Vísir - 23.08.1974, Page 9
Kvöldið sem knattspyrnuliðið FC
Barcelona sigraði i fyrsta skiptið i 14 ár i
spönsku deildarkeppninni — vann
Madrid 5-0 — var heimavöllur þess, Las
Ramblar, eitt stórt mannhaf, sem fagn-
aði látlaust. Lögreglan þurfti að nota
táragas til að hreinsa völlinn og fang-
elsa marga. Hvers vegna? Aðeins sigur-
gleöi? Já, stór hluti, en ekki eingöngu,
þvi að þessi fögnuður var lika leynd
uppreisn gegn Franco.
FC Barcelona er nefnilega ekki bara
stolt samnefndrar borgar, frá íþrótta-
legu sjónarmið’.heldur lika stjórnmála-
legu.
Barcelona er höfuðstaður Katalónlu,
sem er héraðið á norð-austur hluta
Spánar, nálægt landamærum Frakk-
lands. Þar búa Katalóniumenn, sem lifa
I sifelldum ótta við stjórn Francos. Mál
þeirra er likt spönsku og er svo til bann-
að. Stjórnmálaréttur þeirra er minni en
hinna héraðanna á Spáni.
FC Barcelona. Þegar Barcelona og
Espanol keppa innbyrðis, er það eins og
landsleikur á milli Katalóniu og Spánar,
og stjórnmálatilfinningar eru ekki siðri
en þær knattspyrnulegu.
Meðal rikustu
félaga heims
FC Barcelona er eitt rikasta félag i
heimi. Það er fjármagnað af hinum
70.000 styrktarmeðlimum og af hinum
100.000 stæðum og sætum, sem völlurinn
tekur. Fastagestirnir borga hver 2200
kr. fyrir stæöi á ári — fastamiðar — og
um 3000 kr. fyrir sæti, sem eru um
FC Barcelona, eða „Barca” eins og
Katalóniumenn kalla það, er þess vegna
ekkert spánskt lið heldur katalónskt.
Sigrinum yfir Madrid er þess vegna tvö-
falt fagnað, þvi að þetta var lika sigur
yfir stjórn Fancos.
Astæðan. Jú, árið 1936, þegar borg-
arastyrjöld geisaði á Spáni, unnu menn
Francos I baráttunni við Katalóniu-
mennina og eftir það var þeirra mál-
lýzka bönnuð með lögum. Þá byrjuðu
Katalóniumenn með FC Barcelona, sem
varð eins konar frelsistákn fyrir þá, og
héldu með liöinu til að sýna andúð slna á
Franco.
Framkvæmdastjóri liðsins, Augustin
Montal, segir: „Við erum það sem við
erum og viö kynnum það sem við kynn-
um...
Neeskens — Hollendingurinn númer
tvö I liðinu.
Hann þoröi auðvitað ekki að segja að
þeir kynntu Katalóniuhérað, þvi að það
er næstum bannorð og hefði getað kost-
að réttarhöld.
Stjórnin 1 Madrid leit þessa þróun
hornauga og skipaði svo fyrir fyrir
nokkrum árum, að stofnað yrði nýtt
félag f Barcelona með hinu spánska
nafni „Espanol”, en það hefur aöeins
12000 styrktarmeðlimi á móti 70.000 hjá
Cruyff — Hollendingurinn númer eitt i
liöinu.
50.000. Einn af stjórnarmeðlimum
félagsins segir: „Fjárhagur okkar er
mjög góður, þvi að við fáum mikinn að-
gangseyri. Minni háttar laugardags-
leikur gefur okkur rúmlega 3.4 millj. i
okkar hlut, en ef stórleikur er, fáum við
um 17 millj. inn.” Hann heldur áfram:
„Við borguðum nálægt 110 millj. fyrir
Cruyff, en af þvi fékk hann um helming
en Ajax hitt. Eftir eitt keppnistimabil
hefur hann borgað sig og er nú beinn
hagnaður af honum. Enginn af leik-
mönnunum fær minna en 3.4 millj. I árs-
tekjur og flestir fá um 5.2 millj.
Ahangendur félagsins gefa út tvö blöð,
sem koma út vikulega, hvort um sig
20.000 eintök, og eru bæði stjórnmála-
lega sinnuð, annað með Katalóniu en
hitt á móti.
Meistaratitillinn kostaði Barcelona
yfir 154 millj. einungis i laun og auka-
þóknanir. 1 hvert skipti — þ.e.a.s. eftir
hverja umferð i deildinni — sem liðið
var i fyrsta sæti,þar fékk hver leikmað-
ur um sig 13.200 kr. i sinn hlut. Hver
styrktarmeðlimur borgaði 2200 kr. til
félagsins eftir að þeir urðu meistarar.
