Tíminn - 24.03.1966, Síða 1
Augiýsing i Tímanum
kcemor daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda
Gerizt áskrifendur að
Timanum.
Hringið 1 síma 12323.
69. tbl. — Fimmtudagur 24. marz 1966 — 50. árg.
Horfur á
góðri fisk-
sölu í Hull
miðvikudag.
Samkvæmt frásögn enska
blaðsins Sunday Express getur
verkfall togaramanna í Hull
hækkað verð á fiski mikið um
páskahelgina og bendir allt til
að íslenzkir togarar ættu að
fá gott verð fyrir afla í HuU,
ef verkfallið dregst á langinn
og breiðist út.
Verkfallið hófst fyrir nokkr-
um dögum, er skipverjar á
togaranum Lord Ancaster
gengu á land í mótmælaskyni
við ráðningu tveggja ófélags-
bundinna manna. Áhafnir ann
arra togara gerðu samúðarverk
fall og hefur aðeins einn tog-
ari siglt frá Hull frá því að
verkfallið hófst á mánudaginn
14. marz. Verkfallið átti að
standa í eina viku, en á sunnu-
Framhald á 14 síðu
Hambrosbanki
þakkaði fyrir
með kampavíni
IGÞ—Reykjavík, miðvikudag.
Síðan um jól liefur ekki verið
hægt að skipta meiru en tvö þús
und og fimm hundruð krónum
íslenzkum í Hambrosbanka í Lond
on, sem er hin leyfilega upphæð
er má hafa með sér héðan. Áður
höfðu þeir hjá Hambros-banka
ekki verið eins strangir. Það sem
olli sinnaskiptum þeirra voru við
skipti bankans við kaupsýslumann
íslenzkan, sem að sögn skipti
hundr. þús. kr. í bankanum. Bank
inn greiddi honum tvö hundr. og
fimmtíu pundum of mikið, en
þar sem maðurinn hafði skrifað
nafn sitt ógreinilega á skiptibeiðn
ina, gátu þeir ekki lesið nafn
hans, þegar komst upp um of-
greiðsluna að kvöldi.
Bankinn sneri sér til íslenzkra
aðila í London og bað um aðstoð
við að hafa uppi á manninum. Það
mun hafa verið starfsfólk Flug
félags íslands, sem komst fyrir um
það, hver þessi peningaskipti
hafði gert við bankann. Gekik greið
lega að leiðrétta þetta eftir að
maðurinn var fundinn, en Ham
bros-banki sýndi starfsfólki Flug
félagsins þakklæti sitt fyrir að-
stoðina með því að senda því einn
kampavínskassa.
Síðan þetta gerðist fá menn
elcki skipt nema tvö þúsund og
fimm hund^uð krónum í einu í
Hambros-ba-nka, og gengið er eft
ir því að menn skrifi nöfn sín
með prentstöfum á þá pappíra, er
fylgja peningaskiptum.
Að sjálfsögðu gilda engin lög
um það, hvað erlendur banki má
skipta miklu fé héðan. Ákvæðið
um að hafa megi með sér 2500
Framhald á 14. síðu.
VEGIR OFÆRIR
EFTIR ÚVEDRID
KT-Reykjavík, miðvikudag.
Óveðrið, sem geisaði um allt
norðanvert landið í gær, hefur nú
iægt mikið. Hefur norðanáttin
gengið mikið niður, en gengið hef
ur á með éljum norðanlands og
jafnvel snjókomu, en sunnanlands
er léttskýjað. Frost er talsvert fyr
ir norðan, allt að 10 stigum og
meira.
Veðrið hefur gert það að verk-
um, að nú eru svo að segja allir
vegir norðanlands lokaðir, en bíl-
fært var orðið um flest héruð,
áður en veðrið skall á.
Tíminn hafði í dag samband við
fréttaritara sína á norðanverðu
landinu og fara frásagnir þeirra af
veðrinu hér á eftir.
Veðurofsinn var einna mestur á
Sauðárkróki í gær. í dag eru allir
vegir í Skagafirði ófærir og hafa
engir bílar komizt til Sauðárkróks
í dag. Hefur af þessum orsökum
orðið að fresta sæluvikunni, sem
hófst um helgina, þar til 11. aprll,
en það er annar í Páskum.
f gær var mjólkurbíll á leið úr
Hofshreppi til Sauðárkróks, en
hann strandaði í Hegranesi og
var ýta send til aðstoðar, en án
árangurs. Fleiri bílar stöðvuðust í
Skagafirði í gær, m.a. áætlunarbif-
reið, sem stanzaði í Varmahlíð.
Á Ólafsfirði og Dalvík var allt
orðið ófært, er blaðið hafði sam-
band við fréttaritara sína þar.
Eins og skýrt hefur verið frá, varð
Drangur að snúa við í gær vegna
veðurs, en fór síðan í morgun og
ætlaði til Siglufjarðar og e.t.v. til
Sauðárkróks.
