Vísir - 15.06.1974, Blaðsíða 9
Vísir. Laugardagur 15. júni 1974
9
Eins og kunnugt er
sigraði sveit Þóris
Sigurðssonar frá
Bridgefélagi Reykja-
vikur á íslandsmótinu
eftir mjög harða keppni.
Úrslitaleikurinn stóð milli
sveita Hjalta Eliassonar og Þóris,
og þurfti sveit Þóris að vinna
sveit Hjalta með a.m.k. 19
vinningsstigum gegn 1.
Fyrri hálfleikur var algjör ein-
stefna hjá Þóri, og hafði hans
sveit skorað 33 stig gegn engu
eftir niu spil. 1 næstu sjö spilum
skoraði sveit Hjalta 15 stig en
Þóris 21 og lauk þvi hálfleiknum
54-15. Sveit Þóris þurfti þvi að
bæta við sig 3 stigum til þess að
vinna Islandsmeistaratitilinn, og
strax i fyrsta spilinu i seinni hálf-
leik skoraði hún 4 stig. Næstu 13
spil gáfu litla umsetningu, eða 6
stig gegn 4, og átti sveit Þóris þvi
aðeins þrjú stig til góða, þegar tvö
spil voru eftir.
En nú fór það sem hélt, Hjalti
og Asmundur gáfu game i 31. spili
og Guðlaugur og Orn bættu gráu
ofan á svart með þvi að missa
pottþétt game i siðasta spilinu.
Seinni hálfleikur var þvi 31-4 og
sveit Þóris hafði unnið leikinn
með 20 vinningsstigum gegn -í-2.
Hér er spil frá fyrri hálfleik.
Staðan var allir utan hættu og
austur gaf.
tslandsmeistararnir gera upp eftir úrslitaleikinn. Talið frá
vinstri: Standandi Páll Bergsson. Sitjandi: Stefán Guðjohnsen,
Þórir Sigurðsson, Haliur Simonarson, Hörður Biöndal. Slmon
Simonarson snýr baki I Ijósmyndarann.
SVEIT ÞÓRIS SIGURÐSSONAR
FRÁ BR ÍSLANDSMEISTARI
I SVEITAKEPPNI
4 G-9-6-5-3
y 8-3
4 4 4 7-2
V K-D-10-9-7-5-4-2VG
ÍÍ4-3 Jtt-W'6-3-2
4 A-K-D-10-8
V A-6
'XMo-S-2
1 lokaða salnum gengu sagnir
þannig:
Austur Suður Vestur Norður
Einar Þórir Hjalti Hallur
34
P
D
P
4 4
Einar spilaði út hjartagosa og
Hallur vann auðveldlega fimm.
Hjalti á erfiða ákvörðun, eftir
að makker hefur opnað á
hindrunarsögn. Eflaust kostar
ekki mikið að fara i fimm hjörtu,
en n-s gætu jafnvel átt slemmu og
þvi hefur hann gefizt upp.
A Bridge-Rama gengu sagnir
hins vegar þannig:
Austur Suður Vestur Norður
Stefán Karl Símon Ásmundur
!♦ D 4m D
P 4 4 5 2 P
D
allir pass.
Það er eðlilegt, að Simon fari i
fimm, þvi eigi austur eðlilega
opnun, þá er eins vist, að þeir
vinnist.
N-s hirtu sina upplögðu fjóra
slagi, og sveit Þóris græddi þvi
dýrmæt 4 imp. á spilinu.
Lokastaðan i mótinu varð þvi
þessi:
Sveit stig
1. Þóris Sigurðss., BR 71
2. Hjalta Eliass., BR 66
3. Hannesar Jónss., BR 66
4. Gylfa Baldurss., BR 35
5. Sigtryggs Sigurðss., BR 29
6. Alfreðs Viktorss., BAK 15
hlutfall en sveit Hannesar og
hlaut þvi annað sætið.
Á þeirri bridgevertið, sem nú er
að ljúka, hefur komið áberandi i
ljós, að reglugerðir Bridgesam-
bands Islands eru stórgallaðar og
ennfremur hefur framkvæmd
þeirra farið töluvert úrskeiðis.
