Vísir - 15.06.1974, Page 8

Vísir - 15.06.1974, Page 8
8 Vísir. Laugardagur 15. júni 1974 . KIRKJAN 06 B> Látum þjóðhátíðarárið verða hamingjuár íslendinga allra Heill og blessun landi og lýð Sr. Jón Einarsson, sóknar- prestur i Saurbæ á Hval-, fjarðarströnd ritar hugvekju Kirkjusiöunnar i dag. Þessi hugvekja hefur verið flutt i Iielgistund í sjónvarpsins. Hún fjallar um þjóöhátiöar- áriö og spurninguna um þaö, meö hvaöa hugarfari og af hvaöa hvötum þjóöin fagnar þessu ári. Viöa um byggðir landsins verður þjóöhátiðin á mánudaginn kemur 17. júni. Og i þvi tilefni er þessi hátiðarárs-hugvekja birt. Vér viljum taka undir meö Saurbæjarklerkinum, er hann segir A þessum vordögum þjóö- hátiöarársins ættum viö íslendingar að gera þá heit- strengingu að vinna'aö því af alefli, einingu, heilindum og drengskap, aö þetta ár megi veröa sameiginlegt hamingju- ár tslendinga allra, aö tslend- ingar megi nálgast hver annan og vinna saman i sátt og friöi að velferö, heill og blessun lands og þjóöar, minnugir þess.að eitt er landiö, ein vor þjóö, auðnan sama beggja, eina tungu, anda, blóö, aldir spunnu tveggja. Jesús sagði: „Hjarta yðar skelfist ekki, Trúið á Guð og trúið á mig. Ég er vegurinn, sannleikurinn og lifið.” Jesús Kristur vill visa okkur til vegar og átta i lifinu. Hann vill hjálpa okkur til að lifa i friði, kærleika og sátt i þessu blessaða landi, sem Guð gaf is- lenzkri þjóð fyrir ellefu öldum. Viö erum kölluð út á veginn, þar sem frelsarinn stýrir för og ljós trúarinnar nær að lýsa, verma og helga sporin. Sá vegur er sannur og traustur og skilar öllum, sem hann vilja ganga, inn i framtið fegurðar og ham- ingju. Við Islendingar höfum þegar gengið fyrstu sporin inn i nýtt sumar. Við finnum birtu og yl leika um okkur, finnum lifiö brosa frá barnsaugum og blóm- um jarðar og vitum, að „hærra og hærra stigur á himinból hetj- an lifsins sterka — hin milda sól.” Spor okkar á þessu sumri skulumvið ganga i trú og fylgd með Jesú, sem er okkur vegur- inn, sannleikurinn og lifið. betta þjóðhátiöarsumar, sem hefur heilsað okkur af svo mik- illi mildi, mun vafalaust verða eitt hið minnisstæöasta og merkasta i lifi þeirrar kynslóðar, sem nú byggir þetta land. Á þessu sumri verða veg- leg hátiðahöld i bæjum og byggðum um gjörvallt landið til Háhestur við Botna Þessi þjóölega mynd er tekin austur I Meöallandi, viö bæinn Botna, sem liggur alllangt frá alfaraleiö. Rétt hjá bænum stendur hann, þessi einkennilegi og hressilegi hraundrangur, sem ber nafniö Háhestur. Hann setur svip á sitt fáferð- uga umhverfi og oft er hann börnum og hröfnum að leik. Sjálfsagt hefur áður fyrrum verið rikjandi sú trú, að þar ættu huldar vættir bústað sinn eins og á svo f jölmörgum öðrum stöðum, þvi að á flestum byggð- um bólum á landinu voru til hól- ar, hamrar og klettaborgir þar sem voru hibýli huldufólksins. Já, „hún trúði þessu hún amma min”, segir skáldiö (G.G.) i sinu fagra kvæði — Kirkjuhvoll. En lifir sú trú raunar ekki góðu lifi enn i dag? Skemmst er að minnast álfa- steinanna við Grafarholt, Grá- steins og Litla-bróöur. Þeir stóðu i vegi fyrir hrað- brautinni um Mosfellssveit. Mennirnir, sem urðu til að færa þá úr stað urðu fyrir slysum og óhöppum hver á fætur öðrum, svo að ekki þótti einleikið. Og þegar Visir grennslaðist eftir afstöðu þeirra til trúar á