Vísir - 23.08.1974, Blaðsíða 16
Fremst er hjálparsveit Maju, þær Gugga, Linda og Þóra. Viö hlið
er ánægö meö snia.þó aö þeir séu ekki eins stórir. (Ljósm. Visis Bj.
r r
Guggu stendur Addi. Þorleifur sýnir okkur stóran káihaus og Júlia
Bj.)
ROFA I VtRÐlAUN, - tf ÞU RtYTIR Vtl
Þau eru ekki litið ánægö
börnun i skóiagörðunum, enda
veðrið i sumar búiö að vera meö
eindæmum gott og uppskeran
eftir þvi góö.
Þessa krakka hittum við I
Laugardalnum. Þorleifur 12 ára
var nærri búinn að taka upp úr
sinum garði og sagði, að
mamma sin væri ánægð með að
fá alltaf nýtt grænmeti. Tvi-
burarnir Addi og Júlia,10 ára úr
Heyrnleysingjaskólanum,
brostu út undir eyru, þegar
Visismenn skoðuðu hjá þeim
uppskeruna. En Maja 8 ára .var
nú aldeilis ekki ein með sinn
garð, hún hafði heila sveit
hjálparmanna, bæði við að
reyta i sumar og til þess að taka
upp, enda voru lika verðlaun i
boði. Ein rófa svona við og við.
Systir hennar, Gugga 6 ára,
sagði okkur, að systurnar Þóra
7 ára og Linda 6 ára væru
sænskar, þess vegna töluðu þær
svona vitlaust, en þeim væri
alltaf að fara fram og vissu
nærri þvi alveg hvað héti
blómkál, hvitkál, rófa og næpa.~
Vel á minnzt, auðvitað fenguu
Visimenn næpu með sér i nesti. I
Ein búðin seldi 15 tonn
af kjöti í þessum mánuði
— og biðröð út á götu í gœr
VÍSIR
Föstudagur 23. ágúst 1974.
Hegn-
ingor-
húsið
tekið
í gegn
Talsverðar lagfæringar
standa nú til á Hegningar-
húsinu við Skólavörðustíg.
Reyndar hefur staðið til að
hefja framkvæmdir frá
því 16. júlí, en trésmiðir
hafa haft mikið að gera,
því að enn hefur ekki verið
hafizt handa.
Að sögn Valdimars Guðmunds-
sonar, yfirfangavarðar i
Hegningarhúsinu, stendur ekki til
að breyta húsinu á neinn hátt, þvi
að það verður að fá að haldast
óbreytt.
En ýmsar lagfæringar þarf að
gera á þvi, og er þá fyrst að nefna
lagfæringar á gólfi og lofti. Þá
verður að vinna talsvert viö
eldhúsið, og rafmagnslagnir þarf
aö endurskoða.
■ Hér er um að ræða talsvert
verk, og ekki er hægt að opna
Hegningarhúsið á ný fyrr en þvi
er lokið. Starfsmenn þess eru nú i
sumarleyfi, og hefur húsið verið
lokað á meðan, eða siðan 16. júli.
Sumarleyfunum lýkur 29. þessa
mánaðar, að sögn Valdimars, en
vinna átti að verkinu á meðan á
þvi stóð.
— EA.
„Erum vel ó
verði þegar
íslenzkur
bótur kemur
úr viðgerð
ó megin-
landinu"
— segir norskur
tollstjóri
„Þegar islenzkur bátur kemur
hingaö úr viögerö á meginland-
inu, finnst okkur ástæöa til aö
vera vel á verði,” sagöi tollstjór-
inn i norska bænum Egersund i
viötali við norskt blaö.
,,É:g hef verið svo
heppinn, að ég verzla
við sláturfélag úti á
landi og hef aðeins
keypt kjöt hjá Afurða-
sölu SÍS, þegar mig
hefur vantað inn i á
milli. Ég hef þvi haft
kjöt á boðstólum i allt
sumar og hef haft þá
reglu, að hver við-
skiptavinur fái frá 3 kg
upp i 5 kg, sagði Hrafn
Bachmann, eigandi
Kjötmiðstöðvarinnar, i
viðtali við blaðið i gær.
Hrafn sagði þó, að nú færi
kjötið að verða búið hjá sér.
