Tíminn - 15.04.1966, Qupperneq 8
8
-a£>—»
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 15. aprfl 196«
Verðtryggingarfrumvarp
i5 er mjög varhugavert!
Flest bendir til að það muni frémur auka verðbólguna
en draga úr henni - og verður atvinnuvegunum og hús-
byggingum erfiður fjötur um fót.
Fram var haldið í neðri deild
í gær 3. umræðu um frumvarp
ríkisstjórnarinnar um verðtrygg-
ingu fjárskuldbindinga.
Einar Ágústsson sagði, að Gylfi
Þ. Gíslason, bankamálaráðherra,
hefði ekki enn
gefið svör við
mörgum þeim fyr
irspumum, sem
hann hefði bor-
ið fram í um-
ræðum um mál-
ið. Megininn-
tak ræðu
bankamálaráðherra hefði fjallað
um verðbólguna, hver hún mætti
mest vera, og að meiri verðbóigu-
vöxtur en 10% á ári bæri vott
um óstjórn, og geta víst allir tek-
ið undir þau orð. Aðeins einni
spurningu hefði ráðherrann svar-
að og það ófullkomlega og þó að
mestu endurtekið í því sambandi
það, sem áður hefði verið fram
komið hjá Jóhannesi .Nordal um
framkvæmd Seðlabankans á verð-
tryggingunni, þ.e. að innlánsvext-
ir af verðtryggðu fé skyldu verða
4—5% á sama tíma og vextir af
óbundnu fé verði 7—9% og enn-
fremur að þessum kjörum þyrfti
að vera unnt að breyta svo til
fyrirvaralaust, ef framboð á fé til
verðtryggðra innlána yrði mun
meira en eftirspurn eftir verð-
tryggðum lánum.
Einar sagði, að þegar frumvarp-
ið hefði verið lagt fram hnfði
ekki verið gert ráð fyrir sam-
ráði Seðlabankans við viðskipta-
bankana um framkvæmd verð-
tryggingarinnar. Nú væri sú breyt
ing komin inn í frumvarpið að
lögfesta á að Seðlabankinn skuli
hafa samráð við viðskiptabankana.
Þessi breyting er til bóta, en mjög
finnst mér að þetta samráð hefði
átt að hafa áður en Alþingi tek-
ur endanlega ákvörðun um málið,
heldur en á eftir.
Skv. frumvarpinu á það að vera
á valdi stjórna fjárfestingarsjóða,
hvort verðtrygging verður tekin
upp á útlánum sjóðanna eða ekki.
En hins vegar er ekki tekið fram
í frumvarpinu við hvað verðtrygg-
ingin skuli miðast. Verðmiðarnir
á þeim verðtryggingarlánum, sem
nú eru í útlánum, þ.e. Húsnæðis-
málastjórnarlánum og skuldabréfa
lánum ríkissjóðs, eru ákveðnar í
iögum og væri eðlilegast að sá
háttur yrði á hafður í sambandi
við þessar verðtryggingar. Skv. 4.
grein frumvarpsins á aðalreglan
að vera sú — en þó með hugsan-
legum undantekningum, — að
miða skuli við framfærsluvísitölu.
Tók Einar nokkur dæmi um út-
lán fjárfestingarsjóða til sjávarút-
vegs, landbúnaðar og iðnaðar og
benti á hve framfærsluvísitala
ætti illa við þær lánveitingar. T.
d. hefði framfærslukostnaður ekki
úrslitaáhrif á endursöluverð iðn-
aðarvéla.
Búast mætti við, að stjórnir
allra lífeysissjóða ákvæðu að taka
upp verðtryggingu á útlánum eft-
ir samþykkt frumvarpsins. í 7. gr.
frumvarpsins segir, að slík lán
skuli veitt með sömu kjörum og
íbúðalán Húsnæðismálastjómar.
Spurningin er þá, hvort það tek-
ur einnig til veðréttarins, en Hús-
næðismálatsjórnarlán má aðeins
veita út á 1. veðrétt fasteignar.
Þetta atriði skiptir afar miklu
máli fyrir þá, sem eru að byggja
eða ætla að ráðast í byggingu og
er nauðsynlegt að fá um þetta
skýr svör frá ráðherra. Það er for-
sendan fyrir því að þorri hús-
byggjenda geti komið húsum sín-
um upp, að þeir geti fengið bæði
húsnæðisstjórnarlán og lán úr líf-
eyrissjóði, eins og húsbygginga-
kostnaðir er nú komið.
Ráðherrann segir aðaltilgang
þessa frumvarps að vinna gegn
verðbólgunni. Ég held, sagði Ein-
ar, að verðtryggingin verði að
vera mjög almenn, ef hún á að
draga úr verðbólgunni, en skv.
frumvarpinu á spariféð í bönkum
og sparisjóðum, sem nú nemur
um 7700 milljónum króna, að
vera áfram óverðtryggt að mestu.
