Vísir - 23.07.1974, Blaðsíða 8
í
r
t
Lengi titr-
aði ráin,
en féll svo
— Þrír yfir 2.21 metra
í hástökki í Árósum í gœr
Danski NorOurlandamethafinn I hástökk-
inu, Jesper Törring, stökk yfir 2.24 metra —
einum sentimetra betra en met hans — á
móti i Árósum i gær. Hann kom aðeins viö
rána, sem lengi titraði, en þegar áhorfendur
héldu að hún ætlaði að hafa það — féll hún
skyndilega niður. Þar með varð þessi frá-
bæri, danski iþróttamaður af Norðurlanda-
meti — en hann varð sigurvegari i greininni,
stökk 2.21 metra. Það gerðu lika tveir aðrir á
mótinu I Arósum, Rune Almen, Sviþjóð, sem
varð annar, og Rory Kotinek, USA. Slikt
hástökk þekkist ekki nema i Sovétrikjunum.
Gamli heimsmethafinn, Pat Matzdorf, USA,
varð fjórði með 2.15 metra.
Annars sýndu dönsku iþróttamennirnir vel
á mótinu hve sterkir þeir eru orðnir. Tom B.
Hannes sigraði með yfirburðum i 1500 m
hlaupinu á 3:41.3 min. og voru þó snjallir
menn I hlaupinu. Ulf Högberg Svfþjóð, varð
annar á 3:42.2 min. Marty Liquori USA, 3ji á
3:42.9mín. og Scharn,HoÍlandi,fjórði á 3:43,4
min.
1 800 m. hlaupinu sigraði Sven-Erik Niel-
sen, Danmörku, á 1:48.3 min. Jiri Luzins,
Sovét, varð annar á 1:48.8 min. og Hol-
lendingurinn van de Heuvel 3ji á 1:49.3 min.
Heimsmetstilraun Dave Bedford, sem til-
kynntvar i5000m hlaupinu, var nánastgrin.
Þar sigraði Buerkle, USA, á 13:39.4 min. en
Bedford varð langt á eftir — hljóp á 13:54.4
min. Þá kom á óvart, að Norðmaðurinn
sterki, Per Halle, hljóp aðeins á 13:57.8 min.
og varð þriðji.
Þess má geta I sambandi við hástökks-
keppnina, að ekki einu sinni á Olympiuleik-
unum hafa þrir menn stokkið yfir 2.21 metra.
— hsím.
Skagamenn alls
staðar í úrslitum
Akurnesingar sigruðu Vestmannaeyinga i
öðrum undanúrslitaleiknum i Bikarkeppni 1.
I’lokks i gærkveldi með einu marki gegn engu.
Leikurinn fór fram á Akrancsi.
i hinum undanúrslitaleiknum áttust við
Vikingur og Akureyri og lauk þcirri viður-
eign mcð sigri Vikings 5:1.
Urslitaleikurinn i þessari keppni verður
þvi á milli Akraness og Vikings og fer hann
fram á Mclavellinum annað kvöld kl. 20.00.
Akurnesingar eru einnig i úrslitum i Bikar-
keppni 2. flokks, en úrslitaleikurinn i þeirri
keppni fer fram á Melavellinum á fimmtu-
dagskvöldið klukkan átta.
Þar leika Akurnesingar við Breiðablik.
Skagamenn áttu að leika við FII I undanúr-
slitunum en FII gaf leikinn. Breiðablik lék
við Keflavik og sigraði 3:1.
— klp —
Hvaða lið mœtast
í 16-liða úrslitum?
Búið er að ákveða hvar siðustu léikirnir í
undankcppni Bikarkeppninnar, sem fram
eiga að fara á morgun, verða leiknir. Eru það
þrir leikir og komast sigurvegararnir úr
þeim I lokakeppnina.
Leikirnir eru þessir:
Ólafsvik........
Húsavik.........
Eskif j.........