Nú nýlega hefur félagið fest kaup á
hollenzka knattspyrnusnillingnum
Johan Neeskens — sem er einn bezti
vinur Cruyffs. A fyrstu æfinguna eftir
sumarfri komu hvorki meira né minna
um 8000 manns til að horfa á þessa snill-
inga. Það er þvi engin furða, þótt áhang-
endur liðsins segi, að þeir muni vinna
Evrópumeistaratitil meistaraliöa á
næsta ári, en litil áherzla mun vera lögð
á spönsku deildina.
— ey —
Lœknar og hjúkkur í golf
Spilað verður m.a. umferð í alþjóða golfkeppni lœkna,
sem haldin verður í Frakklandi í nœsta mónuði
tþróttasamtök lækna I Frakklandi
hafa boðið einum islenzkum lækni að
koma til Frakklands og taka þar þátt i
alþjóða golfkeppni lækna, sem fram fer
I Vichy I Frakklandi þann 29. september
n.k.
Læknar hafa nú ákveðið að heyja
einvigi — með golfkylfunum og golf-
boltanum um þetta girnilega boö — á
velli Golfklúbbs Ness á Seltjarnarnesi
n.k. þriðjudag og þá jafnframt að finna
út, hver sé bezti kylfingurinn meðal
lækna á íslandi.
Heildverziunin Austurbakki hefur
ákveöiö að gefa verðlaun I þessa keppni,
sem vonast er til, að veröi haldin árlega
úr þessu, og hefur jafnframt látið þau
boð út ganga meðal lækna um allt land,
að þeir mæti á Nesvellinum n.k. þriðju-
dag klukkan fjögur — eða þar um bil —
og leiki um verðlaunin, sem eru mjög
vönduð.
Þegar er vitaö um marga Iækna>sem
ætla i mótið... sumir með hjúkrunarkon-
ur sinar meö sér til að rétta þeim rétt
verkfæri til að slá boltann meö, en
einnig munu nokkrar þeirra ætla að
taka þátt i keppninni.
Óvœnt úrslit
í 3. deild
Austri Eskifirði sigraði Þrótt Neskaupstað
og Reynir Arskógströnd vann Stefni
1 gærkvöldi voru leiknir fjórir
fyrstu leikirnir I 3. deildarúr-
slitunum I knattspyrnu, en þeirri
keppni verður haldið áfram alla
þessa helgi.
A Melavellinum léku Aust-
fjaröarliðin Þróttur Neskaupstaö
og Austri Eskifirði og lauk þeim
leik með óvæntum sigri Austra
2:0. Þróttararnir voru taldir
sieurstranglegastir i þessum
riðli, en útlitið hjá þeim versnaöi
allmikið við þessi úrslit.
Hinn leikurinn i riðlinum var á
milli Reynis af Árskógströnd og
Stefnis frá Súgandafirði. Lauk
honum með sigri Reynis l:0,og
komu þau úrslitekki siður á óvart
en hin.
1 B-riðlinum iéku á Árbæjar-
velli Stjarnan Garðahreppi og KS
Siglufirði. Stjarnan sigraði i
leiknum 2:1, og er þaö minni
munur en búizt var við.
1 Hafnarfirði léku Vikingur
Olafsvik og Reynir, Sandgerði og
varö jafntefli i þeim leik 1:1.
1 kvöld verður mótinu haldið
áfram og verða þá þessir leikir:
A-riðill:Arbæjarvöllur.. Austri —
Reynir Ar., Kaplakrikavöllur:
Þróttur — Stefnir.
B-riðill: Valsvöllur: Reynir
Sandg- — KS, Sigluf., Melavöllur
Vikingur — Stjarnan. Allir
leikirnir hefjast kl. 19,00. — klp —
Fleiri
kœrur?
Eftir að dómur var kveoinn
upp I Elmarsmálinu svonefnda,
hafa ýmsar sögusagnir veriö á
kreiki um ólöglega leikmenn
með 1. deildarliðunum og alls
konar kærur sem séu I undir-
búningi.
Sú sem lengst hefur iifað i er
sú fullyrðing, að Fram ætli að
kæra Viking fyrir að leika með
tvo menn — Kára Kaaber og
örn Guðmundsson, en þeir hafi
báðir leikið með liðum erlendis
á siðasta keppnistimabili.
Samkvæmt upplýsingum,
sem við höfum aflað okkur frá
einum stjórnarmanna I Fram,
mun félagið ekki ætla sér að
kæra út af þessum mönnum —
nóg sé komið af leiðindamálum
innan knattspyrnunnar siðustu
vikurnar. Aftur á móti sagðist
hann ekkert vita. hvað önnur lið
ætluðu sér að gera i málinu.