Fyrstu áhrifin af samþykkt pessa
frumvarps verða þau að lífeyris-
sjóðir, tryggingafélög og fjárfest-
ingarsjóðir taka upp verðtrygg-
ingu, en flest annað er afar óljóst
um framkvæmdina. Því hefði ver-
ið hyggilegt að samþykkja tillögu
Framsóknarmanna um að fresta
málinu til hausts og vísa því til
milliþinganefndar, sem grandskoð
aði það í samvinnu við Seðlabank-
ann og viðskiptabankana. Það
myndi ekki tefja málið mikið en
yrði því án efa til betrumbóta
og myndi tryggja heillavænlegri
árangur að verðtryggingunni.
Gylfi Þ. Gíslason, bankamálaráð
herra, sagði að aðalreglan væri
A Þ
★★ Frumvarp ríkisstjórnarinnar um rýmkun lánsheimilda atvinnu-
leysistryggingasjóðs var afgreitt sem lög frá Alþingi í efri deihl í
gær.
★★ Gunnar Gíslason mælti fyrir frumvarpi landbúnaðarnefndar
neðri deildar um framlengingu á búnaðarmálasjóðsgjaldinu til Bænda
liallarinnar. Frumvarpið var samþykkt til 2. umr.
•fck Frumvarp um eflingu iðnlánasjóðs var samþykkt sem lög frá
Alþingi í gær. Ennfremur frumvarp um fuglaveiðar og fuglafriðun.
sú að framfærslu
vísitala yrði til
viðmiðunar við
verðtrygginguna,
en þar sem önn-
ur viðmiðun
þætti heppilegri
skyldi hún við-
höfð og myndi
það á valdi sjóðanna að ákveða
hana. Ennfremur lagði ráðherr-
ann áherzlu á, að það væri ekki
tilgangurinn með frumvarpinu að
skerða á nokkurn hátt lánsmögu-
leijca hjá húsbyggjendum og
myndu þeir með krókaleiðum eft-
ir sem áður geta fengið lán frá
Húsnæðismálastjórn og lífeyris-
sjóði.
Lúðvík Jósepsson minnti á, að
ráðherrann hefði talið megintil-
gang frumvarps
ins að draga úr
fjárfestingu.
Spurði hann,
hvort of mikið
væri nú lánað til
húsbygginga,
sjávarútvegs, iðn
aðar. Taldi Lúð-
vík að frumvarpið myndi síður en
svo hitta í mark heldur beinlínis
verða til þess að auka verðbólg-
una í landinu og auka á erfið-
leika atvinnuvega og húsbyggj-
enda. Þeir, sem hefðu tekið hús-
næðismálastjórnarlán 1964 með
ákvæðum um verðtryggingu þyrftu
nú að greiða 12% álag á afborg-
anir og vexti og eftir 2 ár þyrftu
þeir að borga 20% álag, ef verð-
bólgan héldi áfram eins og flest
benti til.
Þórarinn Þórarinsson sagði, að
eðlilegt væri að styðja heilbrigðar
ráðstafanir til
að tryggja kjör
f§ sparifjáreigenda,
og vel gæti kom-
komið til greina
að verðtryggja
allt sparifé, en
.... nú væri mikill
MI misskilningur að
halda, að unnt væri að draga úr
verðbólgunni með verðtryggingu
fjárskuldbindinga einni. T. d. ætti
iðnrekandi, sem yrði að greiða
álag á lán sín ekki annars úr-
kosti en hækka framleiðslu sína
og það hækkaði verðlag og fram-
færsluvísitölu, útgerðarmaður sem
greiða yrði slíka hækkun yrði að
leita á náðir ríkisvaldsins, sem
gripi ef til vill til gengislækkun-
ar, sem magnaði verðbólgu, hækk
un afborgana og vaxta af hús-
byggingarlánum myndi hafa í
för með sér auknar kaupkröfur,
því það hefði sýnt sig, að það
væru fyrst og fremst þeir, sem
hefðu nýlega staðið í húsbygging-
um eða hefðu með öðrum hætti
við háan húsnæðiskostnað að
glíma, sem fyrst og fremst knýðu
á um kauphækkanir.
Þórarinn sagðist vilja taka undir
umsögn Landsb. um þessi mál,
þar sem segði, að ef tryggja ætti
spariféð, þyrfti að vinna gegn þvi,
f gær tók Jón Kjartansson, forstjóri, sæti Skúla Guðmunds-
sonar 1. þm. Norðlendinga vestri, Skúli mun dveljast erlendis
nokkrar vikur.
f gær tók Vilhjálmur Hjálmarsson, bóndi, sæti Halldórs Ás-
grímssonar 2. þm. Austfirðinga.
