Vísir - 04.03.1974, Blaðsíða 14
14
Visir. Mánudagur 4. marz 1974.
Forskot Leeds
komið niður í 6
— og liðið hefur leikið einum leik meira en Liverpool
Forskotið minnkar —
komið niður í sex stig —
og Leeds hefur ekki hlotið
nema tvö stig í síðustu
þremur leikjum sínum á
meðan hættulegasti mót-
herjinn, Liverpool, sigrar
í sínum leikjum. Ætlar
Leeds virkilega enn einu
sinni að glata öruggri for-
ustu á lokasprettinum —
missa niður það forskot,
sem liðiðhefur unnið með
frábærum leikjum mik-
inn hluta leiktímabilsins,
vegna meiðsla og mikill-
ar taugaspennu, sem
komin er í leik liðsins?
Hvað eftir annað hefur
Leeds virzt öruggt með
að slíta snúruna sem
sigurvegari í 1. deild — en
misst af öllu á slökum
lokaspretti á undanförn-
um árum.
Endurtekur sagan sig? Þegar
Liverpool setti met i leikjafjölda
frá upphafi leiktimabils — sem
Leeds hefur svo mjög bætt i vet-
ur, þegar liðið lék 29 fyrstu leik-
ina án taps, tókst Liverpool ekki
að sigra i 1. deildinni heldur féll
sigurinn Portsmouth i skaut.
Verður það sama uppi á
teningnum nú — kemst Liver-
pool framúr Leeds?
Þessum spurningum velta
knattspyrnuáhugamenn viðs
vegar um heim fyrir sér. Já,
Leeds er að gefa eftir — tókst
aðeins að ná jafntefli heima
gegn Newcastle á laugardag —
en á sama tima vann Liverpool
enn einn 1-0 heppnissigurinn á
heimavelli sinum. Vann Burn-
ley 1-0 og var eina mark leiksins
skorað 15 sek. fyrir leikslok af
John Toshack, miðherja Liver-
pool, eftir að Burnley hafði sýnt
betri leik nær allan timann —
þann bezta, sem mótherjalið
ensku meistaranna hefur sýnt á
Anfield á Ieikatimabilinu. Með-
an barðist Leeds við hið sterka
Newcastle-lið, en leiknum lauk
með sanngjörnu jafntefli. Ekk-
ert mark var skorað i fyrri hálf-
leik, en strax á fyrstu min. þess
siðari skoraði Alan Clarke fyrir
Leeds. Stewart Barrowclough
jafnaði fyrir Newcastle fimm
min. siðar eftir mistök Norman
Hunter. Svo bregðast krosstré
sem önnur tré. Spenna var ekki
aðeins á leikvellinum heldur
breiddist hún á áhorfendasvæð-
in. Þar varð lögreglan að hafa
sig mjög i frammi — 19 áhorf-
endur voru handteknir.
Úrslit urðu annars þessi i
leikjunum um helgina. 1. dcild:
Arsenal—Southampton 1-0
Coventry—Birmingham 0-1
Derby—Stoke City 1-1
Ipswich—Norwich 1-1
Leeds—Newcastle 1-1
Leicester—Everton 2-1
Liverpool—Burnley 1-0
QPR—Tottenham 3-1
Sheff. Utd,—Manch. Utd. 0-1
West Ham—Chelsea 3-0
2. deild:
Aston Villa—WBA 1-3
Blackpool—Bolton 0-2
Bristol City—Oxford 0-0
Carlisle—Preston 2-2
C. Palace—Orient 0-0
Hull—Sheff. Wed. 2-1
Nottm. For,—Notts Co. 0-0
Portsmouth—Millvall 0-0
Sunderland—Middlesbro 0-2
Swindon—Cardiff 1-1
Oll liðin i botninum I fyrstu
deild hlutu stig — Birmingham
og Manch. Utd. unnu sina fyrstu
útisigra á leiktimabilinu. Það
voru baráttusigrar. Lou Macari
skoraði eina markið i Sheffield á
34. m. —en markvörður liðsins,
Alec Stepney, átti þó allan heið-
urinn af sigrinum með snilldar-
leik. Hann bætti þar að nokkru
upp vitaspyrnuna, sem hann
misnotaði gegn Úlfunum
laugardaginn á undan. Eftir
pressu Coventry i byrjun, þar
sem Cross var óheppinn að
skora ekki, tókst Birmingham
að ná undirtökunum i Miðlanda-
derbtinu og Bob Hatton skoraði
eina mark leiksins rétt fyrir hlé.