—klp —
Janus Guðlaugsson og Jón Hinriksson halda hér á einum aðalniarka
skorara liðsins ólafi Danivalssyni.
Evrópumótið í sundi:
Austur-þjóðverjar komnir
með 23 verðlaunapeninga
Austur-þýzku stúlkurnar eiga
nú öll heimsmet i sundgreinum
kvenna nema i 400 og 800 metra
bringusundi. Kornelia Ender,
sem þegar er búin að setja heims-
met i 100 metra skriðsundi, bætti
heimsmet Shane Gould i 200
metra skriðsundi á Evrópumót-
inu er hún synti á 2:03,22 sek eba
0,34 betri tima en Gould. 1 fyrsta
skiptið i keppninni fengu austur-
þýzku stúlkurnar ekki bæði gull
og silfur, þvi að hollenzka stúlkan
Enith Brigitha varð önnur á að-
eins lakari tima 2:03,73.
Rússinn Samsonov sigraði
naumlega i 400 metra fjórsundi
karla, synti á 4:02,11 min
Gingsjoe Sviþjóð varð annar á
4:03.79.
Skipting verðlaunapeninga I
mótinu til þessa er sem hér seeir:
Gull Silfur Brons.
Austur-Þýzkaland 10 9 3
Vestur-Þýzkaland 3
Sovétrikin 2
Ungverjaland 2
Holland 0
Bretland 0
Sviþjóð 0
Frakkland 0
ttalia 0
2 1
2 4
0 2
2 1
1 2
1 2
0 1
0 1
Carla Linke frá Austur-Þýzkalandi, sem setti heimsmetið I 200 metra
bringusundi á Evrópumótinu....synti á 2:34,99 min.
Lokaspretturinn
hefst í kvðld
Baróttan í l.deild byrjar aftur með leik KR og Fram
t kvöld hefst 1. deildarkeppnin i
knattspyrnu aftur eftir nokkurt
hlé og þar með lokaspretturinn I
þessari spennandi keppni.
Það er KR og Fram.sem byrja
balliö og þá að sjálfsögðu á
Laugardalsvellinum, en leikurinn
hefst kl. 19.00.
Þetta er mikilvægur leikur —
eins og allir leikirnir, sem eftir
eru I deildinni — KR-ingarnir
hafa að 2. sætinu i deildinni að
keppa og Framararnir um tilveru
sina þar, en hún er heldur vafa-
söm þessa dagana.
Þá verða tveir leikir I 2. deild i
kvöld. 1 Kópavogi leika Breiða-
blik og Ármann, og á Selfossi
leika Selfoss og Haukar. Þessir
leikir skipta litlu máli nema fyrir
Ármann, sem enn er I fallhættu og
þarf á stigi að halda til að tryggja
sér sætið I deildinni næsta ár.
FH fer upp í 1. deild
Sigraði Þróft í gœrkveldi 1:0 og þar með eru
„óskabörnin hans Árna" í fyrsta sinn í 1. deild
í gærkveldi var háður
úrslitaleikurinn i 2. deild
milli FH og Þróttar.
Sigruðu FH-ingar i
ieiknum 1:0 og er það i
fyrsta skipti siðan knatt-
spyrnudeild FH var
stofnuð, sem þeir kom-
ast i 1. deild.
Leikurinn I gær var þófkenndur
og fremur illa leikinn, en það,
sem eitthvert vit var i, kom þó frá
FH-ingum.
Þeir voru friskari og lagnari
með knöttinn, og þau fáu tæki-
færi, sem komu i leiknum, voru j
þeirra. Strax á 11. minútu fyrri
hálfleiks skoraði Helgi Ragnars-
son fyrir FH, eftir að Janus Guð- i
laugsson haföi gefiö vel fyrir
markið. Mark þetta má skrifa á
reikning markvarðar Þróttar,!
sem kom út á röngu augnabliki.
Stuttu siðar fengu FH-ingar
annað dauðafæri, er bezti |
Munu standa sig
vel í 1. deild"
,/Strákarnir hafa æft
sig mjög vel í sumar og
áttu reglulega skilið að
vinna 2. deildina, því að
ég tel þá vera með bezta
liðið í deildinni. Því að ég
tel þá vera með bezta
liðið í deildinni. Þeir unnu
alla sína leiki á útivöll-
unum en gerðu þrjú jafn-
tefli í heimaleikjunum",
sagði Pat Quinn, hinn
skozki þjálfari FH-
ingana.
