Vísir - 23.07.1974, Side 3
Vísir. Þriðjudagur 23. júli 1974.
3
laganna verðir ekki augu i hnakk-
anum, þannig að a.m.k. tveir yfir
sig forvitnir og lævisir blaðamenn
sluppu gegnum greipar réttvis-
innar niður i káetu kafteinsins.
Eini Bretinn, sem ekki lét sér
leiðast var fyrsti vélstjóri, sem
var á þönum við að framkvæma
viðgerðir eftir kúlnahriðina, eða
„sprengiregnið” eins og eitt
dagblaðanna orðaði það.
Ekki bætti veðrið úr leiðindun-
um, þvi önnur eins stanzlaus
rigning hefur vist ekki komið á
Seyðisfirði i langan tima og var
þar um helgina.
bað bætti þó aðeins úr leiðind-
unum hjá Tjöllunum að milli
skúra gátu þeir brugðið sér i
krikket á bryggjunni. Mesta fjör-
ið i þeim leik virtist þó vera það
að missa kúluna i sjóinn og þurfa
að fiska hana upp með körfu.
Réttarhöldin yfir Taylor voru
rétt nýbyrjuð þegar blaðamaður
Visis yfirgaf Seyðisfjörð. Við
bryggju lágu tvö skip, og áhafnir
þeirra áttu báðar örugglega eina
sameiginlega ósk — aö réttar-
höldunum lyki sem fyrst.
Bardaginn var búinn, og allir
voru sammála um að ekki ætti að
teygja hann á langinn meö mál-
þófi.
— ÓH.
Rœtt við Niels P. Sigurðsson:
Málið um kjarnorkutil-
raunirnar tafði úrskurð
alþjóðadómstólsins
í vikunni fyrir alþingiskosn-
ingarnar birtist um það frétta-
tilkynning frá utanrikisráðu-
neytinu, að alþjóðadómstóllinn i
Iiaag mundi kveða upp úrskurð
sinn i fiskveiðilögsögumálinu
gegn tslendingum 10. júli. Þessi
frétt var höfð eftir sendiráði ts-
lands I London. Nú hefur hins
vegar verið ákveðið, að úr-
skurðurinn verði birtur n.k.
fimmtudag, 25. júli.
Visir hafði af þessu tilefni
samband við Niels P. Sigurðs-
son, sendiherra tslands i Lond-
on, og spurði hann, hvað hefði
valdið töfinni miðað við það,
sem stóð i fréttatilkynningu ut-
anrikisráðuneytisins.
„Upplýsingar minar til ráðu-
neytisins voru á þann veg, að al-
þjóðadómstóllinn i Haag mundi
kveða upp úrskurð sinn i máli
Bretlands gegn tslandi i kring-
um 10. júlí,” sagði sendiherr-
ann. „Mál Astraliumanna og
Nýja Sjálands gegn Frakklandi
út af kjarnorkusprengjutilraun-
um Frakka á Kyrrahafi var tek-
ið fyrir 4. júli. Mér var sagt i
trúnaði, að úrskurður i máli
Breta gegn okkur yrði birtur i
framhaldi og eftir, að dómstóll-
inn hefði haft tækifæri til að
meta kjarnorkutilraunamálið.
— En hvers vegna þurfti
dómstóllinn að biða eftir þvi til
að kveða upp dóminn i fiskveiði-
deilumálinu?
„Þótt fiskveiðideilan og
kjarnorkutilraunamálið séu i
eðli sinu algjörlega óskyld mál-
efni, eru samt ýmis alþjóðarétt-
arleg vandamál, sem tengja
þessi mál saman. Það er ástæð-
an fyrir þvi, að dómstóllinn á-
kvað að biða með úrskurð sinn i
fiskveiðideilunni, þar til dómar-
ar hefðu hlýtt á málflutning
Astraliumanna og Nýja Sjá-
lands.”
— Var upphaflega ráðgert, að
flutningi þessa máls yrði lokið
fyrir 10. júli?
„Já, það var búizt við þvi, að
málflutningurinn um lögsögu i
þvi máli tæki aðeins nokkra
daga og var þvi álitið, að úr-
skurður i málum Breta og Vest-
ur-Þjóöverja gegn okkur yrði
kveðinn upp i kringum 10. júli,”
sagði Niels P. Sigurðsson. „Hins
vegar tók málflutningurinn um
kjarnorkutilraunirnar lengri
tima. Eftir að það var ljóst mat
ég stöðuna þannig, að úrskurð-
urinn i fiskveiðideilunni mundi
frestast fram yfir 20. júli, þótt
hann lægi fyrir fjölritaður og
jafnvel prentaður. Það hefur nú
komið á daginn.”
— BB —
Skytturnar á Þór við byssuna, sem þeim tókst að stööva C.S. Korester
með, án þess að nokkur slasaðist — Guðjón Arngrimsson 3. stýrimaður
og Friðgeir Olgeirsson 1. stýrimaður. Ljósm. VIsis: ÓH.
