Tíminn - 24.03.1966, Blaðsíða 2
2
TIMINN
FIMMTUDAGUR 24 marz 1966
Kína og Alhanía fara ekki
á flokksþingið í Moskvu
Kúiuvéiar með ísienzku
HZ-Reykjavík, þriðjudag.
í dag var fréttamönnum boðið
að skoða hjá Otto A. Michelsen
nýja gerð IBM ritvéla, sem veldur
byltingu í heimi ritvéla. Ritvél
þessi er kölluð „Kúluvél." Þessi
kúluvél kom fyrst á markaðinn
árið 1961 í Bandaríkjunum, sló í
gegn, og nú er svo komið að
helmingur af framleiðslu IBM,
sem er um 55% af öllum rafrit
vélum, sem seldar eru í dag í
heiminum, er kúluvélar.
Vél þessi kom fyrst á markað er-
lendis árið 1961, en hefur ekki
fengizt til fslánds fyrr, þar sem
mjög dýrt er að búa til kúlu með
íslenzkum stöfum. En í þakklætis-
og viðurkenningarskyni til þeirra
nærri þúsund viðskiptavina, sem
sýnt hafa IBM rafritvélunum traust
á undanförnum árum, ákvað IBM
nýlega að framleiða íslenzka
kúlu. Síðan hefur verið ötullega
unnið að þjálfun viðgerðar- og
sölumanna og uppbyggingu vara-
hlutabirgða. Öllu er þessu nú.lok-
ið, og er fyrsta stóra kúluvélasend
ingin væntanleg um miðjan næsta
mánuð.
Á kúlu þeirri, sem hér um ræð-
ir, eru allir stafir og tákn, sem
venjuleg ritvél hefur á fjörutíu
og fjórum stafaörmum. Kúluvélin
tekur minna rúm en venjuleg rit-
vél, þar sem vals hennar hreyf-
ist ekki til hliðar. Hins vegar
hreyfist kúlan meðfram valsinum.
Kúluvélin er með svokallaðri
álsláttargeymslu. Ef slegið er á
tvo stafi nær samtímis, geymist
seinni stafurinn þar til sá fyrri
er skrifaður, en skrifast síðan.
Kúlan er skiptanleg og má því
með einu handtaki skipta um let-
urgerð. Þó verður aðeins fáanleg
ein tegund íslenzks leturs fyrst
um sinn. Hins vegar er ekkert því
til fyrirstöðu. að íslenzkir notend-
ur geti kéypt og notað enskar
kúlur af ýmsum leturgérðum við
erlendar bréfaskriftir. Þess má
geta til gaimans, að þegar vél
þessi var sett á markaðinn í Dan-
mörku 1961, var aðeins ein dönsk
kúla fáanleg, en nú má velja um
12 mismunandi gerðir.
Vegna þess, hve kúluvélin er
létt í vinnslu, örugg og fljót (15,5
stafir á sekúndu á móti 10 stöf-
um á sekúndu, miðað við eldri
gerðir), er hún mjög eftirsótt til
viðtengingar við rafreikna og ým-
is konar fjarrita, og er m.a. keypt
og notuð af aðilum, sem að öðru
leyti eru í samkeppni við IBM.
Firmað IBM var stofnsett árið
1911 við samruna þriggja fyrir-
NTB-Hong Kong, Tirana og
Moskvu, miðvikudag.
Kína og Albanía hafa ákveðið
að senda ekki fulltrúa á 23. flokks
þing sovézka kommúnistaflokks-
ins, sem hefst í Moskvu n.k. þriðju
dag. Albanía hefur til og með neit
að að taka við boðsbréfiriu.
Blað albanska kommúnista-
flokksins, Zeri í Popullit, skrifar
í dag, að miðstjórnin hafi „með
fyrirlitningu" neitað að taka við
sovézka bréfinu. Sagði blaðið, að
hinir „krústjoffsku" leiðtogar í
Kreml hefðu móðgað kommúnista-
flokk Albaníu með því að bjóða
þeim.
letrí
tækja. Árið 1914 kaus stjórn fyrir-
tækjanna Thomas .J Watson, eldri,
sem þá hafði langa' og mikla
reynslu í verzlun og viðskiptum,
sem framkvæmdastjóra fyrir fyrir-
tækið. Fyrsta verk Watsons var að
endurskipuleggja allt fyrirtækið
og gera margra ára áætlun um vís-
indalegar rannsóknir og þróun
verkefna, koma á stofn skólum
fyrir starfsmenn þess og bæta
vinnuskilyrði þeirra. Með þessu
var lagður grundvöllur að þeirri
gífurlegu stækkun, sem síðan hef-
ur orðið. Nýjar, enHjjjJ^sttar
ar hafa komið 4ram og markað-
urinn'héfúr stsékkað.
