Vísir - 29.06.1974, Síða 5
5
Visir. Laugardagur 29. júni 1974.
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón: BB/GP
Nixon á meðal Moskvubúa
Mörgum þótti sem Kichard Nixon, Bandarlkjaforseti, hefði gleymt
þvi, að hann væri ekki á kosningaferðalagi f Bandarikjunum i gær, þeg-
ar hann heilsaði Moskvubúum við múra Kremiar.
Eftir að forsetinn hafði lagt blómsveig á leiði óþekkta hermannsins,
hélt hann til mannfjöldans, sem stóð álengdar og beint inn i þyrping-
una. Myndin sýnir hann i hópi fagnandi Moskvubúa.
Fótbolti undir
Iðgregluvernd
Þessi sjón er algeng á æfmga- spyrnu. Hörmungarnar frá
völlum knattspyrnuliða i ólympiuleikjunum i Munchen
Þýzkalandi þessa dagana. Af eiga ekki að geta endurtekið sig.
ótta við og vegna hótana um ^ Myndin sýnir tvo vopnaða lög-
skemmdarverk, hefur þýzka regiumenn fylgjast með æfingu
lögregian náið eftirlit með öll- hjá sænska heimsmeistaralið-
um þeim, sem þátt taka I heims- inu.
meistarakeppninni i knatt-
Farið í bað
Þessi mynd gæti verið tekin af
öðrum isbirninum i Sædýrasafn-
inu að kæla sig i sumarhitunum.
Svo er þó ekki, þvi að myndin er
úr dýragarðinum i Helsinki.
Komu
ó bóti
í skjóli
myrkurs
Hermenn i ísrael virða fyrir
sér gúmmibátinn, sem arabisku
skæruliðarnir notuðu aðfaranótt
þriðjudags, þegar þeir gerðu
strandhögg i hafnarbænum
Nahariya. Skæruliðarnir komu
um nótt frá Libanon. Ferð
þéirra lauk með þvi, að þeir
voru skotnir, eftir að hafa myrt
konu, tvö börn hennar og ísra-
elskan hermann.
<1
Allra
lengsta
brú
Noregs
Myndin sýnir Málöy-
brúna i Noregi, sem Ól-
afur fimmti Noregs-
konungur vigði fyrir
skömmu eftir komu
sina frá íslandi. Brúin
er lengsta brú Noregs
1273 metrar að lengd.
Hún er steinsteypt.
Handan við brúna sést
Málöy-bær!