Ekki skal hér rætt um við hverja
er að sakast, en hins vegar bent á,
að ekki er seinna vænna að bæta
skjótt úr þessu, ef ekki á illa að
fara.
Bridgefélag Reykjavikur hélt
aðalfund sinn s.l. miðvikudag.
Formaður var kjörinn Karl Sig-
urhjartarson, varaform. Gylfi
Baldursson, gjaldkeri Stefán
Guðjohnsen, fjármálaritari
Jakob Ármannsson og ritari
Guðlaugur R. Jóhannsson.
Samþykkt var tillaga frá Jakob
R. Möller um það, að fulltrúar BR
Símon Simonarson. Byrjaður að
spila aftur eftir tveggja ára hlé.
á þingi BSI i haust beittu sér fyrir
þvi, að lagðar verði fram tillögur
sem miði að þvi að reglugerðir og
framkvæmdir þeirra verði
lagaðar.
TBK til Huddersfield
Tafl-'og bridgeklúbburinn hefur
frá árinu 1970 unnið að þvi að
koma á heimsóknaskiptum við
enska bridgespilara. Varð
Huddersfield fyrir valinu og
upphaflega ráðgert að um 30
spilarar færu út. Siðan hefur
talan hækkað stöðugt, og 23. júni
fara 52 spilarar til Englands.
Formaður félagsins, Tryggvi
Gislason, hefur unnið að þessu
máli meir en nokkur annar, og er
það nú komið i höfn, þótt mörg
ljón hafi verið á véginum og má
þar nefna landhelgisdeiluna við
Breta, þegar hún stóð sem hæst.
Heimsóknin stendur i viku og er
vist, að engum mun leiðast.
Skipulagðar eru bæði skoðunar-
og kynnisferðir ásamt bridge-
keppnunum.
Næsta ár munu siðan spilarar
frá Huddersfield koma til Islands
i boði Tafl- og bridgeklúbbsins.
Samskipti sem þessi eru bæði
til gagns og ánægju fyrir þátt-
takendur og á Tryggvi þakkir
skilið fyrir framtakið.
bílliisn S,‘i
BiiASAt/* iim
Vila
Sveit Hjalta hafði betra EBL-
Hverfisgötu )8
ít Slmi 14411. "
Fiat 850 '72.
Chrysler 160 ’71.
Volkswagen 1300 ’67, ’70 og ’72.
Ford Maverick ’70.
Ford Bronco ’68 Sport.
Cortina 1600, ’71, station.
Opið á kvöldin kl. 6-10 —
Laugardag kl. 10-4.
Láttu ganaa
Eitthvert frægasta skopskáld,
sem við höfum eignast er Krist-
ján Níels Jónsson. Hann fluttist
til Ameríku 18 ára gamall. Þar
stundaði hann algenga sveita-
vinnu og átti lengst af heima í
Pembínahéraði í Norður-
Dakota.
Árið 1920 gaf hann út visnakver sitt,
Kviðlinga, en taldi sig aldrei til skálda og
mun margt hafa tapast af kveðskap hans,
þar sem hann hirti ekki um að halda hon-
um saman lengi framan af ævi.
Um ljóð sin segir Káinn:
Min eru ljóð ei merkileg,
minir kæru vinir!
En oft og tiðum yrki eg
öðruvisi en hinir.
Veit ég Ijóðin varla min
verða kviðfyllandi,
og kannski þjóðin kostafin
kalli þau siðspillandi.
Ævisögu sina segir Káinn okkur I fáum
dráttum:
Blóðið i æðunum brann,
ef brautin var framundan slétt.
Pegasus frægan ég fann,
á folanum tók ég mér sprett.
Lofthræddur löngum ég var,
þvi lifið á himnum ei skil.
Um foldina fákur mig bar,
en flaug ekki skýjanna til.
Bakkus i taumana tók —
að teyma mig var honum kært.
Svo gaf hann mér brennivinsbók,
á bókina þá hef ég lært.