Frábært mark. Bill Glazier,
markvörður Coventry, bjargaði
liði sinu frá stærra tapi með
glæsileik i siðari hálfleik.
Og meira að segja Norwich
náði stigi i Ipswich. Þar var
heimaliðið mun betra lengi
framan af — en tókst ekki að
skora fyrr en á 49. min. þegar
Bryan Hamilton sendi knöttinn i
mark. En þá var eins og Ipswich
gæfi eftir — eins og leikmenn
liðsins álitu sigurinn i höfn. Það
var nú eitthvað annað. Norwich
fór að sækja og nýi leikmaður-
inn Boyer jafnaði á 80. min. eftir
undirbúning gamla West Ham-
leikmannsins Sissons, sem Nor-
wich fékk frá Sheff. Wed i vetur.
Þá vöknuðu leikmenn Ipswich
upp við vondan draum — sóttu
mjög lokaminúturnar, en það
var of seint.
West Ham vann góðan sigur á
nágrönnum sinum i Lundúnum
Chelsea. West Ham 3 — Chelsea
0, já, eða Billy Bonds 3 —
Chelsea 0. Það var fyrirliði West
Ham, sá snjalli leikmaður
Bonds, sem heldur betur lék
Chelsea grátt — skoraði öll
mörkin i leiknum. Fyrst á 27.
min. siðan 37. og lokamarkið
skoraði hann eftir klukku-
stundarleik. Og West Ham er
komið upp i 16. sæti i 1. deild og
það á nokkrum vikum úr neðsta
sætinu. Ekkert er ómögulegt i
fallbaráttunni — einu sinni man
ég eftir að Lincoln City sigraði i
sex siðustu leikjum sinum i 3.
deild og bjargaði sér frá falli á
einu stigi.
t hinu Lundúna-derbiinu vann
QPR auðveldan sigur á Totten-
ham og hefði það einhvern tima
þótt saga til næsta bæjar. Don
Givens skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir QPR — Martin
Chivers jafnaði úr vitaspyrnu,
en Stan Bowles kom QPR i 2-1
fyrir hlé. 1 siðari hálfleiknum
skoraði Gary Francis þriðja
mark QPR, sem einu sinni var
„pinulitið” Lundúnalið, en
Tottenham stórveldi.
Um aðra leiki er það að segja,
að Bob Latchford skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Everton. Það
nægði Liverpool-liðinu þó ekki
til að hljóta stig — Frank
Worthington og Steve Earle
skoruðu fyrir Leicester. Alan
aiiiis
§(á!&r
n
V
-----------’
Ball skoraði eina markið i
leiknum á Highbury, þegar
Arsenal vann Southampton. Jeff
Bourne skoraði strax á 3. min.
fyrir Derby gegn Stoke — 9.
mark hans i ellefu leikjum — en
John Ritchie tókst að jafna fyrir
Stoke.
Bikarmeistarar Sunderland
fengu enn skell i 2. deild og hafa
nú litla sem enga von að vinna
sæti i 1. deild. Og það sem verra
var — tveimur leikmönnum
liðsins var visað af velli gegn
Middlesbro i byrjun s.h. — þeim
Kerr og Tueart. Dómari leiksins
hélt þó lifi og limum eftir leikinn
og þótti mörgum merkilegt.
Staðan er nú þannig il.deild:
Leeds 32 19 12 1 55-21 50
Liverpool 31 18 8 5 39-23 44
Derby 31 12 11 8 40-31 35
QPR 31 12 11 8 49-41 35
Ipswich 31 13 9 9 50-45 35
Leicester 31 11 12 8 40-31 34
Everton 31 12 9 10 35-33 33
Burnley 30 11 1(1 9 36-35 32
Newcastle 30 12 7 11 40-33 31
Manch. City29 11 8 10 30-27 30
Sheff. Utd. 31 10 10 11 38-37 30
Tottenham 31 10 10 11 35-42 30
Stoke 30 8 13 9 39-33 29
Arsenal 32 10 9 13 34-41 29
Coventry 33 11 7 15 33-43 29
West Ham 32 9 10 13 41-48 28
Wolves 31 9 10 12 35-41 28
Southampt.31 9 10 12 37-49 28
Chelsea 31 9 9 13 45-46 27
Birmingh , 30 7 9 14 33-49 23
Manch. Utd.30 6 9 15 25-38 21
Norwich 31 4 11 16 25-47 19
1 2. deild er staðan þannig:
Middlesbro 31 19 10 2 46 22 48
Luton 30 15 9 6 43 34 39
Orient 31 13 12 6 46 31 38
Blackpool 32 13 11 8 43 30 37
WBA 31 13 11 7 40 30 37
Nott.For 31 11 13 7 41 29 35
30 13
32 9
33 12
31 12
Carlisle
Hull
Notts C
Bolton
Sunderland 30 11
Fulham
Millwall
Bristol C.
