Tíminn - 16.02.1966, Blaðsíða 2

Tíminn - 16.02.1966, Blaðsíða 2
TÍMINN MIÐVIKUDAGUR 16. febrúar 1966 Gylfí skrífar og skrífar ar, að nokkra stund tekur að um sér og öðrum, að þeir vilji Gylfi Þ. Glslason skrifar tvær greinar í Alþýðublaðið svo ólík átta sig á, að þær séu eftir sama mann. Önnur birtist á laugardaginn, hin í gær. Sú síðari fjallar um þýðing- armikið mál, sem snertir sigl- inga- og viðskiptaöryggi okkar litlu þjóðar. Laugardagsgrein in er um flutning 9. sinfóní- unnar. í annarri greininni segir Gylfi orðrétt: „Allir fslendingar verða að gera sér ijóst, að á vissum svið um hlýtur að reynast dýrt fyr- ir jafn fámennan hóp og fs- lendinga að halda uppi sjálf- stæðu menningarríki við þær aðstæður, sem hér eru. En því aðeins tekst það, að við höf- um bæði vilja og getu til þess. Meðan íslendingar sýna sjálf- vera sjálfstæð menningarþjóð og geti það, halda þeir áfram að vera það. Það kostar fé. En það fé verður að greiða.“ í hinni greininni segir ráð- herrann, að það hefði verið um hreina misbeitingu valds að ræða, ef hann hefði úrskurð að að fórna einum eyri á lítra innfluttrar olíu til þess að við- halda og treysta sjálfstæði landsins í siglingamálum. Á laugardaginn, er honum ljóst, þegar hann ræðir um Sinfóníuhljómsveit fslands, að það kostar mikið fé að vernda og treysta íslenzkt sjálfstæði. Hinn daginn finnst honum eðlilegast og auðveldast að af- henda erlendu stórveldi viss- ann þátt sjálfstæðis okkar og öryggis. Stöðumælagjald í miðbænum hækkar AFLI AÐ GLÆÐAST HJÁ BÍLDUDALSBÁTUM GTtE-Bíldudal, föstudag. Afli er að glæðast á bátunum hér og í gærkvöldi komu á land um 50 tonn. Pétur Thorsteinsson, sem er á netum kom með um 34 tonn af einnar náttar fiski úr sex trossum. M. b. Andri kom með um 100 tonn og Þórður Ól- afsson með um 4 tonn, en þeir eru báðir á línu. Þess ber að geta, *ð Þórður Ólafsson var með gaml- JI loíhr, sem fylgdu bátnum, þeg- ’»r hann var keyptur hingað fyrir skemmstu, en hann er nú kominn með nýjá línu. Er ittikil vinna í frystihúsinu, og þegar ég talaði við aðalverkstjórann, Hjálmar Ág- ústsson í kvöld, sagðist hann von- ast til áframhaldandi góðrar veiði. Gotan er tekin úr fiskinum jafn óðum til niðursuðu til Bretlands og er aðaláherzlan lögð á gæði vörunnar, en markaður hefur held- ur versnað upp á síðkastið, vegna þess, hve léleg niðursuðan hefur reynzt, ekki síður frá Norðmönn- um, en þeir hafa undanfarin ár keypt iðnaðarhrogn héðan, soðið niður og selt til Bretlands. Góð rækjuveiði hefur verið hér þessa viku og verður vikuaflinn um 20 tonn, en hann er jafnóð- um frystur í Matariðjunni og fluttur út til Bretlands og Skandi- navíu. Er mikill áhugi manna, sem að rækjuveiðum standa, að fá auk ið leyfílegt rækjumagn, það, sem veiða má í Arnarfirgi úr 200 tonn um, enda erum við þeir einu, sem nú eru með takmörkun á veiðun- um eftir þvi sem mönnum skilst. Nauðsynlegt virðist vera, að fiski fræðingar okkar sinni þessum.fiski meira en gert hefur verið, þar sem margra álit er, að rækjan komi af hafi, og því vafasamt að takmarka veiði á henni frekar en t.d. á síld eða þorski. Nú hefur