um skoraði Guðmundur Þórðar-
son fyrir Blikana.
A Melaveilinum lék Valur við
Unglingalandsliðið, sem tekur
þátt i UEFA-mótinu i Sviþjóð i
vor. Strákarnir gerðu sér litið
fyrir og sigruðu Val með 2-1.
Ekki er vitað hvort meistara-
keppnin hefst um næstu helgi. Þó
svo mótanefnd KSl raði leikjun-
um niður i hana, er það á valdi
félaganna hvenær byrjað er.
Aldrei séð dómara
dœma öðru liðinu
eins mikið í hag!
— Norsku dómararnir alveg á bandi danska liðsins. Danir treystu
á norrœna samvinnu, en þýzkir lofuðu að veiða ekki meira
í landhelgi ef íslenzka liðið tuskaði Dani
Frá Magnúsi Gislasyni,
Erfurt i gærkvöldi.
íslenzka liðið hefur lokið
þátttöku sinni i HM eftir
dapurlegustu ferð á al-
þjóðamót, sem það hefur
jafnvel lent I, eftir tapleik
gegn Dönum i dag. Það
kemur heim með þrjá
ósigra á HM eftir vikulanga
útivist og þar sem leikmenn
voru heldur farnir að rétta
úr kútnum eftir veikindin
var lengi haldið i þá von að
sigra Dani — jafnvel með
sjö mörkum. Voru miklar
bollaleggingar um leikinn
bæði meðal Dana og Þjóð-
verja, sem hér eru. Danir
sögðust treysta á norræna
samvinnu og töldu það gegn
anda hennar, að íslendingar
stefndu að sigri i dag.
Þjóðverjarnir sögðust hins vegar
vilja lofa þvi, að þýzkir togarar færu
ekki framar inn fyrir 50 milna land-
heigina ef landanum tækist að tuska
Danina rækilega til. Þá kæmust Þjóð-
verjarnir nefnilega áfram. En hvað
sem öllum vangaveltum leið var is-
lenzka liðiðekkert á þeim buxunum að
leika samkvæmt málamiðlun. Það
barðist eins og kraftar leyfðu — lika
við þá flensu, sem liðið hefur átt i bar-
áttu við að undanförnu. Sigurinn yfir
Dönum skyldi verða takmarkið, þó svo
mörkin yrðu ekki sjö.
íþróttahöllin I Erfurt var þéttskipuð
áhorfendum, sem voru frekar á bandi
tslendinga, en þúsundir hafa lýst yfir
mótmælum sinum á ráðandi mönnum
á vellinum, norsku dómurunum. Oft er
þvi haldið fram, þegar lið biður ósigur,
að það geti beint athyglinni frá
ósigrinum á dómarana. En i þessu til-
viki er ekki þvi til að dreifa — ég minn-
ist þess ekki að hafa séð dómara jafn
eindregið á bandi annars aðilans eins
og I dag. Fyrir nákvæmlega sömu brot
sáu þeir gegnum fingur sér við Dani.
Einnig fengu Danir að láta sinar
sóknariotur ganga eins lengi og þeim
þóknaðist án þess að fá dæmda á sig
töf — og aldrei var Dana visað af velli
fyrir gróf brot, en þremur Islending-
um.
En ekki má gleyma gangi leiksins,
þó dómararnir valdi mönnum angri. I
fyrstu sóknarlotunum misnotuðu Dann.
ir tvö skot — annað fór framhjá, en hittrí
varði ólafur Benediktsson. En svo tók>
hamhleypan Axel Axelsson af skarið
og skoraði fyrsta mark leiksins, en
Bent Larsen jafnaði fyrir Dani af linu
— og sami maður tók svo forustu fyrir
Dani með föstu skoti. Geir Hallsteins-
son jafnaði með gegnumbroti. Nielsen
skoraöi 3-2, en Ólafur H. Jónsson, sem
lék sinn fyrsta leik á HM, skoraði 3ja
mark tslands, með skoti eins og þau
bezt gerast hjá honum. Eftir þetta
kom slakur kafli hjá islenzka liðinu.
Danir fóru sér hægt og reyndu ekki
skot nema úr öruggum færum. Þrátt
fyrir tvö mörk Axels og eitt hjá Björg-
vin — siðar Viðari — komust Danir i
KR efst
í körfunni
Fjórir leikir voru háðir i 1. deild
körfuboitans um helgina. A
laugardag vann Armann HSK 79-
71 eftir framlengingu, og KR
vann Skallagrim 94-79. A sunnu-
dag vann Armann IS með 88-87 i
hörkuleik, og KR vann HSK 114-
76. KR er nú komið með 14 stig
eftir 8 leiki — tR og Valur hafa 14
stig eftir 9 leiki.
Bikarkeppni KKt hófst á
föstudag. Þá vann Njarðvik Snæ-
fell með 85-61 og UMSG vann
Hauka 77-68.