.... Vikingur—ÍBÍ
Völsungur—Leiftur
... Huginn—Þróttur
Dregið verður um hvaða lið leika saman i
10-liða úrslitunum á fimmtudaginn. Fer sú
„athöfn” fram á Ilótel Esju kl. 15.00 og er
ætlazt til að þar verði fulltrúi eða fulltrúar
frá þeim scxtán liðum, sem taka þátt i loka-
keppninni.
— klp —
Bjarni Stefánsson, KR, hleypur léttilega I gegn langfyrstur i riðlakeppninni 1100 m I gærkvöldi. t
úrslitunum hafði hann sömu yfirburði — og hljóp sitt bezta 100 m hlaup frá upphafi, þó svo of mikill
meövindur geri það að verkum, að timinn 10.2 sek. verður ekki staðfestur sem íslandsmet. En það
skyggir litið á frábært hlaup Bjarna. Ljósmynd Bjarnleifur.
Gróði FH mestur þegar
Breiðablik vann Þrótt!
— FH hefur nú þremur stigum meira í 2. deild en Breiðablik og Þróttur
Leikmenn Breiðabliks stokkuðu
sæmilega upp spilin i 2. deildinni I
gærkveldi, er þeir sigruðu Þrótt á
heimavelli sinum i Kópavogi með
þrem mörkum gegn engu.
Þessi leikur var ekki siður sigur
fyrir FH en Breiðablik. Með hon-
um náðu FH-ingar þriggja stiga
forustu I deildinni — þar hafa þeir
nú 17 stig en Breiðablik og Þrótt-
ur eru með 14 stig...öll eiga liðin
eftir að leika 4 leiki, þar af á FH
eftir að leika við Hauka, Þrótt,
Selfoss og Isafjörð.
Leikmenn Breiðabliks áttu góð-
an dag á vellinum I gær og voru á
flestum sviðum betri en Þróttar-
arnir, sem þó voru ekki neitt slak-
ir.
Breiðablik fékk óskabyrjun, er
einn varnarmaður Þróttar sendi
boltann fram hjá sinum eigin
markverði og i netið. Þrótturum
tókst ekki aö hefna þessara ófara
i fyrri hálfleiknum, en þá áttu
þeir nokkur sæmileg tækifæri til
að skora.
í slðari hálfleiknum komu
Kópavogsbúarnir enn ákveðnari
til leiks, og eftir 10 minútna leik
skallaði Ólafur Friðriksson bolt-
ann i netið eftir sendingu frá
Magnúsi Steinþórssyni. Hann var
aftur á ferðinni með höfuðið
nokkru siðar, en þá tók hann við
gullfallegri sendingu frá Guð-
mundi Þórðarsyni og afgreiddi
hana sömu leið. Var þetta mark
sérlega vel unnið og fallegt.
— klp —
TOKU EKKI VIÐ VERÐLAUNUM
— Mikil keppni á meistaramótum golfklúbanna
Við sögðum frá þvi I gær, að
Björgvin Þorsteinsson hefði
sigrað i Akureyrarmótinu i golfi,
sem lauk á laugardaginn með þvi
að leika Jaðarsvöllinn á pari- eða
á samtals 292 höggum. Parið á 18
holunum þar er 73, og voru
hringirnir hjá Björgvin sem hér
segir.... 73-72-70-77... Hann var 14
höggum betri en næsti maður,
sem var Gunnar Þóröarson, en
hann lék á 306 höggum, þar af
einn hringinn á 71 höggi.
Úrslit i öðrum flokkum urðu
þau, að Eggert Eggertsson
sigraði I 1. flokki, Heimir Jó-
hannsson i 2. flokki, Tryggvi
Sæmundsson i 3. flokki, Sigurður
H. Ringsted I unglingafl. og
Karolina Guðmundsdóttir —
skiðakonan góðkunna — I kvenna-
flokki.
Hjá Golfklúbbi Reykjavikur
urðu þeir óttar Yngvason og
Einar Guðnason efstir og jafnir
eftir 72 holur... á 315 höggum.
Þeir léku 3 aukaholur um 1. sætið
og sigraði Óttar i þeirri keppni.
