Tíminn - 15.04.1966, Side 2
2 TÍMINN
ÞRfR ÁTTU MÖGULEIKA Á
SIGRI í SfÐUSTU UMFERÐ
RÆTT VIÐ 6UNNAR GUNNARSSON.SKÁKMEISTARA ÍSLANDS 1966
SJ—Reykjavík, fimmtudag.
f gærkvöld, miðvikudags-
kvöld, var tefld síðasta umferð
í laudsliðsflokki á Skákþingi
íslands 1966. Áður en umíerð-
in hófst, ríkti mikill spenntng
ur um, hver myndi hreppa
efsta sætið, en þrír menn áttu
möguleika á sigri. Leikar fóru
svo, að Gunnar Gunnarsson,
hinn gamalkunni skákmaður
og knattspyrnumaður, hreppti
fslandsmeistaratitilinn eftir
jafntefli gegn Braga Kristjáns
syni.
f 2. — 3. sæti urðu Björgvin
Víglundsson og Jón Hálfdanar
son með 7% vinning og fjórði
Guðmundur Sigurjónsson með
6% vinning. Þessir þrír harð
snúnu piltar eru allir nemend-
ur í Menntaskólanum. í 5.—7.
sæti urðu Jón Kristinsson,
Bragi Kristjánsson og Haukur
Angantýsson með 6 vinninga
hver.
f samtali við Tímann í dag
sagði Gunnar, að hann hefði
hlotið 8 vinninga af 12 mögu-
legum, — tapað fyrir Björgvin
Víglundssyhi, Jóni Kristinssyni
og gert tvö jafntefli, gegn Jóni
Hálfdanarsyni og svo Braga
Kristjánssyni í sfðustu umferð.
— Áður en síðasta umferð
hófst vorum við Björgvin jafn
ir, báðir með 'lVz vinning. —
Björgvin tefldi við Hauk Ang-
antýsson, sem hafði hvítt, og
ég við Braga. Mikill spenning-
ur ríkti, þar sem álitið var, að
ég hefði við erfiðari mann að
glíma. Haúkur kom dálítið á
óvart og vann Björgvin, og var
það eina skákin, sem Björg-
vin tapaði. Jón Hálfdanarson
gerði aftur á móti jafntefli; ef
hann hefði unnið, hefðum við
orðið jafnir.
Það var greinilegur spenn-
ingur hjá keppendum, eins og
við má búast.
Mér var boðin þáttaka í
þessu móti, ég var í fjórða sæti
á Haustmóti Taflfélagsins, og
þar af leiðandi kom það mér
og fleirum á óvart, að ég skyldi
vinna nú. Sigurstranglegastir
voru Jón Kristinsson og Guð-
mundur Sigurjónsson. Jón
leniti í 5.—7. sæti, og ég hugsa
að það hafi gætt þreytu hja
honum, því að hann hefur teflt
svo mikið að undanfömu. Það
voru dálítil vonbrigði með Guð
mund Sigurjónsson, því að
hann stóð sig svo vel á Skák-
þinginu í fyrra. Eg vann hann
snemma á mótinu og kann það
að hafa komið honum nokkuð
á óvart. Hann byrjaði illa í
fyrstu skákunum. Aftur á móti
hjálpaði það mér mikið, að ég
vann þrjár fyrstu skákirnar og
komst við það vel á skrið.
Eg hafði reyndar mikinn hug
á 1. sætinu, þar sem fyrirhug-
uð er för á Olympíumótið á
Kúbu í lok október, og það set
ur kapp í mann, ef tækifæri
býðst til að komast í slíka
ferð. Að vísu standa þrír-fjór
ir menn fyrir utan þessa
keppni, sem eiga rétt til að
fara á þetta mót, — menn eins
og Friðrik, Ingi R., Freysteinn
og Guðmundur Pálmason
Það má segja um þessa pilta
sem komu næstir mér, að þeir
eru virkilega efnilegir, tví-
mælalaust efnilegasti hópur,
sem fram hefur komið í lengri
tíma. Þeir eru vel að sér í
byrjununum og taka skákina
alvarlega. Björgvin kom ekki
svo mjög á óvart meðai okkar,
sem þekkjum til hans: hann
teflir örugglega, hættir ekki of
miklu, og er greinilega mjög
fróður í byrjununum. Þó var
eins og hann væri ekki alveg
með á nótunum í seinustu
skákinni, en þess ber að gæta,
að hann var að sjálfsögðu
taugaspenntur.