hulda vætti var svarið: „Við erum sjálfsagt ekki hjátrúarfyllri en gengur og gerist”. Nýlega var sá, er þetta ritar, á ferð fyrir austan fjall og kom á bæ til hjóna, sem þar hafa búið i áratugi. Þegar bóndinn fluttist þangað var honum sagt frá stór- þýfðu stykki i túninu, sem ekki mætti hreyfa við, ef ekki ætti illa að fara. Ennfremur var honum greint frá hól einum i út- haga, þar sem ekkert jarðrask mætti gera — hvað sem það kostaði. Með eigin augum sá ég, hversu kostgæfilega bóndinn hafði farið eftir þessum fyrir- mælum. Frammi á túninu ris þúfnabeðurinn upp af sléttri grundinni og austur i móanum hefur verið settur rækilegur hlykkur á hagagirðingu til þess að komast hjá að reka girð- ingarhælana niður i hólinn góða, sem ekki má særa án þess að raska háttum og hentugleikum þeirra, sem þar eiga athvarf sitt. .....oOo...... Nú er komið nokkuð langt frá kynningu á myndinni af Háhesti hjá Botnum. Skal nú að henni vikið. Ef myndin prentast vel, má sjá barnsandlit ofarlega í klettinum til hægri. 'Sá, sem myndina tók, kann ekki að gera neina grein fyrir þvi. Hins vegar munu sjálfsagt lærðir ljósmyndarar geta gefið á þvi sinar skýringar, og skal það látið liggja milli hluta. Hver Þannig fórust séra Matthiasi orð og einnig hefur verið sagt, að aldrei hafi þjóðin verið „bjartsýnni, áræðisfyllri og trú- aðri”, bæði á Guð og menn og framtið sina en hina björtu sumardaga fyrir hundrað árum. Hún gaf Guði dýrðina. Sá Drott- inn, sem er vegurinn, sannleik- urinn og lifiö, Drottinn ljóssins og kærleikans, átti þökk hennar og fylgd. Ef til vill hefur þjóðin aldrei fundið betur nálægð Guðs vors lands en einmitt þá, svo að hún varð rik i sinni fátækt, kon- ungleg I sinum kotum, vonglöð og djörf eftir sinar þúsund ára þrautir. II En hvernig er þjóðin nú hundrað árum siðar? Með hvaða hugarfari og af hvaða hvötum heldur hún þjóðhátið? Þjóðin er vissulega rik. Hún hefur byggt yfir sig dýr og glæsileg hús og hefur flest skil- yrði til að byggja upp fyrir- myndarþjóðfélag I fallegu og auðugu landi. En ef til vill hefur andleg auðlegð þjóðarinnar ekki aukizt I réttu hlutfalli við hina veraldlegu, þrátt fyrir stöðugt aukið skólahald og aukna menntun. Þjóðhátiðarárið mun verða nokkur mælikvarði á menningu þjóðarinnarog andleg verðmæti, þau verðmæti, sem ekki verða vegin á vog verð- bólgunnar eða mæld með mæli- stiku sjálfshyggju og peninga- valds. A þessu merkisári ættum við íslendingar að leggja meiri rækt við trú okkar og andleg verðmæti. Við þurfum að auka með okkur samheldni og frið, góðvild, skilning og traust. Saga okkar og reynsla kennir okkur, að i samstööu þjóðarinnar felst afl hennar og styrkur. Það er brýn nauðsyn, að Islendingar vinni saman að sameiginlegri velferð og hamingju þjóðar sinnar, að þeir megi styðja hver annan og slá hendi I hönd, en eyði ekki kröftunum i innbyrðis deilur, flokkadrætti og sundr- ung. A þessum vordögum þjóðhá- tíðarársins ættum við Islending- ar að gera þá heitstrengingu að vinna að þvi af alefli, einingu, heilindum og drengskap, að þetta ár megi verða sameigin- legt hamingjuár íslendinga allra, að tslendingar megi nálg- ast hver annan og vinna saman i sátt og friði að velferð, heill og blessun lands og þjóðar, minn- ugir þess, að eitt er landið, ein vor þjóð, auðnan sama beggja, eina tungu, anda blóð, aldir