Vísir - 23.07.1974, Qupperneq 5
Visir. Þriðjudagur 23. júli 1974.
D í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón: BB/GP
Ibólusóttin heftI
Myndin er tekin frd hafnar-
borginni Kyreniu á norður-
strönd Kýpur, þar sem Tyrkir
hafa náð fótfestu.
Strókur eftir fallbyssuskot er I
forgrunni, en úti fyrir eru tyrk-
nesk herskip og landgöngu-
prammar að búast til árásar.
Myndin var tekin á laugardag
en barst ekki til AP fyrr en I
nótt.
Ekkert barizt
— Tyrkir til frambúðar ó Kýpur
Vopnahléð á Kýpur var ekki
virt fyrr en i gærkvöldi, um sex
timum eftir að það gekk i gildi.
Engar fréttir hafa borizt um al-
varlega bardaga i nótt og virðist
allt með kyrrum kjörum á eyj-
unni. Fulltrúi hernaðaryfirvalda
Ankara skýrði frá þvi i morgun,
að ekki befði heyrzt annað en
vopnahléð væri virt.
Vopnahlé skyldi ganga i gildi
kl. 14 i gær, en eftir þann tima
voru Tyrkir að flytia liðsafla til
eyjunnar. Bulent Ecevit, forsæt-
isráðherra Tyrkja, hefur gefið
það ótvirætt til kynna, að tyrk-
nesku liðssveitirnar séu komnar
til Kýpur i þvi skyni að hafa þar
áfram aðsetur. Hann sagði, að
hafnarborgin Kyrenia skyldi hér
eftir vera i höndum Tyrkja.
Um þær mundir, sem vopna-
hléð var að koma til fram-
kvæmda, skýrðu fréttamenn frá
þvi, að a.m.k. 50 manns hefðu lát-
izt i sprengjuárás tyrkneskra
flugvéla á borgina Famagusta.
Makaríos aflar
sér stuðnings
Makarios.forseti Kýpur, dvelst
enn i Bandarikjunum siðan hann
kom þangað á föstudag til að
ávarpa öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna. Fréttaskýrendur eru
sammála um það, að innrás
Tyrkja á eyjuna verði ekki til
þess að flýta fyrir þvi, að Makari-
os setjist aftur i forsetaembættið
á Kýpur. Makarios kynnir nú
málstað sinn fyrir bandariskum
ráðamönnum. i gær ræddi hann
bæði við Henry Kissinger og
utanrikismálanefnd Bandarikja-
þings.
Fundur Kissingers og Makari-
osar stóð i 90 minútur og þeir
stefna að þvi að hittast aftur eftir
viku. Að loknum fundinum sögðu
þeir báðir, að hann hefði verið
„gagnlegur og raunhæfur”.
Makarios vék sér alltaf undan
að svara þvi, hvort hann hefði
fengið stuðning Bandarikja-
manna við að koma sér aftur til
valda á Kýpur. Eina sem hahn
sagði um þetta var á þann veg, að
hann vissi, að utanrikisráðherr-
ann styddi stjórnskipulega stjórn
á eyjunni. Kissinger vildi ekkert
segja um viðræðurnar.
Fundur Makariosar með þing-
mönnunum fór fram fyrir luktum
dyrum og var ekki skýrt frá
niðurstöðum hans.
Watergate-mólið:
i sigurvlmu gengu Tyrkir um götur Ankara og hvöttu til frekari
hernaöaraðgerða á Kýpur.
Ákvörðun fulltrúodeildar-
innarnúlgast
Bæði sérfræðingar
Nixons Bandarikjafor-
seta og dómsmálanefnd-
fulltrúadeildar
ar
Bandarikjaþings búa sig
nú undir lokaafgreiðslu
nefndarinnar á þvi,
hvort stefna eigi forset-
anum fyrir öldunga -
deildina vegna Water-
gate-málsins. Nefndin
mun greiða atkvæði um
það i lok þessarar viku
eða byrjun þeirrar
næstu.
A föstudag skýrði sérfræðingur
nefndarinnar frá þvi áliti sinu, að
hann teldi rétt að stefna forsetan-
um. Vikuritið Time, sem kom út
um siðustu helgi, segir, að at-
kvæðagreiðslan i nefndinni fari á
þann veg, að 26 muni greiða at-
kvæði með þvi að forsetanum
verði stefnt en ekki nema 12 á
móti. Alls sitja 13 flokksmenn for-
setans, repúblikanar, i nefndinni
og segir Time, að 7 þeirra muni
greiða atkvæði gegn Nixon. 19 af
21 demókrata i nefndinni hafa á-
kveðið að stefna forsetanum. Til-
laga nefndarinnar verður siðan
lögð fyrir fulltrúadeildina, sem
með einföldum meirihluta getur
stefnt forsetanum.
