Tíminn - 15.03.1966, Page 7
WfcHMBÐ&GCR 15 .marz 1966
ÞíNGFRETTiR
TÍMINN
ÞINGFRETTIR
Framleiðnilán eru atvinnu-
vegunum brýn lyftistöng
Á fundi efri deildar Alþingis í
gær fór fram fyrsta umræða um
frumvarp Framsóknarmanna um
framleiðniiánadeild við Fram-
kvæmdabanka íslands, en flutn-
ingsmenn eru sex þingmenn Fram
soknarflokksins í efri deild, Helgi
Bergs, Karl Kristjánsson, Her-
mann Jónasson, Páll Þorsteinsson,
Ásgeir Bjarnason, Ólafur Jóhann-
esson.
Helgi Bergs fylgdi frumvarpinu
úr hiaSi og lýsti tilgangi þess,
sem væri að stuðla að meiri fram-
leiðni í atvinnuvegum landsins, en
framleáSni er skilgreind sem hlut-
faSið á miBi nettóvinnsluvirðis og
þeirrar vinnu, sem í viðfangsefnið
er Kgð. Framleiðnin er þannig
mælikvarði á þau verðmæti, sem
skapast eftir hverja vmnueiningu.
Helgi minnti á þá staðreynd, að
framleiðsluaukning þjóðarinnar á
síðustu árum ætti ekki rót sína
að rekja nema að nokkru leyti til
framleiðmaukningar og fólksfjölg
unar, heldur kæmu þar til óvenju
leg aflabrögð og að fólk leggur á
sig stóraukna vinnu. Vinnutímann
yrði að stytta, og til þess yrði
að auka framleiðnina, ef tekjur
ættu ekki að minnka. Þá minnti
hann á, að breytingar á tollalög-
gjöfinni hefðu mirmkað tollvernd
ýmiss íslenzks iðnaðar, og enn
væru boðaðar ráðstafnir til þess
að draga úr samkeppnisgetu iðn-
aðarins. Þetta yki mjög nauðsyn
meiri framleiðni. Hann sagði, að
nokkrar ráðstafanir hefðu þegar
verið gerðar í því skyni að auka
framleiðni, svo sem efling iðnlána
sjóðs 1963 og áætlun félagsmálá-
ráðuneytisins um menntun hagræð
ingarsérfræðinga 1964. Þetta væri
góðra gjalda vert, en meira þyrfti
til, og af hálfu iðnrekenda hefði
verið á það bent, að nauðsyn væri
aukinna lána til þess að koma
fyrir þeirri nýskipulagningu, sem
fylgja hlýtur fullkomnari fram-
leiðsluháttum og aukinni vél-
tækni og hagræðingu.
Helgi benti og á, að tæknibylt-
ing fiskveiðanna hjá okkur hefði
raunar aðeins náð til sfldveið-
anna enn, en innleiða yrði nýja
tækni við fleiri veiðar, ef þær
ættu ekki að dragast aftur úr.
Undanfarið hefði hraðfrystihúsun-
um verið veittur styrkur sem
nefndur hafði verið hagræðjngar-
fé, én þó í framkvæmd verið út-
hlutað sem niðurgreiðslu á fisk-
verð. Sum frystihúsin hafa getað
notað þetta fé til hagræðingar, en
önnur ekki, og forsvarsmenn
þeirra telja þörf fyrir lánsfé til
framleiðniaukningar mjög brýnt.
Svipuð sjónarmið væru og í land-
búnaði og öðrum atvinnugreinum,
og í þessum efnum væri þjóðinni
í heild mikill vandi á höndum,
og þörfin hefði enn aukizt stór-
lega við óha'gstæða þróun fram-
leiðsiukostnaðar á síðustu árum.
Mörg önnur rök styddu og nauð-
syn þessa og þarfir.
Helgi vék síðan að efnisgrein-
um' frumvárpsins. Það gerir ráð
fjrrir stofnun sérstakrar lánadeild-
ar er sinni þessu hlutverki, og
í samræmi við tilgang og starf
Framkvæmdabankans væri eðli-
legt að tengja rrana við hann.
Honum hefði upphaflega verið
ætlað að nokkru svipað hlutverk,
en hér væri skýrar kveðið á og
gert ráð fyrir framlögum til lán-
anna. Ríkissjóður skal leggja fram
10 millj. árlega og Seðlabanki ís-
lands tryggja sölu skuldabréfa að
upphæð 40 millj. en ríkið ábyrgð-
ist skuldabréfin. Þá skal Fram-
kvæmdabankinn og leggja deild-
inni til fjórðung tekjuafgangs síns
og heimild er til þess að taka
allt að 300 millj. kr. erlent lón
í þessu skyni.
f frumvarpinu eru og ýmis skil-
yrði, sem lántakandi verður að
uppfylia, og lán úr deildinni má
nema allt að 90% af kostnaði við
framleiðniendurbætur.
