Tíminn - 24.03.1966, Page 13
FIMMTUDAGUR 24. marz 1966
TÍMINN
VICON-LELY
MÚGAVÉLAR
Bins og að undanfSrnu útvegum við hinar viðurkenndu VfCON-LELY
* múgavélar til afgreiðslu í vor.
Vélarnar eru dragtengdar, 4ra og 6 hjóla.
i '■ \
Árið 1963 fóru fram á dragtengdu vélunum miklar endurbætur, sérstak-
( lega á tindunum og tindahjólunum og fylgir hér með umsögn tveSgja aðila
um vélarnar.
Samkvæmt beiðni Globus hí. vil
ég undirritaður lýsa yfir, að ég tel
nýju gerðina af tindahjólunum
mjög mikla endurbót, enda brotn-
aði enginn tindur í vélinni allan
heyskapartímann í sumar. Eg get
því mælt með því við bændur, að
þeir kaupi Vicon Lely múgavél
með nýju tindahjólunum.
Árni Arason,
Helluvaði, ItaUg.
Vorið 1963 fékk Sandgræðslan til prófunar
nýja gerð af tindahjólum í HKW — dragtengdu
VICON LELY múgavélina, sem keypt var hingað
árið á undan. Með þessum nýju tindahjólum var
svo vólin notuð allt sumarið, eða samtals í um
300 tíma, sem samsvarar 3ja ára notkun á meðal-
búi. Allan þennan tíma brotnaði ekki einn ein-
asti tindur í vélinni, og get ég því fyllilega mælt
með þessari nýju gerð tindahjóla, sem ég tel
taka mikið fram eldri gerðinni.
Páll Sveinsson, Gunnarsholti.
Síðan þessi orð voru töluð árið 1963 hefur ekki þurft að endurnýja einn ein-
asta tind, og er þetta gleggsta sönnunin um ágæti VICON-LELY múgavél-
anna og hina frábæru endingu tindanna.
Traktorinn keyrir aldrei yfír heyið.
Farið að dæmi hinna vandlátu og veljið VICON-LELY.
Vinsamlegast joantið strax.
AR-Ni GESTSSON
VATNSSTÍG 3 — SÍMI M5-5S.
■■HHHi ■HaHHaaaHBM
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að gera fokheldan dýralæknis-
bústað á Húsavík.
Teikninga og útboðslýsinga má vitja á teiknistofu
Húsameistara rikisins gegn 1000 króna skila-
tryggingu. Útboðsfrestur er til 18. apríl n.k.
Húsameistari ríkisins.
GYLLI
SAMKVÆMISSKÓ
Afgreiddir samdægurs
Skóvinnustofan
Skipholti 70,
(inngangur trá bakhlið
hússins)
13
ÍÞRÓTTIR
Framhalci -'12 síðu
leiknum mætast KR og Ármann,
en í þeim síðari ÍR og ÍKF.
Staðan í mótinu er nú þannig:
KR 5 5 0 425:264 10
Ármann 6 5 1 422:410 10
ÍR 5 3 2 370:330 6
KFR 6 1 5 458:508 2
ÍKF 6 0 6 310:465 0
Fimm stigahæstu menn eru þess
ir:
1. Einar Bollason 145 stig
2. Einar Matthíasson 131 stig
3. Birgir Birgis 119 stig
4. Þórir Magnússon 119 stig
5. Hólmst. Sigurðsson 100 stig
ÍÞRÓTTIR
»-an...aM af 12 siðu
Leeds, Moorc, West. Ham, Ball,
Blackpool, Hunt Liverpool, B.
Charlton, Manch. Utd., Hurst,
West Ham og Conolly. England
hefur ekki sigrað Skotland í lands
leik síðan 1961 — þegar Englend-
ingar sigruðu með 9—3, hæsta
markatala, sem þeir hafa sigrað
Skota með. — hsím.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af 12. síðu
is, dæmdi leikinn, en hafði
ekki tök á honum nema rétt
i til að byrja með. Síðan tóku
leikmennirnir sjálfir leikinn í
sínar hendur og réðu öllu, þótt
dómarinn reyndi að láta til sín
taka, m.a. með því að vísa þrem
ur leikmönnum af velli, þ.á.m.
Bozik, (hann var ungversk-
ur þingmaður). En viðleitni
Ellis í þá átt að halda leikn-
um niðri, bar ekki tilætlaðan
árangur. Knattspyrna var ekki
lengur á dagskrá, heldur slags
mál, með flöskum og steinum
sem rigndi á völlinn. Ellis
fékk skömm í hattinn fyrir
„hneykslið“ og 20 fílefldir
lögregluþjónar urðu að veita
honum vernd, þegar hann yfir
gaf völlinn. Næsta dág skrifuðu
brazilísku blaðamennirnir, sem
sáu leikinn, að ef hinn enski
dómari vogaði sér að stíga fæti
á brazilíska grund, yrði hann
tafarlaust skotinn!