Jóhann Ó. Guðmundsson varö
þriðji á 323 höggum.
Hvorki Einar né Óttar tóku við
verðlaununum að lokinni keppni
vegna ummæla, sem um þá voru
höfð af tveim forráðamönnum
klúbbsins, er þeir voru að ljúka
við mótið.
Sigurvegarar I öðrum flokkum
en meistaraflokki karla hjá GR
urðu sem hér segir: 1. flokkur
Geir Svansson, 2. flokkur
Kristján Astráðsson, 3. flokkur
Guðni Guðnason, unglfl. Hannes
Eyvindsson, drengjafl. Eirikur Þ.
Jónsson, meistarafl. kvenna
Agústa Guðmundsdóttir, T. fl.
kvenna Svana Tryggvadóttir.
GOLF
Hjá Keili i Hafnarfirði sigraði
Sigurður Thorarensen i meistara-
flokki karla — lék á 319 höggum.
Annar varð Sigurjón Gislason,
fyrrum knattspyrnumaður hjá
Val, á 326höggum og þriðji Július
R. Júliusson á 339 höggum.
Sigurvegarar I öðrum flokkum
urðu: 1. flokkur Gisli Sigurðsson,
2. flokkur Samúel Jónsson, 3.
flokkur Guðmundur Frimanns-
son. 1 unglingaflokki sigraði Hálf-
dán Þ. Karlsson.
Hjá Golfklúbbi Ness sigraði
Loftur Ólafsson I meistaraflokki
karla, lék 72 holurnar á 309 högg-
um. Annar varð Tómas Holton á
328 höggum og þriðji Kjartan L.
Pálsson á 330 höggum.
Sigurvegarar i öðrum flokkum
urðu: 1. flokki karla Sveinn
„Patton” Eiriksson, 2. fl. karla
Jens A. Jónsson. M.fl. kvenna
Ólöf Geirsdóttir, 1. fl. kvenna
Friða Sigurjónsdóttir, drengjafl.
Róbert Holton, stúlknafl. Ás-
gerður Sverrisdóttir. Forgjafa-
bikar mótsins hlaut Kristinn
Bergþórsson.
A Akranesi sigraði Hannes Þor-
steinsson i meistaraflokki karla,
lék á 309 höggum. Annar varð
Guðmundur Júliusson á 338 högg-
um. 1 1. flokki sigraði Finnbogi
Gunnlaugsson, 2. flokki Alfreð
Viktorsson, 3. flokki Janus Bragi
Sigurbjörnsson og i unglinga-
flokki ómar ö. Ragnarsson.
Þorbjörn Kjærbo var yfir-
burðasigurvegari hjá Golfklúbbi
Suðurnesja, lék á 291 höggi... 11
yfir par vallarins... 72-75-72-72.
Annar varð Hallur Þórmundsson
á 313 höggum og siðan komu þeir
Þórhallur Hólmgeirsson og
Jóhann Benediktsson á 314 högg-
um.
1 öðrum flokkum urðu sigur-
vegarar þessir: l.fl. Jón Þor-
steinsson, 2.fl. Sigurður Jónsson,
3. fl. Guðjón Stefánsson, unglfl.
Jóhann Ó. Jósepsson og I
drengjafl. sigraði Sigurður
Sigurðsson.
;ur 23. júli 1974.
Visir. ÞriOjudagur 23. júli 1974.
Erlendur náði EM-lág-
markinu í kringlukasti!
— Bjarni hljóp glœsilega í 100 m hlaupi á 10.2 sek., en vindur var of mikill
r
— Ingunn einnig innan við Islandsmetið í 100 m hlaupi og Lára í langstökki
Það var kalt og hvasst á
Laugardalsvelli, þegar meistara-
mótið I frjálsum iþróttum hélt
áfram i gærkvöldi. Stórárangur
fær ekki viðurkenningu vegna
vindsins, en þeim, er sáu Bjarna
Stefánsson, KR, hlaupa á glæsi-
legan hátt 100 m hlaupið, duldist
ekki að þar hljóp Bjarni sitt bezta
hlaup um ævina — já, það var
meira að segja glæsilegra en þeg-
ar hann setti islandsmetið i 400 m
á Olympluleikunum I Munchen.