Þá tók Sigfús Johnsen, kennari, í gær sæti Guðlaugs Gísla-
sonar, 3. þm. Sunnlendinga.
sem verðrýrnun þess ylli, þ. e.
verðbólgunni, en verðtrygging ein
gerði það ekki, eins og sannaðist
bezt í Finnlandi, sem væri eina
landið í Evrópu sem tekið hefði
upp slíka verðtryggingu. Þar
hefði verðbólga aukizt meira en
í nokkru öðru landi Evrópu að
íslandi einu undanskildu.
Þórarinn kvað sig furða á, að
ríkisstjórnin skyldi dirfast að ætla
að leggja nýja þunga bagga á þá,
sem í framkvæmdum við atvinnu-
vegi og húsbyggingar stæðu, en
láta þá, sem eyðslulánin taka, en
stór hluti víxillánanna væru eyðslu
lán, ósnerta.
Þetta frumvarp væri aðeins stað
festing á því að ríkisstjórnin hefði
gefizt upp við að leysa verðbólgu-
málin eftir eðlilegum leiðum, þ.e.
með því að leita eftir sem víð-
tækastri samvinnu við verkalýðs-
samtök og stjórnmálaflokka um
heildarlausn þeirra. í þessu írum-
varpi fælist og stórkostlegt rang-
læti fyrir unga fólkið í landinu.
Ungir menn, sem vildu leggja í
atvinnurekstur yrðu að taka á sig
þessar nýju byrðar, en hinir
gamalgrónu, sem búnir væru að
kóma sér fyrir fengju að sitja
áfram að mun ódýrari víxilvið-
skiptum og yfirdráttum. Þetta
væri hið hróplegasta ranglæti gagn
vart ungu kynslóðinni.
Ef hefta á framkvæmdir með
þessum hætti, ætti einhver ábyrg-
ur aðili að velja úr, hvaða fram-
kvæmdir eigi forgangsrétt og
hverjar megi víkja eða bíða, en
það verði ekki aðeins þeir hinir
minni máttar, sem verði látnir
víkja án tillits til þeirra fram-
kvæmda, sem um er að ræða í
hverju einstöku tilfelli.
Nær væri að vísitölubinda
eyðslulánin svo sem víxillán, en
láta framkvæmda- og húsbygginga
lán frekar fá undanþágur, ef um
undanþágur er að ræða. í þá átt
hnigi breytingatillaga sú, er
hann flytti ásamt Sigurvin Einars-
syni, um ákvæði til bráðabirgða
svohljóðandi:
„Meðan ekki hefur verið kom-
ið á verðtryggingu innlánsfjár í
bönkum og öðrum lánastofnun-
um, skulu lög þessi ekki ná til
lífeyrissjóða einstakra stétta,
nema að fengnu samþykki við-
komandi stéttarfélaga.
Meðan ekki hefur verið komið
á verðtryggingu innlánsfjár f
bönkum og öðrum lánastofnun-
um, skulu lög þessi ekki ná til
fjárfestingarsjóða, sem njóta fram
laga frá atvinnuvegunum, nema
að fengnu samþykki viðkomandi
stéttarsamtaka, Stéttarsambands
bænda, varðandi stofnlánadeild
landbúnaðarins, Landssambands
íslenzkra útvegsmanna varðandi
fiskveiðasjóð, stofnlánadeild sjáv
arútvegsins, og fiskimálasjóð og
Félags íslenzkra iðnrekenda og
Landssambands iðnaðarmanna
varðandi iðnlánasjóð.
Meðan ekki hefur verið komið
á verðtryggingu innlánsfjár í
bönkum og öðrum lánastofnun
um, skulu falla niður vísitölu-
hækkanir á lánum Húsnæðismála
stofnunar ríkisins samkv. lögum
nr. 19, 10. maí, 1965.“
Sagði Þórarinn, að sér hefði
fundizt það mjög undarlegt, þeg-
ar verkalýðssamtökin i júní sam
komu laginu svonefnda, skyldu
hafa fallizt á það, að húsnæðislán
skyldu ein verða vísitölubundin.
Þar samdi verkalýðshreyfingin af
sér og verkalýðshreyfingin verður
að viðurkenna það ranglæti, sem
þessu hefur orðið samfara, og
vinda bráðan bug að því að fá
úr þessu bætt. Það er hennar
skylda.
Þá spurði Þórarinn, ráðherrann
hvernig reynslan hefði orðið af
verðtryggingu útlána í Finnlandi
og fsrael, þar sem þetta ráð hefði
verið reynt, en engar upplýsingar
kæmu fram um það, þótt þess sé
getið í greinargerð frumvarpsins,
að verðtrygging fjárskuldbind-
inga hafi verið reynd í þessum
löndum.
Þórarinn sagði, að sér hefði skil
izt, að sá háttur væri nú upp tek
inn hjá Húsnæðismálastjórn að
veita síður lán til þeirra, sem
hefðu aðgang að lífeyrissjóðum.
Kvaðst hann vilja spyrja ráðherr-
ann sérstaklega um þetta atriði
vegna fyrri ummæla hans um þaf
að menn ættu þess fullan kost. a"»
. Framhald a 14 siðu.