Tíminn - 24.03.1966, Page 16
ám
69. tbl.
Vestmamweyingar
sjá enn ekki á-
stæiu til svartsýni
SJ-Reykjavík, miðvikudag.
í samtali við Tímann sagði Bald
ur Ólafsson, bankastjóri Útvegs
banka íslands í Vestmannaeyjum,
að vissulega væru vertíðarhorfur
ekki góðar. Á land hefur ekki
borizt nema einn þriðji hluti
afla miðað við sama tíma í fyrra,
og er þá átt við þorsk og ýsu.
Það hefur að sjálfsögðu mikla
þýðingu fyrir Vestmannaeyinga,
og reyndar landið allt, ef afla-
brestur verður á vertíðinni, þar
sem Vestmannaeyingar hafa að
undanförnu átt um 15% af
heildarútflutningi fiskafurða.
í febrúarmánuði var mikið
Hótel
Víkingur
boðið
til sölu
•FB-Reykjavík, miðvikudag.
Hótel Víkingur á Hlíðar-
jvatni í Hnappadalssýslu hef-
ur nú verið auglýst til
sölu. Eins og kunnugt er, er
þetta fyrsta „flótelið“ á
íslandi, fljótandi hótel
hyggt á stálpramma. Víking
ur var fyrst opnaður um
mitt sumar 1964, en vatns-
leysi í Hlíðarvatni mun
nokkuð hafa háð starfsem-
inni síðasta sumar, en þá
vpru óvenju langvarandi
þurrkar, eins og menn muna.
Kom það sér heldur illa,
þar sem eitt hið skemmti
iegasta við Hótel Víking er
að geta siglt um á Hlíðar
vatni á góðviðrisdögum og
rennt fyrir silung, en ekki
mun hafa verið nægilegt
vatnsmagn í Hlíðarvatni í
fyrra til þess að það væri
hægt.
Hótel Víkingur er eins og
tvrr segir byggt á stál-
pramma, en í honum eru
12 vatnsþétt hólf. Skipið er
30 metra langt og 8% metri
breidd. Það ristir 40 cm
og er knúið tveimur utan-
borðsmótorum. Káetur eru
13 talsins, þar af eru 10
fvrir gesti, allt tveggja
manna káetur, úr Ijósum
viði, og mjög skemmtilega
ig nýtízkulega innréttaðar.
F’ramimi í stafni er borð-
stofa, sem rúmar um 30
manns. Eldhús er um borð í
Víkingi og snyrtiherbergi.
Uppi á þaki hótelsins er
gert ráð fyrir að gestir geti
ólað sig á góðviðrisdögum.
Upphaflegu hugmyndina
rð þessu fljótandi hóteli á
ílíðarvatni átti Ingólfur
iJétursson hótelsstjóri á
City Hóteli, en hann gefur
nú aílar upplýsingar varð
andi sölu hótelsins.
minni veiði en undanfarin ár
og kenna menn gæftaleysi eink
um um. Marzmánuður hefur löng
um þótt erfiður til sjósóknar ,en
sjómenn eru enn þeirrar skoðun
ar, að búast megi við góðri veiði
og leggja allt sitt traust á páska
hrotu. Ljóst þykir, að ekki fáist
eins mikið aflamagn og í fyrra.
Gagnvart útflutningi bætir all
mikill loðnuafli nokkuð úr
skák, en fólkið í landi hefur
ekki miklar tekjur af loðnuveið
um, þar sem sárafátt fólk vinnur
við verkun hennar. f fyrradag
var einn bezti afladagurinn til
þessa og komu þá á land um
500 tonn.
Framboö Framsóknar-
manna á Akureyri ákveöiö
Listi Framsóknarflokksins á
Akureyri við kosningarnar í
vor er þannig skipaður:
1. Jakob Frímannsson, fram-
kvæmdastjóri.
2. Stefán Reykjalín, bygginga-
meistari.
3. Sigurður Óli Brynjólfsson,
kennari.
4. Arnþór Þorsteinsson, verk-
smiðjustjóri.
5. Haukur Árnason, bygginga
fræðingur.
6. Sigurður Jóhannesson,
skrifstofumaður.
7. Rikharð Þórólfsson, fram-
kvæmdastjóri.
8. Bjarni Jóhannesson, skip-
stjóri.
9. Sigurður Karlsson, iðnverka
maður.
