Tíminn - 15.04.1966, Síða 11
f
FÖSTUDAGUR 15. aprfl 1966
TÍMINN
VERÐIR LAGANNA
TOM TULLETT
38
tekinn, kreditbréfið gert upptækt og leitað í hótelherbergi
hans.
Ekki fundust nema 900 dollarar í peningum, en í skúffu
lá svissneskt vegabréf með komustimpli útlendingaeftirlits-
ins í Bombay frá 11. júlí. Ertei komu tveir 1000 rúpíu seðlar
í leitirnar. Með þeim höfðu verið greidd flugför 18. júlí.
Annað var keypt fyrir Tom Ept, hitt fyrir Chan Blumenberg.
Lögreglan yfirheyrði Blumenberg, sem gerði þá grein fyrir
peningaseðlinum að hann hefði hitt í járnbrautarlest frá
Dlehi mann að nafni Wemborg, sem skipt hefði fyrir sig
peningum. Þetta staðfesti David Wemborg, sem reynzt hafði
sami maður og Ept og Intaler, svo Blumenberg var sleppt
en eftirlit haft með honum.
Ekki fékk hann að ganga lengi laus, því lögreglan í
Bombay komst brátt að raun um að hann var sá sem skipt
hafði nokkrum eftirlýstum seðlum þar í borg. Leitað var
í herbergi hans og fílslíkanið fannst en engir peningar.
Þegar herbergisþernan bjó um rúmið í herberginu næsta
dag, heyrði hún skrjáfa í pappír inni í dýnunni. Hún kallaði
á hótelstjórann og dýnuverinu var sprett upp. Út hrundi
hver peningabunkinn af öðrum, þarna var fengur svika-
hrappanna kominn.
Nokkurra klukkutíma verk var að telja peningana. Sam-
tals reyndust þetta vera 243.000 rúpíur, 660 sterlingspund
og 2452 dollarar. Síðar fann lögreglan 110 pund í viðbót
í annarri dýnu.
Eftir að þeir kumpánar voru komnir bak við lás og slá,
gat lögreglan rakið ferðir þeirra. Blumenberg hafði skipt
þrjátíu og sex 1000 rúpía seðlum, og allir nema einn komu
í leitirnar. Aldrei fannst vegabréf Thoms Epts né kredit-
bréfið sem framvísað var í Bombay, en vegabréf á nöfn-
in David Wemborg og Chan Blumenberg náðust og sömu-
leiðis kreditbréfið sem notað var í Lloyds Bank í Karachi.
Máiið tók nú að skýrast.
Ljóst varð hvemíg í þvi lá að vegabréf Wemborgs bar
komustimpil frá Bombay, enda þótt þangað hefði aldrei
komið neinn maður undir því nafni, þegar borinn var saman
sá stimpill og stimpillinn í vegabréfi Blumenbergs. Undir
eins og það var stimplað hafði Blumenberg skundað í klefa
sinn og flutt rakt stimpilblekið í vegabréfið á nafni Wem-
borgs með þrykkipappír. Sama bragð var notað til að flytja
stimpilinn úr vegabréfi Toms Epts í það sem hljóðaði á
nafnið Intaler.
Þegar Victoria kom næst til hafnar var gengið úr skugga
um að Intaler, öðru nafni Wemborg, hafði komið til lands
ins undir nafninu Tom Ept með kanadiskt vegabréf. Yfirvöld
í Sviss og Þýzkalandi lýstu vegabréfin á nöfnin Wemborg
og Blumenberg fölsuð og Intaler reyndist margdæmdur
glæpamaður. Hann hafði fengizt við flestar tegundir auð-
gunarglæpa — fjársvik, innbrotsþjófnað, vasaþjófnað, skipti
á demöntum. Allrei tókst að rekja feril Blumenbergs, en
vissa fékkst fyrir að hann hafði lagt á ráðin um að hafa
fé út úr bönkunum. Hann hafði séð um kreditbréfafalsanim-
ar, sem voru svo snjallar að skjölin blekktu heilan hóp
reyndra bankastarfsmanna.
