Tíminn - 15.03.1966, Page 2
ÞRIUJUDAGUR 15. marz 1966
TÍMINN
IIRÐU AD KEPPA A AKUREYRI
Húsfreyjan á Vaðbrekku var f jóra sólarhringa á erfiðu ferðalagi — á
hestbaki, í snjóbíl og í flugvél!
SJ-Reykjavík, mánudag.
f gær var þátturinn „Sýsl-
urnar svara“ tekinn upp á Ak-
ureyri og voru þar mættir til
leiks fulltrúar Þingeyjarsýslu
og Norður-Múlasýslu. í upp-
hafi var ætlunin að taka þátt-
iim npp á Húsavík, en vegna
samgönguerfiðleika fór þetta á
annan veg en í fyrstu var ráð-
gert
Tíminn ræddi í dag við
Guðna Þórðarson, annan stjórn
anda þáttarins og sagði hann,
að aðdragandi þessa þáttar
væri orðinn sögulegur í meira
lagi. í fyrsta lagi var þetta
önnur tilraunin sem gerð er
til að taka þáttinn upp. Fyrst
varð að hætta við upptökuna,
þar sem svo mikil krapaófærð
var fyrir austan að bílar kom-
ust ekki leiðar sinnar. Þá var
ákveðið að taka þáttinn upp á
Húsavík á laugardag, en þá
reyndist flugvöllurinn á . Hús-
vík ófær og snjóbíll Akureyr-
inga í lamasessi. Þá voru Norð-
mýlingar komnir til Akureyr-
ar eftir sögulega ferð að aust-
an, og varð þá að ráði, að
Þingeyingar kæmu á eigin snjó
bíl, sem þeir hafa nýlega eign
azt, til Akureyrar. Lögðu þeir
Framhald á 14. síðu.
Á efstu myndinni er snjóbíllinn, sem Þingeyingarnir komu meS. Hann var átta tíma aS aka úr Mývatns
sveit tii Akureyrar. Á myndinni i mlSIS eru þátttakendurnir frá N-Múlasýslu: Ingibjörg Jónsdóttir hús
freyja á VaSbrekku, Skjöldur Eirfksson skólastjóri aS SkjöldólfsstöSum í Jökuldal og Matthías Eggertsson
SkriSuklaustri. Á neSstu myndinni eru þátttakendur úr Þingeyjarsýslu: Þóroddur Jónasson læknir aS
BreiSumýrl, Þráinn Þórisson, skóiastjóri og GuSmundur Gunnarsson kennari aS Laugum. Myndirnar tók
Haraldur SigurSsson, fréttaritari Tímans á Akureyri.
Tilbúin hús frá
Svíþjóð flutt inn
FB-Reykjavík, mánudag.
Nú er að hefjast innflutningur
tilbúinna húsa frá sænska bygg-
ingafélaginu HSB, en það er lang-
stærsta húsbyggingafélagið á Norð
urlöndum. og er í raun og veru
fjöldasamtök húsbyggjéiida ög'
leigjenda í Svíþjóð, rekið á sam-
Faðir bjargar brnni sínu
með blástursaðferðinni
!HZ-Reykjavík, mánudag.
Á laugardaginn lenti lítill dreng
ur úti í stórum poll skammt frá
Rauðavatni og var hann nærri því
drukknaður. Fyrir snarræði föður
hans tókst að bjarga baminu með
blástursaðferðinni.
Síðdegis á laugardaginn voru
tvö systkin að leika sér í byggða-
hverfi inni við Rauðavatn. Heita
þau Linda Hannesdóttir, 3 ára og
Sigurður Ingvi Hannesson, 2 ára.
Eins og barna er siður léku þau
sér í pollum eða uppistöðulón-
um, sem hafa myndazt þarna.
Skyndilega verður Linda vör við
það, að litli bróðir hennar renn-
ur til í aurnum og beint út í poll.
Reyndi hún að ná til hans en tókst
ekki. Hljóp hún þá heim til sín
sem fætur toguðu og náði í pabba
sinn, Hannes Sigurðsson, sem var
rétt nýkominn heim, og móður
sína lika. Koma þau að barninu
þar sem það var á floti í pollin-
um og sneri andlitið niður. Óð
móðirin, Bergljót Þórðardóttir út
í pollinn, en hann náði henni í
mitti, og fór með drenginn á
þurrt. Þá bar föðurinn að, en
hann hafði verið að leita í poll-
um skammt frá, því ekki mundi
litla stúlkan nákvæmlega í hvaða
poll drengurinn hefði dottið. Fað-
irinn lagði litla drenginn á grúfu
og rann þá slím úr vitum hans.
