Tíminn - 15.03.1966, Qupperneq 14
ÞRIÐJUDAGUR 15. marz 1966
14_____________TÍMINN_
Stjórnmálaályktun
aðalf. miðstjórnar
Framhald af bls. 1.
er mest og vinnuaflsskorturinn til
finnanlegastur. Hefur þó jafnvæg-
isleysi í byggð landsins farið ört
vaxandi.
Óðaverðbólgan speglast einnig
í fjásmálum ríkisins. Þrátt fyrir
samdrátt opinberra framkvæmda
og þyngstu skattabyrðar, sem hér
hafa þeikkzt, hefur meira að segja
orðíð greiðsluhalli í ríkissjóði.
Afleiðingar þessarar óheilla-
stefnu blasa við í öllufn áttum,
m.a. í skólamálum, samgöngumál-
um, raforkumálum og sjúkrahús-
málum. f þéttbýlinu eru skólarn-
ir þannig tví- og þrísetnir, og í
dreifbýlinu er allt of víða skortur
á skólahúsnæði. í vegamálum drög
umst við þeim mun lengra aftur
úr sem umferðaþörfin vex. Strand
ferðamálin eru beinlínis vanrækt
af ríkisvaldinu. Engin áætlun ligg-
ur fyrir um áframhaldandi rafvæð-
ingu dreifbýlisins. Ríkisstjórnin
hefur gefizt upp við eðlilegar og
sjálfsagðar virkjunarframkvæmdir
án þess að þær séu tengdar er-
lendum atvinnurekstri. Sjúkrahús,
Ihálfbyggð standa árum saman og
sjúkrahússkorturinn verður til-
finnanlegri með ári hverju.
í góðærinu hafa mörg og mik-
ilvæg tækifæri til myndarlegra
átaka í framkvæmdamálum þjóð-
arinnar verið látin fara njá garði
en framkvæmdaaflið verið notað
um' of í þágu handahófskenndra
verðbólguframkvæmda. Ráðstafan
ir í peningamálum hafa orðið til
þess að draga ■ úr eða jafnvel
hindra framkvæmdir einstaklinga
og fyrirtækja, sem þarfasta at-
vinnureksturinn hafa með hönd-
um. Er enn ráðgert að herða á
þessum höftum til þess að rýma
fyrir erlendum stórframkvæmd-
um, sem ríkisstjórnin beitir sér
fyrir í stað þess að styðja skipu-
lega innlent framtak og atvinnu-
rekstur. Ber þetta vitni um háska-
lega vantrú valdhafanna á höfuð-
atvinnuvegum þjóðarinnar.
Á sviði þjóðernis- og menning-
armála er sama forystuleysið og
í efnahagsmálum. Afleiðingin er
upplausn og rótleysi á æ fleiri
sviðum þjóðlífsins. fstöðuleysi
Auglýsið í Tímanum
gagnvart erlendum öflum veldur
vaxandi áhyggjum. Samskipti við
aðrar þjóðir, sem eðlilega verða
æ meiri og mikilvægari þurfa að
mótast af einurð og festu og réttu
mati á þjóðlegum verðmætum.
Öllum má ljóst vera, eins og n,ú
er komið, að ríkisstjórnin ræður
alls ekki við verkefni jsín, en læt-
ur reka á reiða eða grípur til
ósamstæðra skyndiráða, sem gera
vont verra strax og frá líður.
Miðstjórn Framsóknarflokksins
vill brýna fyrir þjóðinni nauðsyn
þess að hér verði gagnger breyt-
ing á. Ábyrg öfl verða að taka
höndum saman til að knýja fram
breytta stefnu og víðtæka sam-
stöðu um nýja forystu. Baráttuna
gegn óðaverðbólgu verður að hefja
af fullri einurð. Beita verður fram
kvæmdaaflinu skipulega m.a. með
því að raða verkefnunum eftir
gildi þeirra og nauðsyn og taka
upp á ný öflugan stuðning við
atvinnulíf þjóðarinnar og framtak
landsmaiwa. Stjórnarvöldin verða
að tilemka sér kerfisbundin og
samræmd vinnubrögð og marka
skýra stefnu í atvinnu- og menn-
ingarmálum.
URÐU AÐ KEPPA
Framhald aí b)s. 2.
af stað kl. 8 á sunnudagsmorg-
un og voru komnir til Akur-
eyrar kl. 4 um daginn. Þáttur-
inn var síðan tek’inn upp á
Hótel KEA, en úrslit má Tím-
inn að sjálfsögðu ekki birta.
