Vísir - 04.03.1974, Blaðsíða 5
Vlsir. Mánudagur 4. marz 1974.
5
1970 Breyting
287 +14
330 t-34
6 +8
7 +17
Þingmannafjöldi
Verkamannaflokkur
ihaldsflokkur
Frjálslýndir
Aðrir
Til að fá hreinan meirihluta þurfti 318 þingmenn
TLÖND I MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND
Umsjón: BB/GP
Var mesta slys flugs-
ins skemmdarverk?
Mesta flugslys sögunnar
varð um miðjan dag i gær,
þegar DC-10 flugvél frá
tyrkneska flugfélaginu
Turkish Airlines fórst með
334 farþegum og 11 manna
áhöfn skammt fyrir norðan
Paris.
Flugvélin hrapaði til jarð-
ar í skóglendi 5 til 10 mínút-
um eftir að hún lagði af stað
frá Orly-flugvelli i París.
Var hún komin i 13.000 feta
hæð (4.000 m), þegar hún
snerist skyndilega, stefndi
til jarðar og splundraðist í
ógurlegri sprengingu.
Astandið á slysstaðnum og allur
aðdragandi þess hefur gefið mönn-
um tilefni til að ætla, að slysið
kunni að hafa orðið vegna
sprengingar i vélinni af völdum
hryðjuverkamanna.
1 morgun var frá þvi skýrt, að
tyrkneska flugfélagið hefði fengið
upplýsingar um það, að fimm af
farþegunum, sem komu um borð i
Paris, hafi verið skæruliðar of-
stækismanna. Þrir þeirra voru
Japanir og tveir Arabar. Sagt er,
að hryðjuverkamennirnir hafi átt
að herja á flugvél British Airways,
en áætlun þess félags fór úr skorð-
um vegna verkfalls á Heathrow-
flugvelli við London. 1 gær var
British Airways flugvél rænt, eins
og sagt er frá annars staðar hér á
siðunni.
A slysstaðnum var þannig um-
horfs, að ekki verður með orðum
lýst, svo að vitnað sé til sjónar-
votta. Lik og brak dreifðist yfir 15
km svæði, og segja sérfræðingar að
það geti ekki stafað af öðru en
sprengingu inn i farþegaklefanum.
Flestir farþeganna voru Bretar,
sem höfðu komið um borð i flugvél-
ina i Paris, þegar þeir gátu ekki
ferðast með brezka flugfélaginu,
sem þeir áttu sæti hjá, vegna verk-
falls flugvallarstarfsmanna á
Heathrow-flugvelli.
Þetta var annað flugslysið hjá
tyrkneska flugfélaginu á rúmum
mánuði. Vél i innanlandsflugi
hrapaði 26. jan. og þá fórust 63.
Þar til i gær höfðu flest farizt 176
manns i flugslysum, það var þegar
sovézk flugvél hrapaði við Moskvu
i október 1972 og þegar jórdönsk
Boeing 707 hrapaði við Kano i
Nigeriu i janúar 1973.
Ný stjórn
í Eþíópíu
Festa virðist aftur vera
að komast á í stjórnmála-
lífi Eþíópíu eftir mót-
mælaaðgerðir og uppreisn-
ina innan hersins í síðustu
viku. r- , , ,. , ,
E nda I- Katchew
Makonnen, nýi forsætis-
ráðherrann, útnefndi í gær
tólf nýja ráðherra í stjórn
sína, og hefur herinn lagt
blessun sína yfir þá út-
nefningu.
Forsætisráðherrann hefur þó
ekki enn fundið menn i allar ráð-
herrastöður, þvi að herinn gerir
strangar kröfur um heiðarleika
ráðherra og að þeir hafi ekki ver-
ið viðriðnir neina spillingu.
Haile Selassie keisari hefur
rekið sonarson sinn úr embætti
yfirmanns innan hers Eþiópiu og
skipað sér óskyldan mann i stað
hans.
Brandt
tapar
fylgi
Flokkur Willy Brandts tapaði
um 10% atkvæða I kosningum til
þingsins i Hamborg i gær. Eru
úrslitin talin sýna við hve mikla
erfiðleika kanslarinn og flokkur
hans á nú að glima.
Sósialdemókratar og Frjálsir
demókratar hafa átt meirihluta á
landsþinginu i Hamborg siðan
1970 og halda þeim meirihluta
þrátt fyrir tap fyrrnefnda flokks-
ins.
