Vísir - 04.03.1974, Blaðsíða 3
Vísir. Mánudagur 4. raari '1974.
3
Hver silungur einn málsverður
— Ný fiskeldisstöð tekin í notkun —
framleiðir 50 tonn af silungi ó ári —
„seljum vœntanlega í hótel
og flugvélar".
900 fermetra fiskeldishús hcfur
verið tekið i notkun við öxnalæk i
ölfusi.
f eldishúsinu eru 88 ker, þar
sem i framtiðinni verður
ræktaður silungur og lax.
Silungurinn verður alinn i fisk-
eldisstöðinni, Tungulaxi h.f.,
jafnt innan dyra stöðvarinnar og i
sérstökum útitjörnum. Þegar
silungurinn, bleikja og sjóbirting-
ur, hefur náð 200 grömmum að
þyngd, verður hann seldur
ferskur eða frosinn til manneldis,
hver fiskur áætlaður einn máls-
verður.
Laxaseiðin, sem Tungulax h.f.
elur, verða seld til sleppingar i ár
og vötn.
Snorri heitinn Hallgrimsson
prófessor var helzti hvatamað-
urinn að stofnun Tungulax h.f, en
nú stjórna fyrirtækinu þeir
Eyjólfur Konráð Jónsson, sem er
stjórnarformaður, Kristinn
Guðbrandsson og Þuriður Finns-
dóttir
Framkvæmdastjóri er
Guðmundur Hjaltason, og tjáöi
hann Vísi, að reiknað væri með að
kilóið af ferskum silungi frá
stöðinni, yrði selt á um 300 krón-
ur.
„Okkur sýnist að verðið verði
kringum 300 kr. — það er heldur
dýrara en dilkakjötið.” Sagði
Guðmundur og, að stöðin ætti
fljótlega að geta framleitt um 50
tonn af silungi á ári, og mögu-
leikar væru á að stækka hana.
Hins vegar er ekki reiknað
með, að silungur sá, sem seldur
verður sem einn málsverður,
verði seldur á almennum innan-
landsmarkaði.
„Við reiknum helzt með að
selja fiskinn i hótel og flugvélar",
sagði Guðmundur Hjaltason.
Að öxnalæk i ölfusi eru sérlega
hentugar aöstæður til fiskeldis,
þar eð þar er bæjarlækurinn meö
12 gráða heitu vatni, og mögu-
„Vitlaust veður
—loðnan gotin"
„Hún er orðin svo gotin, loðnan,
það má búast við þvi að ekki verði
veitt öllu meira i frystingu i ár,”
sögðu þeir hjá Loðnunefnd i
morgun.
Veiðin um helgina var lltil.
Veður hefur verið vont á miðun-
um, en á laugardag hægði aðeins.
Þá fengu 39 bátar um 5000 tonn á
miðunum fyrir austan.
1 nótt fengu fjórir bátar liðlega
400 tonn, og fékkst sú loðna allt
austan frá Ingólfshöfða og norður
fyrir Snæfellsnes.
„Veðrið hefur verið vitlaust á
miðunum allt frá þvi verkfalli
lauk — bátunum hefur ekki gefizt
tóm til að leita neitt að loðnu.
Kannski fyndu þeir eitthvað ef
þeir hefðu tima og veður til,”
sögðu þeir hjá Loðnunefnd.
Sýni, sem Hafrannsóknastofn-
un hefur verið að kanna að
undanförnu benda hins vegar til
þess, að loðnan sé langt komin
með að hrygna hér i Flóanum og
reyndar líka á miðunum fyrir
austan —,, húnerfyrrá farðinni
i ár en i fyrra,” sögðu þeir hjá
Hafrannsóknastofnun fyrir helg-
ina — það er hætt við að
loðnuævintýri taki að ljúka,
a.m.k. ef veðrið skánar ekki mjög
fljótlega.
-GG
Jukum útflutning
iðnaðarvara um 40%
íslenzk fyrirtœki með í fjölda
sýmnga i vetur
Við fluttum miklu
meira út af iðnaðarvör-
um siðastliðið ár en
áður.
Aukning útflutnings er rúmlega
40% i krónum talið, að áli frá-
töldu.
Mest aukning varð á útflutningi
á ullarbandi og ullarlopa, heil
117,6 prósent. Næst i vextinum
komu loðsútuð skinn og vörur úr
þeim gerðar, 55,7%.
1 öllum helztu vöruflokkum
varð vöxtur.
Þátttaka i vörusýningum,
kaupstefnum, þar sem islenzkar
Sviðalykt, en
enginn eldur
Sviðalykt i Landsimahúsinu olli
starfsfólki þar áhyggjum á
sunnudaginn. Var taliö aö jafnvel
gæti verið kviknað i.
Slökkviliöiö var kvatt á staðinn,
en enginn eldur fannst. Eftir ná-
kvæma leit og notkun þeffær-
anna, komst upp um sviðalyktar-
valdinn, en það var flúrljóslampi,
sem rafleiðslur höfðu eitthvað
sviðnað i.
-ÓH.
vörur hafa ekki verið kynntar áð-
ur, hefur verið mikil frá siðustu
áramótum. Fyrirtækið Glit h.f.
tók þátt I gjafavörusýningu i
Blackpool og skandinaviskri sýn-
ingu i Luxo i Kaupmannahöfn. A
gjafavörusýningunni voru einnig
sýndar ullarvörur. Glit tekur þátt
I einni þekktustu gjafavörusýn-
ingu i Vestur-Evrópu, i Frank-
furt.
Alafoss hf. og Gráfeldur hf.
taka siðar I þessum mánuði þátt i
Scandinavian Fashion Week, og
iðnaðardeild SÍS i tveimur sýn-
ingum i marz og april i Miínchen
og Frankfurt. Útflutningssamtök
gullsmiða verða siðan með i sýn-
ingu I Kaupmannahöfn i april.
—HH
Þjófar sœkja
í Björnsbakarí
Enn einu sinni var brotizt
inn i Björnsbakari á sunnu-
dagsnóttina.
Nokkrum sinnum hcfur ver-
ið brotizt þar inn, og alltaf á
sama staö, inn um þakglugga
á bakhúsi.
t þetta sinn var stoiið ein-
hverju af skiptimvnt.
-ÓH.
leikar á að hita það vatn.
Fiskurinn i eldiskerjunum er
fóðraður með sjálfvirkum búnaði,
og þótt eldiskerin séu mörg og
eldisstöðin stór aö flatarmáli, þá
geta tvær manneskjur auðveld-
lega hirt um hana, að þvi er
Guðmundur Hjaltason sagði:
„Það verða hérna hjón, sem
annast fiskinn og stöðina að öllu
leyti.
Við reiknum með að geta hafið
sölu á silungi til manneldis seinna
á þessu ári.”
-GG.
Fiskelsisstöðin Tungulax h.f. á Óxnalæk I ölfusi var formlega opnuð á laugardaginn
af eldiskerjunum og fáeinum gestanna, sem boöið var að skoða stöðina.
— myndin er tekin
Mynd: GG.
Frakkar
Jakkar
Buxur
Peysur
Blússur
Bolir
°
VERÐLÆKKUN