„Ég tel, að þeir muni
standa sig vel i 1.
deildinni á ári komanda,
því að þá mun knatt-
tækni leikmanna njóta sín
betur á grasi, en allir eru
þeir mjög tekniskir. Ég
hef ekki ennþá tekið
ákvörðun um það, hvort
ég muni dvelja áfram
næsta ár hjá FH, þó svo
aðég hafi mikinn áhuga á
því".
maður þeirra.Magnús Brynjólfs-
son, komst upp að endamörkum
og gaf vel fyrir markiö, en ólafur
Danivalsson var of seinn að
skjóta og Þróttarar björguöu.
Einu umtalsverðu tækifæri
Þróttar i hálfleiknum voru, er
Gunnar Ingvarsson, fyrirliði liðs-
ins, átti skot, sem datt ofan á
þverslá FH marksins og er Aöal-
steinn Aðalsteinsson komst inn
fyrir vörn FH en „kiksaði” i góöu
færi.
Siðari hálfleikur var svipaður
og sá fyrri nema FH-ingar voru
öllu aðgangsharðari i honum,
enda léku þeir þá undan vindi. A
55. minútu komst ólafur Dani-
valsson einn inn fyrir vörn Þrótt-
ar eftir góða sendingu frá Loga
Ólafssyni.en markvörðurinn kom
út á móti og náði að krafsa
boltann af iionum, sem hrökk til
Loga Ólafssonar, :sem skaut
framhjá.
Þorgeir Þorgeirsson komst upp
að endamörkum FH marksins á
66. miaen skaut I staðinn fyrir að
gefa knöttinn út I vítateiginn, og
boltinn lenti i hronafánanum!!
Rétt fyrir leikslok skaut Helgi
Ragnarssori góðu skoti rétt fyrir
utan vitateiginn, en knötturinn
lenti i samskeytunum, og þaðan
skoppaði hann út, og Þróttarar
náðu að hreinsa. Þar með er allt
markvert upptalið, sem skeði I
þessum leik.
Eins og fyrr segir voru FH-ing-
ar vel að sigrinum komnir. Liöiö
er nokkuð jafnt, en þó fannst mér
vinstri bakvörðurinn, Magnús
Brynjólfsson vera beztur FH-inga
og vallarins. Hjá Þrótti var
Halldór Bragason beztur.
— ey —
Glímuþing
11. glimuþing Glimusambands
Islands verður haldið á Hótel
Esju sunnudaginn 20. okt. n.k. og
hefst kl. 13.
Unglingamót í frjólsum
Um aðra helgi....31. ágúst og 1. september...fer fram að Laugum I
Suður-Þingeyjarsýslu unglingakeppni I frjálsum iþróttum.
Keppt verður i þrem flokkum, drengjaflokki, sveinaflokki og
stúlknaflokki. Rétt til þátttöku i þetta mót eiga fjórir beztu einstak-
lingarnir i hverri keppnisgrein, en þeir eru vaidir meö hliðsjón af skrá,
sem Laganefnd FRÍ hefur gert um árangur hjá hinum ýmsu féiögum
og héraðssamböndum viðsvegar um landið.
Flest okkar unga iþróttafólk, sem staðið hefur i eldlinunni i sumar
verður þarna meðal keppenda og má búast við góðu móti og góðum
árangri i m&rgum greinum.
Unglingamót í sundi
Um aðra helgi....31. ágúst og 1. september fer fram i Sundhöllinni i
Reykjavik unglingameistaramót Islands i sundi.
t þessu móti verður keppt i 32 sundgreinum og verða keppendur viös-
vegar að af landinu, cn þarna verður keppt i stúlkna- og drengjaflokki
og telpna- og sveinaflokki yngri og eldri en 12 ára.
Mótið er stigakeppni milli félaga og héraössambanda og eru veitt
stig fyrir sex fyrstu sætin I öllum greinunum. Sundsamband tslands sér
um mótið, en I sambandi við þaö verður haldið sundþing I Reykjavik
dagana 28. og 29. september.
Sigurlið FH-inga I 2. deild.
Efri röð frá vinstri.
Janus Guðlaugsson, Ólafur Danivalsson, Jón Hinriksson Gunnar
Bjarnason, Asgeir Arnbjörnsson, Pálmi Sveinbjörnsson, Jóhann
Rikharðsson, Logi Ólafsson, Jón Rúnar Halldórsson.
Neðri röð frá vinstri.
Viðar Halldórsson fyrirliði, Leifur Helgason, Ómar Karlsson, Friörik
Jónsson, Helgi Ragnarsson, Magnús Brynjólfsson og þjálfarinn, Pat
Quinn.