Sáttarkossinn í Páfagarði. Dr. Ramsey og Páll páfi VI. kyssast í sixtínsku
kapellunni. — Simamynd.
SÁTTAK0SS IKVENNA-
STRÍÐIH/NRIKS VIII
NTB—Páfagarði, miðvikudag.
Páll páfi VI., æðsti maður Róm
versk-kaþólsku kirkjunnar og dr.
Ramsey, erkibiskup af Kantara-
borg og yfirmaður ensku biskupa
kirkjunnar, kysstust í dag sátta-
koss og hétu hvor öðrum að vinna
að því saman að koma á einingu
kristinna manna. Þetta var í
fyrsta sinn í fjórar aldir, að leið-
togar rómversk-kaþólsku kirkjunn
ar og ensku biskupakirkjunnar
hittust, en samband kirknanna
slitnaði á sínum tíma út af kvenna
málum Hinriks áttunda Bretakon-
ungs.
Leiðtogarnir tveir hittust í
hinni frægu sixtínsku kapellu.
Þeir föðmuðust af miklum inni-
leik og kysstu hvor annan. Þessi
koss var þó aðeins til bráðabirgða
því að hinn formlegi sáttakoss
mun sjá dagsins ljós á morgun,
fimmtudag.
Páfinn og erkibiskupinn satu í
hægindastólum undir hinu mikla
málverki Michelangelos af dóms
degi, og sneru þeir að aitarinu. | ans — þrá þess, að þeir gætu
Dr. Ramsey sagði páfanum, að j styrkt einingu kristinna manna.
hann hefði komið til Rómar með | Páfinn svaraði: — Þér hafið end
eina sterka þrá í brjósti sér — i urreist brú, sem um aldir hefur
þrá, sem hann sagðist vera viss i verið brotin, milli kirkjunnar i
um, að væri einnig í hjarta páf-1 Framhald a 14. síðu.
Á Akureyri hefur allt lokazt af
snjó. Mjólkurbílum, sem voru á
leið úr Hrafnagilshreppi og Önguls
staðahreppi, var hjálpað til Akur-
eyrar, en tveir snjóplógar voru
sendir á móti þeim. Hins vegar
var ekki reynt að halda uppi
mjólkurflutningum frá Saurbæjar-
hreppi.
Ekki hefur verið mjög slæmt
veður á Húsavík, talsverður snjór,
en ekki mjög hvasst. Færðin hef-
ur ekki spillzt innanbæjar, en
ófært er um sveitirnar, en reynt
er í dag að ryðja vegina.
Óveðrið skall á um sjöleytið í
gær á Héraði, en orðið bjart um
kl. 6 í morgun. Lokuðust allir veg-
ir á svipstundu, en talsvert hafði
verið rutt af vegum í héraðinu.
Þá er og ófært á Vopnafirði.
Á Bíldudal og ísafirði varð
veðrið ekki slæmt í gær og bezta
veður var komið þar í dag. Bátar
á leið til ísafjarðar af Breiða-
fjarðarmiðum áttu þó í dálitlum
örðugleikum vegna ísingar. Urðu
þeir að leita undir land til þess
að berja ísinguna af.
Olof Lagerkrantz
MÆLIR MEÐ STUÐNINGI
VIÐ HÁÐ OG ÓHÁÐBLÖÐ
NTB-Oslo, miðvikudag.
Olof Lagerkrantz, aðalritstjóri
Dagens Nyheter, sem er stærsta
dagblað Norðurlanda, ræddi blaða
dauðann á fundi blaðamanna-
klúbbsins í Osló í dag og benti
á ýmiss konar aðstoð, er hið op-
inbera gæti veitt dagblöðunum.
Lagerkrantz ræddi fyrst blaða-
dauðann á Norðurlöndum og í Am
eríku og sagði, að allir ættu auð-
veldlega að geta verið sammála
um, að heilbrigði þjóðfélagsins
væri í hættu, þar sem eitt blað
fengi einokunaraðstöðu. Hann
ræddi ástandið í Svíþjóð og sagði,
að þegar blað eins og Stockholms-
Tidningegn myndi hætta að koma
út, væri það í rauninni áfall fyrir
lýðræðið í landinu.
Það finnast ýmsar aðgerðir gegn
blaðadauðanum, — ' sagði Lager-
krantz. — Með löggjöf er hægt
að bæta hag blaðanna. Ríkið get-
ur auglýst meira í blöðunum en
það gerir nú. Póststjórnin getur
lækkað flutningsgjald blaðanna,
og ríkið getur losað blöðin við
ýmiss konar skatta og gjöld. Þess
háttar aðgerðir eru réttlætanleg-
ar, því að almenningur stendur
í vissri skuld við blöðin. Og mað-
ur getur fullyrt, að það sé í þágu
ríkisins, að allir hafi efni á að
Framhald á 14. síðu.