Tíminn - 15.04.1966, Side 12
12
ÍÞRÓTTÍR TÍMINN ÍÞRÓTTiR
FÖSTUDAGUR 15. aprfl 1966
Leynivopn Frakklands birtist í
gervi dómarans!
Frakkar unnu ísland 16:15 í sögulegum leik
Alf-Eeykjavílc. — Það er aS-
eins eitt orð yfir 34. landsleik ís-
lands í handknattleik, sem var
gegn Frökkum í gærkveldi,
HNEYKSLI. OG monsieur Nelson
Paillou, forseti franska handknatt
leikssambandsins, á „heiðurinn“
af því, en hann dæmdi síðari hálf-
leik letksins og var eitt skæðasta
vopn franska Iiðsins. Aldrei hefur
nokkur dómari, sem dæmt hefur
fcmdsleiki hér í handknattleik,
gert sig eins berlega sekan um
Mntdrægni og þessi franski dóm-
ari, sem virtist staðráðinn í því
aUt frá þvi að hann fékk flautuna
í hendur, að láta Frakkland vinna,
hvað sem það kostaði. Og það var
engin furða, þótt lokatölurnar
yrðu 16:15 fyrir Frakkland.
Ástæðan fyrir því, að Frakkinn
var látinn dæma, var sú, að
sænski dómarinn Lennart Lars-
son komst ekki í tæka tíð til lands
ins til að dæma leikinn og var það
ráð tekið, að láta Hannes Þ. Sig-
urðsson dæma fyrri hálfleik, en
Paillou þann síðari. Hannesi tókst
vel upp og dæmdi sanngjarnt, en
því miður fylgdi hinn franski
„kollegi" ekki fordæmi hans. Allt
ætlaði um koll að keyra í Laugar-
dalshöllinni að leik loknum og
mannfjöldinn „baulaði" í kór að
franska dómaranum, sem mátti
þakka fyrir að vera staddur úti á
miðju gólfi en ekki uppi í áhorf
endastæðinu.
En þrátt fyrir lélegan dómara,
sem greinilega dró tanm franska
liðsins í gærkveldi, er ekki hægt
að hrósa ísl. liðinu fyrir góðan
leik. Leikur liðsins var sá lakasti,
sem maður hefur séð til þess í
vetur, og nú freistast maður til
að álíta, að ísl. liðið hafi lítið er-
indi í lokakeppni HM í Sviþjóð.
Fyrri hálfleikurinn var mjög
slappur, þrátt fyrir, að ísl. liðið
hefði eitt mark yfir í hálfleik, 9:8.
„Stjörnurnar", Gunnlaugur og
Ingólfur áttu afleitan leik, sérstak
lega Ingólfur, sem virtist eitthvað
miður sín og skavrt í tíma og ótíma.
Það voru hins vegar yngri menn
liðsins, sérstaklega Geir Hall-
steinsson, sem björguðu því, sem
bjargað varð, með því að skora
flest mörkin. Franska liðið, með
Richard René (4), sem beztan
mann, lék léttan og skemmtileg-
an handknattleik, en tókst illa að
útfæra leikkerfi sín. Og það var
fyrst og fremst fyrir slakan varn-
arleik íslands, sérstaklega í horn-
unum, að þeim tókst að skora svo
mörg mörk.
Snemma í síðari hálfleik virtist
svolítið ætla að birta til, því á
skömmum tíma tókst Gunnlaugi
að skora 3 mörk í röð mjög glæsi
lega og tryggja fslandi þriggja
marka forskot, 13:10. En eftir það
fór að syrta í álinn. Frökkum tókst
fljótlega að jafna, 13:13, og síðan
fór að verða áberandi þáttur
franska dómarans, sem hvað
eftir annað dæmdi knött-
inn af íslenzka liðinu og
lokaði augunum jafnframt fyrir
brotum frönsku leikmannanna.
