Tíminn - 24.03.1966, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 24. marz 19GG
-k Á funtti sameinaðs þings í gær voru mörg mál á dagskrá en
aðeins þrjú rædd.
★ Samþykkt var að láta fara fram útvarpsumræðu eitt kvöld um
vantrauststillöguna, og verður hún annað kvöld.
-k Þá var haldið áfram fyrri umræðu um tillögu Ragnars Arnalds
um kosningu þingnefndar er fjalli um endurskoðun á aðild íslands
að Atlantshafsbandalaginu, og töluðu flutningsmaður og Einar Olgeirs
son, og tillögunni síðan vísað til annarrar umræðu.
■Á Þá fór fram framhald fyrri umræðu um tillögu Einars Olgeirs-
sonar um reikningsskil hinna rændu þjóða við þær ríku, og talaði
fyrst Pétur Sigurðsson og síðan Einar Olgeirsson, og dugði fundar-
tími ekki til annars, og voru önnur mál tekin af dagskrá.
Meiri ríkisstuðning
við vatnsveitur
Fjórir þingmenn Framsóknar-
flokksins í neðri derld, Björn Fr.
Bjömsson, Daníel Ágústínusson,
HaHdór Ásgrímsson og Óskar Jóns
son flytja frumvarp um breytingu
á lögum um aðstoð til vatnsveitna,
og er þar lagt til, að styrkur rík-
issjóðs nái til greiðslu hluta af
stofnkostnaði við stofnæðar, aðal-
dreifiæðar, vatnsgeyma, dælur og
jarðboranir, en styrkur þessi skuli
þó aldrei nema meiru en helm-
ingi alls kostnaðar. Einnig sé rík-
isstjórninni heimilt að takast á
hendur fyrir hönd ríkissjóðs sjálf-
skuldarábyrgð gegn tryggingum á
lánum, er sveitarstjórnir taka til
vatnsveitna og megi ábyrgðin ná
til allt að 90% al'ls stofnkostnaðar.
í greinargerð segir:
Frutnvarp þetta er endurflutt.
Síðast er það var til umræðu á
Alþingi, árið 1964, var því vísað til
ríkisstjórnarinnar til athugunar.
Með því, að ekkert hefur heyrzt
frá ríkisstjórninni um málið, svo
að okkur flm. sé kunnugt, þykir
okkur rétt að flytja það að nýju.
í lögum nr. 93 5. júní 1947 er
kveðið á um efnahagslega aðstoð
ríkissjóðs við sveitarfélög sem
koma sér upp vatnsveitum. Enn
fremur hafa álcvæði laganna
gert ýmsum sveitarfélög-
um og vatnsveitufélögum fært að
stofna til vatnsveitugerðar, sem að
öðrum kosti hefði reynzt þeim erf-.
itt eða ókleift.
Að fenginni reynslu af fram-
kvæmd laganna hefur þó komið í
ljós, að eðlilegt má telja, að lög-
unum verði breytt til annars
horfs um nokkur atriði. Skulu þau
rakin nokkru nánar.
Styrkurinn úr ríkissjóði getur
orðið æði takmarkaður og langt
fram yfir það, sem ætla má, að
löggjafinn hafi hugsað sér, þegar
svokölluð stofnæð er einungis lít-
ill hluti alls vatnsveitukerfisins.
Þá koma aftur á móti svokallað-
ar aðaldreifiæðar snemma til og
verða í rauninni höfuðhluti dreifi-
línukerfisins. Miðast þá styrkur-
inn aðeins við stofnæðina sjálfa,
en hún er sá hluti vatnsæðar, sem
liggur frá vatnsbóli eða upptök-
um vatns að fyrstu greiningu.
Þannig er stofnæð skilgreind af
hálfu þeirra aðila, sem styrkjum
úthluta. Skal út af fyrir sig eigi
dregið í efa, að þessi túlkun sé
rétt. En auðséð er hins vegar, að
þegar svo stendur á um stofnæð,
er nauðsynlegt, að styrkurinn nái
einnig til aðaldreifilínukerfisins,
ef verulegt gagn á að verða að.
Slík aðstaða getur hæglega komið
til, og eru þess dæmi bæði í kaup-
túnunum, þorpum og ekki hvað
sízt í sveitum, þar sem strjálbýlt
er og dreifingarkerfið er víðáttu-
mikið. Við þessar aðstæður getur
framkvæmd vatnsveitugerðar
stöðvazt eða orðið ónóg, nema ríf-
legur styrkur komi til. Skortir
þannig heimild í lögunum til nauð-
synlegrar aðstoðar, þegar þörf
hennar er hvað brýnust. Til þess
að bæta nokkuð úr í þessu efni
leggjum við flm. frv. til, að styrk-
ur úr ríkissjóði skuli einnig ná til
aðaldreifiæða.