Árið 1958 var leikið í Sví-
þjóð. í aukaleik milli Wales
og Ungverjalands sauð upp úr
og beindist reiði leikmanna að
hinum sovézka dómara leiks
ins. Vildu leikmenn beggja
liða „ná tali“ af honum, en
Jack Kelsey, markvörður Wal-
es, bjargaði dómaranum með
því að ganga fram fyrir
skjöldu — og greip í hnakka
drambið á þeim fyrsta, sem
gerði sig líklega til að leggja
hendur á dómarann, og hristi
hann eins og hvolp. Kelsey
var gríðarsterkur og þótti hon
úm ekki árennilegt að aðhaf-
ast frekar.
Og síðast var keppt í Chile.
Þegar keppnin hafði staðið
SKÓR -
INNLEGG
Smíða Orthop-skó og inn-
legg eftir máli Hef eínnig
tilbúna barnaskó með og
án innieggs.
Davíð Garðarsson.
Orthop-skósmiður.
BergstaSastræti 48,
Sími 18893.
GUÐJÓN STYRKÁRSSON
hæstaréttarlögmaSur.
Hafnarstræti 22,
sími 18-3-54.
í fjóra daga, höfðu 15 leikmenn
slasast alvarlega. Var þá boðað
til skyndifundar með þjálfur
uim framkvæmdastjórum,
og dómurum til að stemma
stigu við ófögnuðinum, sem
tröllreið knattspyrnunni, en
ástandið lagaðist lítið. í leik
ftalíu og Chile varð enski dóm
arinn Ahston að senda tvo ítali
af vellinum vegna slagsmála.
Þeir voru ekki á sömu skoðun
og dómarinn og neituðu að yf
irgefa völlinn. Varð að fá lög-
regluþjóna til að fjarlægja þá.
Og nú á þessu ári kemur að
því, að keppnin fer fram í Eng
landi. Menn mega alveg eins
búast við því, að hsrka í ein.
hverri mynd verði á dagskrá.
Knattspyrnan er slík, að hún
býður hættunni heim, en það
fer fjarri því, að harka, í þess
ari vinsælustu íþróttagrein ver
aldar, sé fyrirbrigði, sem skot
ið hefur upp kollinum nýlega,
því hún hefur fylgt knattspyrn
unni frá upphafi. (Endursagt
úr BT).
VETTVANGURINN
Framhald af bls. 3.
ferðum loknum er röð 5 efstu
sveita:
1. sveit Gissurar Gissurars.
2. sveit Zóphoníasar Benedikts-
sonar.
3. sveit Björns Hermannssonar
4. sveit Guðrúnar Þorvaldsd.
5. sveit Haraldar Ólafssonar.
ÚTNESJAFÓLKIÐ
Framhald af bls. 8.
léttari og hreinlegri vinnu held
ur.
Við hlið þessa atvinnuvegar er
svo meiningin að setja á laggiru
ar stóriðju, sem strax á fyrstu ár-
um er reiknað með að dragi til
sín allt að 2000 manns af núver-
andi vinnumarkaði.
Þá er ætlazt til, að atvinnuveg-
ir til sjávar og sveita standi undir
fríðindum til handa hinu nýja
stóriðjuveri. Dæmi má þar um
nefna, að í stjórnarblöðunum hef
ur verið frá því sagt, að samið sé
um raforku til hinnar nýju alúmín
um verksmiðju 10,8 aura á kw
stund næstu 25 ár.
Fiskiðjuverin hér á Reykjanes-
skaganum hafa nú undanfarin ár
orðið að borga kr. 1,10 til kr. 1,20
fyrir kw stund, meðaiverð og er
nú framundan hækkun á rafmagns
verði allt að 55% og ' þar s«m
hraðfrysting fiskjar er orkufrekur
iðnaður er þetta einn af stærstu
kostnaðarliðunum, og ef miða á
við þá dýrtíðaraukningu, sem orð
ið hefur síðustu árin, má gera ráð
fyrir, að þessi liður einn gæti orð
ið nokkuð hár á 25 árum, og ekki
síður ef hinar gömlu atvinnu-
greinar, sjávarútvegur og 'and-
búnaður eiga einnig að mestu að
standa undir kostnaði af orku-
þörf hinnar nýju stóriðju.
Fljótt á litið virðist þetta því
geta orðið sú holskeflr, sem eigi
eftir að færa í kaf þá atvinnu-
vegi, sem nú blómstra við sunnan
verðan Faxaflóann og ásamt land
búnaðinum hefur verið lífæð
þjóðarinnar á liðnum öldum. Við
teljum, að valdhafarnir hafi beitt
vafasömum aðgerðum gegn íbú-
um byggðarlaganna á Reykjanes-
inu.
Sumt verður aldrei bætt. Öðru
verður fljótlega kippt í lag, svo
sem hinum rangláta vegatolli.
enda munu Suðurnesjamenn aldr-
ei sofna á því réttlætismáli. En í
dag skáka þeir, sem með völdin
fara i skjóli þess, að Suðurnesja-
menn njóti lítillar forystu og
komi því lítt vörnum við, —eða
eins og G.T. komst að orði í Báts
endapundarinn: „Útnesjafólkið
var fátækt og spakt og flest mátti
bjóða því svo.“
Guðsteinn Einarsson, Grindavík.