Báðir voru mennimir sakfelldir fyrir samsæri, svik og
skjalafals og dæmdir í fimm ára fangelsi. Þeir voru látnir
lausir sama daginn og fóru saman til Bombay og þaðan
til Madras. Nú kölluðu þeir sig Lucien Crabe Chaumette og
Moritz Levy. í Madras kynntust þeir gimsteinakaupmanni
að nafni Alexis Pelzman. Kynnin af honum hafa líkast tii
gefið þeim hugmyndina að fara til Amsterdam, miðstöðv-
ar gimsteinaverzlunarinnar í heiminum, til að hitta þennan
kunningja sinn aftur. Hann kynnti þá fyrir frægum starfs-
bróðum sínum. Ekki höfðu þeir félagar bætt ráð sitt og
kænska þeirra var söm við sig. Skömmu eftir að fundum
þeirra og gimsteinasalans bar saman, kváðust þeir ætla að
kaupa af honum nokkra vaida steina á 31.000 gyllini. Stein-
ar voru látnir í umslag sem kaupmaðurinn innsiglaði síðan
og áritaði. Kaupendurnir tilvonandi lofuðu að koma með
peningana að tveim dögum liðnum.
Þegar þeir komu ekki á tilsettum tíma, opnaði kaupmað-
urinn umslagið, en þar var þá ekki annað en nokkrir verð-
lausir glermolar. Ekki hafðist upp á bófunum, en nöfn þeirra
eru enn á skrá hjá Alþjóðaloki'égiú&'m‘i';íí6kkí ‘ofprbietran-
legra glæpamanna.
Svikahrappurinn notfærir sér ævinlega trúgirni meðbræðra
sinna, en hann breytir um starfsaðferðir eftir því sem tím-
UNG STÚLKA í RIGNINGU
GEORGES SIMENON
hvað um var að ræða, varð Mai
gret að nefna öli dulnefni Julius
ar van Crams: Lemke, Stieb, Siej
dler Marek, Erixon, Spangler, Doi
ley . ..
Það var undir nafninu Donle;
sem hann hafði verið grafinn fyr
ir mánuði i fangelsiskirkjugarðin
um í Sing-Sing þar sem hann a
plánaði átta ára fangelsisdón fyr
ir svik.
32
þorði ekkert að eiga á hættu eftir
það, sem gerðist.
— Til ítaliu?
— Sennilega.
— Það var aðeins ætlunin að
taka töskuna hennar?
— Já, þeir fylgdu henni eftir
í bílnum. Bianchi fór út úr bíln-
um, þegar þeir voru komnir fram
úr henni. Hvergi var mann að sjá.
Svo þreif hann af henni töskuna.
án þess að gruna að hún var
fest við úlnliðinn með keðju Hún
féll á kné og þegar hann sá hún
ætlaði að hrópa á hjálp, þá sló
hann hana í höfuðið. Hún læsti
um hann handleggjunum og
reyndi að hrópa á hjálp. Þá tók
hann hnúajárn úr vasanum og sló
hana niður.
— Og þú spannst upp söguna
um hinn Ameríkumanninn til að
fá Lognon í burtu?
— Hvað hefðuð þér gert í mín-
um sporum? Lurður lét plata sig.
Meðan á rannsókninni stóð,
hafði Lognon alltaf verið sjónar
mun á undan rannsóknarlögregi
unni. Og hefði hann skilið eitt-
hvað i sálarilfið stúlkunnar, þá
hefði hann haft upp á morðingj-
anum.