Portsm. 30
Cardiff 32
Preston 32
Oxford 31
Sheff. Wed.32
C.Palace 31
Swindon 33
9 44 35 34
8 33 34 33
12 47 48 33
12 36 32 31
11 38 30 30
29 11 8 10 27 26 30
32 10 10 12 39 40 30
32 11 8 13 37 41 30
30 8 12 10 29 30 28
32 8 11 13 36 44 27
32 8 12 12 34 45 27
31 7 11 13 29 39 2S
7 9 16 34 47 23
6 10 15 28 44 22
5 9 19 29 56 19
%j
Leikinenn úlfanna. Efsta röð
frá vinstri Derek Jefferson,
Ilerek Dougan, Phil Parkes,
Gary Pearce, John McAlle,
Steve Kindon. Miðröð: Derek
Parkin, Steve Daley, Gerry
Taylor, Francis Munro, Geoff
Palmer, John Richards,
Sammy Chung, þjálfari. Neðsta
röðin: Alan Sunderland, Barry
Powell, Mike Bailey, fyrirliði,
Bill McGarry, framkvæmda-
stjóri, Jim McCalliog, Dave
Wagstaffe og Ken IIibbitt.
Eftir 14
Úlfarnir
— Sigruðu Manch. City í úrslitum deildabikarsins 2—1
ó Wembley á laugardag.
Loksins eftir 14 mögur
ár, er Wolverhampton
Wanderers — eitt fræg-
asta liö Englands, sem
þrívegis varö enskur
meistari milli 1950 og
1960 — aftur komiö á
toppinn í ensku knatt-
spyrnunni. Liöið varö
deildabikarmeistari á
laugardag — sigraði
Manch. City 2-1 i úrslita-
leiknum á Wembley að
viðstöddum 100 þúsund
áhorfendum. Það er
fyrsti stórsigur úlfanna
siðan 1960, þegar liðið
sigraði Blackburn 3-0 i
úrslitum FA-bikarsins,
einnig á Wembley. Það
var fjórði sigur Úlfanna i
þeirri keppni — og meðal
mótherja þá í Blackburn-
iiðinu var ungur piltur,
Derek Dougan, sem nú er
frægastur — og kannski
beztur — leikmanna Úlf-
anna, formaður samtaka
ensku atvinnu-knatt-
spyrnumannanna.
En mikið voru leikmenn
Manch. City óheppnir að tapa
þessum leik —og framkvæmda-
stjóri liðsins nú, Ron Saunders,
mátti bita i það súra epli að sjá
lið sitt tapa annað árið i röð i úr-
slitum deildabikarsins. 1 fyrra
var hann framkvæmdastjóri
Norwich, þegar Tottenham
sigraði i úrslitum.
Úlfarnir byrjuðu betur i leikn-
um á laugardag, en tókst ekki
að skora fyrr en á 43. min. að
Ken Hibbitt skoraði, en hann
kom inn sem varamaður fyrir
Steve Powell. Fyrirliðinn Bailey
var drifandi kraftur i Úlfa-liðinu
— og Wagstaffe lék Glyn Pardoe
grátt með hraða sinum.
1 siðari hálfleiknum snerist
leikurinn alveg Manchester-
liðinu i hag. Liðið sótti stanz-
laust og Rodney Marsh og
Colin Bell, ensku landsliðs-
mennirnir, voru stórhættulegir
ásamt þeim þriðja, Francis
Lee. Eftir 60. min jafnaði Bell —
og svo átti Manch. City þrjú
stangarskot eða í þverslá Úlfa-
marksins. Það siðasta var
dæmigert — hörkuskot Bell lenti
undir þverslá, en knötturinn
hrökk út aftur —úlfarnir náðu
boltanum og brunuðu upp.
Vörnin var galopin og John
Richards skoraði sigurmarkið
Þá voru fimm minútur til leiks-
loka — og þetta upphlaup var
raunverulega hið eina hættu-
lega hjá Úlfunum allan siðari
hálfleikinn!!! En þannig er
knattspyrnan — Manch. City,
sem allra enskra liða hefur
flesta sigra siðustu árin m.a. i
deildabikarnum 1970, tapaði úr-
slitaleik i fyrsta skipti lengi.