Timi Bjarna var 10.2 sek. —
sekúndubrotibetra en islandsmet
Hilmars Þorbjörnssonar, en
vindurinn var of mikill. Það dreg-
ur þó ekki mikið úr stórárangri
Bjarna — þetta var hlaup upp á
10.3-10.4 sek., og það er greinilegt,
að Bjarni er nú fljótari en nokkru
sinni fyrr. Næstu menn, Vilmund-
ur Vilhjálmsson, 10.9 sek. og
Marinó Einarsson, 11.3 sek. hafa
náð betri árangri — svo ekki virt-
ist vindurinn hjálpa þeim. Synd,
aö Sigurður Sigurðsson gat ekki
tekið þátt I hlaupinu vegna las-
leika.
Ýms góð afrek voru unnin á
mótinu og þar ber hæst árangur
Erlends Valdimarssonar, 1R, i
kringlukastinu. Hann kastaði
lengst 59.76 metra — en lág-
marksafrek fyrir EM — sett af
mótsnefndinni — er 59.00 metrar.
Erlendur er þvi fyrsti Islending-
urinn, sem nær EM-lágmarkinu.
Erlendur er greinilega I ágætri
æfingu, þó hann hafi litið keppt,
og þegar honum tekst virkilega
vel upp bætir hann Islandsmet
sitt 62.06 metra.
1 kringlukasti kvenna setti Guð-
rún Ingólfsdóttir USU, nýtt Is-
landsmet — kastaði 36.40 metra.
Bætti met sitt um 24 sm. Ingunn
Einarsdóttir, ÍR, var langt innan
við íslandsmetið 1100 m hlaupi —
sigraði á 12.0 sek. og Lára Sveins-
dóttir, A, varð önnur á 12.2 sek.
íslandsmet hennar er 12.4 sek. —
og eitt er vist, þó þessi árangur
fái ekki staðfestingu vegna vinds-
ins, að Ingunn getur stórbætt
metið — jafnvel Lára lika. Þá
stökk Lára 5.81 m I langstökki —
langt yfir meti, en enn var vind-
urinn á ferðinni. Hann var 3.6-5.5
I gær á vellinum, löglegt er 1.9.
í stangarstökki náði Guðmund-
ur Jóhannesson UMSK, slnum
bezta árangri, stökk 4.26 m. Karl
West UMSK varð annar með 4
metra. Elias Sveinsson, ÍR, stökk
3.90 metra og Kristinn Arnbjörns-
son, KR, setti drengjamet 3.72
metra.
Friðrik Þór Óskarsson, IR,
varð Islandsmeistari i þristökki
15.01 m og athygli vakti, að Helgi
Hauksson, UMSK, stökk 14.34 m.
I kringlukastinu varð Hreinn
Halldórsson i öðru sæti með 51.32
m og Óskar Jakobsson nýi met-
hafinn I spjótkastinu, bætti þar
árangur sinn enn — kastaði 50.48
metra. Bezt áður hjá honum I
kringlunni 50.10 m.
Agúst Asgeirsson, IR, varð Is-
landsmeistari I 1500 m hlaupi á
4:14.7 min. og Jón Diðriksson
UMSB, varð annar á 4:18.0 min.
Vindurinn eyðilagði hringhlaup-
in. I sleggjukasti varð Erlendur
Valdimarsson Islandsmeistari
með 57.58 m og lyftingakappinn
kunni, Óskar Sigurpálsson, A,
varð annar með 49.96 m. Jón ö.
Þórmóðsson, 1R, þriðji 43.08 m.
Vilmundur Vilhjálmsson, KR
varö íslandsmeistari i 400 m
hlaupi á 53.2 sek. en Gunnar Jóa-
kimsson, IR, annar á 53.8 sek.
Stefán Hallgrfmsson, KR, varð
Islandsmeistari 1 110 m hrhl. á
15.0 sek. og Hafsteinn Jóhannes-
son, UMSK, varð annar á 15.6 sek.
