Tíminn - 15.03.1966, Page 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda
Gerizt áskrifendur aB
Tlmanum.
Hringið í síma 12323.
ÞriSjudagur 15. marz 1966 — 50. árg.
Krafa miðsijórnar Framsóknarflokksins:
Þingrof og kosningar
ViS stjórnarborS síðasta fundardag miðstjórnarfundarins. Tailð frá vinstri: Sigurjón Guðmundsson, gjaldkeri flokksins, Helgi Bergs, ritari flokks
ins, Eysteinn Jónsson formaður 'Framsóknarflokksins, Kristján Benediktsson, varagjaldkeri, Jóhannes Elíasson, vararitari, en hann var fundar-
stjóri þessa fundar. í ræðustól er Ólafur Jóhannesson, varformaður flokksins, en hann var framsögumaður stjórnmálanefndar fundarins.
Miðstiórn lýkur aðalfundi
AK—Reykjavík, mánudag
Aðalfundi miðstjórnar. Fram-
sóknarflokksins lauk síðdegis á
sunnudaginn með ávarpi ritara
flokksins, Helga Bergs, og fund-
arslitaræðu formanns, Eysteins
Jónssonar. Fundur hófst á laugar-
daginn kl. 2 síðdegis, en árdegis
höfðu nefndir starfað. Fundar
stjóri var Daníel Ágústínusson.
Fyrst fóru fram kosningar.
Formaður flokksins var endur-
kjörinn Eysteinn Jónsson, og
sömuleiðis ritari, Helgi Bergs, og
gjaldkeri Sigurjón Guðmundsson.
Varaformaður var og endurkjör-
inn Ólafur Jóhannesson, og vara-
ritari Jóhannes Elíasson og vara-
gjaldkeri Kristján Benediktsson.
f framkvæmdastj órn floícksins
voru kjörnir: Einar Ágústsson, Er-
lendur Einarsson, Hermann Jón-
asson, Jóhannes Elíasson, Sveinn
Tryggvason, Tómas Árnason og
Þórarinn Þórarinsson. Og til vara
Steingrímur Hermannsson og Sig-
ríður Thorlacius.
í blaðstjórn Tímans voru kjörn-
ir: Erlendur Einarsson, Eysteinn
Jónsson, Helgi Þorsteinsson, Jó-
| hannes Elíasson, Jón Kjartansson,
Óðinn Rögnvaldsson, Ólafur Jó-
hannesson, Sigríður Thorlacius og
Sigurjón Guðmundsson, og til vara
Jón Skaftason og Steingrímur Her
mannsson.
Hannes Pálsson frá Undirfelli
og Jón Rafn Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri voru kjörnir endur-
TOGARAR LOKA BREIDA-
FIRDI VIÐ LANDHELGISLÍNU
SJ-Reykjavík, mánudag.
Sjómenn og útgerðarmenn 'við
Breiðafjörð eru mjög uggandi
*•. .iinta frá
Faxaflóahöfnum og Vestfjörðum,
og sagði Alexander Stefánsson á
Ólafsvík í viðtali við Tímann í dag,
að skipaumferðinni á firðinum
væri helzt að jafna við umferðina
í Austurstræti. Breiðfirðingar eru
lítt þakklátir útvarpinu fyrir stöð-
ugan fréttaflutning af „góðri“
veiði á Breiðafirðinum, því að tog-
arar, innlendir jafnt sem erlendir,
hreinlega Ioka firðinum við land-
helgislínuna og skapast af þessu
mikið öngþveiti.
Þessi ágangur á Breiðafjarðar-
miðin á ekki sína hliðstæðu. Skip-
stjórar, sem eru ókunnir staðhátt-
um og miðunum, leggja trossur
sínar sem næst Breiðarfjarðarbát-
unum og stór eyðileggja fyrir
þeim. Er vandséð að áliti Breið-
firðinga hvaða gróði er fyrir sunn
anbáta að sækja Breiðarfjarðar-
miðin, þar sem þeir koma í heima-
höfn með hálf ónýtan fisk, 3ja
til 4ra nátta gamlan.
