Vísir - 23.07.1974, Page 7
Vísir. Þriðjudagur 23. júli 1974.
7
Umsjón:
EA og EVI
Móðurinn
síkkar, víkkar og „fíögrar
f dag tekur fólk það
ekki eins hátíðlega og
áður fyrr, hvað sé í
tízku. Konur klæðast
því sem þær vilja og ef
einhverjum líkar það
ekki, þá getur hann lit-
ið i aðra átt.
Það er samt eitt, sem er
mál málanna og vekur alltaf
miklar umræður, hvort sem
klæðzt er i kinverskan,
mexikanskan, japanskan
eða rússneskan búning; það
er siddin á pilsunum.
Á tizkusýningum fyrir
haust og vetur sýna tizkuhús
Parisar núna hálfsið pils.
Þau voru I tizku 1930, komu
aftur 1947 og náðu ekki vin-
sældum 1970. Nú eru tizku-
frömuður að koma með þau
enn á ný. Ef konur vilja ekki
klæðast þeim, fer sennilega
fyrir svona pilsum eins og
korselettunum. Þau fara á
háaloftið til skemmtunar
fyrir krakkana seinna meir I
leik. Pilsið, sem koma á i
vetur, er efnismikið, þrengir
ekki að, mjúkt og sitt. Allt
sikkar, vikkar, blaktir og
blæs út, ef svo má að orði
komast.
Efnismiklar kápur eru
með stórum handvegi, fara
vel við einfalda skyrtukjóla
og við pils með rykkingum
eða fellingum i mittið.
Mittið er áberandi i nýja
móönum. t.d. meö mjög
breiöu belti. Silkiblússur eru
með skyrtusniði. Við pilsin á
að vera i háum stigvélum og
ekki á að sjást i leggina.
Þetta er alveg eins og var
fyrir fjórum árum siðan.
Tizkuhúsin munu þó halda
áfram að sýna hnésiða pilsið.
Við þannig pils, sem eru bein
niður eða aðeins útviö.á að
klæðast i siða, þrönga jakka
úr léttu ullarefni, flannel
cashmere, eða tweedefni. —
—EVI.—
Hvað er svifflug?
Líttu upp
til mófanna
Hvað er svifflug? Ef þessi
spurning kitlar þig, þá skalt
þú ganga eftir Skúlagötunni
vestanverðri næsta góð-
viðrisdag, þegar noröan and-
varinn liður inn sundin, og
virða fyrir þér hóp af máf-
um, sem þar þreyta svokall
að „hang-flug”. Frá þvi
maöurinn fór að ganga upp-
réttur, hefur honum veriö lit-
ið tii fuglanna, sem Guð hef-
ur skapað með þeim undur-
samiega hæfileika að geta
svifiö frjálsir um loftin blá.
Maðurinn hefur þráð þetta
frelsi loftsins, og það eru
mörg hundruð ár siðan
fyrstu tilraunir voru gerðar
til svifflugs. En hvað kemur
máfurinn þessu máli við?
Jú, svifflugmenn hafa
nefnilega lært svifflug af
máfinum. Þessi sérkennilegi
fugl leikur sér timunum
saman dag hvern við margs
konar flug. Við nefndum
„hang-flug”, en það iðkar
máfurinn þannig, að þegar
vindur blæs að fjallshlið,
sjávarbakka eða húshliö,
leitar hann upp á við og yfir
hindrunina og myndast
þannig uppstreymi lofts,
sem máfurinn notar sér til
þess að geta svifið án þess að
þurfa áð blaka vængjum.
Hvort hann gerir þetta af
einskærri leti eða er einn af
sportidiótum náttúrunnar,
verðum við að láta öðrum að
finna út. En maðurinn hefur
snemma veitt máfinum at-
hygli, og „hang-flug” er ein-
mitt fyrsta tegund svifflugs,
sem maðurinn reyndi. Það
má geta þess til gamans,
svona máfinum til upplyft-
ingar, að merki svifflug-
manna um allan heim eru
þrir máfar á bláum fleti.
Það er merki, sem nem-
endur fá að loknu svokölluðu
C-prófi, en áður fyrr var not-
að A-próf, eöa merki með
einum máfi og B-próf með
tveimur máfum. En A og B
próf eru ekki lengur I notkun.
Þau voru tekin hér áður fyrr
þegar nemandinn var sendur
einn i sitt fyrsta hopp á svo-
kölluðum Schulgleiter, en
það var nánast sæti sem var
fest á einfalda grind með
vængjum og stéli. Af þeirri
gerð var reyndar fyrsta svif-
flugan, sem smiðuð var hér á
lslandi árið 1933.
Máfurinn kann fleira en að
fljúga, „hang-” framan við
Skúlagötu. Á heitum sumar-
degi hefur þú ef til vill veitt
honum athygli, þar sem
hann hnitar tignarlega
hringi yfir borginni, stund-
um lágt, en oft i töluverðri
hæð. Þá hefur hann fundið
það, sem svifflugmenn kalla
termik.
Termik er nánar tiltekið
hitauppstreymi, sem mynd-
ast, þegar sólin hitar jörðina
og loftið næst henni. Þegar
loftið hitnar nægilega, stigur
það upp I nokkurs konar
bólu, Þegar það nær vissri
hæð, myndast úr bólunni
bólstraský. Hraði loftsins
upp á viö er stundum nægi-
legur til þess að halda svif-
flugu og nokkrum máfum á
flugi, án þess að til þurfi
vélarafl.
Iþróttasiður dagblaðanna
eru stundum upp á margar
opnur, og þótt við flettum
þeim vandlega, finnum við
ekkert um svifflug. En svif
flug er samt sem áður iþrótt,
og meira að segja keppnis-
iþrótt.
Páll Gröndal.
Þeim á ttalfu og f Parfs ber taisvert sam-
an um haust- og vetrartizkuna. Fjaðrir og
þviumlikt er mikiö i tizku, og sfddin er um
öklana. Þessi kvöldklæðnaður er frá
ítaliu.