Vísir - 04.03.1974, Blaðsíða 17
Vísir. Mánudagur 4. marz 1974.
17
DIFREIÐA
EIGEADUR^
Aukið ÖRYGGI, SPARNAÐ og ÁNÆGJU
í koyrslu yðar, með því að lóta okkur
annast stillingarnar á bifreiðinni.
Framkvæmum véla-, hjóla- og Ijósastillingar
ósamt tilhoyrandi viðgerðum.
Ný og fullkomin stillitæki.
O. £fl9Ílber(//on h/f
Stilli- og °Auðbrekku 51
vélaverkstæði Kópavogi, sími 43140
óánœgðar
með kvenapa
Sem apamóöir — ekki hefur frétzt
að rauðsokkurnar hafi mótmælt
þvi
Rauðsokkur
— Ég fæ þá kannski frið
fyrir rauösokkunum,
þegar hætt er aö framleiöa
myndirnar, andvarpaöi hin
Ijóshærða 28 ára gamla
Nathalie Trundy.
Hún hefur leikið kvenapann i
Apaplánetumyndunum, sem
Nýja bió hefur sýnt hér. Fjórða
og seinasta myndin er komin á
markað, þótt hún hafi ekki enn
sézt hér. Sú mynd nefnist ,,Bar-
daginn um Apaplánetuna”.
En ástæðan fyrir þvi að
Nathalie Trundy stynur undan
rauðsokkum.er vegna hlutverks
hennar i myndunum.
— Rauðsokkurnar hóta mér öllu
illu fyrir að draga fram það i
kvenhlutverkinu sem þær telja
mest niðurlægjandi i fari kvenna.
þ.e. að láta karlapana ráða,
ganga fyrir aftan þá og lita til
hliðar þegar þeir eru nálægir. En
þetta er það sem apar gera. Ég
fylgdist með hátterni kven-
simpansa dýragarði og það var
einmitt þetta'sem þeir gerðu.
Þeir spiluðu mest á karlapana
með augunum og litu feimnis-
lega niður til að hafa áhrif á þá.
En Nathalie er orðin nokkuð
þreytt á þessu hlutverki sinu og
þvi ánægð með að framleiðslunni
var hætt. Það voru vist fleiri.
Nathalia Trundy, þegar hún er
komin úr apagervinu. Ljós-
hærð, 28 ára gömul og býr i
New York.
Þannig lætur Nathalia fara með sig i hlutverki sinu I Apaplánetu-
myndunum. Þetta hlýtur að fara i taugarnar á rauðsokkunum — hún lætur
karlapann ráða!
OUVETTI rafmagnsritvél á kr. 18.960.00
LETTERA 36, Olivetti feröarafmagnsritvél.
y^ Fallegt útlit
y^ Asláttarstillir
)+- Dálkastillir
3 síritandi lyklar
y^- 700 slög á mínútu
Lipur i notkun.
Skrifstofutœkni h.f.
Laugavegi 178, sími 86511
Ævintýraferð
til Bangkok
Á 12 klukkustundum flytur SAS þotan
yður frá Kaupmannahöfn aftur i aldct
gamla menningu, og töfra austursins.
Undurfagrar musterisbyggingar, lita-
skrúð, fagrir listmunir og ekki má gleyma
brosmildri þjóð. sem heillar alla gesti.
Pattaya er nafnið á einhverri beztu bað-
strönd, sem um Qetur og hún er aðeins
1 50 km frá Bangkok.
SAS býður yður úrvals Globetrotter ferðir
til Bangkok. Þar á meðal hópferð, sem
farin verður frá Reykjavik þ. 17. 3. n.k.
Biðjið um upplýsingar annaðhvort hjá
okkar ellegar ferðaskrifstofunum.
Bæklingar eru fyrir hendi.
Það er stutt frá Bangkok til fjölmarga
heillandi borga og bæja Austurlanda.
Vegna aukinna flutninga, stærri flugvéla,
hagkvæmari hótela og yfirleitt meiri um-
svifa hefir verið unnt að lækka verð Aust-
urlandaferða mjög mikið undanfarin ár.
Þær kosta nú miklu minna en þér haldið.
Spyrjið ferðaskrifstofurnar
x/r
• • • Laugavegi 3 símar 21199 og 22299.