Tíminn - 15.03.1966, Qupperneq 13
ÍÞRÓTTIR
ÞRIBJUDAGUR 15 .marz 1966
IÞROTTIR
TÍMINN
13
•Heimsmethæðin mæld nákvæmlega út. Jón Þ. Olafsson er til vinstri
(Tímamynd Bjarnieifur)
Leikmenn Manchester
fengu hlýjar móttök-
ur í II
— nema hjá Chelsea, sem sigraði þá 2:0
Hsím,—mánudag.
Fyrsti deildarleikur ensku meist
aranna, Manch. Utd., eftir hinn
rnikla sigurleik í Lissabon var
gegn Chelsea í Lundúnum á laug-
ardaginn og aldrei hefur nokkurt
(jnskt lið fengið aðrar eins mót-
tökur á útivelli. Löngu áður en
léikurinn hófst höfðu 60 þúsund
manns troðið sér inn á völlinn
— en þá, varð að loka hiiðunum
og um tuttugu þúsund manns biðu
í frjálsíþróttum innanhúss:
fyrir utan. Alls staðar mátti sjá
félagsliti Manchester iiðsins
rautt og hvítt — og þegar liðið
kom inn á völlinn ætlaði fagnað-
arlátunum aldrei að linna.
Og síðan hófst leikurinn og hin-
ir ungu Chelsea-leikmenn voru
ekki uppnæmir fyrir látum áhorf-
enda. Þeir hófu leikinn og geyst-
ust að markinu, Tambling fékk
knöttinn í vítateig og sendi hann
rakleiðis í mark. Harry Grergg varð
því að hirða knöttinn úr netinu
eftir aðeins 30 sekúndur. Og eftir
fjórar mínúturí lá knötturinn aftur
í markinu. Graham skoraði. Fleiri
Fiamhald á bls. 12
Valbjörn setti met í stangarstökki
— og Jón Þ. átti góðar tilraunir við heimsmetið í hástökki án atrennu.
Unglingameist
aramót á skíðum
háð á Akureyri
Aíf-Reykjavík, mánudag. ,
Valbjörn Þorláksson, KR, seíti
nýtt íslandsmet í stangarstökki
innanhúss) á Meistaramótinu í
frjálsíþróttum, sem háð var í KR-
húsinu um helgina. Stökk Valbjörn
4.37 metra, sem er einum senti-
metra betra en fyrra metið, sem
hann átti sjálfur. Valbjörn flaug
yfír 4,37 metra og mátti vara sig
á að reka sig ekki undir loft í
KR-liúsinu, sem varla gefur mögu-
leika á þvi að stökkva mikið hærra
en 4,40—4,50 metra. Og þegar
Valbjöm hafði sett metið var
hann spurður um hve mikið ætti
að hækka fyrir næstu tilraun. Svar
ið gat ekki orðið nema á einn
veg: „Hækkið eins og þið getið."
En Valbjörn náði ekki að
stökkva hærra en 4.37 metra að
þessu sinni, en ólíklegt er annað
en þetta nýja met fjúki bráðlega.
Eins og kunnugt er, þá er íslands-
met Valbjarnar utanhúss 4,50
metrar, sett 1961.
Nokkuð margir áhorfendur —
á mælikvarða ísl. frjálsíþróttamóta
— fylgdust með keppninni í KR-
húsinu um helgina, og urðu þeir
vitni að skemmtilegri keppni. Gam
an var að fylgjast með viðureign
Jóns Þ. Ólafssonar í Í.R. við hehns-
metið í hástökki án atrennu. Eftir
að Jón hafði stokkið 1,71 metra
léttilega, lét hann hækka í 1,77
metra — sama hæð og heimsmet-
ið er — og átti þrjár góðar til-
Valbjörn Þorláksson
raunir við hæðina, en felldi í öll
skiptin. Að sögn hefur Jón átt enn
þá betri tilraunir við heimsmetið,
svo ekki þarf að koma neinum
á óvart þótt Jón verði ofan á í
glímunni við það innan tíðar. Úr
því að Jón Þ. Ólafsson er á dag-
skrá, er ekki úr vegi að minnast
á þann ósið hans að íklæ’ast
rauði keppnispeysu merktri „Uni
versity of Mexico.“ Það getur ver
ið gott og gilt ,að vera svona
„merktur" á æfingum, en er alls
ekki viðeigandi á opinberum mót-
um, allra sízt meistaramótum.
í langstökki án atrennu sigraði
Jón Þ., stökk 3,30 metra, og í
þrístöikki án atrennu sigraði hann
sömuleiðis, en fékk meiri keppni
en í fyrri greininni. í fyrstu um-
ferð stökk Jón 9,50 metra, en
fékk fljótlega keppni frá þeim
Úlfari Teitssyni, KR, og Guð-
mundi Jónssyni, HSK. Stökk
Úlfar 9,48, en Guðmundur 9,61
og var það í fjórðu tilraun. Með
því hafði Guðmundur forustu. í
síðustu tilraununum náði Jón sér
betur á strik og stökk 9,77 og
9,82. Franvmistaða Guðmundar í
þessari grein vakti athygli og
verður gaman að fylgjast með þess
um unga manni.
f hástökki með atrennu var
Jón Þ. hinn öruggi sigurvegari,
stökk 2,06 metra. Kjartan Guðjóns
son varð annar, stökk 1,85 metra.