Eins og getið er hér að fram-
an var ferð Norðmýlinga sögu-
leg. Ingibjörg Jónsdóttir hús-
freyja á Vaðlabrekku lagði af
stað í ferðina á þriðjudaginn.
Hún fór ríðandi í mikill ófærð
og eftir tveggja daga ferð kom
hún að Skjöldólfsstöðum í Jök-
uldal. Þaðan fór hún í snjólbíl
ásamt Skildi Einarssyni, skóla-
stjóra í 14 tíma ferð til Égils-
staða, en þangað komu þau kl.
4 á föstudagsmorgun og sama
dag flugu þau ásamt Matthíasi
Eggertssyni á Skriðuklaustri til
Akureyrar!
Með þessum þætti lauk 2.
umferð í „Sýslurnar svara.“ f
þriðju umferð eigast við Barð-
strendingar, Árnesingar, Borg-
firðingar og sigurvegaramir
frá Akureyri, þannig að eftir
er að taka upp þrjá þætti og
útvarpa fjórum.
Samkvæmt frainansögðu hefur
ríkisstjórnin eklci haldið heit sín
frá seinustu kosningum og hyggst
nú fara langt út fyrir það umboð,
sem telja má að flokkum hennar
hafi þá verið gefið, og veita er-
lendum aðilum heimild til stór-
iðju í landinu á háskalegum of-
þenslutímum og það með samn-
ingi, sem út af fyrir sig er efnis-
lega mikill ágreiningur um.
Ekki má lengur draga að leggja
málin í dóm þjóðarinnar. Krefst
því miðstjórnin þess, að Alþingi
verði rofið og efnt til nýrra kosn-
inga.“
LÍDO
Framhald af bls. 2
ur aðgangur að veitjngahúsum
borgarinnar. Frá fyrstu tíð hefur
Lídó þótt einkar smekklegur stað
ur og mjög strangt eftirlit hefur
verið haft með því, að unglingar
hefðu ekki vín meðferðis á stað
inn. Þrð er alkunna, að unglingar
á aldrinum 18 ára og eldri hafa
mjög sótt inn á vínveitingahús
borgarinnar, en þeir, sem sótt
hafa Lídó, eru talsvert yngri og
mikil brögð hafa þótt að því, að
börn innan 16 ára aldurs hafi
komizt inn. Slíkt varð ekki fyrir-
byggt fyrr en nafnskírteina-
skyldan kom til skjalanna á síð-
astliðnu hausti og við tilkomu
hennar varð mikill fjöldi þeirra
unglinga, sem áður höfðu sótt
Lídó gerður afturreka, enda þótt
suma vantaði aðeins einn til tvo
mánuð; til að hafa náð tilskyldum
aldri. Forráðamenn staðarins fóru
fram ú það, að 15 ára gamlir ung
íingar fengju aðgang að staðnum
en fengu afdráttarlausa synjun.
Sjá þeir nú ekki fram á að geta
rekið staðinn lengur stórhalla-
laust á sama hátt, og hafa því
gripið til þess ráðs að breyta hon
um í vínveitingastað, og kemur
það væntanlega til framkvæmda
helgina eftir Pressuballfð, en svo
sem kunnugt er, verður Pressu
ballið í Lídó og hafa forráðamenn
kjostað hundruðum þúsunda til að
gera staðinn sem glæsilegastan
fyrir þann fagnað.
INNBROT
Framliald af 16 siðu.
sem hann staldraði við, því
að þrír armstólar lágu
hrotnir, borði hafði verið
velt um koll, blómapottar
orotnir og smádót út um
cllt í stofunni.
Frúin sagði lögreglunni,
að maðurinn hefði hlaupið
út í bifreið rétt áður en
hún kom, og ekið á brott.
Ekki var lögreglan búin að
bafa upp á árásarmannin-
um í kvöld, en taldi ekki
iangt að bíða þar til hann
vrði klófestur.
--------------, ......
TILBUIN HÚS
Framhald af bls. 2.
að nú yrði hægt að fá einbýlis-
hús fyrir mun lægra verð en sarm
svarandi hús kosta nú hér, og
jafnvel fyrir lægra verð en íbúð-
ir í blokkum kosta. Er þá miðað
við að tollur verði lækkaður eins
og ríkisstjórnin hefur lofað. Nú
er tollur á húshlutum, sem þess-
um ,60% en Sæmundur hefur
reikn^ð með 35% tolli í verði því,
sem hann gaf blaðamönnum upp
á húsunum.
Um margar tegundir einbýlis-
húsa er að velja. Sem dæmi um
verð má nefna að einbýlishús 100
99
ferm. með fjórum herbergjum og
eldhúsi á einni hæð mundi kosta
ca 460 þús. ísl. krónur (miðað við
35% toll) hingað komið. Innifali
í því verði er m.a. máluð eldhús-
imnrétting með stálvaski og stór-
um fjögurra dyra kæli- og ísskáp.
