Vísir - 15.06.1974, Page 3
Vísir. Laugardagur 15. júni 1974
3
EITT SÓFASETT Á HÁLFA MILUÓN
Þaö væri synd að segja, að
við getum ekki valið um gerð
og gæði húsgagna. Verðið fer
svo eftir þvi.
Við hringdum i nokkrar hús-
gagnaverzlanir i bænum.
Söfasett er hægt að fá allt frá
um 100 þús. kr. og upp i tæp 500
þús. kr. Algengt verð er frá 130
þús. kr. upp i rúm 200 þús. kr.
Borðstofuhúsgögn er hægt aö
fá frá um 100 þús. kr. upp i
rúm 300 þús kr, eftir þeim
upplýsingum sem við fengum.
Ekki virðist fólkið kippa sér
upp við að borga jafnvel út I
hönd, ef það er bara ánægt
með hlutinn. Sizt hefur dregið
úr sölu undanfarið. Þessi
mikla sala er e.t.v. af þvi, eins
og einn húsgagnasalinn komst
að orði. „Kannski er fólkið að
koma peningum sinum i ein-
hvern verðmætan hlut áður en
verðgildi krónunnar verður
enn minna”. — EVI —
Unga fólkiö reynir
hvernig það er að sitja i
húsgögnum, sem kosta
tæp 500 þús. kr. ,,Jú, það
er nú anzi gott að sitja i
þeim”, varð honum að
orði. Hún bara sam-
þykkti.
■ -
Félagsstarf
Hin nýkjörna bæjarstjórn Seltjarnarness á fyrsta fundi sinum eftir kosningar. Frá vinstri: Viglundur
Þorsteinsson, Magnús Erlendsson, Snæbjörn Asgeirsson og Sigurgeir Sigurðsson, allir af D-lista, Stefán
Agústsson fundarritari, Karl B. Guðmundsson (D) I ræðustól, en hinum megin er minnihlutinn, aðcins
tveir, Njáll Þorsteinsson (B) og Njáll Ingjaldsson (F).
Skoðunar- og kynnisferðir á vegum
Félagsstarfs eldri borgara nú í júni og júli
Þriðjud. 18. júni Skoðunarferð I Norræna Húsið:
Norrænn myndvefnaöur
Þriðjud. 25. júni Skoðunarferð I Landsbókasafnið:
Fögur handrit.
Þriðjud. 2. júli Skoðunarferð I Listasafn rikisins:
Málverkasýning Nlnu Tryggvad.
Fimmtud. 4. júli Skoðunarferð að Kjarvaisstöðum:
List I 1100 ár.
Þriöjud. 9. júll Skoðunarferð til Hveragerðis
Fimmtud. 11. júll Skoðunarferö i skógræktarstöðina
og laxeidisstöðina I Kollafirði
Þriðjud. 16. júli Stokkseyrarferð:
fjörullfsskoðun.
Fimmtud. 18. júll Arbæjarferð:
Húsin og safniö skoðað.
Þriðjud. 23. júll Skoðunarferð I Sædýrasafnið og Hellis-
gerði I Hafnarf., heim um Alftanes.
Fimmtud 25. júll Skoðunarferð um Reykjavlk
Þriðjud. 30. júli Farið til Þingvalia, um
Grafning til baka.
Vinsamlegast athugið:
Lagt verður af stað i allar ferðir frá
Austurvelli kl. 1:30 e.h.
Nauðsynlegt er að panta far i siðasta lagi
daginn fyrir hverja ferð.
Þátttaka tilkynnist og upplýsingar veittar
i sima 18800 kl. 9:00 til kl. 12:00 f.h.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.
IPi Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
ÞAR [R 17. JUNI
.DAGUR BARNANNA'
17. júni hátiðahöldin i Kópa-
vogi eru með nokkuð öðru sniði
en hátiðahöldin I Reykjavík.
Fyrir utan hátiðarsamkomu
verður ýmislegt annað á boð-
stólum.
