Tíminn - 15.04.1966, Page 9
FÖSTCDAGUR 15. apríl 1966
TÍMINN
9
Það er sýnt, að erlendir kvik
myndagerðarmenn geri tíðreist
til fslands í ár, a. m. k. tvær
meiriháttar sögumyndir verða
teknar hér á landi í sumar,
báðar byggðar á fornfrægum
ástarsögum, sem varðveitzt hafa
f ýmsum gerðum. Áður hefur
verið sagt frá þýzkum kvik
myndaleiðangri, sem hingað
verður gerður í sumar til að
vinna hér að feikilangri kvik
Á blaðamannafundi að Hótel Sögu: Gabriel Axel kvikmyndaleikstjóri, Just Betzer framkvæmda-
stjóri ©g Benedikt Árnason aðstoðarleikstjóri. Tímamynd—GB
Kvikmynd tekín hér á landi með
íslenzkum og erlendum leikurum
mynd um Niflungakvæðið, og
nú er ákveðið, að hingað komi
annar hópur kvikmyndamanna
til að taka hér að verulegu leyti
kvikmynd, sem byggist á sög
unni um elskenduma Hagbarð
og Signýju, að því, er kvik
myndastjórinn, danski leik-
stjórinn Gabriel Axel, sagði á
fundi með blaðamönnum að
Hótel Sögu á annan í páskum,
en hann hefur ferðazt um land
ið nokkrar vikur í leit að sögu
stöðum ásamt Benedikt Árna-
syni leikara, sem verður að-
stoðarmaður leikstjórans hér,
og Just Betzer framkvæmda-
stjóra ASA Film Studio í Kaup
mannahöfn, en myndin verður
gerð á vegum þess félags og
tveggja annarra, Bonniers Film
í Stokkhólmi og Edda Film
í Reykjavík.
Gabriel Axel er maður á létt
asta skeiði og þó engin nýr
græðingur á sviði kvikmynda
gerðar. Hann hefur þegar
stjórnað gerð tíu kvikmynda í
Danmörku (ein þeirra, Para-
dísareyjan, hefur verið sýnd
hér, og sú mynd, er hann lauk
við síðast, nefnist „Paradis for
to“), en auk þess hefur hann
gert miklu fleiri kvikmyndir
fyrir sjónvarp. Þótt Gabriel Ax
el sé danskur að þjóðerni, ólst
hann alveg upp í Frakklandi,
komst þar fyrst í tæri við
kvikmyndagerð og þarf ekki
að efa, að þar hefur hann þótt
efnilegur, því að hann starfaði
um skeið með sjálfum Louis
Jouvet, einum af áhrifamestu
mönnum í franskri kvikmynda
list um margra ára skeið. Axel
kvaðst hafa harla lítið getað
komið fyrir sig orði í móður
málinu, er hann fluttist heim
til Danmerkur, en þar kynnt
ist hann franskri stúlku, upp-
alinni í Danmörk, hún varð
síðar eiginkona hans, og var
helzt á honum að skilja, að
það hefðu að vissu leyti orðið
kaup kaups, hún hefði kennt
honum dönsku, en hann henni
frönsku í staðinn.
Gabriel Axel tjáði blaða
mönnum, að sagan um Hag-
barð og Signýju í hinni fyrir
huguðu kvikmynd væri byggð
á þeim gerðum, er til væru í
dönskum bókmenntum, sög-
unni eins og danski sagnritar
inn Saxi fróði (Saxo Grammat
icus) færði í letur I Danasögu
sinni svo og stuðzt við dönsk
þjóðkvæði. Kvaðst Axel hafa
fengið danska skáldið Frank
Jæger til að semja samtölin, en
síðan hefði hann sjálfur gert
breytingar og gengið frá samn
ingu kvikmyndahandritsins og
hefði ákveðið danskt nafn á
myndinni, „Den röde kappe“
skal hún heita. Öll útiatriði
myndarinnar verða tekin á fs
landi, og verða rösklega
helmingur af lengd myndarinn
ar, en inniatriðin í kvikmynda
veri Bonniers-félagsins í Stokk
hólmi.
Sem áður segir, verður út-
gerð myndarinnar norræn,
og leikendur og starfsmenn frá
ýmsum löndum Norðurlanda.