Skápar eru á göngum og í svefn-
herbergjum, harðviðarhurðir, park
etgólf á setustofu, þurkklefi er fyr
ir þvott með blásara o. m. fl.
Áætlun hefur verið gerð um
kostnað við að fullgera framan-
greint hús til íbúðar hér, og er
þá miðað við, að öll vinna sé að-
keypt, enda þótt húsin séu þannig
gerð, að menn eigi sjálfir að geta
unnið mikið við að koma þeim
upp. Kemur í ljós, að með gatna-
gerðargjaldi (ca. 140 þús. kr.) og
ríflega áætlauðum kostnaði við
grunn, lagnir og annan frágang
kostai húsið um 900 þúsund. Með
því að sleppa ýmsum aukahlutum,
sem eru innifaldir í verðinu er
hægt að fá húsin mun ódýrari.
HSB hefur mikinn hug á að
verða við óskum íslenzkra hús-
byggjenda um ýms gæða- og fyr-
irkomulagsatriði, sem hér tíðkast.
Er unnið að því hjá HSB að teikna
hús, sem sérstaklega eru miðið við
íslenzka staðhætti og þann smekk,
sem hér ræður ríkjum. Vegna
fj ölbreyttra framleiðslumöguleika
HSB er tiltölulega auðvelt að
laga framleiðsluna eftir óskum al-
mennings hér svo og þeirra, sem
breyta .vilja einstökum atriðum.
Sæmundur Óskarsson hefur fengið
líkön af einbýlishúsum og eru þau
til sýnis, ásamt myndum og fleiri
gögnum í sýningarglugga Málar-
ans þessa viku. Söluumboð fyrir
húsin á Akureyri hefur Sigtrygg-
ur Stefánsson byggingaiðnfræðing
ur.
FYRIRHEIT
Framhald af 16. síðu
vilja sambandsins. Loftleiðir
senda bréf, þar sem tilkynnt var
ag féiagig gæfi ASÍ tvö ókeypis
flugfór, hvort sem er til Evrópu
eða Ameríku, og vörubílstjórafé-
lagið Þróttur gaf silfurhníf. Þá
gáfu nokkur sambandsfélög fjöl
rjtara
Auk hejllaskeyta barst samband
inu m'kill fjöld blóma. Um kvöld
ið fóru tniðstjórnarmenn ASf í
veizlu ; ráðherrabústaðnum.
Á VÍÐAVANGl
endurbyggingar á herstöð í
Hvalfirði?
Er þér Ijóst, að gengi is-
lenzku krónunnar gagnvaTt
erlendri mynt skekkist meira
og meira með dýrtíðarvextinum,
og gengisfellingarskráning fær
ist óðfluga nær?
SMYGL
Framhaid af 16 síðu.
Hafði verið steypt yfir niðurgang
inn niður í tómarúmið og að því
búnu lagðar strámottur yfir og
loks hellt grút yfir allt saman til
að hylja staðinn enn betur. Unn
steinn Beck tollgæzlustjóri hefur
sent sakadómara málið til með-
ferðar. í ljós hefur komið að eig
endurnir að smyglvarningnum eru
fleiri en einn.
Rangá kom í gær frá Hollandi,
Þýzkalandi og Bretlandi og var
gerð mikil leit í því. Fannst sem
fyrr segir 34 kassar'af áfengi og
55 þús vindlingar, allt á sama
stað. Sá staður var neyzluvatns-
geymir aftast í skipinu. Hafði mæl
irinn verið stilltur þannig að
hann sýndi að þó nokkuð vatn væri
í geyminum. Ekki létu tollverðirn
ir blekkjast af svo einföldu viðvan
ingstiltæki. Málið verður á morg
un sent sakadómara til rannsókn
ar ,
Gróflega reiknað mun verð-
mæti þessa smyglvarnings vera
um 800 þúsund krónur miðað við
búðarverð á íslandi.
Nokkuð hefur borið á smygli að
undanförnu en ekki í eins stór
um stíl og hér er um að ræða.
Öllum þeim sem sýndu mér og mínum vináttu og samóð við lát og
jarðarför konu minnar
Sigurlínar SigurSardóttur
Reynihvammi 2, Hafnarfirði, þakka ég hjartanlega.
Jón Vigfússon.
Innilegar þakklr færum við öllum er sýndu okkur samúð og Hlýhug
vtð fráfall mannslns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
Einars Jónssonar
frá Neðri-Hundadal Dalasýslu
Lára Lýðsdóttlr, börn
tengdabörn og barnabörn.