Helgi sagði að lokum, að því
væri oft haldið fram, að hagræð-
ingaratriði og skipulagsbreyting-
ar í því skyni væru auðveldár og
gætu gefið mikinn hagnað um-
svifalaust. Þetta væri misskilning-
Ungur maður misþyrmir
og hótar unglingum
GB—Beykjavjk, mánudag.
Maður um tvílugt gerði sig sek
an um misþyrmingar á ungling-
um og líflátshótanir s.l. laugar-
dagskvöld, að því er lögreglan í
Keflavík tjáði biaðinu í kvöld.
Það vdr rétt um miðnættið næst
síðasta, að lögreglunni í Keflavík
var tiikynnt, að maður væri að
misþyrma unglingum í húsi einu
þar í bæ. Er lögreglan kom á stað
inn, var maðurinn á bak og burt
en það hafðist upp á honum
skömmu síðar. Hefur hacin síðan
verið j gæzluvarðhaldi.
í húsi þessu var ung stúlka að
sitja víir börnum, og komu í heim
sókn til hennar tveir piltar, 15 og
16 ára. og stúlka á líku reki. Eru
þau öll úr Reykjavík og Kópa-
vogi. Voru þau þarna öll, er mað-
ur, sem raunar er leigjandi í
þessu sama húsi, 22 ára gamall,
kemur til þeirra og biður um að
fá að hringja i síma. Fór hann
þegar að beita piltana ofbeldi,
barði þá högg meg símaheyrnar-
tólinu, misþyrmdi þeim á annan
hátt, tók upp hníf og otaði að
þeim. Skipaði hann þeim að að-
hafast eitt og annað, svo sem að
drekka vín, hótaði að drepa þá
ella, og þorðu þeir ekki annað en
hlýða skipunum hans. Loks tókst
öðrum piltinum að komast út og
gerði hann lögreglunni viðvart.
Voru piltarnir mjög miður sín
er lögreglan hitti þá, virtust hafa
fengið taugaáfali og voru með á-
verka í andliti.
Lögieglan kannast við mann
þann, er hér var að verki, telur
hann tæpast hafa þroska á við
aldur sinn, og virðist hann eink-
um missa allt vald á sér, er hann
bragði vín. Hann kveðst ekki
muna, hvað hafi gerzt þama í
húsinu, eftir að hann kom þangað
inn ~f, unglinganna. Tekur lögregl
an fram, að hann hafi ekki framið
kynfer'öisafbrot.
ur. Þessar aðgerðir væru oft mjög
dýrar, svo sem rannsóknir og
truflanir á rekstri, svo að fram-
leiðsla minnkaði jafnvel um skeið
meðan breytingin og ný aðlögun
stæði yfir, þö að þetta gæti marg-
borgað sig þegar frá liði. Þess
vegna væri nauðsyn á aðstoð og
lánum í þessu skyni, svo að þetta
tefðist ekki um of. Helgi sagði,
að frumvarp svipað þessu hefði
verið lagt fram 1964 af nokkrum
öðrum þingmönnum í deildinni,
en það hefði ekki fengið af-
greiðslu. Kvaðst Helgi leggja til,
að málinu yrði nú visað til fjár-
hagsnefndar og treysta því, að
það fengi þar fljóta og jákvæða
afgreiðslu, en það yrði síðan tek-
ið á dagskrá deildarinnar að nýju
og afgreitt. Kvaðst Helgi vilja
minna á, að stjórnarandstæðingar
væru oftast reiðubúnir til þess að
hliðra til og flýta afgreiðslu mála,
þegar stjórnin legði kapp á hraða
Á ÞINGPALLI
Á fundi neðri deildar Alþingis í gær, sem var mjög stuttur, var
aðeins afgreitt eitt mál til nefndar. Skúli Guðmundssyon og Halldór
E. Sigurðsson gerðu nokkrar athugasemdir við frumvarpið, frumvarp
ríkisstjórnarinnar um lax- og silungsveiði. Frumrvarp um ferðamál og
frumvarpið um loðdýrarækt voru tekin af dagskrá en eru á dagskrá
í dag ásamt nýkomnu stjórnarfrumvarpi uim alþjóðasamþykkt um
vamir gegn óhreinkun sjávarins og frumvarpi um sveitarstjórnarkosn-
ingar.