verið gerð gangskör að því, að moka þá 200 metra, sem skildi okkur Arnfirðinga frá umheiminum á landi og var mokst ur hafinn í gær. Er almenn ánægja ríkjandi meðal fólks hér yfir því, eins og geta má nærri. enda ekki verk, sem ástæða var að láta sér vaxa í augum. Rétt er þó að benda þeim á, sem það þurfa til sín að taka, að í Bandaríkjunum býr 180 milljóna þjóð og verða þó forráða- menn ríkisstofnana þar að svara fyrir um sín störf iðulega frammi fyrir alþjóð og ástæðulaust fyrir forsvarsm. sams konar mála hér að taka illa upp þó að sé fundið, þegar um sanngirnismál er að ræða. Við skiljum vel hér fjár- skort Vegamálaskrifstofunnar og skýringar Snæbjörns Jónassonar mæta skilningi hér, enda hefði eng inn maður farið fram á það, að Hálfdán hefði verið mokaður, ef allt hefði verið á kafi í snjó, held ir var um að ræða einungis að fá mokaðan 2—300 metra skafl. Eins og fyrr er sagt, eru allir ánægðir yfir þessum má'lalokum og kunna Vegamálaskrifstofunni beztu þakkir fyrir moksturinn og vonandi kemur ekki til sams kon ar erfiðleika í framtíðinni. Við Arnfirðingar fögnum sól- inni hér 19. febrúar með því að halda Sólarkaffi. Formaður kven- félagsins Framsóknar hér, frú Ósk Hallgrímsdóttir tjáði mér í dag, að kvenfélagið myndi efna til Sólarkaffis, eins og venja er. Fé- lag þetta er 55 ára, stofnað 1910 og var frumkvöðull þess frú Sig- ríður J. Magnúsdóttir, sem enn er á lífi og fylgist með starfi fé- lagsins. Unnið er að því eftir eðlilegum ieiðum að laga skemmdirnar á bryggjunni, eftir því, sem Jónas Ásmundsson, oddviti, sagði mér í kvöld. Sjópróf var haldið, eins og iög gera ráð fyrir, en síðan kom hér Bergsveinn Breiðfj'ir« frá Vita málaskrifst. og Tryggvi Gunn- arsson, á vegum Samvinnutrygg- inga til að líta á skemmdirnar. Strandferðaskipin Skjaldbreið og Esja komoi hér í gær og athafn- aði Skjaldbreið sig við bryggjuna, en í Esju urðum við að senda bát eftir þeim sjö tonnum af vörum, sem hún var með. Hekla kom að norðan í dag og lagðist að bryggj- unni, enda blíðskaparveður hér síðustu daga, eftir 1 -r hamfarir, Forsetinn þigg- ur boð um að heimsækja r Israel Forseta íslands hefur bor izt boð frá forseta fsrael um að koma í opinbera heim sókn til ísrael. Hefur forsetinn þegið boð ið og er heimsóknardagur- inn ákveðinn 21. marz n.k. Emil Jónsson, utanríkis- ráðherra mun verða í fylgd með forsetanum. sem yfir gengu vikuna þar á und- an. Okkur þótti gaman, að vand- ræði okkar með bryggjuna skyldu komast í þáttinn hans Svavars, því með því virtist fólk aðeins fylgj ast með því, sem hér gerðist. Þeg- ar svo Emilía kom með sitt sím- tal. virtist það alveg geta átt við Bíldudal líka, nema kvað kaupfé- lagsstjórafrúin hér er svo nett og vel vaxin að hún hefði varla getað haldið niðri einni þakplötu, hvað þá heilu þaki. Og svo hitt, að odd- vitinn hér býr við nýtízku þæg- indi. Þessa dagana er verið að setja upp 50 nýja stöðumæla í Austur- stræti, Hafnarstræti og Banka- stræti og um leið hækkar stöðu- mælagjaldið á þessum stöðum úr einni krónu í tvær krónur fyrir hverjar 15 mín. Þessir stöðumælar eru eingöngu gerðir fyrir