Tíminn - 15.03.1966, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 15 .marz 1966
TÍMIWW
3
— íslendingar eiga nú stærstu farþegaflugvél á Norður-Atlantshafsleiðum
Um fimmleytið á sunnudag
lenti Rolls Royce flugvél Loftleiða,
Bjarni Herjólfsson, sem nú heitir
Þorsteinn Eiríksson, á Keflavík-
urflugvelli, eftir aðra sína jóm-
frúarreisu, en síðan í september
hefur vélin verið í Montreal i
Kanada, þar sem hún hefur ver-
ið lengd Jim 4,63 metra og auk
þess endurbætt á ýmsa lund. Leng
ingin gerir það að verkum, að nú
rúmar vélin 189 farþega og sé
áhöfnin, sem er 11 manns tal-
in með, rúmar hún alls 200 manns.
Nú er svo komið, að íslendingar,
þessi örsmáa þjóð úti á hjara ver-
aldar, eiga stærstu flugvél, í far-
þegaflugi yfir Norður-Atlantshaf.
Þetta hefði heldur betur þótt saga
til næsta bæjar fyrir nokkrum ár-
um. Loftleiðir eiga alls fjórar vél-
ar af gerðinni Rolls Royce, og
tvær þeirra, Leifur Eiríksson og
Vilhjálmur Stefánsson eru um
þessar mundir úti í Montreal, þar
sem þær sæta sömu meðferð. Leif-
ur Eiríksson er fullbúinn og kem-
ur hinigað 24. þ. m. og gert er
ráð fyrir, að Vilhjálmur Stefáns
son verði fullbúinn snemma
í maí. Þá er Guðríð-
ur Þorbjarnardóttir ein eftir, en
að öllum líkindum verður hún tek
in fyrir snemma á vetri komanda.
Vélarnar eru þannig lengdar, að
tveimur gjörðum er skeytt inn í
skrokkinn, annarri framan við
vænginn, en hinni rétt aftan við,
og svo sem fyrr segir nemur leng-
ingin 4.63 metrum, en þrátt fyrir
það virðist munurinn ekki svo
ýkja mikill frá því sem fyrr var
enda voru vélarnar feykistórar fyr
ir lenginguna, svo stórar, að starfs
menn Loftleiða kölluðu þær
Monsa, sem er afbökun úr monst-
ers. ']
Þegar Þorsteinn Eiríksson lenti
á KeflavíkHrflugveÍli á sunnudag
var þar saman kominn múgur og
margmenni til \ að fagna vél og
áhöfn. Um leið og flugstjórinn
Jóhannes Markússon sté út úr vél-
inni færi frú Milla Thorsteinsson
honum blómvönd og óskaði hon-
um til hamingju með velheppn-
aða flugferð. Einnig var saman
kominn á flugvellinum talsverður
slatti af blaðamönnum, en þeim
hafði verið lofað að verða fyrstu
LAUGAVEGI QO-92
Stærsta úrval bifreiða á
einum stað — Salan er
örugg hjá okkur.
%
Frú Milla afhendir Jóhannesei flugstjóra blómvöndinn.
farþegar Þorsteins Eiríkssonar, og
skyldi vera lagt af stað með þá
í stytta kynnisför, jafnskjótt og
áhöfnin hefði fengið sér einhverja
hressingu að lokinni 6 klukku-
stunda ferð yfir Atlantshafið. Að-
ur en lagt var af stað náðum við
stuttu viðtali við Jóhannes
Markússon flugstjóra, sem sagði
að ferðin heim hefði tekizt með
ágætum, og þær litlu breytingar,
sem hann fyndi á vélinni síðan
fyrir stækkunina væru til bóta.
Þegar við spurðum hann, hvort
ekki væri ástæða tjl að óttast að
fljúga með bættri vél, hlo hann
og sagði, að með 100 klukkustunda
reynsluflugi hefði verið sannreynt
að tryggilega væri frá öllu geng-
ið frá verksmiðjunnar hendi. Að
lokinni kaffidrykkju í Hóteli Loft-
leiða á Keflavíkurflugvelli var síð-
an stigið upp í vélina, og þegar
inn kom, sá maður greinilega, að
hún hafði tekið talsverðum stakka
skiptum og var töluvert stærri en
áður. Það var flogið með okkur
í mjög lítilli hæð yfir Reykjanes-
skagann, Reykjavík og næsta ná-
grenni og síðan var ætlunin að
líta eftir Surti, en veðurguðirnir
og skyggnið meinuðu það, svo að
haldið var aftur til Keflavíkurflug-
vallar. Eftir þessa stuttu flugferð
sannfærðumst við um, að þrátt
fyrir lengingu'na var vélin eins og
hver önnur, og ekki var að finna
hinn minnsta mun frá því sem
var fyrir aðgerðina.