Tveir efstu menn í meistara
flokki vinna sér rétt til að
tefla r'landsliðsflokki, en það
eru aðeins fjórir menn í lands
liðsflokki, sem teljast íands
liðsmenn, — þ.e. skipa lands-
liðið, ásamt tveimur varamcnn
um.
Toppmennirnir okkar, sem
ekki mættu þarna til leiks eiga
sér afsökun — Friðrik er að
lesa undir lögfræðipróf, Ingi
R. er í endurskoðendaprófi,
Freysteinn fór á mót í Eng-
landi og tók það fram yfir fs-
landsmótið. Hann hefur tæki- |
færi til að keppa þar við sterka |
skákmenn, og er sú afstaða |
skiljanleg.
í sumar hefst svonefnt svæð
ismót, sem er undirbúnings- |
mót undir heimsmeistarakeppn 1
ina, og verður það sennilega |
haldið í A-Þýzlcalandi eða |
Tékkóslóvakíu, og verða tveir I
menn sendir þangað. Senniiega I
verður Friðrik og Inga boðið |
að taka þátt í því móti.
Að lokum sagði Gunnar, að |
þetta hefði verið erfitt mót, |
sem hefði kostað andvökunæt- f
Framhald a 14, síðu
— ■■ I J
FORSrn iRAKS FÖRSTIFLUGSLYSI
Formaður Iðnsýningarnefndar, Bjarni Björnsson,
Þorkelsdóttur verðlaunin.
afhendir Kristínu
NTB—Bagdad, fimmtudag.
Útgöngubann var í dag í Bag-
dad og yfirvöldin í frak gáfu
fyrirskipun um eins mánaðar
þjóðarsorg vegna fráfalls forseta
landsins, Abdul Salam Arif, sem
lét Iífið, þegar þyrla hans hrap-
aði til jarðar í kröftugum sand-
stormi skammt frá bænum Basra
á miðvikudagskvöldið.
Slysið varð 11 mönnum að bana.
Meðal þeirra, sem létu lífið, voru j
tveir ráðherrar; Latif Al-Darraji,!
innanríkismálaráðherra, og Mas-
tapha Abdullah, iðnaðarmálaráð-
herra, og ríkisstjómin í Babya-
fylkinu. Forsetinn og fylgdar-
menn hans voru í eftirlitsferð í
Basra-héraðinu, og þyrlan hafði
rétt hafið sig til lofts frá þorpinu
Al-Aqranah, þegar stormur skall
á. Nokkrum mínútum síðar til-
kynnti flugmaðurinn, að skyggni
væri ekkert. Eftir það heyrðist
MERKIIDNSYNINGARINNAR VALID
SÝNINGARNEFND Iðnsýning-
arinnar 1966, sem haldin verður
í sepfcember í Sýningar- og íþrótta
höllinmi í Reykjavík, ákvað að
efna til samkeppni um hugmynd
<ð merki sýningarinnar og var
það auglýst þann 6. marz s. 1.
í skiltmálum samkeppninnar var
=agt, að merkið yrði notað sem
tákn sýningarinnar og það þyrfti
að vera unnt að gera af því prjón
merici. Frestur til að skila hug-
myndum rann út 20. marz.
14 aðilar tóku þátt í samkeppn
ini og skiluðu þeir alls 26 úr-
lausnum.
Ein verðlaun voru vetit, að upp-
hæð 10 þúsund krónur, og hlaut
þau frú Kristín Þorkelsdóttir,
teiknari, Lindarhvemmi 13, Kópa
vogi.
Dómnefnd skipuðu sýníngar-
nefndin og fulltrúi tilnefndur af
Félagi íslenzkra teiknara.
