Vísir - 15.06.1974, Page 6

Vísir - 15.06.1974, Page 6
6 Visir. Laugardagur 15. júni 1974 VÍSIR tJtgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Fréttastj. erl. frétta: Auglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiðsla: Ritstjórn: Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Ilaukur Hclgason Björn Bjarnason Skúli G. Jóhannesson Ilverfisgötu J2. Simar 11660 86611 Ilverfisgötu 32. Simi 86611 Síðumúla 14. Simi 86611. 7 linur Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands. 1 lausasölu 35 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Við eigum samleið 1 byggðakosningunum fyrir þremur vikum kom i ljós, að sjálfstæðismenn, ungir kjósendur og ó- háðir kjósendur áttu samleið. Þessi breiðfylking hlaut yfir helming gildra atkvæða i kaupstöðum og kauptúnum landsins. Á timum bræðraviga og öngþveitis vinstri- stjórnar er almenningi nokkur vernd i traustum byggðastjórnum. En hin nýja breiðfylking nær þá fyrst verulegum árangri, ef henni tekst að moka út stjórnarflórinn i alþingiskosningunum eftir tvær vikur. Þá eiga sjálfstæðismenn, ungir kjós- endur og óháðir kjósendur, áfram samleið. Við eigum samleið i að vilja varast vinstri slys- in, bæði bræðravigin og efnahagsöngþveitið. Við höfnum flokkum, sem eru sifellt að klofna og renna saman i flokksbrot, er reka hvert hnifinn i bak annars. Við vitum, að það eru einstaklingshyggju- mennirnir i Sjálfstæðisflokknum, sem hafa til að bera næga félagshyggju til að standa saman i starfi. En slika félagshyggju skortir átakanlega hjá vinstriflokkunum. Við höfnum flokkum, sem hafa keyrt efnahags- málin svo gersamlega i strand, að efnahagssér- fræðingar rikisstjórnarinnar þurfa að beita lit- riku orðalagi i lýsingum sinum á ástandinu. Við höfnum flokkum, sem hafa tæmt hartnær alla opinbera sjóði og koma sér ekki einu sinni saman um bráðabirgðalausn fram á haust. Við höfnum flokkum, sem hafa það efnahagsúrræði eitt að gefa út tékka á innistæðulausan reikning i Seðlabankanum. Við eigum samleið i vitneskjunni um, að eftir kosningar duga engin vettlingatök til að hindra þjóðargjaldþrot og leggja grundvöll að efnahags- legri og fjármálalegri endurreisn. Við eigum samleið i að fela Sjálfstæðisflokknum þetta vandasama verk. Við eigum einnig samleið i landvarnastefnu. Við teljum, að hér á landi eigi áfram að vera varnir enn um sinn, meðan áþreifanlegur árang- ur næst ekki i friðarviðræðum austurs og vesturs. Við teljum, að okkur og nágrönnum okkar sé tölu- vert öryggi i varnarliðinu á Keflavikurflugvelli. Við höfnum flokkum, sem hafa unnið að ótima- bærum samdrætti landvarna og brottför varnar- liðsins á næstu tveimur árum. Við eigum svo lika samleið i 200 milunum. Við sjáum, að allt bendir til þess, að Haag-dómstóll- inn sé að biða eftir hafréttarráðstefnunni. Og við vitum nú, að þar er nægur meirihluti fyrir 200 milna stefnunni. Þess vegna viljum við, að ný stjórn lýsi yfir 200 milna landhelgi fljótlega eftir kosningar. Við treystum þvi, að Sjálfstæðisflokk- urinn standi við yfirlýsingar um slika útfærslu. Við vitum öll, að á þeim alvörutimum, sem hú eru, þarf að taka öll þessi mál föstum tökum strax eftir kosningar, án hrossakaupa og mála- miðlunar milli ósættanlegra sjónarmiða. Viðvit- um lika, að ekkert hald er i Alþýðuflokknum, sem hljóp i vinstrisæng á Akureyri. Þess vegna eigum við samleið i að veðja á Sjálfstæðisflokkinn og sjá, hvernig hann stendur sig á næsta kjörtimabili. Sjálfstæðismenn, ungir kjósendur og óháðir kjósendur eiga þessa sam- leið i kosningunum eftir tvær vikur. Við eigum samleið. —JK PAPPIRS- GULL verður nú undirstoða gjaldeyriskerfisins Það verður ekki geng- ið með það inn i kaffihús og keyptur fyrir það inolasopi, né heldur get- ur bankagjaldkerinn taliö það fram á borðið, en samt á yfirdráttar- heimildin að taka við sem undirstaða alþjóð- legs gjaldmiðils i stað- inn fyrir gullið. Hún verður þá nokkurs konar pappirsgull. þess, að svo geti orðið, þött full- trúar bandariska fjármálaráðu- neytisins hafi látið á sér skilja, að það geti mætt einhverri andstöðu á Bandarikjaþingi. Yfirdráttarheimildin hefur nokkuð verið notuð af þeim þró- unarrikjum, sem hafa fengið hana hjá alþjóðagjaldeyrissjóðn- ^ dregið yrði úr mikilvægi ýmissa um, einnig af nokkrum Evrópu- þeirra gjaldmiðla, sem i gegnum Fljótandi gengi! töluverðs stuðnings þróunarrikj- anna (sem eru nær 100 að tölu), sem eru innan