Quinn til FH
Skozki þjáifarinn Pat Quinn
mun þjálfa FII i sumar I knatt-
spyrnunni — gerði samning við
félagið i gær. Hann var áður
framkvæmdastjóri skozka 1.
deiidarliðsins East Fife — en
skozkur landsliðsmaður með
Motherwell. Lék einnig með
Blackpool. Quinn var hér um
helgina —cn heldur til Skotlands
aftur og kemur til starfa 15. marz.
10-7, þegar 25 min. voru af leik. Þá tók
Island góðan sprett og jafnaði, þó svo
liöið væri með einum manni færra á
vellinum — fyrst var Geir visað útaf,
siðan Björgvini.
Danir byrjuðu einum fleiri i siðari
hálfleik vegna brottvikningar Björg-
vins — og voru með knöttinn. Eigi að
siöur náði Isl. liðið knettinum, eftir að
hinn frábæri ólafur Benediktsson
varði linuskot, og geystist upp völlinn.
Þar var brotið illa á Axel og dæmt viti.
Axel tók vitið sjálfur, en danski mark-
vörðurinn varði, en Axel náði knettin-
um og aftur var brotið á honum. Ekk-
ert dæmt. Danir komust svo yfir. Oft
hafa islenzkir handknattleiksmenn
verið óheppnir gegn Dönum — en núna
keyrði þó um þverbak. Fyrstu 15 min.
s.h. skoraði liðið ekki mark meðan
Danir skoruðu fimm mörk.
Einar Magnússon og Gunnar
Einarsson komu inn á lokakaflann og
þrátt fyrir góða leikkafla þeirra
beggja og Geirs varð sigurinn Dana 19-
17 og þar með voru þeir komnir —
Arnarliðið eins og einn danski blaða-
maðurinn komst að orði við einn isl.
blaðamann i áttaliðaúrslitum á HM.
öllu léttara var nú yfir isl. liðinu,
en þó var það ekki nema svipur hjá
sjón miðað við leikinn við Norðmenn i
Osló. Þó með betri dómurum hefði sig-
ur ekki verið óhugsandi. Að minni
hyggju hefðu þeir Einar og Gunnar átt
að koma mun fyrr inn á og auk þess
hefði Guðjón Magnússon gjarnan mátt
spreyta sig i leiknum, enda i fullu fjöri.
Axel bætti enn einni rósinni i hnappa-
gatið, þrátt fyrir óvægna meðferð af
Dana hálfu. ólafur Ben. átti hylli
áhorfenda — snilldarmarkvöröur — og
Ólafur H. baröist eins og kraftar
leyfðu. Auk þess komu Viðar og Auð-
unn vel frá leiknum og Gunnsteinn.
Frandsen er maðurinn á bak við lið
Dana — hann virðist alveg vita hvað
hann má og má ekki.
Eftir þennan ósigur mátti landsliðið
pakka saman og það eru leikmenn ein-
mitt að gera núna. Að þvi loknu munu
þeir halda til Berlinar og flugleiðis
heim á morgun gegnum Kaupmanna-
höfn.
Vegna verkfallsins heima varð ekk-
ert úr hópferðinni á HM og hafa fáir
áhorfendur islenzkir verið til að
styrkja landann — en þeir hafa þó sézt.
Mörk tslands gegn Dönum skoruðu
Axel 4, Einar 3, Björgvin 3, Viðar 2,
Geir 2, Gunnar Einarsson 2 og Ólafur
1. — Fyrir Dani skoruðu Nielsen 8,
Frandsen 3, Vodsgaard 2, Larsen 2,
Boch 2, Munkager 1 og Steinskjær 1.
emm.
Axel skoraði átján
island skoraði 48 mörk
leikjunum þremur í A-riðlinum
í heimsmeistarakeppninni —
og skoraði aðeins efsta liðið
Tékkóslóvakía fleiri mörk í
riðlinum. Hins vegar fékk ís-
lenzka liðið é sig miklu fleiri
mörk í riðlinum en önnur lið.
Lokastaðan i riðlinum varð þannig:
Tékkóslóvakia 3 3 0 0 58-38 6
Danmörk 3 2 0 1 43-44 4
V-Þýzkaland 3 1 0 2 44-45 2
tsland 2 0 0 3 48-66 0
Alls skoruðu niu leikmenn islenzka
liðsins mörk i keppninni. Axel Axels-
son, Fram, var markhæstur leik-
mannanna með 18 mörk og einn mark-
hæsti leikmaðurinn i undankeppninni
— riðlakeppninni.
Næstur Axel kom félagi hans úr
Fram, Björgvin Björgvinsson með 10
mörk, sem er gott afrek hjá linu-
manni. Einar Magnússon, Viking,
skoraði fimm mörk, þótt hann léki litið
i keppninni, og Geir Hallsteinsson,
Göppingen, var einnig með fimm
mörk. Viðar Simonarson, FH, skoraði
fjögur mörk og hinn ungi Gunnar
Einarsson, FH, þrjú mörk, þó hann
eins og Einar léki litið. Þá skoruðu
þeir Gunnsteinn Skúlason, Hörður
Kristinsson og Ólafur H. Jónsson eitt
mark hver — en Ólafur tók aðeins þátt
i siðasta leiknum. Fjórir leikmenn
skoruðu ekki, Guðjón Magnússon Vik-
ing, sem aðeins lék 2-3 min. i einum
leiknum, Auðunn Óskarsson, FH, og
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram —- og
að auki Gisli Blöndal, Val, sem ekkert
lék með vegna veikinda.