Fulltrúi F. í. T. var tilnefndur
Ástmar Ólafsson, en í sýningar-
nefnd eiga sæti Bjarni Björnsson,
formaður, Björgvin Frederiksen,
Davíð Seh. Thorsteinsson og Þórir
Jónsson.
ekkert frá þyrlunni. Tvær aðrar
þyrlur, sem voru í fylgd með for-
setanum, komust til baka til Al-
Qumah.
í dögun í morgun fóru 10 þyrl
ur að leita að braki þyrlu forset
ans, og fannst það brátt. Er talið
að hún hafi sprungið í loft upp,
er hún skall á jörðina. Klukkan
12 í dag var útgöngubann fyrir-
skipað i Bagdad. og öllum opin-
berum skrifstofum og skólum lok
að. Forsetinn verður iarðsettur
á laugardag.
í tilkynningu fra ríkisstjórn
landsins segir, að forsætisráðherr
ann, Abdul Rahman Al-Bazzaz,
hafi tekið við störfum forsetans
þar til nýr þjóðhöfðingi hefur ver
ið kjörinn Samkvæmt stjórnar-
skrá landsins á að kjósa nýjan for
seta innan einnar viku frá láti for
Framhald a bis. 15.
IÐNlSÝNlNGIN
Merki Iðnsýningarinnar 1966
FÖSTUDAGUR 15. apríl 1966
Eruð þér fús til að
taka bandarískan
ungling til sumar-
dvalar?
HZ—Reykjavík, fimmtudag.
Eins og kunnugt er hefur Am-
erican Field Service gengizt fyrir
ársdvöl íslenzkra nemenda í
Bandaríkjunum um áratugs skeið
og hafa 126 íslenzkir unglingar
orðið þessarar góðu reynslu að-
njótandi. Annar liður í starfsemi
AFS, eins og það er venjuiega
kallað, er að veita bandarískum
unglingum kost á tveggja mánaða
sumardvöl hérlendis- Hafa 15
slíkir unglingar dvalið á íslenzk
um heimilum um tveggja mánaða
skeið undanfarin sumur.
Ef einhver hefur áhuga á að
taka bandarískan ungling á heim
ili sitt í sumar, þá má fá frekari
uplýsingar um þessa starfsemi
AFS í síma 19422 kl. 2—4 á laug
ardögum og bréf skal senda til
American Field Service, pósthólf
739, Reykjavík. Það skal tekið
fram, að allar fjölskyldur, hvar
sem þær búa á landinu og upp-
fylla fyrrnefnd skilyrði eiga kost
á að taka að sér bandarískan sum
argest.
Vorfuglar komnir
Stjas, Vorsabæ.
Skógarþröstur sást hér fyrst
ur vorfugla síðustu dagana í
marzmánuði, lóan sást fyrst
3. apríl og grágæsir sjást í
smáhópum á leið inn yfir land
ið.
Athafnasamar
ffæsaskvttur
STJAS—Vorsabæ, fimmtudag.
Gæsaskyttur hafa verið athafna
samar um páskahelgina, og Þótt
gæsin sé nú friðuð, láta skytturn
ar ekki þar við sitja. Jafnvel á
Páskadaginn voru þær staðnar að
verki, og hefur málið nú verið
kært og er í rannsókn. Þykir
bændum langt gengið, þegar slík-
ur háttur er hafður á á stórhátíð-
um.
LÍK RAFNS
MAGNÚSSON-
AR FUNDIÐ
KT—Reykjavík, fimmtudag.
Er v. b. Murnrni var að
leggja net sín suður af
Reykjanesi í gær, kom skip
stjórinn auga á eitthvað
sem flaut á sjónum. Við nán
ari eftirgrennslan kom í ljós
að hér var um að ræða lík
af manni. Var þegar siglt
með líkið inn til Sandgerð
is, en þaðan var það flutt
i líkhús í Keflavík.
í dag fór Jón Halldórsson
hjá Rannsóknarlögreglunni
suður til Keflavíkur og var
þá hægt að staðfesta, að hér
er um að ræða lík Rafns
Magnússonar, sem féll fyrir
borð á Þorkatli mána á
páskadag. Líkið var flutt í
dag til Reykjavíkur.