Tíminn - 24.03.1966, Side 12
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 24 marz 196G
12
TÍMINN
Myndina her a3 ofan tok Ijósm. Tímans, Bjarnleifur, af unglingalandsliði kvenna í handknattleik,
sem nýlega var valið. Fremri röð frá vinstri: Heiða Gunnarsdóttir, Breiðabl., Steinunn Pétursdóttir, Kefla
vík. Edda Jónasdóttir, Fram Bjarney Valdimarsdóttir, Fram, Hanna María Karlsdóttir, Keflavík, Geirrún
Theódórsdóttir, Fram, Björg Guðmundsdóttir, Val. Aftari röð: Viðar Símonarson, þjálfari, Edda Hall-
dórsdóttir, Breiðablik, Halldóra Guðmundsdóttir, Fram, Fríða Proppé, Fram, Sigrún Guðmundsdóttir,
Val, Ragnheiður Blöndal, Val Eygló Einarsdóttir, Árm., Hansína Melsted, KR og Júdý Westley, Keflavík.
Staöa Þróttar og ÍR bezt
Enska landsliðið
Alf Ramsey valdi í gær enska
landsliðið, sem leika á gegn Skot-
landi í Glasgow hinn 2. apríl —
og í fyrsta skipti í langan tíma
valdi hann útherja, Conolly hjá
Manch. Utd. — Liðið er annars
þannig skipað. Banks, Lcicester,
Cohen, Fulham, Wilson, Everton,
Stiles Manch. Utd., J. Charlton,
Framhald á bls. 13.
Staða Þróttar og ÍR er bezt í 2.
deild íslandsmótsins í handknatt-
leik, en staða Víkings, sem flestir
töldu fyrirfram, að vinna myndi
mótið, er vonlítil, þar sem liðið
hefur tapað 4 stigum, en hin liðin
ekki nema tveimur. Staða Þróttar
er öllu betri en ÍR, þar sem Þrótt
ur á eftir leik gegn Keflavík og
ÍR, en ÍR á eftir leik gegn Vík-
ingi og Þrótti. Annars er staðan
þessi:
ÍR 6 5 0 1 170:143 10
Þróttur 6 5 0 1 136:119 10
Víkingur 6 4 0 2 126:106 8
Keflavík 7 2 0 5 148:170 0
Akranes 7 0 0 7 88:130 0
Gunnlaugur leikur
með Fram í kvðld
Fram - Haukar og Valur - KR í kvöld
Alf-Reykjavík. — Tveir þýðing
armiklir leikir í 1. deild ís-
landsmótsins í handknattleik fara
fram að Háiogalandi í kvöld. Fram
og Haukar leika fyrri leikinn, en
Valur og KR mætast í þeim síðari.
Gunnlaugur Hjálmarsson, beitt-
asta vopn Fram, hefur verið frá
æfingum að undanförnu vegna
meiðsla og var tæplega reiknað
með, að hann léki í kvöld. En
Gunnlaugur verður með Fram í
kvöld. Hann fór á æfingu í fyrra
kvöld og kenndi sér þá einskis
meins. Eru það góð tíðindi fyrir
landsliðið, að Gunnlaugur skuli
vera orðinn heill aftur. Engu skal
spáð fyrir um úrslit leiksins, en
bæði liðin þurfa á stigunum að
halda — Haukar til að losna betur
úr fallhættunni — og Fram til að
styrkja stöðu sfna á toppinum.
Búast má við hörkuleik milli
KR og Vals, en bæði liðin eru í
fallhættu, sérstaklega þó KR, sem
hefur aðeins hlotið 4 stig. Takist
KR ekki að sigra í kvöld, er að-
eins einn möguleiki fyrir liðið
að hljóta fleiri stig — gegn Fram,
nema KR vinnj kæruna í sam-
bandi við leikinn gegn FH. Með
því að sigra KR í kvöld gæti Val-
ur losnað úr mestu fallhættunni.
Samkvæmt síðustu leikjum Vals
og KR, eru KR-ingar sigurstrang
legri í kvöld.
Fyrri leikur hefst klukkan
20.15.
Einar Bollason
er stigahæstur
íslandsmótinu í körfuknattleik
verður haldið áfram annað kvöld,
föstudagskvöld, og verða þá leikn
ir tveir leikir í 1. deild. f fyrri
Framhald á bls. 13.
KÆRAN TEKIN
STRAX FYRIR
Eins og sagt var frá í blaðinu
í gær, kærðu KR-ingar leikinn
gegn FH í 1. deild íslandsmótsins
í handknattleik. Blaðið fregnaði
það í gær, að Handknattleiksráð
Reykjavíkur hefði þegar' sent hana
til dómstóls síns og verður hún
tekin fyrir þar strax. Er niður
stöðu að vænta mjög fljótlega.