Sveit ÍR sigraði i 4x400 m boð-
hlaupi kvenna á 4:38.2 min. en
sveit KR i 4x400 m karla. á 3:31.0
min.
— hsim.
Lilja náði metinu aftur
Lilja Guðmundsdóttir, hlaupa-
konan góðkunna úr 1R, náði aftur
islandsmetinu i 800 m hlaupi,
þegar hún hljóp vegalengdina á
2:15.1 min. á meistaramóti
Gautalands, sem háð var i Gauta-
borg um helgina. Hún bætti met
Ragnhildar Pálsdóttur um rúma
hálfa sekúndu — og þetta er I ann-
að skipti I sumar, sem Lilja setur
tslandsmet I 800 m hlaupi. Siöari
keppnisdaginn hljóp hún 1500 m á
5:00.0 min. sem er hennar bezti
árangur. Lilja varð 3ja i 800 m
hlaupinu — sigurvegarinn hljóp á
2:13.9 min.
Fleiri islendingar náðu góðum
árangri á mótinu I Gautaborg.
Sigurður Jónsson, HSK, hljóp 400
m á 49.1 sek., sem er hans lang-
bezti timi á vegalengdinni. Atti
bezt áður 50.6 sek. 200 m hljóp
hann á 23.2 sek. Július Hjörleifs-
son, ÍR, hljóp 1500 m á 3:57.7
. min, sem er hans bezti árangur
og 800 m á 1:57.2 min. Á mótinu
var sett sænskt met I 400 m
hlaupi. Michael Fredriksson
hljóp á 45.8 sek. — Þau Lilja og
Július keppa með Islenzka lands-
liðinu I Lulea um næstu helgi.
— hsim.
LANDSLIÐSSIGUR A AKUREYRI
Akureyringar skemmtu sér vel
við aö horfa á sina menn leika við
úrvalslið KSt i gærkveldi, en þá
fór „landsliðiö” norður tii að taka
þátt I minningaleiknum um Jakob
heitinn Jakobsson.
Leikurinn var lika skemmtileg-
ur fyrir áhorfendur — oft mikið
um ágætis knattspyrnu og góðar
leikfléttur, — Sunnanmenn sóttu
mun meir I leiknum, en áttu erfitt
með að komast fram hjá varnar-
mönnum Akureyringa. Ef það
tókst var Samúel Jóhannssyni,
markverði að mæta og hann
varði oft stórkostlega vel i leikn-
um.
Aðeins einu sinni tókst „lands-
liðinu” að komast fram hjá hon-
um með boltann — það var á loka-
minútum leiksins, er Jóhannes
Eðvaldsson skallaði i markið af
stuttu færi.
Leeds nóði í góðan mann!
Hefur ráðið Brian Clough til sín — Brighton ásakar Leeds
Deildameistarar Leeds hafa
náð sér i snjallan mann i stað Don
Revie — sjálfan Brian Clough,
framkvæmdastjóra Brighton,
sem kunnastur er fyrir frábær
störf sin fyrir Derby County.
Einnig er hann einn vinsælasti
sjónvarpsmaður brezkra I knatt-
spyrnunni — maöur, sem þorir að
láta skoðanir sfnar I ljós.
Það var á föstudaginn, sem
Leeds hafði leynilega samband
við Brian — og i gærkvöldi réðst
hann tilfélagsins. Hann mun taka
þar við stjórn siðar i vikunni.
Brighton, félagið I 3. deild, sem
Brian Clough hefur stjórnað frá
þvi að hann hætti hjá Derby
County á siðasta keppnistimabili,
er ekki hrifið af þessum málalok-
um. Segir Leeds hafa lokkað
Clough til sin með óleyfilegum
brögðum og hótar málsókn i sam-
bandi við brot Clough á samningi
við félagið.