Þá þykir okkur flm. rétt að
setja inn í lögin ákvæði á þá leið,
að ábyrgð sú, sem ríkissjóði er
heimilt að veita sveitarstjórnum
vegna vatnsveitugerðar, sé sjálf-
skuldaábyrgð. Lög um ríkisábyrgð
ir gera ráð fyrir því, að ábyrgð
ríkissjóðs sé einföld, nema sér-
staklega sé fram tekið. Vatnsveitu-
gerðir eru mikilsverðar fram-
kvæmdir í þágu almennings. Er
því ærin ástæða til þess, að rík
issjóður beri þyngri ábyrgð en
elia.
Að lokum er lagt til í frv., að
hækkuð verði ábjrgðar- og styrks
fjárhæðin sameiginlega í allt að
90% af stofnkostnaði allrar vatns-
veitunnar.
Ljóst er, að frv. þessu, ef að
lögum verður, þurfa að fylgja stór
hækkaðar fjárveitingar til vatns-
veitna. Á fjárlögum fyrir árið
1966 eru í þessu efni ætlaðar 1,8
millj. kr. Þessi fjárhæð vegur að
sjálfsögðu lítt á móti þörfinni eins
og er, hvað þá síðar. Hér þarf
stórátaks og tillagið að margfald-
azt.
Um það munu allir samdóma,
að vatnsveitumál séu ein veiga-
mestu hagsmunamál sveitarfélaga
og ríkissjóði beri að koma til að-
stoðar, svo að um muni.
Því er það von okkar flm., að
þessu frv. verði nú vel tekið og
málinu síðan fylgt myndarlega eft
ir með nauðsynlegum fjárveiting-
um.
qTj
Einangrunargler
Framleitt einungis úr
úrvals gleri — 5 ára
ábyrgð
Pantið tímanlega.
KORKIÐJAN h.f.
Skúlagötu 57 • Sími 23200
TÍMINN
Guömundur og Ágúst
Vöruflutningar Akranes—Reykjavík.
Afgreiðsla í Reykjavík* Verzlunarsambandið, sími
38566, á Akranesi sími 2217, og heimasímar 1373
og 1186.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Óska eftir að taka á leigu 2ja—3ja herbergja íbúð.
Aðeins tvö í heimili. Algjör reglusemi.
Upplýsingar í síma 12854 og eftir kl. 6 í síma
32854. S
Aðstoðarhjúkrunarkonu
vantar við Sjúkrahúsið á Patreksfirði frá 1. maí
n.k. Upplýsingar hjá hjúkrunarkonu og á Sýslu-
skrifstofunni.
SýslumaSur Barðastrandasýslu.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík:
AÐALFUNDUR
safnaðarins verður haldinn sunnudaginn 27. marz
n.k. kl. 3 e.h. strax eftir messu.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Safnaðarstjórnin.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Hjón með eitt barn óska eftir 1 til 3ja herbergja
íbúð sem fyrst. Má þarfnast standsetningar. Fyr-
irframgreiðsla, ef óskað er. Upplýsingar 1 síma
60101.
Iðnskólinn í Reykjavík
Um 60 kennslustunda kvöldnámskeið fyrir um-
sækjendur um störf á teiknistofum verður haldið
á tímabilinu 13. apríl til 21. maí, ef næg þáttaka
faest.
Kennd verða undirstöðuatriði í teiknitækni.
Innritun fer fram á skrifstofu skólans til 1. apríl.
Námskeiðsgjald, kr. 500,00 greiðist við innritun.'
Skólast jóri.
Skrifstofuherbergi óskast
Óska eftir að taka á leigu í Reykjavík eitt her-
bergi fyrir skrifstofu.
Tilboð sendist á afgreiðslu Tímans, merkt „Skrif-
stofa”.
7
KRISTINN GUÐNASON hf
KLAPPARSTÍG 25—27
LAUGAVEGI 1168
SÍMAR 12314—21965
T rilSa
4 tonna trilla til sölu, —
skipti á bíl kæmu til greina
Upplýsingar 1 síma 1488 á
Akranesi.
Óskast
j
Tveir bræður óska eftir
herbergi eða lítilli íbúð.
Skilvísri greiðslu og
reglusemi heitið.
Upplýsingar í síma 38183.
FRÍMERKJA-
SAFNARAR
Gangið í frímerkjaklúbb-
inn Þór og fáið send heim
úrvalshefti einu sinni til
tvisvar í mánuði. Einnig
gefst ykkur tækifæri til að
selja frímerki með þvi að
senda okkur úrvalshefti.
Skrifið eftir nánari upplýs-
ingum.
Frímerkjaklúbburinn Þór,
Lynghaga 14,
Reykjavík.
Herbergi
Tveir piltar óska eftir her
bergi, helzt í Hlíðunum
Upplýsingar í síma 41230
frá kl. 5.30 — 7.