Myndin lengst til vinstri var tekin í Frakklandi W38 úr leik Tékka og Brasiliumanna. Verið er að vísa einum teikmanna út af. Þrír fótbrotnuðu í bessum leik. — Á mynd-
inni fyrir mlðju sést leikmaður frá Uruguay hopa, þegar mexicanskur leikmaður reynir að sparka í hann, en honum er haldið. Myndin er frá HM 1950. Og á myndinni til
hægrl sést þegar Bozik (Ungverjalandi) og Santos (Brasil íu) er vísað út af í hinum sögulega leik f Bern 1954.
Harka / knattspyrnu ekki neitt nýtt fyrirbrigíi
Er sífellt að færast meiri
harka í knattspymuna? Það er
orðinn nær daglegur viðburður
að fréttir berist af slagsmála-
leikjum úr ýmsum áttum, en
hvergi er þó ólgan meiri
í knattspyrnuleikjum en í Suð
ur-Ameríku og hinum suðlæg
ari Evrópuríkjum, t.d. ftalíu
og Grikklandi. Og nýlega bár-
ust fréttir af sögulegum leik
í Grikklandi, þar sem leik-
mönnum lenti saman og dansk
ur dómari varð fyrir aðkasti.
Ýmsir vilja kenna því um,
að atvinnumennska í knatt-
spyrnu ýti undir hörku, enda
verði keppnin meiri, þar sem
peningar eru í spilinu. Vel má
vera, að einhver sannleikur fel
ist í þessari fullyrðingu, en
fróðlegt er að líta yfir farinn
veg og gera athugun á því,
hvernig knattspyrnan var leik-
in áður fyrr, þegar atvinnu-
mennskan var á byrjunarstigi,
eða alls ekki til. Og sá saman
burður verður ekki sérlega
hagstæður fyrir hina „gömlu,
góðu og prúðmannlegu knatt-
spyrnu fyrri tíma.“ í ljós kem
ur nefnilega, að harka og slags
mál í knattspyrnuleikjum er
ekki neitt nýtt vandamál, held
ur vandamál, sem fylgt hefur
knattspyrnunni um langt
skeið.
Til gamans má nefna dæmi
úr sögu heimmeistarakeppn-
innar. Árið 1930 fór keppnin
fram í Uruguay, en þá fór allt
í bál og brand í leik Rúmen-
íu og Perú eftir að dómari
leiksins, sem var frá Chile, vis
aði fyrirliða Perú af leikvelli
fyrir grófan leik. Allt lenti í
einni kös, leikmenn slógust á
vellinum, og forystumenn lið-
anna og þjálfarar blönduðu sér
í slagsmálin, slíkur var hama-
gangurinn. Þó var þessi leikur
World Cup Willie — verSa Ifka
slagsmál 1966?
hreinn barnaleikur miðað við
úrslitaleik keppninnsar sem
var á milli Argentínu og Urug
uay, en Uruguay vann með 4:2
og þótti dómari leiksins dæma
heimamönnum í viL í Argen-
tínu varð allt snarvitlaust, og
aðsúgur var gerður að sendi-
ráði Uruguay, til að „hefna
óréttlætisins.“ Varð lögregl-
an að beina skotvopnum til
að dreifa mannfjöldanum.
Sjálfur var . leikurinn mjög
harður á báða bóga og logaði
í slagsmálum.
Árið 1934 var keppt á Ítalíu.
„Þetta var bardagi, en ekki
knattspyrnuleikur," sagði fram
kvæmdastjóri austurríska lands
liðsins, en ítalir slógu lið hans
í bókstaflegri merkingu, út í
keppninni, því þrír leikmanna
Austurríkis lágu í valnum eftir
hnefahögg mótherjanna. Tvo
varð að bera út, en einn þeirra
gat haldið leiknum áfram.
Árið 1938 fór keppnin fram
í Frakklandi. Þá skeði það í
leik Tékkóslóvakíu og Brazilíu,
að bera varð tvo tékkneska
leikmenn fótbrotna af velli.
Þremur leikmönnum var vís-
að út af.
Árið, 1950 var leikið í Brazi
líu. Þá varð brazilíski dómar-
inn, sem dæmdi leik Uruguay
og Mexiko, að fá lögregluvernd
út af vellinum. Hann hafði
dæmt réttilega af mark í leikn
um og þá upphófust slagsmál
milli leikmanna og þeir börð-
ust af mikilli heift.
Árið 1954 var leikið í Bern
í Sviss. Brazilíumenn mættu
liði Ungverjalands sem var
með innanborðs stóru nöfnin
í þá tíð, Puskas, Kocis, Bozik
o.fl. Einn frægasti dómari ver-
aldar þá, Englendingurinn Ell-
Framhald á bls. 13.
Jl