Samið við Energoproject:
„VEIGAMIKLAR
LEIÐRÉTT|NGAR"
— segir Sigurður Óskarsson
„Samningum er lokið við
júgóslavneska verktakafyrir-
tækið Energoproject og var
skrifað undir s.l. föstudag. Að
samningum standa 4 verkalýðs-
féiög Rangæinga og 2 landssam-
bönd, Santband rafiðnaðar-
manna og Múrarasamband ts-
iands.”
Þetta sagði Sigurður Óskars-
son, framkvæmdastjóri stéttar-
félaga Rangárvallasýslu, i viö-
tali við Visi I gær.
„í þessum samningi náöust að
minum dómi nokkrar veiga-
miklar leiðréttingar og kjara-
bætur. Menn fengu nú i fyrsta
sinn 130% álag, ef unnið er á
stórhelgum. Þá var geröur ýt-
arlegur samningur um öryggi,
aðbúnað og tómstundaaðstöðu.
Laun verkafólks við óþrifa leg
störf hækkuðu og þar sem að-
stæður kunna að vera hættuleg-
ar, svo sem i djúpum skurðum,
göngum og klettaveggjum,
hækkar slysatryggingin tvöfalt
frá hinni venjulegu og jafnframt
er greitt hærra kaup.
Bifreiðastjórar fá verulegar
kjarabætur frá þvi sem veriö
hefur og tímaskrift i vaktavinnu.
var leiðrétt, en það hefur gilt, að
okkar mati, óraunhæf tima-
skrift i sllkri vinnu. Nú eru
ferðapeningar, i fyrsta sinn á
þessum háfjallastöðum, greidd-
ir eftir raunhæfu mati,” sagði
Sigurður.
Þetta er það helzta I samning-
unum en ýmislegt fleira fengu
þeir. Viðræður voru vinsamleg-
ar, og sagðist Sigurður hafa
fulla trú á að framkvæmd
samningsins muni ganga eöli-
lega fyrir sig. Er greinilega
aukinn skilningur verktakanna
á þessum kjaramálum.
— EVI —
Bílakœrir Norðlendingar ó þjóðhátíð
„Einkabilisminn” sýndi sig i
framkvæmd á þjóðhátið Akureyr-
inga um helgina.
Hátiðin var haldin I Kjarna-
skógi, sem er nýopnað útivistar-
svæði.
Á timabilinu frá hádegi á
sunnudag, þangað til kl. 20.30 um
kvöldið, voru 3400 bilar taldir fara
inn á hátiðasvæðið. Bilar með
A-númeri eru samtals tæplega
5600talsins, þannig að þarna hafa
verið mætt tæplega 60% allra bila
á Akureyri og I Eyjafjarðarsýslu.
Taka verður tillit til þess að
þarna voru bilar komnir úr ná-
lægum sýslum, og jafnvel að
sunnan. En að sögn lögreglunnar
á Akureyri, var yfirgnæfandi
meirihluti bilanna með A-númeri.
Miðað við tvo til þrjá farþega I
Ekkert svar
íslendinginn
Ekkert svar hefur borizt til
utanrikisráðuneytisins varðandi
isienzku konuna, sem gæti verið á
Kýpur. Við höfðum samband
þangað I morgun, og var þá ekki
vitað, hvort hún væri þar ennþá.
hverjum bil, hafa þvi a.m.k. sjö
þúsund manns sótt þessa þjóðhá-
tið.
— ÓH.
varðandi
á Kýpur
Eins og sagt var frá i Visi I gær,
höfðu ættingjar konunnar sam-
band við ráðuneytið og báðu þaö
að grennslast fyrir um hana.
— EA.
■íttuýp
BOB DYLAN & THE BAND / BEFORE THE FLOOD
Beatles/allar. Carlos Santana & John McLaughlin. Santana/No one to
depend on. Santana/Abraxas. Santana/ Caravansera. Carlos Santana &
Buddy Miles. Deep Purple/allar. Uriah Heep/allar. 1.2. top/Tres
Hombres. Crowbar/Crowbar. Ike & Tina Turner/The gospel. Ike & Tina
Turner/River deep mountain hig. Isac Hayes/Tough guys. Curtis
Mayfield/Sweet exorcist. Jerry Lee Lewis/T-40 Countrys. Lynyrd
Skynyrd/Second helping. Maria Muldaur/Midnight at the oasis. Gene-
sis/Live. Genesis/ Nursery crime. Queen/11. Herbie Hancock/Head
Hunters. Lou Reed/Berlin. Lou Reed/With Welvet underground 1969
Gladys Knight & Pips/Knight time. Steve Wonder/lnnervisions. Mike
Oldfield/Tubular Bells. Billy Cobham/Spectrum. Billy Cobham/Cross-
winds.c Bill Haley/Golden Hits. Edgar Winter/Shock Treatment.
Nazareth/Rampant. Anita Kerr Singers/SentimentaI jorney. Charlie
Rich/Boss Man. The Sting/Soundtrack. Scott Joplin/Josuha Rifkin
piano. Thats Entertrainment/Soundtrack. Neil Diamond/Greatest hits.
Mott The Hoople/Rock and roll queen. Golden Earring/Moontan. White
Witch/Whíte Witch.Arlo Guthrie.