Svo rammt kvað að hlutdrægni
Frakkans, að hann sinnti engu,
þegar Magnús Pétursson, marka-
dómari, veifaði hvað eftir annað
á línu, og fyrir bragðið skoruðu
Frakkar ólögleg mörk. Leikurinn
tók á sig leiðinlegan svip, enda
svo augljóst, að dómarinn var
fimmta hjólið undir franska vagn
inum. fsland hafði síðast forustu
15:14, og voru þá eftir 13 mínút-
ur, og á 17 síðustu mínútunum
skoraði liðið ekki eitt cinasta
mark, en Frakkar skoruðu tve og
unnu Ieikinn 16:15.
Síðustu 15 mínútur leiksins var
lítið um skiptingar hjá ísl. liðinu
og voru yngri menn liðsins, Geir
og Hermann sáralítið inn á. Var
þetta hæpin ráðstöfun, ef fyrri
hálfleikurinn er hafður til hlið
sjónar. Var synd að sjá, hve hin
um reyndari leikmönnum okkar
gekk illa að opna frönsku vörnina
og er þó haft í huga, að íranski
dómarinn gerði þeim margar skrá
veifur.
Eins og atburðarásin í síðari
hálfleik var, finnst manni nú sem
um hreinan skrípaleik hafi verið
að ræða, hneyksli, sem vonandi
endurtekur sig ekki oftar. Við
höfum því góða og gilda ástæðu
til að strika 34. landsleikinn út,
og legg ég til, að svo verði gert.
Það er tæplega hægt að hrósa
neinum sérstökum í ísl. liðinu fyr
ir gegnumgangandi góðan leik.
Gunnlaugur var góður af og til,
en þess á milli langt niðri. Sömu
sögu var að segja um Ingólf og
Hörð. Geir Hallsteinsson kom
einna bezt frá leiknum, en var
því miður allt of stutt inn á. Hvor
ugur markvörðurinn stóð sig nógu
vel, en þó var Þorsteinn ágætur í
síðari hálfleik. — Mörk fslands:
Gunnlaugur 5 (2 víti), Geir 3,
Hörður 2, Stefán Jónsson 2, Stef
án Sandholt, Ingólfur og Hermann
1 hver.
í franska liðinu var Roger Lamb
er (5) beztur, en hann skoraði 4
mörk, einnig var Portes Maures
(9) góður, að ógleymdum mark-
verðinum, Jean Ferignac, sem
varði oft stórkostlega.
íhorfendur í gærkyöldi voru um
2000.
Partizan og Reai
Madrid sigruðu
Partizan frá Júgóslavíu sigraði
Manchester Utd. með 2:0 í fyrri
ieik liðanna í undanúrslitum Ev-
rópubikarkeppninnar í fyrrakvöld,
en leikurinn fór fram í Belgrad.
f hálfleik var 0:0 ,en í síðari hálf-
Ieik höfðu Júgóslavarnir yfirburði.
Þá léku Real Madrid og Inter
Milan í Madrid og sigraði heima-
liðið með 1:0.
Reykjavíkurmóf í
hadminton
Reykjavíkurmótið í badminton
1966 verður háð í Valshúsinu á
laugardag og sunnudag og hefst
kl. 15 báða dagana. Skráðir kepp-
endur eru 40 talsins. Má búast
við mjög spennandi keppni.
Gunnlaucjur reynir markskot í leiknum í gærkvöldl. (Tímamynd GE).
Málið fór fyrir dómstól HSÍ
Margir hafa hringt til blaðs- förnu og er úrskurðar að
ins og spurt, hvort kærumáli vænta um helgina. Komist dóm
KR vegna leiksins við FH, sé stóllinn að sömu niðurstöðu fer
endanlega lokiA Þessu er til leikurinn fram aftur og eiga
að svara, að FH afryjaði ur- , , , ..... ... .
skurði dómstóls HKRR til dóm ^ FH-mgar þrja leiki eftir í
stóls HSÍ. DómstóU HSÍ hef- mótinu, þ.e. gegn KR, Val og
ur fjallað um málið að undan- Fram.