Hvað ætli hann hugsaði þessa
stundina í lestinni á leið til París-
ar? Sjálfsagt kenndi hann óheppni
um þetta allt saman. Hann hafði
ekki misstigið sig á neinn hátt og
ekkert var hægt að finna að verki
hans. Hann hafði farið algerlega
eftir þeim reglum, sem kenndar
eru í öllum lögregluskólum. Samt
hafði hann látið leika á sig og tap
að af bráðinni. Hann hafði ekki
verið fær um að skilja sálarlíf
ungrar stúlku frá Nice.
Árum saman hafði Louise reynt
að ryðja sér rúm í lífinu, fuil
þrjózku og þvermóðsku. Hún hafði
lent á refilstigum í veröld, sem
hún kunni engin skil á, og í ör
væntingu hafði hún reynt að ’.eita
athvarfs hjá þeirri, sem næst
henni stóð og hún hafði hlaupizt
frá henni.
Hún var ein síns liðs og barðist
í bökkum, reyndi að ná fótfestu
í fjandsamlegri veröld, en tókst
ekki að læra leikreglurnar
Áreiðanlega vissi hún ekkert
um föður sinn. Ung að aldri hlaut
hún að hafa velt því fyrir sér,
hvers vegna móðir hennar var frá
brugðin öðrum konum. hvers
vegna þær tvær lifðu öðru lífi en
fólkið í kringum þær
Af öllum kröfturo hafði hún
reynt að aðlaga sig. Hún nafði
hlaupizt að heiman. Hún ias aug
lysingar i blöðunum. En jafnframt
því sem Jeanine Armenieu var
ekki skotaskuld úr að fá góða
vinnu, þá var henni hvarvetna vís
að á dyr.
Hafði hún að lokum farið að
ímynda sér, að samsærj hefði ver-
ið gert á móti henni?
Að hvaða leyti var hún frá-
brugðin öðrum Hvers vegna var
hún slíkur hrakfallabálkur?
Jafnvel dauði hennar einkennd-
ist af kaldhæðni. Ef keðjan hefði
ekki verið um úlnliðinn á henni,
mundi Bianchi hafa náð töskunni
og hlaupið leiðar sinnar. Ef hún
hefði sagt lögreglunni sögu sína,
þá hefði enginn lagt trúnað á
hana.
— Hvers vegna var ekið með
líkið út á Vintimille-torgið?
— Ekki var hægt að skilja hana
eftir nálægt barnum mínum. Og
auk þess var hún þannig klædd,
að hún gat verið götumella á Mont
marte. Ög auk þess var enginn
þarna á ferli.
— Hafa þeir þegar sent ein-
hvern á ræðismannsskrifstofu
Bandaríkjanna?
— Nei, áreiðanlega ekki. Þeir
bíða.
— Clark er í símanum!
— Gefið mér samband.
Eins og venjulega fór samtalið
við Clark fram þannig, að nann
talaði lélega frönsku, en Maigret
lélega ensku. Áður en Clark skildi
— Fannst féð, sem hann sveik
út?
í Aðeins lítill hluti af því.
— Var það mikið, sem ekki
fannst?
— Um 100,000 dollarar?
— Og meðsekur honum var
Jimmy?
— Jimmy 0‘Malley, já. Hann
fékk ekki nema þrjú ár of var
látinn laus fyrir tveim mánuðum.
— Og fór til Frakklands?
— Ég hélt, að dóttir hans ætl-
aði að giftást.
— Já, hann fór heim fyrir brúð
kaupið. Peningarnir eru hjá pólsk
um skraddara f Brooklyn, Luka-
sek heitir hann.
Þrátt fyrir allt var ekki laust
við sigurhreim í rödd Maigrets.
— Lukasek veit ef tii vill ekki,
hvað hann hefur undir höndum.
Hann hefur fengið skipun um að
afhenda peningana ungri stúlku,
að nafni Louise Laboine.
— Kemur hún?
— Því miður kemst hún ekki.
Hann hafði sagt þetta óviljandi.