Hóf hann strax blástursaðferðina
og þegar hann hafði blásið um
20 sinnum bar að konu úr næsta
húsi, sem bauð þeim inn í hlýj-
una á meðan hún hringdi á sjúkra-
bíl.
Á leiðinni reyndi maðurinn enn
að lífga barnið og hélt blásturs-
aðferðinni áfram er inn var kom-
ið. Skyndilega vprður hann var
við lífsmark hjá barninu,, er það
grípur andann á lofti. Áður en
varir er sjúkrabíllinn kominn á
vettvang og gáfu sjúkraliðanir
barninu súrefni og fór þá dreng-
urinn fyrst að anda reglulega.
Það var sannarlega fyrir snarræði
föðurins að barninu var bjargað,
því hann kunni björgunaraðferð-
ina með blástursaðferðinrii en
hana hafði hann lært í Iðnskol-
anum fyrir nokkrum árum hjá
Jóni Oddgeiri Jónssyni.
Sigurður Ingvi er nú á barna-
deild Landspítalans og verður
ekki séð að honum verði meint
af volkinu.
vinnugrundvelli, og allt húsnæði,
sem byggt er á þess vegum er
selt á kostnaðarverðj. Hús þau
sem hingað verða flutt eru flest
af stærðinni frá 90 í 125 fermetra
að flatarmáli ýmist með eða án
Kjállara, óg gért er ráð fyrir að
100 fermetra hús fullbúið kosti
um 900 þúsund krónur.
HSB í Svíþjóð hefur gert allt,
sem í þess valdi hefur staðið til
þess að lækka byggingakostnað og
byggja um leið vándað og hentugt
húsnæði, og þess má geta, að
á síðasta ári nam framleiðsluverð-
mæti félagsins 992 milljónum
sænskra króna eða 828 þúsund
milljónum ísl. króna. ^
BORO sú deild í HSB sem fram
leiðir tilbúin hús hefur nú starf-
að í rúm 40 ár og byggt eða lagt
til efni í meira en 50.000 einbýlis-
hús, og í dag býr í húsum þess-
um mannfjöldi sem svarar til
tveim þriðju hluta allra íslend-
inga. Boro framleiðir margar teg-
undir tilbúinna húsa, einbýlishús,
ráðhús, keðjuhús, sumarbústaði,
barnaheimili, skóla og fleira.
Fyrirtækið S. Óskarssbn og Co
h.f. Garðarstræti 8 hefur nú fengið
einkaumboð fyrir HSB:s Industri-
er Afi, Borohús á íslandi, og var
blaðamönnum kynntur þessi inn-
flutningur í dag. Sæmundur Ósk-
arsson skýrði frá ýmsu í sam-
bandi við þessi tilbúnu hús, sem
nú verður farið að flytja hingað
til lands. Sagðist hann gera ráð
fyrir, að áhugi mann beindist eink
um að innflutningi tilbúinna ein-
býlishúsa, og hefði fyrirtækið því
iagt áherzlu á að fá ýtarlegar upp-
lýsingar um fyrirkomulag, verð og
gæði þessara húsa. Samkvæmt upp
lýsingunum, mætti gera ráð fyrir,
Framhald á b,. 14.
Barnaverndarmál rædd
á fundi lögfræðinga
í kvöld, þriðjudagskvöld heldur
Lögfræðingafélag íslands félags-
fund sinn, sem féll niður í febrú-
ar. Fundurinn verður haldinn í
Tjamarbúð, hefst kl. 20.30. Fund-
arefni verður, eins og skýrt hefur
verið frá, „Barnaverndarmál og
frumvarp til laga um vernd barna ,
og ungmenna." Framsögumenn á
fundinum verða þeir prófessor Ár-
mann Suævarr, háskólarektor og
Ólafur Jónsson, fulltrúi lögreglu-
stjóra.
Lídó ekki lengur
fyrir unglinga
GÞE—Reykjavík mánudag,
Forráðamenn veitingahússins
Lídó liafa nú sótt um vínveitinga-
leyfi fyrir staðinn, og gert er ráð
fyrir því, að Lídó opni sem vín
veitingahús eftir hálfan mánuð.
Er þvj fokið í flest skjól fyrir ung
lingaot., því að fram til þessa hef
ur Lídó verjð svo tjl eini boðlegi
vcitingastaðurinn hér í bæ, þar
sem unglingum 16 ára og eldri
er heimilaður aögangur.
Lído opnaði sem skemmtistaður
eingöngu fyrir unglinga fyrir
hálfu fjórða ári, og var staðurinn
þegar mjög eftirsóttur af ungling
urn, sem áður haföi verið meinað
Framhaid a 14. síðu.