Siglingaáhugamenn fá margt
við sitt hæfi. Bæði eru siglinga-
sýningar og svo bátaleiga á litl-
um árabátum. Þar sem hátiða-
höldin fara fram, á Rútstúni,
verða sýnd dýr i girðingu. Þau
voru einnig sýnd I fyrra og
gerðu mikla lukku meðal barn-
anna. Skátar sýna þar einnig
tjaldbúðalif.
Þetta er sannkallaður dagur
barnanna, þvl þeim er einnig
boðið á hestbak af hestamanna-
félaginu Gusti.
íþróttakappleikir verða háðir
á Vallargerðisvelli, m.a. keppir
nýkjörin bæjarstjórn við stjórn
Breiðabliks.
Böll að kvöldi 17. júnii Kópa-
vogi hafa yfirleitt ekki tiðkazt,
en núna mun hljómsveitin
Pelikan leika fyrir dansi við
Kópavogsskóla. -ÓH
Innanríkisráðherra Italíu:
KOLUMBUS HER 1477
Kenningin um að Kristófer
Kólumbus ætti vikingunum það
að þukka. að hann fann Ameriku
hefur fengið mjög skilyrtan
stuðning Paolo Emiliö Taviani,
innanríkisráðherra italiu, sem er
sérfróður um sögu Kólumbusar.
Kemur þetta fram i frétt NTB-
fréttastofunnar i gær.
Innanrikisráðherrann hefur
látið skoðun sina i ljós i tilefni af
fullyrðingum norska rithöfundar-
ins og blaðamannsins Káre Prytz,
sem fjallað hefur verið um hér i
blaðinu.
— Kenningin er álika áreiðan-
leg og uppgötvun regnhlifarinnar,
sagði ráðherrann i Róm. Hann
segir, að sú staðhæfing Prytz sé'
rétt, að Kólumbus hafi komið til
Islands 1477. Einnig sé það óvé-
fengjanieg söguleg staðreynd, að
vikingarnir hafi farið til
Ameriku.
— En þetta þýðir ekki, að is-
landsferð Kólumbusar hafi orðið
honum nokkuð til hjálpar, þvi að
menn höfðu þá gleymt landafundi
vikinganna um árið 1000. Hinir
fornu sægarpar kunnu ekki að
lesa, þeir höfðu enga vitneskju
um landafræði og héldu, að jörðir
væri flöt, segir Taviani. -BB—
„Frœðslumálin í fullkomnasta
lag sem þekkist á landinu"
— segir bœjarstjóri Seltjarnarness
„Fyrir utan þessar venjulegu
framkvæmdir, svo sem gatna-
gerð, þá stefnum við að þvl að
halda áfram að koma fræðslu-
málum hér i fullkomnasta lag
sem þekkist hér á landi”, sagði
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi, I viðtali við Visi.
Sigurgeir var sveitarstjóri Sel-
tjarnarness, en nú hefur sveitar-
félagið eða „byggðin”, eins og
það kallast nú, verið gert að
kaupstað.
„Við erum að byggja mjög
stóran gagnfræðaskóla, sem á að
nægja okkur næstu árin, ef ekki
áratugina. Hann verður einset-
inn, og stefnt verður að þvi að þar
verði fjölbrautaskóli, jafnvel með
tveimur fyrstu bekkjum mennta-
skóla. Og þar sem hann verður
einsetinn, er skóladagurinn sam-
felldur, nemendur geta lokið sinu
dagsverki i skólanum án þess að
fara heim til að borða, eða gera
heimaverkefnin”, sagði Sigur-
geir.
Sigurgeir nefndi margt annað,
sem áætlað er að gera, m.a. að
byggja fullkomna sundlaug.
Sigurgeir var spurður, hvort
Seltirningar væru rikari en fólk
annars staðar, úr þvi hægt er að
framkvæma svona mikið.
„Nei, alls ekki. Mér finnst við
einfaldlega hafa getað nýtt fjár-
muni okkar vel og verið á réttum
tima með framkvæmdirnar. Við
höfum lika stefnt að hægfara upp-
byggingu, og fjölgunin hér er ekki
nema 6 til 7% árlega. Okkar skoð-
un er sú, að sveitarfélagið verði
að geta veitt þá þjónustu sem
skattborgarinn greiðir fyrir. En
það er mikil ásókn hingað”.—óH