Þorsteinn Eiríksson verður ekki
hafður í áætlunarflugi fyrr en 24.
þ.m. eða þar til Leifur Eiríksson
stækkaður er væntanlegur, þar
sem flugmennirnir hér heima eiga
að þjálfa sig á henni til fullnustu,
áður en hún verður tekin til far-
þegaflugs. Hins vegar eru staddir
nokkrir íslenzkir flugmenn úti í
Montreal um þessar mundir til að
æfa sig á Leifi Eiríkssyni, en leng-
ingunni á honum hefur verið lok-
ið. í sumar, þegar umferðin er
sem mest, verða allar fjórar Rolls
Royce vélarnar í notkun, en svo
sem fyrr segir, verður Guðríður
Þorbjarnardóttir ekki tekin til
lengingar fyrr en í haust, þegar
annirnar minnka. Hér er tilfinn-
anlega skortur á flugstjórum, sem
flogið geta Rolls Royce-vélum, og
gert er ráð fyrir því að vandinn
verði leystur þannig, að ráðnir
verði 3 bandarískir flugstjórar.
G. Þ. E.
Farþegar láta fara vel um sig um borð ! VirfkMynl.
Tímamyndlr.
Á VÍÐAVANGI
Græskukveðja Bjarna
Bjarni forsætisráðherra sendi
Aiþýðuflokknum afmæliskveðju
í Reykjavíkurbréfi sínu á
sunnudaginn eins og við mátti
búast, og hefði þess verið að
vænta, að hún væri hjartahlý og
einlæg. Til dæmis um það má
nefna eftirfarandi smápistil úr
bréfinu:
„En um Jón Baidvinsson var
á sínum tíma deilt ekki síður
en þá, sem tóku við af honum.
Sá er þetta ritar minnist þess
til dæmis í bernsku sinni að
hafa verið staddur þar, sem
Jón kom að heimsækja góð-
kunninga sinn. Sá hrá á glens
og sagði við Jón:
— Þér þýðir ekki að koma til
mín, ég á engin bréf.
Þetta var sagt vegna þess,
að Jóni Baldvinssyni var þá
brugðið um, að hann væri að
kaupa upp eignarheimildir á
Aiþýðubrauðgerðinni og sölsa
þar með undir sig yfirráð henn
ari‘.
Ekki fara sögur af því enn,
hve viðeigandi Alþýðuflokks-
mönnum hafi þótt þessi afmælis
kveðja eða minningaþáttur um
hinn látna foringja sinn, en
þeim, sem hvorki eru í fylkingu
þeirra, sem sendu þessa kveðju
eða fengu á afmæiinu sínu,
finnst hún merkilegust heim
ild um innræti sendandans.
Spurningar til
kiósenda
Dagur á Akureyri ávarpar
kjósendur í smápistladálki svo
s. 1. Iaugardag:
„I umræðum um stjórnmálin
koma fram margar spurningar í
hugann, sem krefjast þess, að
hinn almenni kjósandi svari
þeim, hver fyrir sig. Hvers
vegna kaust þú t. d. Sjálfstæðis
menn á þing síðast, eða Alþýðu
fiokksmenn, eru spurningar
sem stuðningsmenn þessara
flokka þurfa að fá svar við, við
eigin athugun mála.
Ertu ánægður?
Ertu ánægður yfir því nú,
þegar sýnt þykir að þorskstofn
inn verður fyrir ofveiði á fs-
landsmiðum, þá er skyldugt
vegna linku núverandi meiri-
hluta, sem skipar Alþingi, að
sækja um leyfi Breta til út-
víkkunar á íslenzkri landhelgi.
Finnst þér ríkissjtórnin bregð
ast fljótt og manndómlega við
ofveiðiréttunum og augljósri
nauðsyn á stækkun landhelginn
ar?
Telur þú það giftu-
samlegt?
Telur þú — eins og sakirnar
standa — giftusamlegt að heim
ila erlendum auðhring fjárfest
ingarathafnir en fyrirmuna
með Iánsfjárhöftum íslenzkri
framleiðslustarfsemi að bæta aö
stöðu sína og afkastagetu?
Hefur þú skap til að þola pað,
að íslcnzk stjórnarvöld semji
um verri kjör við auðhringinn
svissneska en Norðmenn hafa
í skiptum við hann?
Getur þú afsakað það, að ál-
verksmiðjuna á að staðsetja,
þar sem hún verður mest H'
óþurftar fyrir jafnvægi í byggð
landsins?
Geðjast þér vel að því, afl
ríkisstjórnin gefur leyfi silt tfl
Framhald á 14. síðu.
i