Þetta var fjórða greinin, sem Jón
sigraði í, en hann tók þátt í fimm,
og verður ekki annað sagt en
frammistaða hans í mótinu hafi
verið góð.
Árangurinn í kúluvarpi var
frekar slakur. Guðmundur Her-
mannsson hafði yfirburði, varpaði
15,27 metra, en Kjartan Guðjon-
son var annar. 13,70 metra.
Hér koma úrslit í einstökum
sreinum:
Stangarstökk:
Valbjöm Þorláksson KR 4,37 m
(fsl. metj
Páll Eiríksson, KR 3,85 m
Ólafur Guðmundss., KR 3,30 m
Magnús Jakobss., Breiðab. 3,30 m
Langstökk án atrennu:
Jón Þ. Ólafsson, ÍR 3,30m
Ólafur Ottósson, ÍR 3,20 m Skúli Hróbjartsson, HSK 1,60 m Unglingameistaramót fslands
Guðmundur Jónsson, HSK 3,16 m Erlendur Valdimarsson, ÍR 1,60 m á skíðum 1966 fer fram í HHðar-
Þrístökk án atrennu:
Jón Þ. Ólafsson, ÍR 9,82 m
GuðmtindUr Jónsson, HSK 961 m
Úlfar Teitsson, KR 9,48 m
Hástökk með atrennu:
Jón Þ. Ólafsson, ÍR 2,06 m
Kjartan Guðjónsson, ÍR 1,85 m
Xngim. Ingimundars., HSS 1,75 m
Þrír fyrstu í kúluvarpinu: Frá vinstri Kjartan, Guðmundur, sigurvegari
og Erlendur.
Kúluvarp:
Guðm. Hermannss., KR 15,27 m
Kjartan Guðjónss., ÍR 13,70 m
Erlendur Valdimarss., ÍR 13,23 m
Þriðjudaginn 15. marz n.k. hefst
námskeið fyrir byrjendur í judo
og sjálfsvörn. Kennari verður Al-
ex Fraser 2. dan judo.
Þetta er í fyrsta skipti hér á
landi, að hátt gráðaður judokenn
ari tekur að sér að kenna á byrj-
endanámskeiði, en judo á nú ört
vaxandi vinsældum að fagna hér
á landi sem annars staðar, og er
ekki vafi á, að íslandingar eiga
Bergþór Halldórsson, HSK 1,75 m
Erlendur Valdimarsson, ÍR 1,75 m
Valbjörn Þorláksson, ÍR 1,75 m
Þá var keppt í aukagrein á mót-
inu, í kúluvarpi drengja. Páll Dag-
bjartsson, HSÞ, varð drengjameist-
ari, varpaði kúlunni 16,64 metra.
eftir að ná góðum árangri með
bættum aðbúnaði til iðkunar judo
og tilsögn góðra kennara, sem er
mest um vert. Allir geta æft judo
sér til gagns og ánægju, góður
árangur er alls ekki alltaf kom-
inn undir miklum kröftum.
Æfingar fara fram að Langa-
gerði 1 (húsi K.F.U.M.) á þriðju
dögum og fimmtudögum kl. 8 s.d
Innritun á staðnum.
(Judokan)
j f jalli við Akureyri dagana 26. og
j 27. marz n.k.
Keppt verður íeftirtöldum
greinum:
7.5 km. skíðagöngu pilta 14—16
ára. Skíðastökk 14—16 ára. Nor-
ræn tvíkeppni 14—16 ára. Svig
pilta 12—15 ára. Stórsvig pilta 12
—15 ára. Alpatvíkeppni pilta 12—
15 ára. Svig stúlkna 12—14 ara.
Stórsvig stúlkna 12—14 ára. Alpa-
tyíkeppni stúlkna 12—14 ára.
Aldur miðast við síðastliðin ára-
mót.
Dagskrá mótsins hefur verið
ákveðin sem hér segir. Laugardag-
ur 26. marz:
Kl. 14.00 Stórsvig pilta 12—15
ára og stúlkna 12—14 ára.
Kl. 16.00 7.5 km. skíðaganga
pilta 14—16 ára.
Sunnudagur 27. marz:
Kl. 13.00 Svig stúlkna 12—14
ára.
Kl. 14.00 Svig pilta 12—15 ára.
Kl. 15.30 Skíðastökk 14—16 ára.
Þátttökutilkýnningar ásamt þátt
tökugjaldi, sem er kr. 20.00 fyrir
hvern keppanda í hverri grein.
skulu send mótstjórn, c/o Guð-
•mundur Tulinius, Hafnarstr. 18
Akureyri.
Þróttur og
ÍR sigruðu
Tveir leikir í 2. deildar
keppninni í handknattleik
voru háðir s. 1. laugardags
kvöld. f fyrri leiknum léku
ÍR og Keflavík og áttu ÍR-
ingar í miklum vandræðum
með Suðurnesjamennina.
Svo fóru leikar, að ÍR sigr
aði með cins marks mun,
25:24. Með því hefur ÍR
tekið forustu i mótinu, hlot
íð 10 stig, en Víkingur og
Þróttur eru með 8 stig og
einum leik færra.
í síðari leiknum sigraði
Þróttur Akurnesinga nokk-
uð örugglega með 33:24.
Hástökk án atrennu:
Jón Þ. Ólafsson, ÍR 1,71 m
Námskeið fyrir byrjend
ur í júdó hefst í kvöld