Árið 1933 keypti IBM firmað
Electromatic Typewriters Inc.,
Rochester, New York, og hófst þar
með nýr og þýðingarmikill þáttur
í framleiðslunni, það er smíði raf-
ritvéla. Fijótlega eftir það kom
á markaðinn IBM 01, fyrsta raf-
ritvélin, sem náði verulegri út-
breiðslu. Síðan hefur IBM ritvélin
farið óslitna sigurför.
Segja má, að aðeins tvær bylt-
ingar hafi átt sér stað í ritvéla-
iðnaðinum, síðan hin fyrsta rit-
vél var byggð, um 1868. Þessar
byltingar hafa báðar komið frá I
IBM. Ilin fyrri var svokölluð IBM
Executive, ritvélin sem skammtar
hverjum staf bil eftir breidd sinni.
Kínverski kommúnistaflokk-
urinn hafnaði boðinu í mjög harð-
orðu bréfi til miðstjórnar sovézka
flokksins, en bréf þetta var birt
í Peking í dag. Áður höfðu rnarg-
ir talið, að Kína myndi senda full-
trúa til fundarins í Moskvu.
Mjög er nú rætt um það meðal
fréttamanna í Moskvu, hvort so-
vézkir kommúnistar muni nota
23. flokksþingið til endanlegs upp-
gjörs við kínverska kommúnista.
En flestir, sem hafa góða heim-
ildarmenn í innsta hring komm-
únista þar, telja þó, að leiðtogar
Sovétríkjanna reyni að komast
hjá endanlegum slitum. Muni þeir
því meðhöndla þetta vandamál af
mikilli varkárni.
Heimsótti sam-
vinnubú í fsraei
EB-Tel Aviv, miðvikudag.
Forseti íslands heimsótti í morg
un samvinnubændaþorpið Rfar Vit
kii^. Kom hann þar á einkaheim-
ili "og leit á búskapinn. Þarna er
ekki sameign, heldur séreign en
samvinna um margt og samhjálp,
og er það búskaparfyrirkomulag al
gengt í ísrael.
Þessu næst heimsótti forsetinn
hinar fornu katakombur eða
dauðra borg Gyðinga, Beitshear-
im, skammt frá Haifa. Þetta eru
miklar neðanjarðarhvelfingar
Jiöggn^r í kletta, þar sem menn
voru lagðir til hinztu hvíldar í
steirikiáttím. Vitáð vár um þessa
dauðraborg úr Thalmud og forn-
um fræðum Gyðinga og að þetta
þótti hinn helgasti greftrunarstað-
ur trúaðra Gyðinga þegar á þriðju
öld fyrir Krist. Það var þó ekki
fyrr en á þessari öld
að dauðraborgin var grafin
upp, og vísindalegar fornminja-
rannsóknir hófust þar 1936. Hafa
þær varpað nýju ljósi á margan
hátt á sögu Gyðingaþjóðarinnar.
Miklar og verðmætar fornelifar
hafa verið grafnar upp úr þessu
dauðraríki, sem gert er af manna-
höndum og þótti forsetanum þetta
hin fróðlegasta ferð.
Þá heimsótti forsetinn einnig
borgina Sesareu við hafið og skoð-
aði forn mannvirki frá tímum
Rómverja þar.
í kvöld er forsetinn gestur á
heimili Ben Gurions í Tel Aviv.
Dagskrá untaríkisráðherra ís-
Framhald á 14. síðu.
Rannsókn á
HZ-Reykjavík, miðvikudag.
Síðastliðna daga hefur
rannsóknarlögreglan í
Reykjavík haft til meðferð-
ar sviplegt dauðsfall, er
varð hér í borginni fyrir
nokkru.
Allroskinn maður, sem
þjáðist af hvítblæði, lá rúm-
fastur heima hjá sér og var
honum vart hugað líf og tal-
ið að hann ætti skammt eft-
ir ólifað. Hann bjó með
Framhald á bls. 15.
Asahláka í Lóni
TE—Lóni, þriðjudag.
Mikinn snjó setti hér niður
um mánaðamótin jan. — febr.,
sem nú er loks að leysa. —
Olli þetta miklum samgöngu
örðugleikum í hreppnum og
hafa sumir bæirnir verið
meira og minna einangraðir
allan tímann. Einkum var 6-
færðin mikil austur undir
Lónsheiðinni.