Stjórnarandstöðuflokkurinn,
Kristilegir demókratar, jók fylgi
sitt um 8% og Frjálsir demókrat-
ar fengu um 4% meira atkvæða-
magn en i siðustu kosningum.
Kristilegir demókratar beindu
spjótum sinum einkum gegn
stefnu Brandts i efnahagsmálum
og austurstefnunni.
Skoðanakannair sýna, að Sósi-
aldemókratar hafa einkum tapað
fylgi meðal ungs fólks.
Fímm mestu
flugslysin
22. janúar 1973: 176 létust,
þegar Boeing 707 fórst i
Nigeriu
14. okt. 1972: 176 létust, þegar
Iljusjin 62 fórst við
Moskvu
30. júli 1971: 162 létust, þegar
japönsk Boeing 727 rakst á
orrustuflugvél yfir Japan
14. ágúst 1972: 156 létust þegar
austur-þýzk Iljúsin 62
hrapaði nálægt Austur-
Berlin
3. desember 1972: 155 létust,
þegar Convair 990
Coronada frá spánska
flugfélaginu Spautax fórst i
flugtaki við Santa Cruz.
Haile Selassie, Eþiópiukeisari, ávarpar þjóð sina i siðustu viku og hvetur til stillingar innan hersins.
Leyniskýrslo
um hlutdeild
Nixons í
Wotergote
,1 leynilegri skýrslu, sem rann-
sóknarnefnd þess opinbera i
Watergatemálinu sendi Sirica
dómara er Nixon forseti sakaður
um að hafa tekið þátt i þvi með
starfsmönnum sinum að reyna að
hindra rannsókn Watergatemáls-
ins,” segir i fréttum bandariska
stórblaðsins New York Times um
helgina.
Blaðið segir, að um leið og
nefndin skilaði skýrslum sinum
um rannsóknir á fyrrverandi ráð-
herrum Nixons og starfsmönnum
— þ.e.a.s. þeim ellefu, sem ný-
lega hafa verið ákærðir — hafi
hún skilað Sirica dómara leyni-
legriskýrslu, sem hann hafi verið
beðinn um að afhenda fulltrúa-
deild Bandarikjaþings.
Skýrir blaðið svo frá, að rann-
sóknarnefiidin hafi ákveðið að
fara svona að, eftir að gengið
hafði verið úr skugga um, að
dómstólarnir hafa ekki umboð til
að sækja forsetann til saka, held-
ur hafi fulltrúadeild þingsins ein
umboð til að stefna honum fyrir
rikisrétt.
Skipting atkvæða 1974 1970 Breyting
thaldsflokkur 11.857.402 38,1% 46,4% 4- 8,3%
Verkamannaflokkur 11.617.630 37,2% 43 % 4- 6,2%
Frjálslyndir 5.993.717 19,3% 7,4% + 11,9%
Aðrir 1.517.959 5,4% 3,2% + 2,4%
A kjörskrá um 40 milljónir Kjörsókn 78,7%
KREPPA HJÁ BRETUM
Stjórnarkreppa ríkti enn i Bret-
I landi I morgun eftir stöðuga fundi
stjórnmálamanna yfir helgina.
Talið er líklegt, aö Edward Heath,
Iforsætisráðherra, segi af sér fyrir
sig og ráðuneyti sitt i dag eða á
morgun, hafi honum ekki tekizt að
ná samkomulagi við Frjálslynda
um stjórnarmyndum. Mun þá
drottning fela Harold Wilson, for-
manni Verkamannaflokksins, að
I mynda rikisstjórn.
Thorpe, leiðtogi Frjálslyndra, og
Heath hittust um helgina, án þess
að nokkur niðurstaða fengist af
þeim fundi. Sagt er, að innan 14
manna þingflokks Frjálslyndra sé
engin eining um það að ganga til
stjórnarsamvinnu við Heath. Sum-
ir segja, að Frjálslyndir vilji fá
Heath frá, áður en þeir ræði
stjórnarmyndun við Ihaldsflokk-
inn.
Þaöer ekki að sjá, að viösjárnar i stjórnmálalifi Breta þessa dagana legg-
ist þungt á leiðtoga Frjálslyndra. Jeremy Thorpe er léttur I spori á leiðinni
iklúbb flokksbræðra sinna, enda voru úrslit kosninganna sigur þeim.