Vísir - 23.08.1974, Síða 3
Vlsir. Föstudagur 23. ágúst 1974.
3
Slegizt um byggingavöruna:
TIMBURVERÐIÐ
MED FYRIRVARA
,,Ég treysti mér ekki
til að halda timbursöl-
unni áfram, meðan allt
er óljóst með gengið og
við eigum allar okkar
birgðir á erlendum
vixlum”. Þetta sagði
einn timbursalinn i
morgun, en timbur-
salar hafa nú ýmist
stöðvað sölu á timbri,
látið það af hendi gegn
20% tryggingargjaldi
eða út i opinn reikning.
Snorri Halldórsson hjá HUsa-
smiðjunni, var einn þeirra
timbursala, sem blaðið ræddi
við i morgun.
„Við seljum okkar viðskipta-
vinum timbrið út I opinn
reikning. Ef einhver kemur hér
hins vegar og biður um mikið
magn timburs, þá höfum við
ekki séð okkur fært að verða við
þeim óskum. 1 dag er þó heldur
rólegra yfir timbursölunni en
undanfarna daga.
Við getum ekki tekið alveg
fyrir timbursöluna, þar sem
mikill hluti af okkar starfsemi
er að vinna timbrið. Nú er öllu
meira selt af unnu timbri en
óunnu”.
Hjá verðlagsstjóra leitaði
blaðið upplýsinga um það, hvort
fleiri aðilar hefðu tekið upp slikt
tryggingargjald. „Þessi mál
fara nú ekki um okkar hendur
enda er i raun og veru ekkert,
sem mælir gegn slikum ráð-
stöfunum. Þetta er ekki óeðlileg
sjálfsbjargarviðleitni, en við
höfum ekki frétt af fleirum, sem
tekið hafa upp þessa skilmála.
Hjá byggingarvöruverzlunum
stendur timbursalan ekki aðeins
tæpt, heldur ber lika mikið á
skorti á öðrum vörum, eins og
hreinlætistækjum og vegg-
flisum.
„Þetta er mjög erfið vara á
þessum timum. Við fáum ekki
samþykkta vixla hér fyrir
kaupum og tollarnir eru háir.
Ofan á allt bætist svo geymslu-
fjárákvæðið. En fólkið sækir
gifurlega i þessar vörur og þvi
er langt frá þvi, að við höfum
undan”.
—JB
Leitaði að vitnum
SLEGINN BYLMINGS-
HÖGG MILLI FÓTANNA
Rannsóknarlögreglan
i Reykjavik leitar nú að
vitnum að slagsmálum
sem urðu i Veitingahús-
inu Borgartúni 32 á
laugardagskvöld.
Þá lenti Arabi I ryskingum við
íslending. Nokkrir menn fóru til
þess að skilja slagsmálamennina.
Einn þeirra lenti þá i höndunum
á félögum Arab ns. Tveir þeirra
héldu honum, meðan hann náöi
sjálfur taki á þeim þriðja. Vissi
hann þá ekki fyrr til en sá sló
hann bylmingshögg milli fótanna
Við það bólgnaði pungurinn, og
verður maðurinn að liggja i
rúminu i þrjár vikur. Hann hefur
bent á Arabann, er sló hann, en sá
neitar sakargiftum. Nokkur vitni
hafa verið yfirheyrð, en ekkert
þeirra hefur getað skýrt fullkom-
lega frá atburðum, eða staðfest
frásögn mannsins.
Að sögn Arabans sem ákærður
er, stóð hann viö næsta borð og
talaði við tvær konur, þegar
átökin áttu sér stað. Og vist er aö
konurnár voru við næsta borð við
þá Araba sem þarna dvöldu um
kvöldið.
