Vísir - 15.06.1974, Side 1

Vísir - 15.06.1974, Side 1
VISIR 64. árg. — Laugardagur 15. júni 1974 — 99. tbl. Hvað gerðist? Hvað skeði i spili 31? Þórir, Hallur og Stefán bera saman bækur sinar. SJA BRIDGEÞATT BLS. 9 „Pappírs- gullið" tekur við af gullinu - Sjá bls. 6 Sófasett kosta upp í 500 þús. — Sjá bls. 3 Við eigum samleið „Við eigum samleið” nefnist leiðari Visis I dag. Þar segir m.a.: „í byggða- kosningunum fyrir þremur vikum kom i ljós, að sjálf- stæðismenn, ungir kjósendur og óháðir kjósendur áttu samleið. Þessi breiðfylking hlaut yfir heiming gildra at- kvæða i kaupstöðum og kauptúnum landsins. Á timum bræðraviga og öngþveitis vinstristjórnar er almenningi nokkur vernd i traustum byggðastjórnum. En hin nýja breiðfyiking nær þá fyrst verulegum árangri, ef henni tekst að moka át stjórnarflórinn i alþingis- kosningunum eftir tvær vik- ur. Þá eiga sjálfstæðismenn, ungir kjósendur og óháðir kjósendur áfram samleið.” Sjá bis. 6 • „Kólumbus ó íslandi" — segir ráðherra — Sjá bls. 3 ÁLAFOSSMÁLID: Viðtðl við Pétur Eiríks- son og Ásbjörn Sigurjónsson — Sjá baksíðu Lœknadeila - lœknar í #fvaktaverkfall/# Sjúkrahúslœknar vilja fá 15 þúsund í kauptryggingu Þessar stúlkur unnu við að hreinsa til i Daln- um i Heimaey, þegar ljósmyndari Visis, Guð- mundur Sigfússon, var þar á ferð með mynda- vél sina i vikunni. #/í neyðartilfellum verð- ur fólk auðvitað að reyna að ná í hvaða lækni sem er. Læknirinn verður þá að taka ákvörðun hvort fara eigi með sjúklinginn á spítala eða ekki". Þetta sagði Guðmundur Odds- son, formaöur Læknafélags ís- lands, i viðtali við Visi i gær. En eins og borgarbúum er kunnugt, hefur félagið um árabil séð um læknaþjónustu kvöld, nætur og helgar á Reykjavikursvæðinu. Guðmundur sagði okkur, að mikill skortur væri á heimilis- læknum. Astæðurnar væru marg- ar. T.d. væri kaup ekki nógu gott, til að heimilislæknar gætu ráðið til sin það aðstoðarfólk, sem með þyrfti. Þessi kvöld-, nætur- og helgar- þjónusta hefði verið borin upp að miklu leyti af sjúkrahúslæknum, sem bættu þessum vöktum ofan á langan vinnudag. 1. april hættu þeir hins vegar þessum vöktum og voru það þá eingöngu heimilis- læknar sem önnuðust þær. Nú væri svo komið, að þeir sæju sig tilneydda til að hætta og gera það frá og með 18. júni. Guðmundur sagði, að læknar fengju greitt fyrir hverja vitjun, 600 kr. á kvöldvaktinni og 1000 kr. á næturvaktinni, þegar þeir fengju greitt, sem alls ekki væri alltaf. Vitjanir eru þetta frá 10—20 á kvöldvaktinni og 4—6 á næturvakt. Samningar milli sjúkrahúss- lækna annars vegar og Sjúkra- samlags Reykjavikur og Trygg- ingastofnunarinnar hins vegar hafa siglt i strand. Við heimilis- læknana var samið um 1500 kr. kauptryggingu. Þess ber að gæta, að þeirra samningar eru allt öðruvisi uppbyggðir en sjúkra- húslæknanna. Guðmundur sagði, að sjúkra- húslæknar færu fram á 15.000 kr. kauptryggingu, sem skiptist á kvöldvaktirnar og næturvaktirn- ar. ,,Ég vona bara, aö úr þessu rætist sem allra fyrst”, sagði Guðmundur að lokum. Við ræddum við Gunnar Möller, forstjóra Sjúkrasamlags Reykja- vikur og spurðum hvort neyðar- siminn yrði opinn áfram. „Siminn er auðvitað á okkar vegum, en það er til litils gagns aðhafa aðeins simastúlku. Engin ákvörðun hefur samt verið tekin enn um að loka simanum”. Gunnar sagði okkur, að sjúkra- húslæknar færu fram á 15.000 kr. fyrirkvöld- og næturvaktina i við- bót við það sem vaktin gefur af sér. Þetta væri hreint viðbótar- gjald. Vitjanir væru að meðaltali 8 á nóttunni og um 20 á kvöldin. —EVI— Popp — bls. 4 Kross- gátan - bls. 14 Kirkju- síðan — bls. 8 Fékk 800 milljónir og gulllykil að New York 800 tnilljón króna lán var ekki það eina, sem Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri fékk i New York I gær. Hann hitti starfsbróður sinn i New York að máli, Abraham D. Beame borgarstjóra. I heim- sókninni var honum afhentur borgarlykillinn, sem er úr gulli. 1 för með Birgi ísleifi til borgarstjórans var ívar Guð- mundsson konsúll. Lánssamningurinn, sem Birgir tsleifur undirritaði, er á hagstæðum kjörum. Lánið er til 15ára og afborgunarlaust fyrstu þrjú árin. Vextir eru 9.5 prósent, Fyrri hluti lánsins, ca. 450 mill- jónir, verður greiddur á þessu ári, en siðari hluti á næsta ári. Lánið er tekið vegna hita- veituframkvæmda i Reykjavik Kópavogi, Garðahreppi og Hafnarfirði. _ Birgir tsleifur — kemur heim með 800 milljónir og gulllykil upp á vasann.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.