Káinn kvæntist aldrei. Eitt sinn sagði
kunningjakona hans, að hann hefði getað
valið úr kvenfólki, ef hann hefði ekki verið
svona drykkfelldur. Káinn svaraði:
Gamli Bakkus gaf mér smakka
gæðin beztu, öl og vin,
og honum á ég það að þakka,
að þú ert ekki konan min.
Þótt þessi kvenmaður hafi einnig haldið
þvi fram, að Káinn hafi farið illa með
hæfileika sina með of nánum kynnum við
Bakkus, verður slikt aldrei sannaö frekar
en það verður aldrei sagt með vissu, hvort
menn hefðu getað gert betur, ef þeir hefðu
lifað lifi sinu öðruvisi en þeir gerðu yfir-
leitt.
Barnatrú er biluð mln,
burtu flúin kæti.
Feginn snúa vatni I vln
vildi ég nú, — ef gæti.
Það fer að sjálfsögðu eftir kvenfólkinu
sjálfu, hvaða kosti það metur mest i fari
karlmanna.
Aldrei brenni - bragða ég - vin,
né bragi nenni að tóna.
Felit hefur enn þá ást til mln
engin kvenpersóna.
Skáldum hefur löngum verið tamt að
yrkja til kvenna.
Bara að góðu þig ég þekki,
þinn ei hróður dvin.
Við mig, fijóðið, vertu ekki
verri en móðir þin.
1 þessu tilliti hafa oft þótt beztir
forboðnu ávextirnir.
Margan svanna ég mætan sá,
mér sem ann að vonum;
yndi fann ég oftast hjá
annarra manna konum.
En það er vissara að hafa allan vara á
þegar ástin ólmast hvað mest i mönnum.
Hugfast sveinar hafi það,
helzt á leynifundum,
ýmsa greinir á um, hvað
orðin meina stundum.
Þótt Káinn hafi ort sina kviðlinga á is-
lenzku var stundum nauðsynlegt að gripa
til útlenzkunnar.
Hættu að dansa og gætni gleym,
grlptu ,,chance”-iö, maður!
Taktu kvensu og töitu heim.
„Tell your friends to do the same”.
Þótt hundar séu skynsamar skepnur
tókst þeim ekki að tileinka sér okkar
ástkæra móðurmál þarna I Amerlkunni.
Berja og skamma þyrfti þig,
þrællinn grimmi. „Svei þér!”
Hættu að gjamma og glefsa I mig:
„Go to hell and stay there!”
Ekki var lif þess fólks, sem fluttist til
Ameriku eintómur dans á rósum.
Engu kviði ég eymdarkífi,
illa þó að sæki messu,
því heiðarlegu hundalifi
hef ég lifað fram að þessu.
En það er ekki von á góðu, ef búskapur-
inn er ekki betri en þetta.
Ef að horft er, allir sjá,
— eins og I varga hreysi —
þar er skortur öllu á
öðru en bjargarleysi.
Heimþráin hefur löngum gert vart við
sig hjá Islendingum erlendis.
Hjartað óvart hoppa fer,
holdið buga skorður,
þegar lóu og þrasta her
þreyta flugið norður.
Heimþrá gripinn, hver vili lá,
heim þó andann dreymi,
tignarsvipinn tslands á
ekkert land I heimi.
tslenzk freyja björt á brá
bið ég ljóð min geymi,
fegra meyja úrval á
engin þjóð i heimi.
Það var ýmislegt fleira en vorið, sem
kom mönnum til að hugsa heim.
Þeir, sem að hröktust Fróni frá,
fagurt útsýni jafnan þrá:
A hverjum dansi er hægt að sjá
Hofmannaflöt og Almannagjá.
Og kannski er heimþráin ætíð mest að
leiðarlokum.
Kæra foldin kennd við snjó,
hvað ég ég feginn yrði,
mætti hoidið hvila i ró
heima i Eyjafirði.
Enn vil ég. .minna á, að þátturinn hefur
gaman af að fá visur sendar.
Ben. Ax.