Leikstjóri verður Gabriel Ax
el, og landi hans aðalmynda-
tökumaður, Henning Bendsen,
frægur maður í sinni grein,
vann að töku myndanna „Ger
trud“ með snillingnum Drey-
er, og sömuleiðis „Orðsins",
sem gerð var eftir leikriti Kaj
Munks. Leikmyndir, hús
og búninga teiknar sænski leik
■myndasmiðurinn Lundgren,
sem hefur unnið sama verk
ifyrir flestar kvikmyndir eftir
llngmar Bergman. Verða tvö
stór hús flutt hingað í flekum
og reist hér við töku myndar
innar. Aðalleikendur verða
fimmtán, danskir, norskir,
sænskir og einir þrír fs-
lenzkir, en í hlutverk Hag-
barðs verður fenginn kunnur
rússneskur leikari, nánar vildi
Axel ekki segja um það eða
nafngreina leikendur að svo
stöddu. Þrjátíu íslenzkir hest
ar, allir hvítir eða gráir, koma
fram í myndinni, og úlfur verð
ur fluttur hingað til að gegna
sínu hlutverki í myndinni. Sömu
leiðis koma þeir félagar hing
að með stærðar eikartré frá
Danmörk, en í því dæmist Hag
barður til að hengjast í leiks
lok.
Myndin verður tekin í litum
og cinemaseope, og hyggur Ax
el gott til að gera slíka mynd
hérlendis. Fátt vildi hann
segja um það, hvaða staðir
hér hefðu orðið fyrir valinu
til myndatöku, gat þó ekki orða
bundizt um það, að honum
hefði litizt sérstaklega vel á
svæði við Jökulsá á Fjöllum,
við Hljóðakletta og vfðar um
land. Kostnaður við gerð
myndarinnar verður gífurlegur,
nemur a. m. k. tólf mUljón
um íslenzkra króna, og mun
Den danske filmforbund leggja
fram nokkum fjárstyrk. Taka
myndarinnar hér á landi tek
ur minnst mánuð, við góð
veðurskilyrði. En áformað er
að kvikmyndin verííi fuUgerð
fyrir jól og frumsýningar verði
samtímis á jólum í höfuðborg
um Norðurlanda og f Moskvu.
GB
Siguriur Björnsson
Idinborgurhátíðinni
Fjölbreytilegustu listahátíðir
Evrópu og þær, sem íslendingar
eiga stytzt að sækja, eru haldnar
á hverju vori og sumri, hátíðirn
ar í Björgvin og í Edinborg.
Þeirra er Edinborgarhátíðin víð-
frægari, og nú, er hún verður
haldin í tuttugasta sumarið í röð,
er það fréttnæmast fyrir íslenzk
blöð, að þar koma fram íslenzkir
listamenn.
Þar er fyrst að nefna Sigurð
Björnsson óperusöngvara, sem
verður í hópi frægra söngvara
frá Stuttgart-óperunni, er flytur
m. a. óperuna „Wozzeck" eftir
Alban Berg í lok fyrstu og ann-
arrar viku hátíðarinnar, en þau
tvö tónskáld, er mest skil verða
gerð á hátíðinni, eru Robert Schu
mann og Alban Berg. Aðalsöngv
arar f Wozzeck, auk Sigurðar,
verða Irmgard Seefried, Josef
Traxel, Gerhard Stolze, Hetty
Plumacher, Fritz Linke og Ger-
hard Unger.
Þá höfum vér frétt, að komið
hafi til mála, að Traverse-listafé-
lagið muni sýna á hátíðinni verk
eftir íslenzkan listmálara, Krist-
ján Davíðsson, en ekki vill lista
maðurinn staðfesta þá frétt að
svo komnu máli. En undanfarið
hafa myndir eftir Kristján verið
á samsýningu i Englandi, á veg
um þessa félags, sem var stofnað
í Edinborg fyrir nokkrum árum
og hefur vakið feiknaathygli
vegna leiksýninga, listsýninga og
bókmenntakynninga, er það hef
ur beitt sér fyrir.
Edinborgarhátíðin hefst 21.
ágúst og stendur til 10. septemb
er. Þar verða leiksýningar með
fjölbreyttasta móti um árabil.
Leikflokkur kemur frá Piraikon
Theatron í Aþenu og flytur
„Electra“ eftir Sófókles, og „Med
ea“ eftir Evripides og „Vetrar-
ævintýrið“ eftir Shakespeare.
