Vísir - 15.06.1974, Page 2

Vísir - 15.06.1974, Page 2
2 Vlsir. Laugardagur 15. júni 1974 TÍSffiSm: Heldur stjórnin velli i komandi kosningum? Arni Kristinsson, læknir. Orugg- lega ekki, hún hefur staöið sig svo hrapallega. Ég reikna meö, aö Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn myndi stjórn. Fram- sóknarflokkurinn mun tapa ó- skaplega. Stefán Björnsson. Ég hef ekki myndað mér neina skoðun um það. Stjórnin núna á i greinileg- um erfiðleikum og það er krafta- verk, ef hún kemst að aftur. Ragnheiður Jónsdóttir, húsmóð- ir. Orugglega ekki. thaldiö tekur við. Menn eru orðnir svo hund- leiðir á þessari stjórn. beir ausa úr öllum sjóðum og standa svo slyppir eftir. Heiðrún Jóhannesdóttir, húsmóð- ir.Ég vona bara að hún falli ekki, þetta eru ágætis menn. Þvi miður eru þó miklar likur á falli. Páll Eyjólfsson, fyrrv. forstjóri. Ég tel að hún falli og vona það reyndar lika. Hún hefur staðið sig svo illa. Sjálfstæðismenn og Framsókn taka við. Skúli G. Jóhannesson, þjónn. Hún heldur ekki velli. Einhver hluti af henni gæti þó hugsanlega sloppið. Það eru 25% geymslufjárákvæð- in, sem skapa henni miklar óvin- sældir meðal manna. Ilíil Ljósm. Visis, Bragi Frekari framkvæmdir við Siðumúlann biða þess, að miðhúsið verði rifið. Vegurinn bíður - húsið stendur Húseigendur við Síðu- múlann er nú farið að lengja eftir að fá götuna opnaða til vesturs. Þar stendur nú í vegi fyrir frekari gatnafram- kvæmdum stórt íbúðar- hús/ sem er í hópi húsa er þarna voru byggð upp úr stríði/ ýmist í óleyfi eða með bráðabirgðaleyfi. Siðumúlinn liggur nú nær full- búinn að húsinu beggja vegna. Bærinn keypti þetta 160 fermetra hús fyrir 1.6 milljónir i fyrra, og ibúum þess var þá einnig úthlutað nýrri byggingarlóð. Hjá borgarverkfræðingi var okkur tjáð að ekkert yrði aðhafzt við frekari fram- kvæmdir götunnar, fyrr en ibúar hússins gætu flutt i nýja húsið. Þættu þeim hjá borginni framkvæmdir við ný- bygginguna ganga nokkuð seint. Var reynt, að útvega ibúunum leiguibúð hjá bænum, en þær eru umsetnar og þvi erfitt um vik. Eru þvi litlar likur á, að haldið verði áfram með Siðu- múlann i sumar. —JB— Rœða samskipti Islands og EBE Fundur fulitrúa tslands og Efnahagsbandalags Evrópu um framkvæmdina á samningi fs- lands og EBE er nú haldinn i Brussel. Slikir fundir eru haldnir reglulega, og að þessu sinni sitja þeir Þórhallur Asgeirsson, ráðu- neytisstjóri, og Valgeir Arsæls- son, deildarstjóri I viðskipta- ráðuneytinu fundinn fyrir íslands hönd. I frétt NTB um fundinn segir, að Þórhallur Ásgeirsson hafi sKyrt tra pvi sjónarmiði íslenzku rikisstjórnarinnar, að það spillti fyrir sambandi íslands og EBE, að bandalagið hefur ekki heimil- að, að þau ákvæði samningsins, sem eru um fiskafurðir, gangi i gildi. EBE hefur sett það sem skilyrði fyrir gildistöku samn- ingsins, að samkomulag náist milli íslendinga og Vestur-Þjóð- verja um fiskveiðar þeirra siðar- nefndu innan 50 milna fiskveiði- lögsögunnar. Samningarnir við Vestur-Þjóð- verja stranda á þvi, að ekki hefur náðst samkomulag um heimild fyrir stóru þýzku frystitogarana til að veiða innan 50 milnanna. Samningamenn frá islenzkum