Hann tók sig á og sagði:
— Hún dó í París fyrir nokkr-
um dögum.
Hann rabbaði enn við Clark
sem hann hafði ekki séð árum
saman. Þegar hann lagði símtói
ið á virtist hann hissa að sjá Al-
bert enn í stólnum.
_____________________________n
FBI mundi áreiðanlega finna
peningana og afhenda þá aftur
einhverjum auðkýfingi eða trygg
ingafélagi því að sennilega voru
þeir tryggðir gegn þjófum. Pólski
skraddarinn mundi hafna í stein
inum. Og Jimmy O'Malley mundi
drekka brúðaröl dóttur sinnar t
gamla klefanum sínum f Sing-
Sing.
Örlög Louise voru kaldhæðnis-
leg. Hefði Mademoiselle Irene lán
að henni aðra tösku, keðjulausa
þá væri hún enn á lífi.
Og ef Löuise hefði komið tfm-
anlega til Rue de Ponthieu, og
fengið skilaboðin, þá væri hún nú
100,000 dollurum ríkari og enn á
lífi . . .
Hafði hún farið til Amerfku?
Hvað hefði hún gert við 100,
000 dollara?
Maigret tæmdi glasið sn*.
hann sló öskuna úr pípunni.
— Komdu Janvier.
Hann benti á barþjóninn, sem
strax áttaði sig á, hvað var um
að vera. Hann kunni orðið um-
gengnishættina.
— Taktu hann með þér á skrif
stofuna, skrifaðu allt, sem hann
segir og láttu hann skrifa undir
settu hann svo í gæzluvarðhald.
Eg hringi í rannsóknardómarann.
Nú gengi allt af sjálfu sér. ,
Hann hafði ekki áhuga á þvi,
sem á eftir kom. f þeirri andrá
að Albert var að ganga út um
dyrnar. kallaði hann á hann aftur
og sagði:
— Ég gleymdi að borga þrjá
pernod.
— Það er á minn kostnað.
— Það skal aldrei vera!
Hann rétti honum seðlana og
sagði eins og hann myndi hafa
sagt á bamum:
— Það passar.
Og barþjónninn svaraði ósjálf-
rátt eins og hann stæði enn inn-
an við barborðið sitt:
— Þakka yður.
SÖGULOK.
Látið okkur stilla og herða
upp nýju bifreiðina. Fylg-
izt vel með bifreiðinni.
BÍLASKOÐUN
Skúlagötu 32. Simi 13-100.
ÚTVARPIÐ
Föstudagur 15. aprfl
7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádegis
útvarp. 13.15 Lesin rtagskrá
næstu vifeu. 13.30 Við vtnnuna.
14.40 Viö sem heima sitjum
15.00 Mið- ■■MH
degisútvarp
16.30 Síð-
í dag
degisútvarp 17.00 Préttir. 1705
t veldi hliómanna Jón örn Mar
inósson kynnir sigilda tónilst tvr
tr ungt fólfe 18.00 Sannar sðgur
frá liðnum ðidum 18.30 Tónlelk
ar 19.20 Veðurtregnir. 1930
Fréttir 20.00 Kvöldvaka a. Lest
ur fomrita: Færevinga «aga b.
Minningar um Þlófa-Lása. e.
Tökum lagið' d Genglð tU refa
veiða Stefán lónsson flytur frá-
söguþátf eftlr Njál PYiðbtamap
son á Sandí i Aðaldal e. Kvæða
lög Margrét Hjálmarsdóttir ftveð
ur stökur eftir Marfu Bjarnadott
ur 21.25 Otvarpssagan- „Daeur
inn og nóttin- Lesari: Htörtnr
Pálsson U6' 22.00 Frétttr og
urfregnir 22 JO Islenzkt <n*l ma
Aðaipteinn lónsson eand mag.
fl.vtur báttinn 22 30 Næturhljów
leikar 23.15 Dagskrárlok.