10. Karl Steingrímsson, verzl-
unarmaður.
11. Hólmfríður Jónsdóttir,
kennari.
12. Björn Guðmundsson, fram-
færslufuUtrúi.
13. Jón E. Aspar, loftskeyta-
maður.
14. Hafliði Guðmundsson,
skrifstofumaður.
15. Ingvi Rafn Jóhannsson,
rafvirkjameistari.
16. Þorsteinn Magnússon, vél-
stjóri.
17. Svavar Ottesen, prentari.
18. Páll Magnússon, bílstjóri.
19. Ármann Dalmannsson,
skógarvörður.
20. Gísli Konráðsson, forstjóri.
21. Erlingur Davíðsson, rit-
stjóri.
22. Sigurður Á. Björnsson,
prentsmiðjustjóri.
Að lokum sagði Baldur, að enn
væri ekki ástæða til að vera
mjög svartsýnn hvað aflabrögð
á vertíðinni snertir.
VARÐSKIP AD-
ST0ÐAR BÁTA
í fyrrinótt aðstoðaði varðskip
þrjá báta á Breiðafjarðarmiðum,
en þeir höfðu allir fengið net í
Framhald á bls. 15.
Basar í Kópavogi
Talsverðar skemmdir af völdum veðurs fyrir austan
HÚS BRENNUR Á EIÐUM -
ÞÖKFJÚKA ÍNESKAUPSTAÐ
HA, Egilsstöðum, BS, Neskaup-
stað, miðvikudag.
f óveðrinu í gær urðu talsverð
ar skemmdir á verðmætum á Nes
kaupstað, og eldur kom upp í
útvarpssendinum á Eiðum.
Um kl. 18.50 í gær varð stöðv
arstjórinn á Eiðum var við að
útvarpssendirinn var hættur að
starfa. Hljóp hann þá niður að
húsinu, þar sem sendirinn er
staðsettur, en veðurhæð var um
þetta leyti mjög mikil. Þegar nið
ur að húsinu kom, hafði komið
þar upp eldur og logaði upp um
þakið.
Vegna veðurs var ekkert við
eldinn ráðið, en stöðvarstjórinn,
Framsóknarkvennafélagið Freyja; júlíus Bjarnason, tók þegar
i Kópavogi heldur mjög fjölbreytt
an basar í Framsóknarhúsinu að
Neðstutröð 4 á sunnudaginn 27.
marz kl. 3 e.h. Þarna verður til
sölu á mjög hagstæðu verði alls
konar fatnaður, páskaskraut, dúk
ar og ýmsar gjafavörur. Notið
þetta einstaka tækifæri til hag-
stæðra kaupa. Freyja.
slökkvitæki og reyndi eftir
megni að ráða niðurlögum elds
ins.
Er blaðiö hafði samband við
Júlíus í dag, sagðist hann ekki
geta sagt um tjónið, sem varð
í þessum bruna, . en þar hefði
brunnið allt, sem brunnið gat.
Ekki væri heldur unnt að segja
til um upptök
neinni nákvæmni.
eldsins með
Nú er útvarpað um Austur
land með gamla sendinum á
Eiðum, en búizt er við að hægt
verði að taka upp sendingar á
langbylgjum eftir hálfan mánuð.
Frá Neskaupstað bárust þær
fréttir í dag, að um kl. 8 í gær
hafi skollið á aftakaveður af
norðaustri, örugglega það versta
sem komið hefur á vetrinum.
Stóð það til kl 2. í nótt. Skemmd
ir urðu miklar í þessu veðri, þak
tók af nýju íbúðarhúsi og af
húsi í byggingu. Hluti af þaki
á Netagerð Friðriks Vilhjálmsson
ar fór einnig í þessu veðri. Rúð
ur brotnuðu í allmörgum húsum
í bænum og a. m. k. einn bfll
stórskemmdist, þar sem hann
stóð, er hluti af húsþaki lenti á
honum.
SVANASONGUR KJARVALS
Á 75 ÞÚSUND KRÓNUR
NOKKUÐ DREGID UR
MISNOTKUN TÉKKA
SJ—Reykjavík, miðvikudag.