Sheff. W. 35 12 7 16 48:54 31
Newcastle 36 12 7 17 44:55 31
Nottingh. F. 36 12 7 17 49:64 31
Sunderl. 37 12 7 18 45:67 31
Aston V. 37 12 6 19 61:71 30
Northamt. 38 9 12 17 50:83 30
Fulham 36 11 5 20 55:74 27
Blackburn 35 7 4 24 51:76 18
Staðan í 1. deild á Englandi er
nú þessi: Liverpool 38 24 8 6 74:30 56
Burnley 37 21 7 9 73:44 49
Leedn 36 19 8 9 67:34 46
Chelsea 35 20 6 9 58:43.46
Manch. Utl. 34 15 12 7 65:46 42
Leicester 35 17 7 11 67:55 41
Everton 38 15 10 13 55:53 40
WBA 36 14 11 11 75:62 39
Tottenham 36 14 11, 11 71:60 39
Stoke 37 13 11 13 60:59 37
Sheff. Utd. 37 13 11 13 48:54 37
West Ham 37 12 9 16 62:77 33
Arsenal 35 10 12 13 57:63 32
Blackpool 37 12 8 17 47:58 32
Staða efstu og neðstu
deild:
Huddersf. 37 18 12 7
Manch. City 35 18 12 5
Wolves 38 19 9 10
Coventry 37 17 12 8
Bristol C. 38 14 16 8
Southampt. 35 18 7 10
Preston 36 9 14 13
Charlton 33 10 11 12
Cardiff 36 10 9 17
Middelsbro 37 8 13 16
Bury 36 10 7 19
Leyton O. 36 5 10 21
liða í 2.
56:27 48
62:37 48
82:53 47
64:46 46
54:46 44
75:50 43
50:61 32
53:60 31
62:73 29
49:74 29
53:67 27
32:70 20
Tekst Rvíkurúrvali að sigra í kvöld?
Hreinn úrslitaleikur milli Rvikur og varnarliðsmanna
f kvöld kl. 8,15 fer fram að
Hálogalandi leikur í körfuknatt-
leik milli Reykjavíkurúrvals og úr-
vals Bandaríkjamanna á Keflavík-
urflugvélli.
Þetta er þriðja ájið, sem keppn
þessi fer fram og hefur Reykja-
víkurúrvalið sigrað tvisvar sinn-
um. í kvöld fer fram fimmti og
síðasti leikur þessa keppnistíma-
bils. Leikar standa þannig, að
hvort lið hefur unnið tvo leiki.
Er því hér um hreinan úrslita-
leik að ræða.
Vafalaust má því búast við tví-
sýnum leik.
Reykjavíkurútvalið er þannig
skipað:
Agnar Friðriksson ÍR
Hólmsteinn Sigurðsson ÍR
Einar Bollason KR
Gunnar Gunnarsson KR
Kolbeinn Pálsson KR
Kn'stinn Stefánsson KR
Einar Matthíasson KFR
Ólafur Thorlacíus KFR
Birgir Ö. Birgis Á
Hallgrímur Gunnarsson Á
Er þetta sama lið og sigrnði
Dani i Polar Cup um páskana.
Körfuknattleiksunnendur eru
hvattir til að kom? og sjá fjörug-
an og skemmtilegan leik.
Á undan leik þessum fer fram
úrslitaleikur íslandsmótsins í II.
fl. karla milli Ármanns og KR.
Khafnar-úrval til Reykjavíkur
Danska blaðið „Berlingske
Tidende" skýrði nýlega frá því,
að ákveðið væri, að Kaup-
mannahafnarúrval í handknatt
leik færi í heimsókn til Reykja
víkur næsta vetur. Verður
Kaupmannahafnarúrvalið lík-
lega á ferðinni i febrúarmán
uði, eða þegar lokakeppni HM
í Svíþjóð verður lokið.
Íþróttasíðan snéri sér til Jó-
hanns Einvarðssonar, for-
manns Handknattleiksráðs
Reykjavíkur og innti hann nán
ar eftir bessu. Cagði Jóhann,
að HKRR hefði í hyggju að
efna til afmælismóts næsta ár
og bjóða í bvi tilefni Kaup-
mannaúrvali hingað upp, en
hann sagði, að málið væri á
byrjunarstigi og ekkert ákveð-
ið endanl. :nnþá.
I