Clough fær nú heldur betur
tækifæri til að sanna ágæti sitt
með Leeds, þvi félagið hefur ver-
ið sigursælt undir stjórn Don
Revie siðustu 12 árin. Virkilegt
stórlið, en Revie hefur tekið við af
Sir Alf Ramsey sem landsliðs-
einvaldur enskra. Laun Brian
Clough hjá Leeds verða 17.500
sterlingspund á ári — eða um
fjórar milljónir Islenzkra króna.
Ekkert var talað um það i gær
hvort Peter Taylor, sem ávalt
hefur fylgt Clough gegnum þunnt
og þykkt, verður með honum hjá
Leeds.
Brian Clough var st'órsnjall
knattspyrnumaður hjá Middles-
bro og Sunderland — mikill
markaskorari, sem skoraði 252
mörk á niu ára ferli sinum sem
atvinnuknattspyrnumaður. Hann
meiddist illa á hátindi frægðar
sinnar — var þá nýkominn i enska
landsliðið sem miðherji og lék þar
tvo leiki —• og varð að leggja
skóna á hilluna. Þá réðist hann til
Hartlepools sem framkvæmda-
stjóri og tók Taylor með sér, en
hann hafði leikið með Middlesbro
á sama tima og Clough sem
markvörður. Hartlepool var það
liö, sem menn vildu þá sizt taka
við — hafði þrisvar árin á undan
orðið I neðstu sætum 4. deildar og
orðið að sækja um að fá að halda
áfram i deildakeppninni. Clough
vann þar stórvirki — menn bók-
staflega stóðu og göptu þegar
hann kom liðinu nær strax i 3.
deild. Það var 1965 og 1967 sem
Derby bauð honum fram-
kvæmdastjórastöðu. Þar héldu
þeir Clough og Taylor áfram á
sömu braut — komu Derby i 1.
deild og unnu deildakeppnina
1972. En Brian Clough er ekki
allra maður — hann var leystur
frá störfum hjá Derby vegna
ýmislegs, sem hann lét frá sér
fara i blöðum, sjónvarpi og á öðr-
um vettvangi. Þá nötraði Derby
— leikmenn liðsins voru næstum
komnir i „verkfall”. En það
leystist og Clough og Taylor fóru
til Brighton, sem stóð illa I 3.
deild. Þeim tókst að forða liðinu
frá falli — og nú er Leeds fram-
undan. Fyrsti stórleikur Clough
þar verður 10. ágúst, þegar Leeds
og Liverpool leika i hinum árlega
„Charity Shield”-leik.
— hsini.
Eru möguleikar að j 1
verða meistari,
Þá verðum við að
inna nær alla leikj,
Það er ánægjulegt. hvað
þér hefur tekizt vel i
uppáhalds iþrótt þinni, sonur1
en nú förum við að fara
heim.
Lára Sveinsdóttir stekkur 5.81 m i langstökki I gær — eða mun lengra
en islandsmet Hafdisar Ingimarsdóttur er — 5.54 m. Hins vegar var
vindur of mikill — en met hjá Láru kemur hvenær sem er. Ljósmynd
Bjarnieifur.
Frjóls verzlun fyrir
þó sem fylgjast með
Frjáls verzlun er stærsta og útbreiddasta sérrit landsins. Frjáls
verzlun kemur út mánaðarlega og fjallar um viöskipti og at-
hafnalif innanlands og erlendis.
Frjáls verzlun fjallar að þessu sinni um viðhorfin i bankamálum
og uppbyggingu Verzlunarbanka islands, Reykjaneskjördæmi
og athafnalif þar, heimsborgirnar og það.sem þær bjóða upp á
heimskreppu I stjórnmálum, kinverska sendiráðið og starfsemi
þess og fleira efni ásamt föstum þáttum blaösins.
Frjáls verzlun býður yður velkomin Ihóp fastra áskrifenda.
■ Til Sjávarfrétta, Laugavegi 178
Óska eftir áskrift að Sjávarfréttum, pósthólf 1193 Rvik.
Nafn
j Heimilisfang
■
simi J
Útgefandi: Frjúlst Framtak h.f.
Laugavegi 178 Símar 82300 og 82302