Framhald á 14. síðu.
skoðendur reikninga flokksins, en
endurskoðendur reikninga Tímans
voru kjörnir Björn Kristjánsson,
fyrrverandi kaupfélagsstjóri og
Jón Abraham ðlafsson, lögfræð-
ingur. '
Að kosningum loknum hófust
umræður um tillögur nefndá og
afgreiðslu mála, fyrst tillögur
skipulagsnefndar og fjárhags- og
blaðanefndar. ' Urðu umræður
miklar og kom fram mikill áhugi
á að efla félagsstarf og blaða-
kost flokksins. Voru þeim mönn-
um, sem unnið hafa að félagsmála
starfi flokksins og blaðaútgáfu viðs
vegar um land færðar sérstakar
þakkir.
Fundur hófst á sunnudagsmorg-
uninn kjukkan 10 og var Jóhannes
Eliasson bankastjóri fundarstjóri.
Stóðu umræður um flokksstarfið
fram að hádegi, en eftir hádegið
fóru fram umræður um stjórnmála
viðhorfið og stjórnmálaályktun
miðstjórnarinnar, sem stjórnmála-
nefndin hafði lagt fram tillögu að.
Að þeim loknum var stjórnmála-
álytkun sú, sem birt er á öðrum
stað hér í blaðinu í dag, sam-
þykkt samhljóða, en þar krefst
miðstjórnin þingrofs og nýrra
kosninga.
Að þessu ioknu flutti ritari
Framhald á 14. síðu.
í niðurlagi stiórnmálaáfykt-
unar þeirrar, sem aðalfund-
ur miðstjórnar Framsoknar-
flokksins samþykkti, og birt
er í heild hér á eftir, segir, að
ríkisstjórnin hafi ekki
„haldið heit'sín frá sein-
ustu kosníngum og
hyggst nú fara langt út
fyrir það umboð, sem
telja má, að flokkum
hennar hafi verið gefið,
og veita erlendum aðil-
um heimild til stóriðju í
landinu á háskalegum
ofþenslutímum, og það
með samningi, sem út af
fyrir sig er efnislega mik
ill ágreiningur um.
Ekki má lengur draga
að leggja málin í dóm
þjóðarinnar. Krefst því
miðstjórnin þess, að Al-
þingi verði rofið og efnt
til nýrra kosninga".
Ályktunin er svohljóðandi
í heild-
„Á seinustu árum hafa fslend-
ingar búið við sérstakt og óvenju-
legt góðæri frá náttúrunnar hendi,
þegar á heildina er litið, m.a.
metafla ár eftir ár, hækkandi verð-
lag á útflutningsafurðum og vax-
andi þjóðartekjur. Samt hefur
stjórn ríkisins stefnt málefnum
þjóðarinnar í óefni.
Dýrtíðin hefur magnazt ár frá
ári, kaupmáttur tímakaups er
minni en hann var fyrir nokkrum
árum og framleiðsluatvinnuvegirn
ir eiga við sívaxandi erfiðleika að
etja vegna óðaverðbólgu og
óstjórnar í efnahagsmálum. Aukn-
ing framleiðslukostnaðar hefur
sprengt verðlagskerfi landbúnað-
arins með því að eta upp þær
útflutningsbætur, sem sagt yax að
allan vanda ættu að leysa. Útgerð-
in verður ekki lengur rekin án
uppbóta, ef frá eru talin nokkur
stærstu skipin, sem búið hafa við
áður óþekkt aflabrögð á síldveið-
um. Samkeppnishæfni innlends
iðnaðar hefur razkast svo til
stöðvunar horfir í mörgum grein-
um.
Dýrtíðarþenslan hefur þannig
eyðilagt rekstrargrundvöll atvinnu
greinanna hverrar af annarri, og
nú hyggst ríkisstjómin bæta gráu
ofan á svart með því að leyfa bygg-
ingu erlendrar aluminbræðslu á
því landssvæði, þar sem þenslan
Framhald á 14. síðu.