Þessar tvær konur eru beðnar
að gefa sig fram viö rannsóknar-
lögregluna, til þess að hægara
verði að fá botn I málið. —óH
Þetta Ijúfa sumar
Hann er ungur að árum þessi, — og hans fyrsta
sumar í þessari veröld féll honum vel í geð eins og
öðrum. Veðrið lék við þennan laglega kálf eins og
fleiri, og landið lagði honum og hans kyni til hina
beztu toppa til að narta í. Engin furða þótt hann
haf i talsvert braggazt þessa sumarmánuði, sem nú
eru senn á enda runnir.
(Ljósmynd Björgvin Pálsson).
■ ■ ■ I
!■■■■■■■■■■■
Skátapils og buxur á
einu og sama þinginu
— ísland frum-
herji í samvinnu
kynjanna innan
skáta-
hreyfingarinnar
1 fyrsta skipti verður nú
haldin sameiginleg Evrópuráð-
stefna skáta, þar sem bæði
koma drengja- og kvenskátar.
Þessar ráðstefnur hafa verið
aðskildar hingað til eftir
kynjum, enda hefur ekki nema
um heimingur lándanna
einhverja teljandi samvinnu
milli kven- og drengjaskáta-
bandalaga.
Ráðstefna þessi verður haldin
hér á landi 1.-6. september,
þannig að Island er fyrsta
landið.sem heldur sameiginlega
ráöstefnu. Island var einnig
fyrst að taka upp sameiginlegt
bandalag fyrir drengi og
stúlkur, en samvinnan hefur
verið i 30 ár. Er það meöal
annars ástæðan til þess, að þessi
'fyrsta sameiginlega Evrópu-
ráðstefna er haldin hér á landi.
Ráðstefnu þessa munu sækja
um 200 erlendir þátttakendur
frá 20 löndum I Evrópu, auk
fulltrúa héðan frá íslandi.
Meginviðfangsefni ráðstefn-
unnar verður annars vegar:
Hvernig getur skátastarfið bezt
komið til móts við aðkallandi
þarfir unglinga I Evrópu?” og
hins vegar: „Sameiginleg
menntun og samstarf kynj-
anna”. Þá verður einnig fjallað
um skátastörf I Austur-Evrópu,
skátastörf meðal afbrigðilegra
hópa, uppbyggingu skátastarfs
I nýjum bæjarhverfum og
sambandið milli landanna I
Evrópu.
Ráðstefnan verður haldin á
Hótel Loftleiðum.
—EA
.*.*.W.*.*.*,
!■■■■■■
Tollvöru-
geymslan
Það skal tekið fram i sambandi
við frétt i blaðinu I gær um 700
þúsund króna bilkaupasvik, að
Tollvörugey mslan hf. á engan
hiut að máli þessu.
Helgi Hjálmsson, hjá ToIIvöru-
geymslunni hf., sagði, að vegna
þess að I fréttinni stæði, að bilarn-
ir hefðu verið fengnir út úr „toll-
vörugeymslu”, vildi hann taka
fram, að sitt fyrirtæki hefði aldrei
hýst bila þessa, né haft nein af-
skipti af málinu. Sagði Helgi, að
hér væri um að ræða vörugeymsl-
ur skipafélaganna.
—ÖH
Rifu til grunna,
endurbyggðu ó
tœpum mánuði
Líklega fagna margir bil-
stjórar þvi að geta aftur fariö
að kaupa pylsu, kók og Visis-
blað I Nesti i Fossvogi og
þurfa þá ekki annað en skrúfa
niður rúðuna til að fá fallegt
bros og góöa fyrirgreiðslu.
Gamla Nestiö, það elzta á
landinu, var rifiö til grunna
fyrir mánuði siðan, en
iðnaðarmenn hófu að byggja
að nýju eftir teikningum Jóns
Kaldals, byggingafræðings.
Hefur það nú verið stækkað
um helming og hægt að af-
greiða 4 bila i einu, I stað
tveggja áður.
Myndin er af eigendum
Nestis i gærdag, ásamt nokkr-
um starfsstúlkum þess. Guð-
finnur Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri og Erla B.
Axeisdóttir til vinstri, en
iengst til hægri er Sonja B.
Helgason.