Friðrik Friðriksson skorar eittaf mörkum Þróttar gegn Breiðablikii 2. deildinni i gærkvöldi. Ljósmynd Bjarnleifur.
Gros nóði 16 stiga for-
ustu í Noregskeppninni!
Italinn ungi, Piero Gros,
náði forustu í keppninni
um heimsbikarinn, þegar
keppt var í stórsvigi og
svigi í Voss í Noregi. Hann
sigraði i svigkeppninni —
varð annar í stórsviginu —
og kom stigatölu sinni upp í
156. Er með 16 stigum
meira en brunsér-
fræðingurinn Roland
Collombin, Sviss, sem hef-
ur 140 stig. I 3ja sæti er
Hans Hinterseer, hinn 18
ára Austurríkismaður,
með 136 stig — en hann er
sem sagt rúmu ári yngri en
Gros.
A laugardaginn var keppt i
stórsvigi og þar hafði heims-
meistarinn margfaldi, Gustavo
Thoeni, gifurlega yfirburði — var
mun betri en Gros, sem varð i
öðru sæti. Aðeins i fyrri umferð-
inni var Thoeni 64 sekúndubrot-
um á undan.
t sviginu var Thoeni einnig
beztur eftir fyrri umferð — en i
þeirri siðari keyrði hann út úr
brautinni og varð úr leik. Aðeins
21 keppandi af 65 luku keppni, þar
af keyrðu 38 úr i fyrri umferð.
Olympiumeistarinn spánski
Fernandez Ochoa féll út.
Gros sigraði á 1:08.33 min. ann-
ar varð 17 ára Svii, Ingemar Sten-
mark á 1:09.33 min. Hann kom
mjög á óvart þarna i Voss — varð
fjórði i stórsviginu. Þriöji varð
Johan Kniewasser, Austurriki, á
1:09.52 min. og Walter Tresch,
Sviss, fjórði.
1 stigakeppninni er Franz
Klammer, Austurriki, i fjórða
sæti meö 122 stig, en Gustavo
Thoeni, sigurvegarinn siðustu
þrjú árin, er fimmti með 120 stig.
David Zwilling, Austurriki, er
sjötti með 95 stig. Eftir er að
keppa á mótum i Póllandi og
Tékkóslóvakiu, og vafasamt að
þau nægi Thoeni til sigurs.
ÞRÓTTUR 0G GRÓTTA
BERJAST í 2. DEILD
Sama baráttan er enn
hjá Þrótti og Gróttu i 2.
deild karla og bendir
margt til þess, að auka-
leikur verði milli lið-
anna i lokin, en önnur lið
koma ekki til greina.
Grótta og Þróttur unnu
leiki sina um helgina
tneð miklum tnun.
Grótta lék við Keflavik á Sel-
tjarnarnesi og i þeim varð heldur
betur markasúpa. Grótta sigraði
með 39-24. Tveir leikir voru i
Laugardalshöll i gærkvöldi —
Þróttur sigraði Breiðablik 29-16,
og KR vann Fylki með 19-16.
Staðan er
Þróttur
Grótta
KR
KA
Breiðablik
Keflavik
Fylkir
Völsungur
nú þannig
13 11 02
12 10 0 2
9 0 4
6 1 4
5 1 6
4 2 7
2 0 11
0 0 11
291-219
314-251
281-227
267-248
260- 275
261- 317
247-302
184-267
22
20
18
13
11
10
4
0
Þróttur á eftir að leika við KR
— Grótta á eftir leiki sina fyrir
norðan við KA og Völsunga.
Júdósigur Norðmanna
islendingar töpuöu sinni fyrstu
landskeppni i júdó — Norðnienn
báru sigur úr býtum i lands-
keppni þjóðanna i Nadderudhall-
en i Osló á laugardagskvöldið.
Munurinn var þó minni en við
mátti búast, þvi að sögn iðka um
sex þúsund Norðmenn júdó. ís-
lendingar hlutu sjö vinninga —
Norðmenn tólf — og einni viður-
eign lauk með jafntefli.
Að sögn norsku fréttastofunnar
vann ísland fljótastan sigur i ein-
um leik, sem aðeins tók tuttugu
sekúndur. Um 400 áhorfendur
voru i höliinni og urðu vitni að
ágætri glimuviðureign.
Lesið allt um Piu Jensen, sem er
Miss Young International og
frœgasti táningur veraldar í dag
EFNI FYRIR ALLA
í NÝJA SAMÚEL!