Skapgerðarleikarinn brezki Max
Adrian kemur fram sem Bern-
ard Shaw á sýningu, sem nefnist
„Kvöld með GBS“ og leikfélagið
Bradbury Plays stendur fyrir. Frá
Brúðuleikhúsinu í Moskvu kemur
leikstjórinn Sergei Obraztzov á-
samt konu sinni og sýna þau með
enskum skýringum gamla og nýja
brúðuleiki. Látbragðsleikhúsið
pólska í Wracolv, sem frægt er
orðið, efnir til sýninga á hátíð
inni. Og Traverse-leikhúsið stend
ur fyrir leiksýningu, sem fjallar
um leikskáldið spænska Lorca, í
minningu þess, að liðin eru þrjá
tíu ár síðan hann var myrtur i
heimalandi sínu.
Ríkisóperan í Stuttgart flytur
fjórar óperur á hátíðinni. Töfra
flautuna eftir Mozart. Lohengrin
eftir Wagner, og tvær eftir Alb
syngur á
/ sumur
Sigurður Björnsson
an Berg, „Lulu“ og „Wozzeck",
sem áður greinir.
Frægustu hljómsveitir, sem
flytja verk á hátíðinni, eru Út-
varpshljómsveit Moskvuborgar,
stjórnandi Gennadi Rozhdest-
vensky, Nýja Fílharmóníuhljóm-
sveitin, stjórnendur Rafael Kube
lik og Claudio Abbado. Hailé-
hljómsveitin, stjórnandi Sir
John Barbirolli, og Virtuosi di
Roma, stjórnandi Ranato Fasano.
Af einleikurum og einsöngvur-
um, sem kom fram, má nefna
Elisabeth Schwarzkof (sópran),
Fritz Wunderlich (tenór), píanó
leikarana Emil Gilels frá Rúss-
landi, Annie Fischer frá Bandaríkj
unum og Jörg Demus frá Austur
ríki, sellósnillinginn Pierre Fourn
ier, pólska fiðluleikarann Henryk
Szeryng.
Aðalmyndlistarsýningin á veg
um hátíðarnefndarinnar verður
yfirlitssýning á verkum eftir
franska málarann Georges Rouault.
Listahátíðin í Bergen hefst 26.
maí og stendur til 12. júní. Fyrsta
daginn verða eingöngu hátíðartón
leikar sinfóníuhljómsveitar borg-
arinnar, Musikselskapet Harmoni
en‘s Orkester, stjórnandi verður
Sixten Ehrling frá Stokkhólmi, en
einleikari ítalski fiðlusnillingurinn
Zino Fransescatti, í fiðlukonsert
inum eftir Saint-Saens.
Tvær sinfóníuhljómsveitir koma
frá útlöndum til að leika á há-
tiðinni, Útvarpssinfóníuhljóm
sveitin pólska, undir stjórn Jan
Krenz, og Útvarpssinfóníuhljóm-
sveit Berlínar, en stjórnandi henn.
ar á hátíðinni verður annarrar
þjóðar, Lorin Maazel, og ein-
leikari með henni í fiðlukonserti
eftir Mozart verður einn frægur.
Christian Ferras. Tvær óperur
verða fluttar á hátíðinni, hópur
frá Konunglegu óperunni í Stokk
hólmi flytur „Cosi fan tutte“ eft
ir Mozart, og svo verður frum-
flutt óperan „Jeppi“ eftir norska
tónskáldið Geir Tveitt. Frá Kan
ada kemur Boyd Neel kammer-
hljómsveitin og heldur síðdegis
tónleika.
Þjóðleikhúsið í Osló flytur leik
ritið „Honningfuglen og leopard
en“ sem Aslaug Vaa hefur samið
upp úr afrískri þjóðsögu og sami
leikflokkur flytiir „Landafræði
og ást“ eftir Björnstjerne Björn
son, og ennfremur leikritið „Hugh
ie“ eftir Eugene 0‘NeiIl, og
„Brand“ eftir Henrik Ibsen.
Fleiri leiksýningar verða á há-
tíðinni og margar ballettsýningar,
þjóðdansasýningar, margir ein-
leiks- og tvíleikstónleikar og
þrjár myndlistasýningar. G.B.
HJÖKRUNARKDNU
vantar nú þegar að sjúkrahúsinu á Húsavík. Enn*
fremur yfirhjúkrunarkonu frá 1 júlí n.k.
Upplýsingar gefa yfirhjúkrunarkona og sjúkra*
húslæknir.