Vísir - 15.06.1974, Blaðsíða 16

Vísir - 15.06.1974, Blaðsíða 16
16 iT 1. ' i r:; r T-r »:»íOí?S^1ííf.f ><*.' fj?ÍV _____________________________________ Vlsir. Laugardagur 15. júnl 1974 | I PAG j í KVÖLD I í DAG | í KVÖLD | í DAG f Útvarpið í kvöld kl. 20.00 Frá listahátíð. Daniel Barenboim Hver nóta, hver hending, hver þögn er flutt af fullkominni tœkni Seinni hluta tónleika Daniels Barenboims fáum viö aö heyra á sunnudagskvöld. Eflaust þekkja hann margir sem vin Ashkenazys, en þeir eru vafa- laust fleiri.sem vita, aö hann er i fremstu röö pianóieikara heimsins. Hann er fæddur i Argentínu og kom fyrst fram opinberlega 7 ára gamall. Eins og Jón Kristinn Cortez segir i ritdómum VIsis um hann: „Hvernig er hægt aö skrifa um tónleika, þar sem snillingar á borö viö Barenboim koma fram? Hvernig er hægt að lýsa fullkominni tækni og túlkun hjá listamanni sem flytur manni hverja nótu, hverja hendingu, hverja þögn á þann hátt, aö maður situr gagn- tekinn i sæti sinu og hugsar meö sérc þannig hef . ég aldrei heyrt þetta áður, eða, á verkið að hljóma svona eða eins og einn poppari, sem ég hitti eftir á, sagði: „mikið ofsalega er náunginn klár, hver er þessi Sjópeing sem meikaði þetta?” En, sem fyrr segir, er það á þetta, sem við fáum tækifæri til að hlusta á annað kvöld. —EVI— Smurbrauðstofan Njólsgötu 49 - Simi 15105 Útvarpið í dag kl. 14.00: „Vikan sem var" Kjarvalssýning ó Kirkjubœjarklaustri í þriöja þætti Páls Heiöars á þessu sumri veröur m.a. vikiö aö sýningu á Kjarvalsmyndum austur á Kirkubæjarklaustri. En þegar meistarinn var þar á ferö, gaf hann ýmsu fólki i sveitinni málverk eftir sig. Veröur spjallað viö nokkra af þessum heppnu eigendum. Þá er vorblótiö hjá Asartúar- mönnum. Sagt verður frá vigslu fjögurra ungmenna, sem gengu Ásatrúnni á hönd. Pólitikin fær sinn skammt. Hugleiðingu vikunnar flytur Sigurvin Einarsson fyrrum alþingismaður. Gunnar Eyþórs- son fer i sitt kapphlaup við klukkuna með útlendan frétta- lestur og siðast en ekki sizt koma svo gullkornin. Vinsamleg tilmæli frá Páli Heiðari eru þau, að ef hlust- endur rekast á gullkorn að láta hann þá vita af þeim I sima 22260 eða skrifa Rikisútvarpinu Skúlagötu 4. —EVI— Mœrin frá Orleans Ingrid Bergman i hlutverki sinu sem Mærin frá Orleans. Sjónvarp í kvöld kl. 22.00: (Joan of Arc): Flestir kannast við söguna um meyna frá Orleans, sem taldi sig fylgja fyrirmælum æðri máttarvalda, Hún varð til þess að Frakkar sigruðu Englendinga í stríði á þriðja tug 15. aldar. Ingrid Bergman er sennilega jafnþekkt og þessi saga. Þessi brandari gekk i New York 1945: „Ég sá mynd i dag, sem ekki var með Ingrid Bergman”. Þá var verið að sýna „Saratoga Trunk”, „The Bells of St. Marys og „Spellbound” allar á sama tima. Ingrid Bergman komst i ónáð i Holiywood fyrir að eiga barn með italska leik- stjóranum Roberto Rosseline, sem bún siðar giftist. Hún olli milljónum kvenna I Banda- rikjunum vonbrigðum, þvi að hún var hin sanna fyrirmynd i augum þeirra sem sú hamingju- sama i hjónabandinu, gift lækn- inum Peter Lindström. 20 árum seinna hneykslaði það engan að ráði þótt svipað ætti sér stað með jafnfrægar leikkonur og Ingrid Bergman. En hún komst i náðina aftur i Hollywood og lék þá i myndinni „Anastasia” Fyrir leik sinn fékk hún i annað sinn Óskars- verðlaunin, þau fyrri fékk hún fyrir leik sinn I Gaslight, þar sem hún lék á móti Charles Boyer. Ingrid Bergman hefur viða leikið á sviði i Evrópu meðal annars lék hún Heddu Gabler. Ekki er langt siðan við sáum hana i Kaktusblóminu i Stjörnu- biói, með Walter Matthau og Goldie Hawn. —EVI— SJÓNVARP • LAUGARDAGUR 15. júni 1974 20.00 Fréttir 20.20 Veöur og auglýsingar 20.25 Læknir á iausum kili. Breskur gamanmyndaflokkur. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 20.50 Alvar Aalto, finnsk heimildarmynd um hinn fræga arkitekt. Þýðandi og þulur: Óskar Ingimarsson. 22.00 Mærin frá Orleans. (Joan of Arc). Bandarisk biómynd frá árinu 1948, byggð á leikritinu eftir Maxwell Anderson. Aðal- hlutverk Ingrid Bergman, Jose Ferrerog Ward Bond. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. Myndin lýsir þátttöku frönsku sveita- stúlkunnar Jeanne d’Arc i striði Frakka gegn Englend- ingum á þriðja tug 15. aldar. Jeanne, eða heilög Jóhanna, eins og hún hefur verið nefnd, taldi sig fylgja boði æðri mátt- arvalda. Hún náði trúnaði hins veikgeðja konungs og leiddi her hans til sigurs yfir Englending- um, en var siðar tekin til fanga af óvinunum og brennd á báli sem galdranorn. 23.40 Dagskrárlok. Sunnudagur 16. júni 17.00 Endurtekið efni „Eyja Grims i Norðurhafi”. Kvik- mynd, gerð af Sjónvarpinu, um Grimsey og Grimseyinga. Áður sýnd 1. janúar 1974. 18.00 Skippi. Astralskur mynda- flokkur fyrir börn og unglinga. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. 18.25 Sögur af Tuktu.Kanadiskur fræðslumyndaflokkur fyrir börn og unglinga. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. 18.40 Steinaidartáningarnir. Bandariskur teiknimynda- flokkur. Þýðandi Heba Július- dóttir. 19.00 Hié. 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar, 20.25 Við Suðurskautsins skikkju- fald. Bresk fræðslumynd um dýralif og landslag á Suður- skautslandinu. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. 20.55 - Bræðurnir II. Bresk framhaldsmynd. 2. þáttur. Iljólin snúast. Efni 1. þáttar: Mary Hammond kemur óvænt heim úr heilsubótarferð til meginlandsins á afmælisdegi Barböru Kingsley. Barbara hefur boðið vinum sinum til veislu, þar á meðal Edward. Hann verður þó að afþakka boðið, þar eð móðir hans boðar til fjölskyldufundar og leggur rika áherslu á, að Edward komi þangað. Þennan sama dag kemur i ljós, að ókunnur aðili hefur gert tilboð I lóð, sem liggur að landi Hammond-- fyrirtækisins. Bræðrunum þykja þetta slæmar fréttir. Þeir hafa sjálfir hugsað sér að kaupa eignina, en án hennar geta þeir ekki fært út kviarnar. 21.45 Þingvailahátiðin 1974Þáttur með upplýsingum um fyrir- huguð hátiðahöld i tilefni af ellefu alda afmæli byggðar á Islandi. Meðal annars er i þætt inum rætt við Indriða G. Þor- steinsson, framkvæmdastjóra Þjóðhátiðarnefndar, og Óskar Ólason, yfirlögregluþjón. Umsjónarmaður Guðjón Einarsson. 22.20 Að kvöldi dags.Sr. Grimur Grimsson flytur hugvekju. 22.30 Dagskrárlok Mánudagur 17. júni 20.00 Fréttir, 20.25 Veöurfregnir 20.30 Avarp forseta tslands, dr. Kristjáns Eldjárns. 20.40 Frá Listahátið islensk myndlist I 1100 ár. Ólafur Kvaran, listfræðingur, fjallar um samnefnda sýningu, sem nú stendur á Kjarvalsstöðum. 21.30 Milli fjalls og fjöru.Fyrsta islenska talmyndin, gerð af Lofti Guðmundssyni árið 1948. Meðal leikenda eru Alfreð And- résson, Anna Guðmundsdóttir, Bryndis Pétursdóttir, Bryn- jólfur Jóhannesson, Gunnar Eyjólfsson, Inga Þórðardóttir, Ingibjörg Steinsdóttir, Jón Leós og Lárus Ingólfsson. Myndin greinir frá ungum kot- bóndasyni, sem verður fyrir þvi óláni, að á hann fellur grunur um sauðaþjófnað, en slikur ófrómleiki var fyrr á tlmum talinn meðal hinna allra verstu glæpa. Ungi maðurinn á sér óvildarmenn, sem ala á þessum grun. En hann á sér lika hauka i horni, þegar á reynir. Formálsorð að myndinni flytur Erlendur Sveinsson. 23.10 Dagskrárlok.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.