tveggja- krónupeninga. Samþykkt hefur verið að sama gjald verði við stöðumæla á Lauga vegi að Snorrabraut og á Hverfis- götu frá Lækjargötu að Klappar- stíg, en mælarnir sem þar verða settir upp eru í pöntun og verð- ur breytingin væntanlega fram- kvæmd í vor eða sumar. Þá hefur borgarstjórn Reykja- víkur ákveðið að settir verði upp stöðumælar á eftirtöldum götum: Vatnsstíg milli Hverfisgötu og Laugavegs, Vitastíg milli Hverfis- götu og Grettisgötu, Barónsstíg milli Hverfisgötu og Grettisgötu, Hverfisgötu frá húsi nr. 70 að húsi nr. 52, Skólavörðustíg milli Óð- insgötu og Týsgötu. Á þessum stöðum verður gjald- ið ein króna fyrir hverjar byrj- aðar 15 mín. og verða notaðir þeir mælar sem voru áður í Austur- stræti, Hafnarstræti og Banka- stræti. Stöðumælar voru fyrst settir upp hér í Reykjavík 1957, en það ár voru 138 stöðumælar settir upp á sex götum. í árslok 1965 voru 367 stöðumælar í notkun á 20 göt- um. Þá má geta þess að stöðu- mælasjóður hefur nú um 300 gjald- frjáls bílastæði á leigu af ýmsum aðilum í miðborginni eða næsta nágrenni hennar. SMÁRÆÐI, lítil bók eftir Sigurð A. Magnússon, blaðamann Ut er komin í forlagi Helgafells lítil bók eftir Sigurð A. Magnússon, sem nefnist „Smáræði“ og hefur að geyma tólf þætti, mislanga. Bók in skiptist í þrjá meginkafla. í fyrsta kafla eru fimm þættir, samd ir á árunum 1950-53 í Kaupmanna- höfn, Aþenu og Stokkhólmi. í öðr- um kafla eru sex þættir, samdir á eynni Ródos sumarið 1960, og í Undirnefndir að störfum EJ-Reykjavík, þriðjudag. Undirnefndir vinna nú að lausn kjaradeilna atvinnuflugmanna og flugvirkja, að því er Torfi Hjart arson, sáttasemjari ríkisins, tjáði blaðinu í dag. Hafa nefndirnar starfað nú í nokkra daga. Eng inn sameiginlegur sáttafundur hafði enn verið boðaður. 9.15% verðlags- uppbót þriðja kafla er stuttur leikþáttur frá árinu 1961. Nokkrir þáttanna hafa áður birzt í íslenzkum blöð- um og tímaritum, og einn þeirra í bandarísku tímariti. „Smáræði" er áttunda bók Sig- urðar A. Magnússonar á íslenzku. Áður hafa komið út eftir hann tvær ljóðabækur, skáldsaga, leik- rit, ritgerðasafn og tvær ferðabæk- ur (um Grikkland og Indland). „Smáræði" er 73 blaðsíður í Skírnisbroti. Bókin er prentuð f Víkingsprenti. EJ-Reykjavík, þriðjudag. Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar í byrjun febrúar 1966, og reyndist hún vera 183 stig, eða einu stigi, hærri én í janúarbyrjun. Vísitala, muni verða þoluð í Sovétríkjun ÓTTAST AÐ Framhald ai Dls. 1 því sem nú er. Ein af afleiðingum réttarhald- anna verður, að því er talið er, veruleg minnkun „vélrituðu" bók menntanna, sem svo eru kallaðar, en mikil útbreiðsla hefur verið á slíkum bókmenntum. Er hér um að ræða hinar „frjálslyndustu“ bók menntir, sem útgefendur 1 Sovét ríkjunum hafa neitað að gefa út. Ýmsir þekktir rithöfundar, eins og t. d. ljóðskáldið Jevgeny Jevtu sjenko, hafa notfært sér þessa aðferð til þess að koma út verk um sínum. Pravda, málgagn sovézka komm únistaflokksins, skrifar i dag, að jafnvel hin harðasta gagnrý.ni vöru og þjónustu reyndist vera 212 stig. Samkvæmt þessu, skal, á tíma- bilinu 1. marz til 31. mai ! 