Vegagerðin lét veghefil
búinn snjóýtu ryðja veginn af
og til, en oft fennti jafnharð
an í traðirnar og aldrei komst
hann lengra en að Reyðará.
— Einnig aðstoðuðu bændur
við snjómokstur með vélskófl
um og handverkfærum bæði
í Almannaskarði, við ÞorgaiiS
staði og víðar, þar sem skafl
ar voru miklir á veginum.
Ekki varg komizt að skóla
húsinu í nær þrjár vikur Fór
þá kennsla fram á heimili kenn
arans, þegar nokkur tök wi
á að ná börnunum saman en
það reyndist stundum all tor-
sótt. —
Nú er hér asahláka og
mikill vatnsflaumur. Hefur
víða runnið úr vegum. T. d.
ruddi Brunná i Volaselslandi
miklum snjó fram úr gljúfnnu
og stíflaði farveginn undir
brúna og flæðir nú gegnum
veginn sunnan brúarinnar.
Nýja bryggjan senn
tilbúin.
AS—Ólafsvík, þriðjudag.
Færðin er hér ekki mjög
slæm. Fróðárheiði var rudd í
nótt, en hún lokaðist i gær.
Fara nú flutningabílar við-
stöðulaust yfir heiðina. Hvasst
er hér og hætt við að skafi í
vegina aftur.
Reiknaður hefur verið út
heildarafli Ólafsvíku/báta 16.
marz og var hann 3 þús. tonn.
Aflahæstu bátarnir eru Hall
dór Jónsson. 372 tonn. Vahfel!
300 tonn, Stapafell 283 tonn,
Jón Jónsson 270 tonn, Stein-
unn 280 tonn, Sveinbjörn
Jakobsson 260 tonn.
Einhverjir bátar eru nú á
miðunum, en veðráttan er ó-
hagstæð og má segja, að vind
urinn blási af öllum áttum.
Haldið hefur verið áfram að
vinna að hafnargerð hér ug fer
að líða að því að hægt v >rði
að taka báta upp að nýju
bryggjunni, en hún verður
110 metra löng og 15 metra
breið á kafla. Þessi bryggja er
sérstök að því leyti, að hún er
byggð úr harðviði frá Suður-
Ameríku.
Búizt er við, að í næstu viku
geti bátar lagzt við bryggjuna.
Drangur sneri við.
BJ—Siglufirði, þriðjudag.
Hér er í dag norðaustan
stórhríð og rok Af völdum ó-
veðursins varð mjólkurbátur-
inn Drangur að snúa við í
Eyiafirði. en hann átti að
koma hér við og á Sauðár-
króki.
Umferðartruflanir hafa
ekki orðið teljandi af völdum
snjókomu, en búast má við að
færð fari versnandi með Kvöld
inu. Vegum hér innanbæjar
hefur verið haldið opnum i
dag með ýtu.
Framkvæmdir við Stráka-
göng ganga eftir áætlun og
eru göngin nú orðin nær þvt
450 metra löng. Göngin eiga.
eins og kunnugt er, að verða
rúml. 800 metra löng og er
búizt við að þau verði full
btiin í vor eða í sumar Við
göngin vinna nú 20—30 menn
á þremur vöktum, mest Sigl-
firðingar.
Kalt í Hreppum.
SG—Hrunamannahreppi,
þriðjudag.
Hér er kalt í dag og dálítill
snjór, en þó ekki til trafala.
Vatnsleysið háir nú nokkrum
bændum hér um slóðir, þó
ástandið hafi mikið batnað
síðan fyrir mánuði.
Hér virðast allir hafa næg
hey, þó talsvert hafi verið
sent austur á land. Má bðast
við nægum birgðum fram i
júní.
Alltaf er nóg að gera hér i
félagsheimilinu og er næstum
um hvert kvöld upptekið. Þar
eru haldin bridgekvöld, tafi
kvöld, föndur hjá konunum
svo og fundir og aðrar
skemmtanir.
Vatnsleysið ekki úr
sögunni
EI—Holtum, þriðjudag.
Dálítil snjóföl er hér í dag,
en færð hefur ekki spillzt af
hennar völdum. Hins vegar cná
búast við, að vegir verði slæm
ir í vor eftir þennan vetur.
Vatnsleysið, sem háði mörg
um bónda á þessum slóðum 1
vetur, er ekki fullkomlega úr
sögunni. Mér er t. d. kunnugt
um 3 bændur, sem enn búa við
skort í þeim efnum.
Fyrirlestur um um-
ferðarmál.
JRH, Skógum, þriðjudag.
Fyrir skemmstu kom Bald- E
vin Þ. Kristjánsson, erindreki m
Framhald á bls. 15. fl
nmn