stjórnvöldum voru nýlega á fundi i Bonn. En stjórnarskiptin þar urðu til þess á timabili að tefja fyrir samningaviðræðunum. Hef- ur Visir það eftir áreiðanlegum heimildum, að ekki sé lengur um mörg ágreiningsatriði að ræða milli tslendinga og Vestur-Þjóð- verja. Samningur Islands við Efna- hagsbandalagið var undirritaður 22. júli 1972 en staðfestur af al- þingi 26. febrúar 1973. Strax eftir það tóku þau ákvæði samningsins gildi, sem fjalla um iðnaðarvör- ur. — BB — Jón er for- stöðumaður t frétt um öndvegissúlur I blaðinu i fyrradag varð sú villa I myndatexta, að Ingvar Hallgrimsson var sagður forstöðumaður Haf- rannsóknastofnunarinnar. Hann er hins vegar deildar- stjóri svif- og botndýrarann- sóknadeildar. Það er Jón Jónsson, sem er forstöðu- maður stofnunarinnar. —JB— LESENDUR HAFA ORÐIÐ 4 G. hringdi: „Það er athyglisvert og sýnir vinnubrögðin hjá stjórnvöldum, að Rafmagnsveitur rikisins fengu samþykkta miklu meiri hækkun en aðrir. Þær fengu um 40 prósent meiri hækkun en Rafmagnsveita Reykjavikur. Þannig er ástandið, rikisvaldið notar afl sitt til að hækka mest hjá sér.” þættra gáfna. — HIÐ KOMMÚN- ISTtSKA KERFI ER ALLT ANN- AÐ MÁL. Nú i kvöld, er ég heyrði Stefán endurtaka þetta sama i sjón- varpstima Alþýðubandalagsins (Stefán er eflaust ekkert verri en hin), þá gat ég ekki stillt mig um að senda þessa smásendingu til þeirra i þeirri von, að i keppni um val eða löngun til vals til forráða á okkar ágæta Islandi, þá sigli þeir i þeim byr, sem gefst með is- lenzkt flagg á stöng og þá i hálfa stöng eftir kosningar nú 30. júni, eins og ég vona.” RÚSSAGRÝLA Benedikt Bogason skrifar: „Fyrir nær þrem árum, rétt fyrir lokabaráttu frambjóðenda til siðasta alþingis, stóðu 4 glaði hlakkalegir „kandidatar” Al- þýðubandalagsins (Stefán Jóns- son, Svava Jakobsdóttir og 2 aðr- ir) skælbrosandi og glaðhlakka- legir á sjónvarpsskerminum framan i okkur alþjóð og lýstu samhljóða og fjálglega yfir þvi, að nú væri „Grýla gamla dauð”. — Ékki var mér ljóst, hvort það byggðist á framboði Sósialistafé- lags Reykjavikur þá, eða bara að „kella” væri dauð. Ég vil taka það fram, að ég skildi þetta þannig, að átt væri við sk. „Rússagrýlu”, en ekki vora þjóðlegu eiginkonu „Leppalúða”. Nú er það svo, að þetta orð „Rússagrýla”, sem sennilega er fundið upp af íslenzkum komm- únistum, hefur mér alltaf fundizt fremur lágkúrulegt. Ástæðan er sú, að ég dvaldist mörg ár erlend- is við nám og kynntist mörgu fólki, sem var af rússnesku bergi brotið, og einnig sovézkum borg- urum, sem ég met mikils vegna þægilegs persónuleika og fjöl- „Ríkið hœkkaði auðvitað mest" TIL MINNINGAR UM JÓN SIGURÐSSON Sá dagur lifir enn með okkar þjóð, er einhugur á föstum rótum stóö. Þá þjóðin bjó viö áþján erlends valds og okkur skorti menn til trausts og halds. Þú gafst ei upp og enginn nema þú gast eflt vort þrek og styrkt þá veiku trú, að þjóðin gæti ennþá fært þá fórn að frelsa sig og lúta eigin stjórn. Vors sjálfstæðis vér syngjum glaðan brag, þvi sigur vor vannst einmitt þennan dag, og sigrinum vér fögnum keik og kát við kóka kóla drykkju og pylsuát. Ben. Ax.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.