S.l. laugardag fór fram skyndi-1
hendi. Mun Seðlabankinn halda
áfram aðgerðum til þess að vinna
könnun hjá Seðlabanka íslands á I á móti misnotkuninni, bæði með
innstæðulausum tékkum og kom
í ljós, að innstæða var ófullnægj
andi fyrir tékkum sacntals
að fjárhæð kr. 906.000,00. Heildar
velta dagsins í tékkum við ávís-
anadeild Seðlabankans var 169.2
millj. kr. og var því 0.54% fjár-
hæðar tékka án fullnægjandi inn-
stæðu.
í<étta var 10. skyndikönnunin á
vegum Seðlabankans. í fyrstu
skyndikönnuninni voru innstæðu-
Lausir tékkar að upphæð 5.8 cnillj.
og reyndist sú upphæð 4.36% af
veltu. Síðan hefur útkoman verið
betri, og alltaf undir 1% af veltu
utan einu sinni.
í fréttatilkynningu frá Seðla
bankanum ségir:
„Undanfarin ávísanaskipti bera
með sér, að nokkuð hefur dregið
úr misnotkun tékka. Er þetta góðs
viti, þó að meinið sé enn fyrir
skyndikönnunum, svo og með
samræmdri innheimtu allra inni
stæðulausra tékka, sem berast
bönkunum”
GÞE-Reykjavík, miðvikudag.
Olíumálverkið Svanasöngur eft-
ir Kjarval fór á kr. 75 þús. á
listmunauppboði hjá Sigurði Bene
diktssyni í dag. Það eru áreiðan
lega ekki mörg málverk, sem hafa
verið slegin svo dýru verði á
uppboðum hérlendis, en það
var ekki svo breitt bil á milli
meistaranna Kjarvals og Schev-
ings að þessu sinni, því að olíu
málverk Schevings, f vondum sjó
200x260 cm að stærð, var slegið
á kr. 72 þús.
Eins og fram kom í blaðinu í
gær, hafði Sigurður Benedikts-
son upp á margt að bjóða að þessu
sinni. Þarna voru 12 málverk eftir
Kjarval og seldust þær allt frá
kr. 2 þús. og upp í kr. 75 þús.
Stóra málverkið Heyþurrkur. eftir
Heklugos var slegið á kr. 45 þús.
eftir talsvert þóf, en málverkinu
fylgdi 40 þús. króna lágmarks
boð og svo var að sjá að fólki þætti
það of mikið. Var ekkert boð gert
í málverkið fyrr en á síðustu
mínútum uppboðsins. Kjarvals-
myndirnar, Stapafell, Vorleysing
og Goodbye-painting fóru við
mjög háu verði eða kr. 31, 28,
Framhald á 14. síðu.
Kaffiklúbbur Fram-
sóknarfélaganna
í Revkiavík.
kemur saman
laugardaginn 26.
marz n. k. kl. 3
síðdegis að Tjarn
argötu 26. Jónas
Haralz hagfræð
ingur forstöðu-
maður Efnahags-
stofnunarinnar
_____svarar fyrirspum
um um efnahagsmál. Allt Fram
sóknarfólk velkomið meðan hús-
rúm Ieyfir. Framsóknarfélögin.
1600 tonna dráttarbraut byggð á Akureyri
HS—Akureyri, miðvikudag.
Nýlega var ákveðið að byggja
hér nýja dráttarbraut, sem á
að geta tekið 1500 tonna skip.
Er ákvörðun þessi afleiðing af
umræðum hjá Hafnamefnd Ak
ureyrar að undanfömu.
Hina nýju dráttarbraut á að
byggja á undirstöðu gömlu
dráttarbrautarinnar, en þær
undirstöður eru taldar mjög
traustbyggðar.
Það er talið mikilsvert að fá
hér á Akureyri dráttarbraut,
sem tekið geti togara af þeim
stærðum, er notaðir eru hér
við land, svo og minni flutn-
ingaskip, en hin nýja dráttar-
braut verður hin stærsta sinn-
ar tegundar utan Reykjavíkur.
Hafnarnefndin hefur gefið út
samþykki sitt fyrir byggingu
hinnar nýju dráttarbrautar, en
beðið er eftir samþykki vita-
málastjórnar.
Þess ber og að geta, að Slipp
stöðin h.f. hyggst byggja skipa
smíðastöð í sumar 60 metmm
norðar en dráttarbrautin er.
Verður það stálgrindahús,
20x80 m að flatarmáli, 20 m
hátt.