Hefði hann haft samband við
marga kjötkaupmenn úti á
landi, sem hefðu sömu sögu að
segja og gætu þeir ekki fengið
kjöt i frystihúsum þar, þvi að
það væri ekki til. A fyrstu tiu
dögum eftir að kjötið lækkaði
seldist hjá Hrafni sama magn
og áður á tveim og hálfum mán-
uði.
— Hvað heldurðu, að þu sért
búinn að selja mikiö kjöt i þess-
um mánuði? —
,,Ég gæti trúað,að ég sé búinn
að selja upp undir 15 tonn”,
sagði Hrafn og hann bætti við
',,Það er biðröð út á götu hjá mér
núna”.
,,Er kprfið rotið? Bankarnir
lána afurðalán út á birgðir af
kjöti. Þrátt fyrir það, að sölu-
samtökin sendi mánaðarskýrslu
til Framleiðsluráðs land-
búnaðarins, þá er manni i huga,
hvort skýrslan sé sannleikanum
samkvæm. Sölusamtökin geta
hafa notað peningana i annað,
(þetta eru lán með lágum vöxt-
um). Þeir gætu hafa ætlað að
greiða peningana á siðasta sölu-
timabilinu t.d. i júni, júli eða
ágúst, en allt i einu kemur þessi
verðlækkun fram og þá geta
menn ekki breytt skýrslu, sem
þeir eru búnir að senda og
verða þar af leiðandi fyrir stór-
kostlegu tjóni”, sagði Hrafn.
EVI
GUMMITEKKAR I HAMARKI
Grindvikingur frá Grindavik
var einmitt að koma úr viðgerð i
Hollandi fyrir stuttu, og kom þá
við i Egersund. Sex tollverðir frá
Egersund og Stavangri fóru um
borð I bátinn og höfðu hvorki
meira né minna en 663 flöskur af
brennivini, 72 flöskur af kampa-
víni, 88 kassa af bjór og nær
90.000 sigarettur og 3000 vindla
upp úr krafsinu.
Tollverðirnir grófu þetta gifur-
lega magn upp i vatnstönkum
bátsins og skáp I bátnum. Einn úr
áhöfninni tók á sig alla sökina og
var sektaður um sem svarar til
nær milljónar króna. Hann sagði,
að ætlunin hefði verið að skipta
smyglinu milli bátsverja.
— JB.
— segir Seðla-
bankastjóri,
og varar fólk
við að vera of
grandalaust
gagnvart
útgófu
óvísana
„Óinnleystir tékkar
eru i hámarki hjá okkur
núna. Við þær aðstæður,
sem nú rikja, hefur
útgáfa innistæðulausra
ávisana magnazt, svo að
ástandið er slæmt,”
sagði Björn Tryggva-
son, Seðlabankastjóri, i
viðtali við Visi i morgun.
Hann sagði, að erfiðlega hefði
gengið að innheimta óinnleysta
tékka, sem bankanum hefðu
borizt, en sumartiminn væri oft
erfiður til þess arr,a.
„Einfaldast er, að fólk verði
varkárara við að taka við
ávfsanagreiðslum. Það má
hringja í viðskiptabanka þess
sem gefur út ávisunina, og kanna
hvort innistæða fyrir viðkomandi
ávfsun sé næg”, sagði Björn.
Hann bætti þvi við, að ein
algeng ástæða fyrir þvi að fólk
færi yfÍF á ávisanareikningum
sinum, væri trassasakpur við að
telja saman allar smáávisanirnar
sem það gefur út. Fyrr en varði
væri komið yfir á heftinu.
Björn sagði einnig, að vandræði
hefðu skapazt vegna útgáfu
ávisana hjá fyrirtækjum, sem
hefðu yfirdráttarheimild. Oft eru
yfirdráttarheimildirnar óljósar,
og það kemur fyrir.að lokað sé
fyrir reikning fyrirtækja, og þeir
tékkar sem gefnir höfðu verið út i
góðri trú umfram yfirdráttar-
heimildina, væru þá orðinir
gúmmitékkar.
Aðspurður, hvort mætti eiga
von á skyndikönnun á innistæðu-
lausum ávisunum, sagði Björn.að
slikt væri að sjálfsögðu aldrei
tilkynnt fyrirfram. — óH