966, greiða 9.15% verðlagsuppbót á laun og aðrar vísitölubundnar greiðslur. Uppbótin miðast við grunnlaun og aðrar grunngreiðs! um, ef hún þjóni þeim tilgangi að styrkja þjóðfélagið. Aftur á móti verði fjandsamlegri gagnrýni, og níði, sem grafi undan grundvelli þjóðfélagsins, ávallt vísað á bug. Er talið, að Pravda taki þetta fram til þess að reyna að eyða ótta margra menntamanna í Sovétríkj umun, að nú sé „frjálslyndinu“ í Gjaldskylda við stöðumæla er á sama tíma og verzlunum er al- mennt leyft að hafa opið. Brezkur ballettkenn ari við Jazzballett- skólann. GÞE-Reykjavík, fimmtudag. Hingað til lands er kominn af- ar fær brezkur ballettkennari og listamaður Londsey Kemp að nafni. Hann hefur tekið að sér kennslu í Jazzballettskóla Báru Magnúsdóttur og mun starfa þar a.m.k. í sex mánuði. Er skólanum mikill fengur að þessum lista- manni. Kemp nýtur mjög mikils álits í heimalandi sínu. Hann hefur fengizlt við ýmsar greinar dans listar, en er sérstaklega þekktur sem jazzballettmeistari. Hann hef ur stundað kennslu í ýmsum þekktum ballettskólum í London, og m.a. hefur hann verið aðal- kennari við London Dance Centre. Hann samdi ballettatrið in við kvikmyndina Stop the World I want to get off, og dans aði sjálfur eitt aðalhlutverkið, og víðar hefur hann komið við. Kemp hyggur á ýmsar nýjungar í sambandi við ballettkennslu hér á landi, hann hefur mikinn áhuga á að fá karlmenn til náms í þeirri listgrein, og vill gjaman bjóða þeim fría kennslu, en af rúmlega 300 nemendum í Jazz- ballettskóla Báru Magnúsdótt ur, eru aðeins um 20 piltar. Einn ig hyggst Kemp stofna hér ballett sýningarflokk, sem ferðazt gæti utan til sýninga. Hann segir, að hér séu óþrjótandi verkefni fyr ir sig, og hann vilji gjarnan vera hér lengur en ráðningartímann. Jazzballettskóli Báru Magn úsdóttur tók til starfa í október sl. og hefur aðsóknin verið svo mikil, að hún getur ekki lengur stundað kennslu ein síns liðs. Fyrst til að byrja með munu þau Kemp kenna saman, en siðar meir er ætlunin, að þau skipti með sér nemendum, og Kemp taki þá, sem lengar eru á veg komnir. Kemp er mjög umsetinn listamaður og í næsta mánuði þarf hann að fara til London til að setja upp ballettinn Zodiae fyrir BBC. Þrír fara í heimsókn Þrír fslendingar fara í dag ut- an í tveggja vikna heimsókn til Bretlands í boði brezka utanríkis- ráðuneytisins. Eru það þeir Jón Magnússon fréttastjóri hjá Ríkisút- varpinu, Árni Gunnarsson frétta maður sama stað og Magnús Bjarnfreðsson frá sjónvarpinu. Brian Holt sendiráðsritari verður fararstjóri í þessari för. bókmenntum og gagnrýni lokið, a. m. k. um sinn. Það hefur vakið athygli, að sovézki rithöfundurinn Konstan tin Pautovsky, tilkynnti í kvöld, að hann myndi taka til baka bréf það, sem hann skrifaði verjanda rithöfundanna tveggja. Paustosky, sem er 74 ára og einn virtasti mað urinn i sovézku bókmenntalífi, sagði að hann hefði óskað, að bréf ið hafi aldrei verið skrifað. Sam kvæmt fregnum, sem áður hafa borizt, mun Paustovsky hafa mót- mælt vissum atriðum réttarhald- anna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.