Fundur efri deildar varð nokfcru lengri í gær. Þar var fyrst á dag-
skrá frumvarp rtm atvinnuleysistyggingar, önnur umræða ÞorvaWur
Garðar Kristjánsson hafði framsögu nm nefndarálit heilbrigðis- og
félagsmálanefndar, sem lagði til að frumvarpið yrði í heild samiþyfckt
með nokkrum breytingum, sem Eggert Þorsteinsson félagsmálaráð-
herra taldi til hóta. Alfreð Gíslason tók einnig til máls.
Þá hafði Jón Þorsteinsson framsögu fyrir nefndaráliti um vélstjóra
nám og var því máli vísað til þriðju umræðu. Loks var fyrsta um-
ræða um frumvarp Framsóknarmanna um framleiðnideild við Frarn-
kvæmdabanka fslands, en frá ræðu fyrsta flutningsmanns, Helga
Bergs er sagt á öðrum stað í blaðinu.
Á dagskrá efri deildar í dag er frumvarp um lánasjóð sveitarfélaga,
frumvarp um sölu á hluta úr landi Vorsabæjar fyrsta umræða mn
frumvarp Framsóknarmanna um bústofnslánasjóð og frumvarp um
fuglaveiðar og fuglafriðun.
afgreiðslu, og væri ekki nema
nanngjamt að ætlast til svipaðrar
tijiliðrunarsemi af hendi stjórnar-
flokkanna við þau mál, sem minni
hlutinn teldi nokkru varða að
fengju þinglega afgreiðslu án mik-
illa tafa.
VILJA LATA FRESTA AF-
GREIÐSLU SKÓGRÆKTARLAGA
IIZ-Reykjavík, mánudag.
Fundur var í Búnaðarþingi í
dag og lielzta mál þar á dagskrá
var Bjargráðasjóður. Var hann til
fyrri umræðu en seinni umræða
mun fara fram á morgun. Að lokn
um fundi í dag voru þingfulltrú-
ar boðnir í síðdegiskaffi til Er-
lends Einarssonar forstjóra Sam-
bands ísl. samvinnufélaga. Á laug-
ardaginn voru noklcur mál af-
greidd frá Búnaðarþingi og verð-
ur hér greint frá nokkrum þeirra
ályktana.
Búnaðarþing felur stjórn Bún-
aðarfélags íslands að Iáta semja
frumvarp til laga um breytingu
á jarðræktarlögum, þar sem tek-
ið sé upp meginefni frv. til laga
um viðauka við skógræktarlög,
sem landbúnaðarnefnd Neðri deild
ar Alþingis hefur sent Búnaðar-
þingi til umsagnar. Jafnfram skor
ar Búnaðarþing á Alþingi að
fresta afgreiðslu á málinu, unz
tóm hefur gefizt til að semja um-
rætt frumvarp.
Fyrir Búnaðarþingi 1965 lá er-
indi frá Búnaðarsambandi Suður-
lands um verzlunarmiðstöð með
hey. Erindi sama aðila, sem nú
liggur fyrir, er efnislega um sama
mál. Upplýst er nú í skýrslu bún-
aðarmálastjóra til Búnaðarþings,
að nefnd hefur verið skipuð í mál-
ið, og er hún enn starfandi. f
trausti þess, að nefndin hraði
störfum og skili áliti og tillögum,
sér þingið ekki ástæðu til frekari
aðgerða að svo komnu máli.
Búnaðarþing ályktar að fela
stjórn Búnaðarfélags íslands að
vinna að þvi við Rannsóknarstofn
un landbúnaðarins, að þegar verði
hafnar flokkatilraunir á mjólkur-
kúm til að fá úr því skorið, hversu
mikið eggjahvítumagn sé hag-
hagkvæmt að hafa í kjarnfóðri svo
og um það, hver áhrif verulegt
magn grasmjöls í fóðurblöndu
kunni að hafa á þrif og afurða-
magn gripanna. Ennfremur hvaða
þýðingu þvagefni kynni að hafa
í fóðri hámjólka kúa.
Búnaðarþing ítrekar enn á ný
fyrri ályktanir sínar um nauðsyn
þess að lokið verði rafvæðingu
alls landsins. Þá undirstrikar þing
ið réttmæti þess að raforkuverð
verði hið sama um land allt og
skorar á Alþingi að setja lög um
það efni, og markmiðinu verði náð
fyrir 1970.
rulofunar
RINGI R/^
'ÁMTMANNSSTIG 2 Áyf-
Ítr/'A
Halldór Krisfinsson
gullsmiður — Sími 16379.
JÓN EYSTEINSSON,
lögfræSingur
Simí 21516.
LögfræSískrifsfofa
Laugavegi 11.
ÞORSTEINN JÚLÍUSSON
héraðsdómslögmaSur,
Laugavegi 22
(inng. Klapparst.)
Sfmi 14045.
* BILLINN
Rent an loeoar