Jarðarför
Gísla Biörnssonar
frá Skiðastöðum í Lýtingsstaðahreppi,
sem andaðist 3. þ. m. fór fram 10. þ. m. í kyrrþey, eins og hann
hafði óskað.
Vandamenn.
MIÐSTÓRN
Framhald af bls. 1.
Framsóknarflokksins Helgi Bergs
alþingismaður snjallt hvatningar-
ávarp, þar sem hann hvatti flokks-
menn til ötullar baráttu í átök-
um þeim, sem fram undan eru.
Að síðustu sleit formaður flokks
ins, Eysteinn Jónsson fundinum
með ræðu. Þakkaði hann mið-
stjórnarmönnum fundarsóknina og
fundarstörfin, nefndum mikil og
góð störf og tillögur og fundar-
mönnum miklar umræður og þátt
í afgreiðslu mála. Óskaði hann
fundarmönnum síðan góðrar heim
ferðar og sleit fundi..
STRANDSIGLING
Framhald af 16. síðu.
Setti hann á fullt aftur á bak, en
ekkeri gerðist, og sat báíturinn
fastur. Þá reyndi hann ag kalla
uþp í íalstöðinni, en það bar eng
an árangur heldur. Lagðist hann
þá tii svefns og vaknaði ekki fyrr
en um níu-leytið næsta morgun —
en þá hafði bátinn rekið upp í
stórgrvtta fjöruna á Geldinganes-
inu.
Revndi hann að stökkva í land
en varö fótaskortur og rann í sjó
inn. Vig illan leik skreiddist hann
á land og haltraði yfir í Gufunes.
Þar gerði hann grein fyrir ferð
um sínum og þangað sótti lögregl
an haíin. Hún fór fyrst með hann
á Slysavarðstofuna, því eitthvað
hafði hann skadaazt á fæti, en
við rannsókn kom í Ijós, að hann
var ekki brotinn. Við yfirheyrsl-
una vjðurkenndi hann þetta sem
satt og rétt, og í dag var hahfimi
sjódómur í málinu.
Báturinn er talinn mikið
skemmdur, og óvíst er, hvort
unnt verði að bjarga honum.
NORÖURSTJARNAN
Frambald af bls. 16.
tæplega hálft ár, og allan þann
tíma hefur orðið að flytja enest-
megnis allt hráeínið af miðunum
fyrir Austfjörðum, þar sem síld-
veiðin hér við Suðvesturlandið
hefur litil sem engin verið.
Andrés sagði, að verksmiðjan
ynni ekki úr síld, sem værí minni
en 150 gr. eða þannig, að 7—8
síldar væru í kílóinu.
Salan á framleiðslu verksmiðj
unnar hefur gengið mjög vel,
enda var í uphafi samið um sölu
á 5 milljónum dósa á ári til Banda
ríkjanna. Framleiðslan til þessa
hefur aftur á móti ekki nág nema
tveimur milijónum og nú veit eng
inn, nve löng bið getur orðið á,
þar tii síldin fer aftur að veiðast.
Nokkurt magn hefur verið selt a
innanlandsmarkað. Ef allt væri
eðlilegr, sagði Andrés, að auðvelt
ætti að vera að afkasta að
minnsr; kosti ð milljónum dósa á
ári.
TOGARAR
Framhald af bls. 1.
Afli Ólafsvíkurbáta hefur verið
misjafn að undanför.nu og tíðin
rysjótt. Þegar á heildina er litið,
hefur afli Ólafsvíkurbáta verið
nokkuð góður og þeir fengið allt
að 40 tonn eftir eins til tveggja
sólarhringa veiðiferð. 16 netabát-
ar róa nú frá Ólafsvík og hefur
verið næg atvinna í landi, en 4
fiskvinnsluhús vinna úr aflanum.
Netabátarnir sækja út fyrir iand
heigislínuna, beint í slóðir togar-
anna, sem reyna að ná sem mestu
af göngufiskinum. Eru sögusagn-
ir á kreiki um það, að togararn-
ir fái heilu netatrossurnar í vörp-
ur sínar. Innar í firðinum, þar
sem alltaf hefur veiðzt fiskur á
þessum árstíma, fæst nú ekki bein
úr sjó vegna ágangsins úti fyrir.
Alexander sagði að lokum, að
þeir teldu að 80% af afla sunnan-
bátanna væri mjög léleg vara og
sýndist viturlegra að fiska í Faxa-
flóa 10 tonn af eins nátta fiski
en 40—50 tonn af ónýtum fiski
í Breiðafirðinum.