Almenningur i Bandarikjunum
hefur fengið nýjan áhuga á Wat-
ergate-rannsókninni, þegar á-
kvörðun dómsmálanefndarinnar
nálgast. Ekki eru nema nokkrar
vikur siðan 53% af blaðalesend-
um lýstu þvi áliti sinu, að blöðin
og aðrir fjölmiðlar legðu alltof
mikið rými undir Watergate.
James St. Clair, lögfræðingur
Nixons, hefur dvalizt i Kaliforniu
undanfarna daga til viðræðna við
skjólstæðing sinn. Hann sagði i
gær á blaðamannafundi, að hann
teldi ekki nægilegar ástæður fyrir
hendi til að réttlætanlegt væri að
stefna forsetanum fyrir öldunga-
deildina.
Heilbrigðisráðherra Ind-
lands fullyrti i gær, að mikil
bólusetningarherferð þar i
landi að undanförnu hefði
slegið á bólusóttina, sem þar
hefur herjað á landslýð og lagt
22 þúsund Indverja i gröfina
það, sem af er árinu. \
Dr. Kran Singh ráðherra
sagði, að hjátrú ibúa margra
þorpa ætti sök á útbreiðslu
drepsóttarinnar að þessu
sinni, en þeir tryðu því að
bólusóttin boðaði komu gyðju
einnar. Sömuleiðis mikill
fjöldi ungbarna, sem ekki
hefði notið bólusetningar gegn
bólusótt.
FÆRÍYJAR OG EBÍ
Samningsdrögin milli Fær-
eyja og EBE, sem áttu að
veita Færeyingum nánast
hagstæða skilmála, eins og
full aðild veitir annars, fengu
ekki viðurkenningu ráðherra-
nefndar EBE á fundi hennar i
Brussel i gærkvöldi.
Hafizt var strax handa við
uppkast að nýjum samningum
fyrir Færeyjar, og verður það
lagt fyrir nefndina i dag.
Biggs óhultur
Braziliustjórn
hefur ekki af-
ráðið, hvert hún
eigi að senda
lestarræningj-
ann, Ronald
Biggs, en eins
og komið hefur
fram i fréttum
neitaði hún afi f ý.ÆMF'M'*:
framselja Bret- ^iggs I við-
landi manninn . la*'-
á sinum tima. 1 Bretlandi bið-
ur hans 30 ára fangelsisvist.
Akveðið hafði verið að Biggs
skyldi visað úr landi i Braziliu,
en þó ekki til neins þess lands,
sem hefur framsalssamninga
við Bretland og mundi af-
henda hann brezkum yfirvöld-
um.
Lögfræðingur Biggs segir,
að slikt land sé vandfundið, og
á meðan geti skjólstæðingur
hans verið sem frjáls maður i
Braziliu. En komi til þess að
honum verði visað úr landi til
einhvers annars rikis, þá geti
hann öðlazt þar eftir eðlileg-
um leiðum lögleg leyfi til að
flytja til Braziliu aftur og til
stúlkunnar, sem gengur þar
með barni hans.
Afmœli keisarans
Það er heldur dapurlegur
afmælisdagur, sem keisari
Eþiópiu á i dag, en hann er
82ja ára. 1 riki hans er ringul
ulreið og stjórn-
málalegur
glundroði eftir
forsætisráð-
herraskiptin i
gær.
Makonnen,
sem settur var i
þaö embætti
fyrir 5 mánuð-
1 Vandræöin um, fór frá i
steðja að. gær,
Franco líður betur
Læknar segja nú liðan
Francos hershöfðingja betri i
morgun, en draga þó enga dul
á, að veikindi hans séu alvar-
leg og að rikisarfinn Juan
Carlos prins geri bezt i að búa
sig undir að taka alveg við i
náinni framtið.
SJuan Carlos dvaldi i klukku-
stund hjá gamla manninum i
gærkvöldi, sem fól honum
völdin fyrir nokkru, þegar
hann sjálfur þurfti á sjúkra-
hús. Samkvæmt 5 ára gömlum
lögum verður prinsinn kon-
ungur 8 dögum eftir andlát
Francos, eða eftir aö hann læt-
ur sjálfviljugur af völdum.
Enn sprengja IRA
I Birmingham i Englandi
eyðilögðust 2 húsgagna-
verzlanir i bruna vegna
sprenginga i nótt, en IRA hef-
ur einmitt látið mikið að sér
kveða þar.