Vísir - 23.07.1974, Blaðsíða 4
4
Vísir. Þriðjudagur 23. júli 1974.
AP/NTB í MORGUN ÚTLÖNDÉ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Í MORGUN ÚT
Friðarviðrœður
Fulitrúar þeirra þriggja rikja,
Bretlands, Grikklands og Tyrk-
lands, sem samkvæmt samningi
frá 1960 ábyrgjast sjálfstæði og
hlutleysi Kýpur, búa sig nú undir
það að koma saman til fundar i
Genf/i þvi skyni að finna varan-
lega, friðsamlega lausn á Kýpur-
deilunni. A sama tima hvetur
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna til
þess aðfjölgað verði I 2300 manna
friðargæzluliði samtakanna á
eyjunni. Bretar hafa heitið 600
manna liösstyrk i þvi skyni.
Utanrikisráðherrar gæzlurikj-
anna þriggja hafa lýst sig fúsa til
að sækja fundinn i Genf, sem lik-
lega hefst á föstudag. Fulltrúi
tyrkneska sendiráðsins i Genf
sagði, að Turan Gunes, utanrikis-
ráðherra, kæmi þangað á morg-
un.
James Callaghan, utanrikis-
ráöherra Breta skýrði starfs-
bræðrum sinum i ráðherranefnd
Efnahagsbandalagsins frá gangi
mála á Kýpur á fundi i Brussel i
gærkvöldi. Bandarikin hafa lýst
algjörri andstöðu sinni við stefnu
grisku stjórnarinnar i Kýpurmál-
inu.
Östaðfestar fréttir herma, að
Bandarikjamenn hafi tekið þá
stefnu gagnvart frekari viðleitni
til friöargerðar á Kýpur, að frum-
kvæðið sé úr þeirra höndum eftir
að þeir beittu sér fyrir vopnahléi.
Nú sé komið að Bretum að leiða
frekari viðræður gæzlurikjanna
þriggja.
Eftir að Bulcnt Ecevit, forsætisráðherra Tyrklands, hafði tilkynnt það
opinberlega á laugardagsmorgun, aö innrásin á Kýpur væri hafln,
faömaði hann Sancar herráðsforingja og kyssti hann sigurkoss.
Svarti
dauði
Tólf ára telpa á ibúðasvæði
Navajo—Indiána i Nýju Mexikó
lézt fyrr i mánuðinum af völdum
svarta dauða, sem Evrópubúar
minnast enn með hryllingi frá
miðöldum, þegar hann lagði
þriðjung ibúa álfunnar I gröfina.
Heilbrigðisyfirvöld rikisins
hafa gripið til viðtækra ráðstaf-
ana, en þetta er þriðji Banda-
rlkjamaðurinn, sem verður
svarta dauða að bráð núna i mörg
ár. Annar var I Oregon 1970, en
ungur Navajo-Indiáni tók veikina
I Nýju Mexikó 1965 og dró hún
hann til dauða.
SKÓGARHÓLAR
Bíla- og tjaldstæði
Tjaldstæói
Hjólhýsastæói
Bilastæðij
Bilastæói Tjaldstæói
LEIRUR
ÖXARÁRFÖSS
ÞINGVALLABÆR
VALHÖLL
Bilastæði
EFRIVELLIR HÁTlÐARSVÆÐI
Þingpallur Lúórar Lúðrasveit
KÁRASTAÐIR 2,6km
Bilasfæði ®
« « ~ •» V' ^plat,
LOKAÐ SVÆÐI
ÞINGVALLAVATN
ÞJOÐHATIÐ
A ÞINGVÖLLUM
28.JÚLÍ 1974
Skiltin, sem veróa til leiöbeiningar á Þingvallasvæóinu.
[p Bílastæói [wc| Salerni (3E) Vatnsból X LokaÓ
A Tjaldstæói Œ) Karlar MengaÓ vatn lOCRtClAN Lögreglan
m Hjólhýsastæói m Konur |vy Póstur STJORN Stjórn
+ Skyndihjálp Veitingar Sölutjald tö Snyrting Strætisvagnar *7S* 0 ■ Sími Mióstöó Umsjón PRESSE BlaÓamenn
Feróir frá Reykjavík til Þingvalla.
Þingvallaferðir á þjóðhátíð
hefjast sunnudagsmorguninn 28. júlí kl. 7 f.h. frá Bifreiðastöð íslands,
Umferðarmiðstöðinni, og halda áfram fram að hádegi eftir því sem farþegar
koma og bílakostur endist.
5 Forsala farseðla
I sem gilda báðar leiðir hefst I Umferðarmiðstöðinni eftir hádegi á föstudag
| og lýkur kl. 20 á laugardag.
I
5
'í
§
<
Geymið auglýsinguna.
ENGIN TRYGGING ER FYRIR ÞVÍ AÐ ÞEIR FÁI FAR, SEM
EKKI KAUPA FARSEÐLA Á OFANGREINDUM TÍMA.
Ferð með strætisvögnum
Strætisvagnar Reykjavíkur og Kópavogs fara til Þingvalla kl. 6.30 á
sunnudagsmorgun 28. júlí. Þeir hefa ferðina frá endastöðvum sínum í
úthverfum borgarinnar á fyrrgreindum tíma, kl. 6.30. Þeir sem óska að
taka sér far með strætisvögnum, fá því aðeins að fara að þeir hafi áður
keypt farseðla í Umferðarmiðstöðinni.
Þingvallasérleyfi,
Þjóóhátíóarnefnd 1974