spunnu tveggja. Ég bið þess, að Drottinn lifs- ins og friöarins, sá Drottinn, sem ljósið og sumarið gefur, megi vera með þjóð okkar á þessu sumri og alla tima, að íslendingar þurfi ekki að lifa i sundrung og myrkri, en megi fylgja honum og trúa á hann, sem er vegurinn, sannleikurinn og lifið. Ég bið þess,að þjóð okk- ar megi verða auðugri af verð- mætum fórnar og trúar. Ég bið þess, að Drottinn Guð megi blessa heimili þitt, starf þitt og lif og hjálpa þér til að verja þvi þjóð þinni til blessunar og gagns. Ég bið þess, að þú megir fylgja Jesú Kristi, að hann megi stýra förinni á lifsvegi þinum, að hann megi blessa'og helga sporin þin og þú megir ganga með honum á vit komandi daga. Trú þú á Drottin Jesúm, og þú munt hólpinn verða og heimili þitt. og frelsara, sem er vegurinn til llfsins og hamingjunnar. Von- andi eru allir sammála um það að óska þess og biðja, að þetta ár megi hvetja okkur öll, Is- lenzkt fólk, til aukinnar menn- ingar og mannvits, samheldni, sigurs og dáöa. En þannig ork- aði þjóðhátiðarárið 1874 á is- lenzku þjóðina. Talið er, að það ár sé eitt hið merkasta i sögu Is- lands allt til þessa dags. Það varð aflgjafi til nýrra framkvæmda og þjóðernislegr- ar vakningar. Samhugur þjóð- arinnar varð meiri en áður, þjóðernisvitundin skýrari og trúin á land og þjóð öflugri en fyrr. Höfuðskáld tslendinga á þeirri tið, séra Matthias Jochumsson, kallar þjóðhátið- arárið og þá þjóðernisvakningu, sem þá varð, „hin miklu alda- mót þjóðar vorrar, er urðu alda- hvörf I sögu lands vors á ýmsan veg. Olli þvi ekki konungskom- an ein og stjórnarskráin, heldur miklu fremur hið nýja skrið eða hreyfing, sem hátiðinni fylgdi i innra lifi og hugsun þjóðarinn- ar. Saga hennar fékk lif, endur- minning hins umliðna fékk mál og sál og samúð i huga þjóðar- innar og almenna meðvitund. Nýár var runnið. Aldrei hef ég lifað slika hreyfingu. Það var hreyfing, sem svæfði allar þræt- ur og þvergirðing, en kveikti allsherjar samúö, allsherjar eftirvæntingu, allsherjar endur- minningar. Og lifshreyfingarn- ar út á við, orð og gjörðir, lýstu hinni sömu breytingu.” og einn verður að hafa um það sinar hugmyndir a.m.k. þeir, sem ekki eru hjátrúarfyllri en gengur og gerist. oOo Flúinn er dvergur .... segir Jónas i Gunnarshólma. Það var ekki góðs viti á þeirri tið, enda var þá hér i landi „hnipin þjóð i vanda”. — Hversu vel, sem álf- um og dvergum og öðrum huld- um vættum mun geðjast að ýmsum fyrirbrigðum i okkar velferðarþjóðfélagi, þarf vart að efa, að vel ætti þeim að vera að skapi sú mikla landverndar- viðleitni, sem nú er rikjandi á öllum sviöum. Siðan sú stefna var upp tekin, hafa áreiðanlega verið friðlýst heil prestaköll fyrir huldufólkið viðs vegar um land, ef ekki heil biskupsdæmi. Við skulum vona, að á hinum vernduðu svæðum megi þeirra ósýnilegum ibúum vel vegna, þar sem þeir eru óhultari fyrir umbótabrölti mannanna heldur en þeir stundum hafa verið hingað til. G. Br. Altaristaflan i Saurbœjarkirkju að minnast þess og þakka, að liðnar eru ellefu aldir, siðan for- feður okkar námu þetta land og fyrstu Islendingarnir stýrðu knörrum sinum i átt til þeirra himinbláu fjalla, sem vorsólin vermir i dag. Vonandi má þetta þjóöhátið- arsumar og ár auka þjóðinni ást til lands sins og trú á Guð sinn

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.