vébanda Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, Fulltrúar þróunarlandanna i 20 landa-nefndinni höfðu gert þær lágmarkskröfur fyrir fundina núna i vikunni, að meðal breyt- inga yrðu sett tengsl milli sér- stöku yfirdráttarheimildarinnar og svo þróunarlána. Um leið höfðu þessi lönd krafizt þess, að þjóðanna, tslendingum þar á meðal. Hún hefur til þessa verið metin samkvæmt gullfætinum, en Bandarikin hafa lagt allt kapp á það að undanförnu að bylta gull- inu af þeim stalli, sem það hefur setið i gjaldeyriskerfinu og milli- rikiaverzluninni. A gjaldeyrismarkaðnum: Hamstrað áður en markið hækkar I verði. Þetta nýja alþjóðlega gjald- eyriskerfi var farið að taka á sig mynd i gær eftir tveggja daga ráðstelnu 20 landa-nefndarinnar, sem Alþjóðlegi gjaldeyrissjóður- inn setti til að huga að möguleik- um á breytingum á gjaldeyris- kerfinu. — Eins og menn rekur sjálfsagt minni til, var þessi nefnd sett á laggirnar i kjölfar kreppunnar, sem kom upp i al- þjóðlegum gjaldeyrismálum og hefur i rauninni ekki ennþá aflétt. Gjaldmiðlar nokkurra landa eru enn á fljótandi gengi vegna þess arna. Pappirsgullið er sem sé hugsað sem eins konar ný matsaðferð á gengi gjaldmiðla, þegar kemur að millirikjaverzlun og viðskipt- um. Þetta kerfi á að vera kvarði á þvi, hvaða verði eitthvert landið kaupir vöru frá öðru landi. Yfirdráttarheimildin verður !,byggð á eins konar meðaltali á jgengi gjaldmiðla 16 landa, þar l* sem Bandarikjadalur verður tölu- ivert þungur á vogarskálunum, l’eða nær 33% af meðaltalinu. — t | rauninni er hér ekki um annað en l' bókfærsluatriði að ræða i við- i skiptamannabókum Alþjóðlega 'gjaldeyrissjóðsins, en að honum jstanda 126 riki, flest utan hins kommúnistiska heims. Helzta þýðing yfirdráttarins i þessu tilliti liggur i þvi, að alþjóð- |legt samkomulag náist um, að hann sé verðmætur og eftir- (Sóknarverður, samanber þá stað- reynd, að verðmæti gullsins ligg- ur i þvi, hve menn, allir upp til hópa. eru fiknir i það. — Ilikis- stjórnir geta nú notað yfir- dráttarheimildina sem tryggingu fyrir lánum, eða til þess að gera upp fyrri reikninga. Yfirdráttarheimildin verður á 5% ársvöxtum. Þetta nýja alþjóðlega gjald- eyriskerfi á að koma til fram- kvæmda 1. júli, og horfir allt til ,,Ég held, að allir vilji losna við gullið úr miðdepli gjaldeyris- kerfisins og nota heldur yfir- dráttarheimildina”, sagði fjár- llllllllllll m umsjón G.P. ■■■■■■■■■■■■ málaráðherra Bandarikjanna, William E. Simon, við fréttamenn i fyrradag, þegar fundur 20 landa nefndarinnar var að hefjast þriðja daginn i röð. — Hann er fulltrúi Bandarikjanna i nefnd- inni. Bandarikin nutu i þessu máli árin hafa verið ráðandi á alþjóða- gjaldeyrismarkaðnum, eins og Bandarikjadalur, sterlingspundið (hér áður), þýzka markið o.s.frv. Voru kröfur þróunarrikjanna i fjórum liðum. Hinir liðirnir voru svo þeir, að gjaldeyrissjóðurinn gerði ráðstafanir til þess að koma upp framhaldslánakerfi, sem gerði þróunarlöndunum kleift að fá stærri lán til lengri tima og til viðtækari þarfa en nú eru viður- kennd af sjóðnum. Ennfremur að komiðyrði upp oliulánasjóði til að aðstoða þessi riki við að mæta hækkandi oliuverði. Siðasta krafan var svo, að þró- unarlöndin fengju stærri yfir- dráttarkvóta og að þeirra atkvæði mundu vega meira á metaskálun- um við ákvarðanir heldur en hingað til. Að tiltölu eru þau 100 og þar með 90% aðildarlanda gjaldeyrissjóðsins en ráða aðeins 35% atkvæðamagns. — I þessu samhengi benda hin aðildarrikin á, að þróunarrikin leggja minnst til af fjármagninu, sem úr er spil- að, og ekki eðlilegt, að þau ráði mestu um, hvernig þvi skuli var- ið. En það sem samkomulag hefur náðst um nú þegar á fundum 20 manna-nefndarinnar og kemur þvi senn til framkvæmda er i stuttu máli þetta: ,,Að rikin gangist sjálfviljug undir gengisskráningarkerfi, sem felur i sér möguleika á, að gengið verði fljótandi, en þó undir eftir- liti. Að stofnaður verði 3 milljarða dala oliulánasjóður til að lána (gegn 7% vöxtum) þjóðum, sem lenda i efnahagskröggum vegna hækkaðrar oliu. Að rikin lofi þvi að gripa ekki til neinna ráðstafana, sem spillt gæti heimsmarkaðnum eða millirikja- verzluninni, án samþykkis gjald- eyrissjóðsins. Að setja á stofn nefnd innan gjaldeyrissjóðsins, sem tekur við umbótastarfinu varðandi breyt- ingar á gjaldeyriskerfinu.” Gullinu verður vikið úr hlutverki sinu, við. en „pappirsgullið” tekur

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.