Vísir - 13.06.1974, Side 12
12
Vísir. Fimmtudagur 13. júnl 1974
Hann bar af þeim öffum
...en konur og vín gerðu hann að engul
y
í dag hefst HM-
keppnin i knattspyrnu í
Vestur-Þýzkalandi. Við
fáum að heyra um allar
stjörnurnar, Becken-
bauer, Gruyff, Bremn-
er, Rivera og fleiri og
fleiri milljónamæringa
og átrúnaðargoð...
...En hve margir þeirra koma
til með að enda eins og knatt-
spyrnustjarnan George Best?
....sem i dag er eins konar bar-
þjónn eða móttökustjóri við
næturklúbbinn „Slappy Alice”,
sem hefur miður gott orð á sér i
Manchester.
Best afgreiðir þarna öl og á-
fengi og tekur á móti gestum.
Hann er þarna sem eins konar
lifandi auglýsing. Eigendur
staðarins greiða honum gott
kaup.á þjóna visu, fyrir að vera
þarna, en þetta eru litil laun
miðað við það, sem hann hafði
hjá Manchester United, þegar
hann og liðið voru upp á sitt
bezta.
Breytingin frá þvi að vera
augasteinninn i brezkri knatt-
spyrnu og til þess að vera léleg
auglýsing i enn lélegri nætur-
idúbb hefur aðeins tekið nokkra
mánuði.
Húsið var selt
fyrir skuldum
George Best verður bráðlega
28 ára gamall. Einbýlishúsið,
eöa höllin, eins og húsið hans
var kallað, var selt fyrir 12 mill-
jónir króna. Best fékk minnst af
þeim peningum, skatturinn tók
sitt, hann hafði ekki fengið neitt
i langan tima, og aðrir lánar
drottnar tóku hitt.
Hviti Rolls Roysinn, sem var
pantaður, þegar allt lék i lyndi,
var afpantaður. Hann á eftir
gamla Jagúarinn sinn og ekur
um á honum, þegar hann er ekki
að vinna, og heimilið hans er nú
litil ódýr ibúð i miðhluta Man-
chester.
Og það er orðið litið um kven-
fólk I kringum hann. Þær komu i
þúsundatali á Old Trafford og
aðra knattspyrnuvelli til að sjá
hann fyrir nokkrum mánuð-
um... nú koma nokkrar I nætur-
klúbbinn til að tala við hann.
Siðasta „ástarævintýrið”
hans var með Marjorie Wallace,
„Miss World” sem missti titil-
inn fyrir að umgangast „vafa-
sama menn”. Þeirra ævintýri
lauk með þvi, að hún kærði hann
fyrir að stela peningum og
skartgripum frá sér, á meðan
hún svaf.
Drekkur eina flösku
á dag
Afengið hefur haft sitt að
segja I niðurlægingu þessa unga
manns, sem á sinum tima gat
gert allt með knöttinn... nema
að láta hann tala.
„Ég veit, að ég drekk stund-
um of mikið. Það kemur fyrir,
að ég get ekki komizt af með
minna en eina viskiflösku á
dag” sagði hann i bíaðaviðtali
árið 1973... nú er sagt, að ein
flaska á dag sé allt of litið fyrir
hann.
Blöðin hafa gert mikið úr
ævintýrinu um George Best, og
öll hafa þau grætt á þvi. Hver
greinaflokkurinn af öðrum hef-
ur verið skrifaður um hann. Þar
hefur Best sagt frá öllu... og vel
það, segja sumir... Þetta var
vinsælt lestrarefni fyrir nokkru,
en ekki lengur.
Siðasta „stórfréttin” i sam-
bandi við Best er, að hann eigi
son með einni af sinum gömlu
vinkonum. En það voru fáir,
sem lásu þessa frétt. Fólkinu
kemur ekki lengur við, hvað Ge-
orge Best gerir. Hann mætti
þess vegna eiga fullt knatt-
spyrnulið af strákum... hann er
ekki lengur stjarna!
Umsjón:
KLP
Ursula Andress verður að fækka
fötum, þegar hún leikur gleöikon-
una Xavieru.
Viðlagasjódur
Akureyri
Viðlagasjóöur óskar eftir til-
boðum í 5 verksmiðjuframleidd
timburhús á Akureyri. Húsin eru
byggð af Misawa í Kanada og
eru 96.3 m2 að stærö og á einni
hæö. Lóð verður frágengin og
hellulagður gangstígur.
Hafnaríjörður
Viðlagasjóður óskar eftir til-
boðum í 3 verksmiöjuframleidd
timburhús í Hafnarfirði.
Tvö húsanna eru byggð af
Misawa í Kanada og eru 96.3 m2
að stærö og á einni hæð. Eitt er
byggt af Conta í Danmörku,
er 121.6 m2 að stærð og á einni
hæð. Lóð veröur frágengin og
hellulagður gangstígur.
Sýning húsanna
öll húsin veröa til sýnis sunnudag 16. júni n.k. frá kl. 2-6 sfödegis.
Greiðsluskilmálar
Húsin veröa seld meö minnst 50% útborgun af söluveröi á Akureyri og meö minnst 60% útborgun af
söluveröi í Hafnarfiröi og greiöist sú upphæö á næstu 12 mán. eftir aö kaupsamningur er geröur, meö
hægilegu millibili. Er þá viö þaö miöaö aö kaupandi fái húsnæöismálalán (E-lán), sem hann ávfsi til
Viölagasjóðs til lækkunar á eftirstöðvunum. Aö ööru leyti lánar Viölagasjóöur eftirstöövarnar til 7
ára meö 10% vöxtum.
leitar tilboða
Tilboð
Tilboö er tilgreini verð og nánari greiösluskilmála sendist skrifstofu Viölagasjóös, Tollstööinni viö
Tryggvagötu I Reykjavík, fyrir kl. 17, föstudaginn 21. júní n.k.
1
Bpxnjf
,IÍ,llliHBlliÍiii!l
I
CONTA: 121,6 m2
[E l™LU
~ ... .■ 37“ P-
m j, , Hlf' frj 0[.‘3 T-l K K .. j “i 'x\ [/ u ►
■pr n “74 u t □ - 3 ■; x
MISAWA: 96,3 m2
Viðlagasjóður Tryggvagötu 19 Rvk. Sími 18 3 40